Morgunblaðið - 29.11.1983, Side 40

Morgunblaðið - 29.11.1983, Side 40
Bítlaæðið DDCADW* HOLUWOOD Opiö H kvöld ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Póstur & súni: Ekki þörf á taxta- hækkun næsta ár — segir Jón Skúlason, post- og simamalastjori „ÞAÐ ER rétt, við höfum lagt til ad taxtar verði óbreyttir á na sta ári og farið fram á að mega nota 75 millj. kr. vörukaupalán til fjárfestingar á árinu 1984,“ sagði Jón Skúlason, póst- og símamálastjóri, þegar Mbl. innti hann eftir því hvort rétt væri að Póstur og sími hygðist ekki hækka gjaldskrá sína á næsta ári. Jón sagði höfuðástæðuna fyrir því að ekki þyrfti að hækka taxt- ann á næsta ári væri minnkun verðbólgu undanfarið, en einnig kæmi það til af aukinni hagræð- ingu, sem verður við það að sveita- símar verða nú sjálfvirkir í aukn- um mæli. „Það er alveg ljóst,“ sagði Jón, „að ef verðlag helst stöðugt og kaupið hækkar ekki, minnkar þörf okkar til að hækka gjaldskrána. Við skulum hafa það í huga að um 50 prósent útgjalda Pósts og síma er kaup. En við þurfum einnig að framkvæma og höfum lagt til að varið verði 340 milljónum króna til fjárfestingar á næsta ári. Það fé fáum við auð- vitað hvergi nema frá viðskipta- vinum okkar, en þó teljum við að komast megi hjá hækkun taxta með því að taka 75 millj. kr. vöru- kaupalán. Annars eru þessi mál til umfjöllunar hjá fjárveitingar- nefnd Alþingis, þannig að ómögu- legt er að segja á þessu stigi hvað verður," sagði Jón Skúlason. Lögreglumenn kærð- ír fyrir harðræði 27 ÁRA gamall maður hefur krafist þess, að rannsakað verði hvort þrír lögregluþjónar hafi gerst brotlegir í starfi þegar þeir með harðræði færðu hann í fangageymslur lögregl- unnar aðfaranótt laugardagsins. Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur sent málið til Rannsóknarlögreglu ríkisins til rannsóknar. Maðurinn nefbrotnaði og er all- ur marinn og blár. Hann var færð- ur í járnum í lögreglubíl eftir að dyraverðir báðu lögregluna að hafa afskipti af honum. Maðurinn ber að lögreglumaður hafi slegið höfði hans hvað eftir annað í gólf bílsins og hafi hann þá nef- brotnað. Afstaða borgaryfirvalda: Sovéska sendiráð- ið þurfti leyfi SOVÉSKA sendiráðið hefur nýver- ið látið setja upp á húsi sinu að Tungötu 9 stóran sjónvarpsskerm. Borgaryfirvöld telja að hér sé um að ræða slíka útlitsbreytingu á húsi, að skylt sé að leita samþykk- is bygginganefndar Reykjavíkur. Til að sovéska sendiráðinu sé gerð grein fyrir þessari afstöðu borgar- yfirvalda hefur Davíð Oddsson, borgarstjóri, nýlega ritað utanrík- isráðuneytinu bréf og mælst til þess að ráðuneytið komi athuga- semdum Reykjavíkurborgar á framfæri. Morgunblaðið skýrði frá því þegar umræddur sjónvarps- skermur var settur upp á bústað sovéska sendiherrann að Tún- götu 9. Er skermurinn á suður- hlið hússins og stendur þar á svölum þess. Jafnframt því sem Davíð Oddsson, borgarstjóri, mælist til þess að utanríkisráðuneytið láti sovéska sendiráðið vita um að samþykki bygginganefndar hafi þurft að liggja fyrir vegna sjón- varpsskermsins á sendiherrabú- staðnum, fer borgarstjóri fram á það við ráðuneytið að það komi á framfæri við sovéska sendiráðið athugasemdum vegna þess að starfsmenn þess unnu að fram- kvæmdum á gangstétt borgar- innar við hús Sovétmanna að Garðastræti 33. En það gerðu þeir ekki með vitund eða vilja borgaryfirvalda. Ljósm. Lárus Karl Þrír háhyrningar eru nú komnir í stærri hvalalaugina í Sædýrasafninu, þar sem þeir bíða nýrra heimkynna í sædýrasöfnum erlendis. Að sögn Jóns Gunnarssonar, forstöðumanns Sædýrasafnsins, eru þetta falleg dýr og vel haldin. Minnsta dýrið er 3,5 metrar á lengd og það stærsta 4,20 og éta þau öll vel og eru spök. Það er skipið Guðrún HF, sem notað hefur verið við veiðarnar og hafa háhyrningarnir veiðzt út af Berufirði, sá fyrsti fyrir hálfum mánuði, en hinir tveir fyrir um það bil viku. Háhyrningarnir verða almenningi til sýnis þar til þeir fara úr landi seinna í vetur, en enn hefur ekki verið endanlega gengið frá sölu á þeim. VISA innanlands 10.