Morgunblaðið - 29.11.1983, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983
41
Logsuðudaman Lipurtá
Kvíkmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
HÁSKÓLABÍÓ: FLASHDANCE
Leikstjóri: Adrian Lynne. Handrit:
Tom Hedley og Joe Eszterhas.
Tónlist: Giorgio Moroder. Aðal-
hlutverk: Jennifer Beals, Michael
Nori, Lilia Scala. Bandarísk, gerð
1983 af Paramount Pictures.
Kvikmyndin Flashdance er
sniðin í kringum fjöruga dans-
tónlist og snjalla diskódansara
en dramatíkin og trúverðugheit-
in skilin eftir heima.
Efnileg dansmær (J. Beals)
hefur í sig og á við logsuðu í
iðjuveri í stálborginni Pitts-
burgh. Hún er að safna fyrir
námi í listdansi, æfir sig stíft
eftir vinnu og sýnir auk þess
dans á hverfiskránni.
Þá kemur til sögunnar sykur-
sætur náungi, nýskilinn og til í
tuskið og ekki sakar að kauði er
einn af eigendum stáliðjuvers-
ins.
Síðan elskast þau og rífast
lungann af myndinni, logsuðu-
daman fótafima og hennar ít-
alsk-ættaði boss, uns að þeim
óumflýjanlegu endalokum kem-
ur (þegar myndir sem þessi eiga
hlut að máli), að ástin sigrar og
tindilfætla kemst í ballettinn.
Ekki ýkja merkilegur efnis-
þráður enda byggist hér allt á
dansmenntinni, diskótónlistinni
og ljósasýningum. Veröld leik-
stjórans er óþægilega óraun-
veruleg en ósanngjarnt væri að
Beals á dansgólfinu.
dæma myndina eftir því. Ætlun-
arverk hans var að gera hressi-
lega skemmtimynd, a la Sat-
urday Night Fever, fyrir diskó-
sjúk ungmenni og það hefur
lukkast bærilega. Allavega hefur
enginn kvartað yfir aðsókninni.
Myndir eins og Flashdance
standa og falla með dönsurun-
um. Allir muna hressilega
frammistöðu Travolta í Sat-
urday Night Fever, hér er það
ung og reynslulaus stúlka, Jenni-
fer Beals, sem valin var til að
stela senunni úr þúsundum um-
sækjenda.
Beals er kattliðugur engla-
kroppur, með frítt og frekjulegt
andlitsfall og frjálslega fram-
komu. Og góð er hún í dans-
menntinni. Hins vegar er Beals
ekki nægilega sterk týpa (og
ekki hjálpar handritið uppá sak-
irnar), til að komast í hóp með
Travoltunum, en kemst samt dá-
vel frá sínu og þar með er mynd-
inni borgið.
Kvikmyndatakan er ljómandi
góð og dansatriðin — kóreógraf-
ían, sömuleiðis. Beals fékk hjálp
frá ónafngreindri dansmær í
erfiðustu atriðunum, en þau eru
það vel felld inn í að enginn gef-
ur þeim gaum.
Leikstjórn Lynnes er ekki sem
best utan dansgólfanna og sú
mynd sem hann dregur upp af
hversdagslífi logsuðudömu í
stálborg harla hjákátleg.
En dansinn dunar af krafti og
stendur fyrir sínu, þar með
myndin öll að vissu leyti. (Þó
hefði ég frekar viljað fylgjast
með negrapiltunum tveim sem
fram koma í snjöllu dansatriði á
götunni.)
Eskja - fjórða
bindið komið út
ÚT ER komið 4. bindi „Eskju —
bókarinnar um Eskifjörð" eftir Ein-
ar Braga.
I frétt um bókina segir, að hún
fjalli um sögu verkalýðshreyf-
ingarinnar á Eskifirði. Bókin er
264 síður, prýdd 220 myndum. Á
næsta ári eru 80 ár frá stofnun
fyrsta verkamannaféiags á Eski-
firði. Það varð skammlíft, en
haustið 1914 var stofnað Verka-
mannafélagið Árvakur, sem enn
starfar. Verkakonur voru í sér-
stöku félagi, Framtíð, frá 1918 til
1971, er félögin sameinuðust undir
nafni Árvakurs. Er það eitt hið
elsta og langfjölmennasta félagið
á staðnum og gætir hagsmuna
bæði sjómanna og verkafólks.
