Morgunblaðið - 29.11.1983, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983
5
1929
wl'hjálmsson hf. iFlllAlT
á
Smiðjuvegi 4, Kópavogi. Símar 77200 - 77202
f
1983
X
SVONA FÆRÐU 12 RETTA
Nú vilja allir selja þér bíl, þess vegna er áríðandi að vanda valið
og hitta á réttu úrslitin í bílagetrauninni. Við bjóðum þér FIA T, einn
með örugga tólf rétta. Getraunasérfræðingar okkar mæla sér-
staklega með UNO i þessari umferð, og nefna tólf ástæður fyrir
því að hann er einmitt rétti bílinn fyrir þig.
OPIÐ VIRKA DAGA TIL SJÖ - LAUGARDAGA 10-17
Unöl
Háskólatónleik-
ar í hádeginu
FJÓRÐU Háskólatónleikarnir á
þessu misseri verða haldnir í Nor-
ræna húsinu miðvikudaginn 30. nóv-
ember og hefjast kl. 12.30.
í frétt frá Tónleikanefnd Há-
skóla íslands segir, að þar komi
fram Hafsteinn Guðmundsson
fagottleikari og Jónas Ingimund-
arson píanóleikari. Þeir flytja
tónlist eftir Frakkana Gabriel
Pierné og Camille Saint-Saéns, en
auk þess „Þrjá söngva án orða“
eftir ísraelska nútímaskáldið Paul
Ben-Haim. Tónleikarnir vara
u.þ.b. hálftíma.
Af hverju, afi?
— heitir jólabók handa börnum eftir Sigurbjörn Einarsson biskup
AF HVERJU AFI? — Talað við böm
í jólahug, heitir bók eftir Sigurbjörn
Einarsson, biskup, sem kemur út hjá
forlaginu Skálholti innan tíðar. Bók-
in byggist upp á samræðum afa og
barnabarna hans þegar þau koma í
heimsókn. Börnin era spurul og á
þau leita spurningar um trúna og
tilveruna. Afi svarar spurningum
þeirra og segir sögur. Þótt bókin sé
fyrst og fremst ætluð börnum er hún
ekki skrifuð á barnamáli „enda tala
ég aldrei barnamál eða tæpitungu
við börn,“ sagði Sigurbjörn í samtali
við Morgunblaðið. „Strax eftir að
þau hætta að hjala tala ég við þau
eins og fullorðið fólk, og ég held að
þau kunni best við það.“
Inntur eftir nafni bókarinnar,
sagði Sigurbjörn: „Nafnið byggist
á þeirri staðreynd að börnum er
gjarnt að spyrja „af hverju?" um
allt milli himins og jarðar. Það er
einkenni á greindum börnum og
þeim börnum sem venjast því að
vera eitthvað sinnt að spyrja í sí-
fellu. Trúarlegar spurningar leita
mjög á börn — það kannast allir
við sem gefa sér tíma til að tala
við þau og þau hafa ánægju af því
að rætt sé við þau um alvarleg
málefni.
Ég fór út í að skrifa þessa bók
vegna tilmæla annarra. Þess var
farið á leit við mig að ég skrifaði
bók þar sem rætt væri við börn
um jólin og fleira sem kemur í
hugann trúarlegs eðlis. Það hefur
skort nokkuð á slíkt efni hér á
landi, þar sem reynt er að svara
Sigurbjörn Einarsson biskup
ýmsum algengum spurningum
barna á skiljanlegan hátt, með því
að vera samstiga þeim í hugsun.
Það er ýmislegt sem ber á góma.
Það er mikið rætt um jólahátíðina
og jólaguðspjöllin, en einnig
vakna spurningar um baráttuna í
náttúrunni, sem börn hugsa mikið
um, um dauðann og fleira. Þá er
nokkuð rækilega farið í sálminn
„Heims um ból“, sem flest börn
kunna, en eiga erfitt með að skilja.
Það er reynt að gera þeim textann
aðgengilegan með því að fara
nákvæmlega í hann, orð fyrir orð.
„Hvaða ból er verið að tala um?“
spyrja börnin. „Er það bólið sem
við sofum í á nóttunni?"
Það er mín von að þessi bók nýt-
ist bæði börnum og fullorðnum; að
hún geti komið að gagni í heimilis-
uppfræðslu og heimilisguðrækni,
til dæmis með því að hjálpa full-
orðnum að tala við börn sín um
trúarlega hluti."
í lok bókarinnar er kvöldvers
eftir Sigurbjörn, sem sonur hans,
Þorkell Sigurbjörnsson, tónskáld,
hefur gert lag við. Eru nótur lags-
ins prentaðar í bókinni einnig.
Litli leikklúbburinn sýn-
ir ímyndunarveikina
LITLI leikklúbburinn á ísafirði frum-
sýndi á sunnudaginn gamanleikinn
„ímyndunarveikin“ eftir Moliére.
Leikstjóri er Thomas Ahrens. Með
hlutverk í leiknum fara Reynir Sig-
urðsson, Hanna Lára Gunnarsdóttir,
María Maríusdóttir, Margrét Geirs-
dóttir, Guöbjörg Halla Magnadóttir,
Guðbergur Isleifsson, Guðjón Olafs-
son, Viðar Konráðsson, Hallgrímur
Axelsson, Jón St. Ragnarsson og Pét-
ur Svavarsson. Leikmynd gerði Pétur
Guðmundsson, Ivsingu Sveinbjörn
Björnsson og hljóðfæraleik annast
Jónas Tómasson, Kristinn Nielsson
og Kristján Þór Bjarnason.
Imyndunarveikin er 39. verkefni
Litla leikklúbbsins sem stofnaður
var 24. apríl 1965. Um vetrarstarf
Litla Leikklúbbsins er annars það
að segja að t febrúar er ráðgert að
vera með barnaskemmtun og í vor
dagskrá með blönduðu efni, segir í
frétt frá klúbbnum.
I fréttinni er vakin athygli á
þeirri nýbreytni Félagsheimilisins í
Hnífsdal, að boðið verður upp á
þríréttaðan kvöldverð í tengslum
við leiksýningarnar. „Verður þetta
haft með svipuðu sniði og hjá
Þjóðleikhúsinu, þ.e. að fólk getur
fengið eftirréttinn í hléinu. Vonum
við að ísfirðingar og nágrannar
kunni vel að meta þessa framtaks-
semi,“ segir í fréttinni.
FRAMHJÓLADRIFINN
HÁÞRÓUÐ HÖNNUN
RÚMBESTUR
FIATER MESTSELDI
BÍLL í EVRÓPU
SPARNEYTINN (3,7 L.) FRÁBÆRT VERÐ
AFBURÐA GALVANISERAÐUR
AKSTURSEIGINLEIKAR
ÍTÖLSK FEGURÐ
BESTU KJÖRIN
LÍKLEGUR SEM BÍLL
ÁRSINS 1984
FIAT ENDURSÖLU-
ÖRYGGINÚMER EITT
Metsö/uhhdú hverjum degi!