—15. desember: Unnt að fá greitt af ávís- anareikningum VISA-greiðslukortin koma væntan- lega í almenna notkun á innan- landsmarkaði 10.—15. desember nk., að sögn Jóhanns Ágústssonar, stjórnarformanns VISA-Island, sem sagði samninga við fyrirtæki og verzlanir vera í fullum gangi um þessar mundir. Eitt nýmæli, sem VISA-ísland hefur ákveðið að taka upp, er sú þjónusta við korthafa, að þeir geta framvísað kortinu í bönkum og sparisjóðum hvar sem er á land- inu og fengið greitt út af ávísana- reikningi sínum í viðskiptabanka, allt að 5.000 kr. „Þetta getur verið mikið hag- ræði fyrir viðskiptavini okkar. Má nefna sem dæmi mann sem er á ferð úti á landi og er búinn með ávísanablöð sín. Hann framvísar einfaldlega kortinu og viðkomandi banki eða sparisjóður kannar hvort innistæða er fyrir hendi og greiðir síðan korthafa út umbeðna upphæð," sagði Jóhann Ágústsson. Jóhann sagði korthafa vera um 4.000 í dag, en það eru þeir sem fengið hafa VISÁ-kort til notkun- ar erlendis. „Þessi kort munu gilda sjálfkrafa til viðskipta inn- anlands, þegar þau viðskipti hefj- ast formlega." Jóhann Ágústsson, stjórnarformaður VISA-ísland gat þess, að væntanlega yrðu korthafar um 5.000 þegar innan- landsviðskiptin hefjast í næsta mánuði. Veiðileyfi í ám Stangarveiðifélags Reykjavíkur: Hækka á bilinu 66% til 77% á milli ára VEIÐILEYFI í þeim ám sem Stanga- veiðifélag Reykjavíkur hefur á leigu munu hækka verulega fyrir næsta sumar, eða á bilinu 66—77%. Veiðileyfi á besta tíma í Norð- urá í Borgarfirði mun kosta á næsta sumri um 10.100 krónur stöngin en kostaði 5.900 krónur í fyrra, en hækkunin nemur um 71%. í Leirvogsá verður stöng- in seld á 5.320 krónur á besta tíma en kostaði í fyrra 3.200 og nemur hækkunin 66%. í Gljúfurá í Borgarfirði mun verð einnar stangar á besta tíma verða um 4.300 krónur og er þar um 66% hækkun að ræða, en sambærilegur stangardagur kostaði í fyrra 2.600 krónur. Veiðileyfin í Brynjudalsá hækka mest, eða um 77%. Kostar stöngin á besta tíma um 3.000 krónur, en kostaði í fyrra 1.700 krónur. Þá hækkar verð stangar- dagsins í Grímsá um 75% og mun besti tíminn sem Stangaveiðifé- lagið býður upp á kosta 5.250 krónur dagurinn, en sambærilegur tími í fyrra kostaði 3.000 krónur. Þá ber þess að geta aö veiðileyf- in í Stóru-Laxá í Hreppum hækka mjög verulega á milli ára, eða úr 860 krónum í 2.100 krónur, eða um 144%, en SVFR hefur ekki ána á leigu, en selur veðileyfin í um- boðssölu. Bændur verðleggja leyf- in sjálfir. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar: Búist við að útsvarið lækki úr 11,88% í 11% BÚIST ER við að vid gerð fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar fyrir næsta ár, sem nú er í vinnslu hjá borgaryfirvöldum, verði lagt til að útsvarsprósentan verði lækkuð úr 11,88% í 11%. Þessar upplýsingar fékk Morgunblaðið hjá Davíð Oddssyni, borgarstjóra, í gær. „Þetta er liður í þeirri stefnu okkar að lækka skattana í það far sem þeir voru í áður en vinstri flokkarnir náðu völdum í Reykjavík," sagði Davíð í gær, en á síðasta kjörtímabili var út- svarsprósentan hækkuð úr 11% í 11,88%. „Það er ljóst að greiðslubyrði fólks verður erfið á næsta ári, en jafnframt er ljóst að sveitarfé- lögin munu vera með miklar skuldir vegna þess hve verðbólg- an var mikil á milli áranna 1982 og 1983, eða rúmlega 80%, og langt umfram það sem áætlað hafði verið. Þess vegna eru breytingar sem þessar erfiðar, en samt sem áður er talið rétt að fylgja fram þeirri stefnu sem áð- ur hefur verið mörkuð um að lækka útsvörin," sagði Davíð. Það kom einnig fram hjá Dav- íð Oddssyni að umrædd lækkun útsvara myndi kosta borgaryfir- völdin um 100 milljónir króna í minnkuðum tekjum og yrði fjár- hagsáætlun samin með hliðsjón af þessu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.