Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 20 kr. eintakiö. Hræddir heims- valdasinnar Lév Kopelév er einn þeirra sovésku menntamanna sem ofsóttir voru í stjórnar- tíð Stalíns. Kopelév er rit- höfundur og bókmennta- fræðingur. Hann var rekinn úr sovéska kommúnista- flokknum 1945 og dæmdur í tíu ára fangelsi og fimm ára útlegð 1947. Eftir dauða Stalíns eða á árinu 1954 var Kopelév leystur úr haldi og endurreistur 1966. En á ný- stalínstímanum í Sovétríkj- unum undir forystu Leonid Brezhnevs eftir að lokásam- þykktin í Helsinki hafði ver- ið undirrituð og slökunar- skeiðið náð hámarki sætti Lév Kopelév ofsóknum að nýju í Sovétríkjunum. Hann var rekinn úr Rithöfunda- sambandi Sovétríkjanna 1975 fyrir að taka þátt í starfi mannréttindanefndar og fluttist til Vesturlanda fyrir tæpum þremur árum. í Morgunblaðinu á sunnu- dag birtist fróðleg grein eftir Lév Kopelév, þar sem hann tekur sér fyrir hendur að leiðrétta þann „misskilning" sem hann telur ríkja hjá alltof mörgum á Vesturlönd- um þegar tekin er afstaða til Sovétríkjanna. Kopelév er þeirrar skoðunar að ekki eigi að meta Sovétstjórnina á þeim forsendum að þar ráði marxistar-lenínistar sem stefni að heimsyfirráðum. Hann segir að hin eiginlega hugmyndafræði þeirra sem tróna í Sovétríkjunum hafi á síðari árum „fengið á sig æ greinilegra yfirbragð ríkis- sinnaðrar, þjóðernissinnaðr- ar eða öllu heldur þjóðremb- ingslegrar stórveldis- hugmyndafræði". Marxism- inn-lenínisminn sé notaður til að veiða „nytsamar mýs“ erlendis og í skjóli þeirrar hugmyndafræði séu „fórn- fúsir samsærismenn ginntir til dáða, ódýrir njósnarar og flugumenn fengnir til starfa fyrir málstaðinn; forvígis- menn og brautryðjendur fyrir síaukna sovéska nýlendusókn í öllum heims- hlutum." Segir Kopelév að það sem ráði ferðinni hjá æðstu stjórnendum Sovét- ríkjanna jafnt í vígbúnaði sem á öðrum sviðum sé ótti þeirra við að missa eigin for- réttindi. Þessi ótti sovésku yfirstéttarinnar hafi leitt til ofsókna gegn öllum andófs- hreyfingum, blóðbaðsins í Ungverjalandi 1956, innrás- arinnar í Tékkóslóvakíu 1968 og innrásarinnar í Afganist- an 1979. Telur Kopelév að ekki beri að ýta undir þenn- an ótta sovéskra valda- manna en bætir við að það kynni að vera ennþá hættu- legra að veita þeim einhliða tilslakanir og halda áfram viðskiptum við þá eins og ekkert hafi í skorist. Mikil- vægast sé að fá þá ofan af mannréttindabrotum. Lév Kopelév getur því mið- ur ekki frekar en aðrir fellt endanlegan dóm um það hvað fyrir sovéskum valda- mönnum vakir. Það kann að vera rétt hjá honum að það sé misskilningur hjá mörg- um á Vesturlöndum að Kremlverjar stefni mark- visst að heimsyfirráðum í samræmi við kenningar Marx og Leníns. En það er ekki betra að sölsa undir sig æ fleiri ríki í nafni þessara kenninga þótt það sé gert vegna „þjóðrembingslegrar stórveldis-hugmyndafræði" með aðstoð „nytsamra músa“ og í hræðslu- og óttakasti. Niðurstaða Kopelévs er sú sama og allra annarra sem gera sér grein fyrir hættu- legu eðli sovéska valdakerf- isins, að það verður að mæta því af festu og í styrkleika án þess að gera einræðisherr- ana svo hrædda um eigin stöðu að þeir grípi til óhæfu- verka og grandi jafnvel öllu mannkyni. Miðað við reynslu Kopel- évs sjálfs er eðlilegt að hann telji mikilvægast að Vestur- lönd beini kröftum sínum einkum að því að fá sovéska valdamenn til þess að auka mannréttindi í kommúnista- ríkjunum. En það er mis- skilningur hjá Kopelév ef hann heldur að þetta hafi ekki verið reynt. Utanrík- isstefna Jimmy Carters, for- seta Bandaríkjanna á undan Ronald Reagan, byggðist að verulegu leyti á því að berj- ast fyrir mannréttindum. Á þeim tíma var korn ekki selt til Sovétríkjanna vegna mannréttindabrota. Þá var talið jafn óheppilegt að Bandaríkjastjórn gæfi út yf- irlýsingar um mannréttindi eins og nú að Bandaríkja- stjórn segist ekki ætla að láta undan síga í vígbúnað- armálum. 