Vegna fyrrnefndra tímamóta
ákvað Árvakur að standa straum
af kostnaði við útgáfu þessa bindis
af Eskju.
Liðin eru 17 ár frá því er undir-
búningur hófst að skráningu á
sögu Eskifjarðar og 12 ár síðan
fyrsta bókin kom út. Hefur sér-
stök byggðarsögunefnd, sem starf-
ar í umboði bæjarstjórnar, unnið
að framgangi málsins í nánu sam-
starfi við höfundinn. Alls eru
þessi fjögur bindi yfir 1200 síður
og myndir á sjöunda hundrað.
Stefnt er að því að ljúka megin-
verkinu fyrir 200 ára afmæli
kaupstaðarins, en Eskifjörður var
einn þeirra sex verslunarstaða,
sem fyrstir hlutu kaupstaðarrétt-
indi 18. ágúst 1786. Síðan hafa
menn hug á að halda útgáfu sögu-
Einar Bragi
ritsins áfram um ókomin ár, eftir
því sem efni fellur til og ástæður
leyfa.
Á hlífðarkápu er litmynd af
Hólmatindi eftir Bolla Davíðsson.
Útgefandi er Byggðarsögunefnd
Eskifjarðar.
Örn og Örlygur:
Fjórar nýjar
„Allt í lagi“ bækur
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur
hefur gefið út fjórar nýjar „Allt í
lagi“-bækur en fyrir þremur árum
gaf útgáfan út nokkrar slíkar sem
seldust samstundis upp.
„Allt í lagi“-bækurnar eru skrif-
aðar af hlýju og prýddar litmynd-
um. Þær eru samdar með það í
huga að gefa börnum á fyrstu ald- j
ursárunum einfaldar, uppörvandi
skýringar á ýmsu sem þau kunna !
að óttast eða sætta sig ekki við.
Hver bók endar vel enda er til-
gangurinn að sýna fram á að það
sé ekki allt sem sýnist, það sé í
rauninni allt í lagi. Höfundarnir,
Jane Carruth, sem samdi textann,
og Tony Hutchings, sem teiknaði
myndirnar, hafa það að markmiði
að kveða niður óþarfa kvíða og
ótta hjá börnum. Andrés Ind-
riðason þýddi textann. Bækurnar,
sem nú koma út, heita: Á spítala,
Heillagleraugun, Nýir vinir, Tann-
læknirinn er góður.
Filmusetning og umbrot var
1 Tannlæknirinn
if er góður f
unnið hjá Svansprenti en prentun
og band á Ítalíu.
Metsölublcu) á hverjum degi!
Hljómplata með
söngvum og leik
úr Brúðubflnum
Hljómplötuútgáfan Skífan hefur gef-
ið út plötuna „Brúðubíllinn", en und-
anfarin fimm sumur hafa brúðuleik-
þættir verið fluttir úr Brúðubflnum á
gæsluvöllum borgarinnar undir stjórn
þeirra Helgu Steffensen og Sigríðar
Hannesdóttur, auk Þórhalls Sigurðs-
sonar sem bættist í hópinn á liðnu
sumri.
Á Brúðubílsplötunni eru söngvar
og leikrit sem hafa verið sýnd úr
bílnum síðastliðin tvö sumur. Koma
ýmsar brúður fram á plötunni svo
sem stóri apinn Gústi, amman sem
kennir Lilla að þekkja litina, geit-
urnar þrjár, hrekkjótti refurinn og
fleiri.
Textarnir á plötunni eru allir eftir
Sigríði Hannesdóttur fyrir utan
einn, „Lilli og félagar", sem er eftir
Helgu Steffensen. Tónlistarflutning
annast síðan þeir Nikulás Róberts-
son og Björn Thorarensen.
Banki
Bústaða:
Groisás-cg
fössvcgs-
hvem
Réttarholtsútibú Iðnaðarbankans á mótum
Sogavegarog Réttarholtsvegar.
Aukin þjónusta við íbúa nærliggjandi hverfa
gg þá sem leið eiga hjá.
í Réttarholtsútibúinu fara fram öll almenn
bankaviðskipti.
Við leggjum sérstaka áherslu á persónulega
þjónustu og ráðgjöf; - t.d. um þau
mismunandi inn- og útlánsform sem henta
hverju sinni.
Verið velkomin á nýja staðinn
og reynið þjónustuna.
Ktnaðarbankinn
Réttarholtsútibú,
Réttarholtsvegi 3, sími 85799