42. fiskiþing haflð 42. FISKIÞING hófst í gær í húsi Fiskifélags íslands. Þorsteinn Gísla- son, fiskimálastjóri, setti þingið en að því loknu voru flutt ávörp og fram- söguerindi. Sjávarútvegsráðherra Halldór Ásgrímsson ræddi ástandið í sjávarútvegsmálum, stöðuna miðað við tillögur fiskifræðinga um 200.000 lesta þorskafla á næsta ári, markaðsmál og skipulagningu veiða á næsta ári. Ingvar Hallgrímsson, fiskifræðingur, ræddi meðal annars um rækjuveiðar og veiðar á öðrum krabbadýrum. Geir Arnesen, að- stoðarframkvæmdastjóri Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins, flutti erindi um starfsemi stofnun- arinnar. Flutt var skýrsla fiski- málastjóra og Hilmar Bjarnason ræddi nýja möguleika í veiðum og vinnslu og urðu talsverðar umræður um það mál. Fiskiþingi verður fram haldið í dag, þriðjudag,. og áætlað er að því ljúki á föstudag. Þingfor- seti var kosinn Hilmar Bjarnason, varaforseti Ingólfur Stefánsson, fundarritari Jón Páll Halldórsson og vararitari Benedikt Thorarensen. Fylgjandi fækkun togara á þéttbýlissvæðunum — segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráöherra „AFTURKIPPURINN í sjávarútveg- inum, sem hófst 1982, hefur haft víð- tæk áhrif á efnahagslífið í landinu. Þær upplýsingar, sem nú berast frá fiskifræðingum um ástand þorsk- stofnsins, eru ógnvekjandi. I þjóð- hagsáætlun fyrir árið 1984 var gert ráð fyrir sömu aflabrögðum og á þessu ári. Við þær aðstæður var áætl- að að sjávarafurðir yrðu 77% af út- flutningstekjum þjóðarinnar," sagði sjávarútvegsráðherra, Halldór As- grímsson, í upphafi ávarps síns á Fiskiþingi í gær. „Ef farið verður eftir tillögum fiskifræðinga um 100.000 lesta minni þorskafla á næsta ári, þýðir það 15% samdrátt í sjavarútvegs- framleiðslunni eða 2.300 milljónir króna, sem eru um 10— 11% sam- dráttur í heildarútflutningsfram- leiðslu þjóðarinnar. Það er því augljóst hversu mikilvægur sjáv- arútvegurinn er íslenzku efna- hagslífi," sagði Halldór Ásgríms- son ennfremur. Þá sagði Halldór, að 100.000 lesta samdráttur, sem ekki yrði bættur með öðrum veiðum og ann- arri framleiðslu, hlyti að leiða til nokkurs atvinnuleysis. Þá rakti hann markaðsmál og þróun þeirra á undanförnum árum og gat þess hve mikilvægt væri að Bandaríkja- menn ykju fiskneyzlu sína. Þá vék Halldór að hugmyndinni um fækkun togara og gat þess, að hann hefði aldrei tilgreint neina ákveðna tölu í því sambandi. Það yrði að kanna það hvernig hægt væri að fækka togurunum og þá á hvaða svæðum það yrði gert. Sagð- ist hann fylgjandi því að fækkunin yrði helzt á þéttbýlissvæðum, þar sem möguleikar væru á annarri atvinnuuppbyggingu í stað sjávar- útvegsins. Sem dæmi mætti nefna að rætt væri um það að stækka álverið í Straumsvík um helming, en ekki væru uppi neinar hug- myndir um uppbyggingu orkufreks iðnaðar á Vestfjörðum. Markaðsverð og sölumöguleik- ar liggi fyrir — áður en farið verður út í veiðar á nýjum fiskistofnum FULLTRÚAR á fiskiþingi voru yfir- leitt sammála um það er rætt var um nýja möguieika í veiðum og vinnslu, að tilgangslítið væri að ræða um eða reyna veiðar á van- eða ónýttum fískistofnum fyrr en markaðsverð og sölumöguleikar lægju fyrir. Þá töldu sumir fulltrúa einnig, að breyta þyrfti lögum um fískveiðar hvað varðaði möskva- stærð, svo unnt yrði að veiða sumar hinna smærri tegunda eins og lang- hala til dæmis. Hilmar Bjarnason hafði fram- sögu um þetta mál og rakti hann tillögur hinna ýmsu deilda Fiski- félags íslands um þetta mál. Hann gat þess meðal annars að landsbyggðarmönnum sýndist að nær hefði verið að verja fjármun- um til að auka hafrannsóknir og leita markaða fyrir sjávarafla, en byggja sífellt fleiri verslunar- hallir á höfuðborgarsvæðinu, þar sem ærið nóg virtist vera af þeim fyrir. Hilmar minntist á nokkrar fiskitegundir, sem til greina kæmi að auka veiðar á og nefndi út- hafsrækju, skarkola og aukningu dragnótaveiða, langhala, smokk- fisk og laxveiðar í sjó. Smyslov og Ribli skiptust á mistökum TAFLMENNSKA þeirra Smyslovs og Riblis hefur valdið töluverðum von- brigðum um helgina. Á laugardaginn leit út fyrir harða baráttu í þriðju skákinni þegar þeir öllum að óvörum ákváðu að leggja niður vopn eftir að- eins sextán leiki. í gærkvöldi fékk Ri- bli síðan frábært tækifæri til að ná forystunni í einvíginu eftir ónákvæma byrjun heimsmeistarans fyrrverandi, en lék þá sjálfur af sér og Smyslov greip tækifærið og rétti úr kútnum. Þegar fjórða skákin átti síðan að fara í bið eftir 44 leiki, var staðan svo hnífjöfn að hvorugur sá ástæðu til að tefla frekar. Taflmennska þeirra hefur því verið allt annað en óaðfínnanleg upp á síðkastið. 3. skákin: Hvítt: Vassily Smyslov Svart: Zoltan Ribli ('olle-hyrjun I. d4 — Rf6, 2. Rf3 — e6, 3. e4 Smyslov er ekki í miklum vígahug eftir tap í annarri skákinni. Colle- byrjunin er einhver sú allra róleg- asta sem völ er á. Hér áður fyrr beitti Guðmundur S. heitinn Guð- mundsson henni að staðaldri. 3. — c5, 4. Bd3 — Rc6, 5. (ÞO — Be7, 6. b3 — b6, 7. a3 — Bb7, 8. Bb2 — Hc8, 9. Rbd2 — 0-0, 10. De2 — He8, II. Iladl — Bf8, 12. dxc5 Með þessu veikir Smyslov stöðu sína á miðborðinu, en fær í staðinn viss sóknarfæri. 12. — bxc5, 13. Rg5 — e5, 14. c4 — Rd4! Óvæntur leikur. Eftir 15. exd4?! — exd4, 16. Rge4 — Rxe4, 17. Rxe4 — f5, stendur svartur betur. 15. Del — Db6, 16. f4! Enn þreifar Smyslov fyrir sér á kóngsvæng. 16. — e4! í þessari flóknu og tvísýnu stöðu féllust kapparnir síðan á jafntefli. Framhaldið gæti t.d. orðið: 1) 17. exd4? — exd3, 18. Dh4 — He2, með sterku frumkvæði svarts. 2) 17. Bbl — Rxb3 (17. — h6,18. exd4 er hæp- ið), 18. Dh4 — h6, 19. Bxf6 — hxg5, 20. fxg5! með afar óljósri stöðu. 4. skákin: Hvítt: Zoltan Ribli Svart: Vassily Smyslov Slavnesk vörn 1. d4 — d5, 2. c4 — c6, 3. Rc3 — Rf6, 4. e3 Nákvæmasta leikjaröðin gegn Smyslov, því heimsmeistarinn fyrrverandi hefur teflt afbrigðið 4. Rf3 — dxc4 í næstum 40 ár með góðum árangri. 4. — e6, 5. Rf3 — Rbd7, 6. Bd3 — dxc4, 7. Bxc4 — b5, 8. Bd3 Grunnstaðan í Meran-vörn. Smyslov hefur vart undirbúið sig sérstaklega fyrir að tefla þetta af- * brigði, því hann teflir framhaldið mjög ósannfærandi. 8. — a6, 9. e4 — c5, 10. d5 — Bb7. Hér er 10. — c4, 11. dxe6 — fxe6, 12. Bc2 — Bb7 langalgengast. 11.0-0 — Be7. i Svartur þolir ekki að opna taflið i með 11. — exd5 fyrr en hann hefur i lokið liðsskipan sinni. ; 12. Bf4! — Rh5, 13. Be3 — e5. Dapurlegur leikur, því biskupinn ] á b7 verður alveg áhrifalaus. 14. a4! — b4, 15. Rbl Hvítur hefur náð yfirburðastöðu og býr sig undir að hertaka c4-reit- inn með riddara. i 15. — 0-0, 16. Rbd2 — He8, 17. Hel — Bf8, 18. g3 — g6, 19. Hcl Hér átti hvítur fjölmargar leiðir til að viðhalda stöðuyfirburðum sín- i um. T.d. 19. Dc2 — Rhf6, 20. Bfl og næst 21. Rb3 eða 21. Rc4, eða 19. 1 Rc4! - Rhf6 (19. - Bxd5?, 20. exd5 — e4, 21. Bg5! gekk ekki fyrir svart ! í þessari stöðu), 20. Rfd2 og hvítu ; riddararnir fara brátt að njóta sín á drottningarvængnum. 19. — Rhf6, 20. Rb3? ] Ribli hyggst sækja að svarta peð- inu á c5, en hefur misreiknað sig illilega. Þessi leikur þarfnaðist meiri undirbúnings, 20. Dc2 eða 20. Bbl var því miklum mun betra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.