Morgunblaðið - 15.02.1984, Síða 18

Morgunblaðið - 15.02.1984, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984 ^sýnar Ba\í,S\ng« ■ Hotelin þrjú sem heimsreisufarar gistu, þóttu frábær, en þó hvert með sínu sniði A efstu myndinni er Hotel Mandarin í Singapore, í miðið er Hilton-hótelið í Bangkok og neðst er Nusa Dua Beach Hotel á Balí, sem 5 þúsund manns byggðu á 3 árum. Borobudur-musterið a Mið-Jövu, stærsta búddamusteri i heimi. Tuttugu daga Wm. Wu Austurlandaævintýri 126 manna hóps Að morgni dags þann 4. nóvember sl. kom saman á Keflavíkurflug- velli 126 manna hópur, sem átti eftir að deila saman miklu ævintýri næstu 20 dagana. Fjórða heimsreisa Útsýnar var um það bil að hefjast og nú var ferðinni heitið til Indónesíu, nánar tiltekið Bangkok, Balí og Singapore. Fyrri heimsreisur voru til Kenýa árið 1982, Brasilíu árið þar á undan, en upphafsferðin, og sú sem hleypti skriðunni af stað, var 25 ára afmælisferð Utsýnar til Mexíkó árið 1979. aÞað er engu líkara en heimsreisur séu vanabindandi, því það eru glettilega margir sem hafa farið í tvær, þrjár eða jafnvel allar af þeim fjórum sem hafa staðið til boða. Og sýna engin merki þess að láta deigan síga í framtíðinni, en auðvit- að er þegar farið að vinna að undir- búningi fimmtu heimsreisunnar, sem verður til Egyptalands í októ- ber nk. Og þeim til huggunar, sem fýsir að sækja heim Austurlönd fjær á árinu, er rétt að nefna, að stefnt er að annarri ferð til Indó- nesíu í nóvember nk., ef þátttaka verður næg. En hér er það heimsreisa númer fjögur sem er til umræðu. í ferðinni voru fjórir fararstjórar Ctsýnar, forstjórinn Ingólfur Guðbrandsson, Pétur Björnsson, Svavar Lárusson og Kristín Aðalsteinsdóttir. Morg- unblaðið fékk Kristínu Aðalsteins- dóttur til að lýsa ferðalaginu í stór- um dráttum því helsta sem fyrir augu bar, auk þess að krydda frá- sögnina með nokkurri fræðslu um þessa fjarlægu staði: Sólarhring til Bangkok „Það leið um það bil sólarhringur frá því að við stigum um borð í flugvélina á Keflavíkurflugvelli þar Danslistin er þróuð í Austurlöndum fjær, en á jjessari mynd dansa tvær Balístúlkur táknrænan dans. til komið var inn á hótel í Bang- kok,“ hóf Kristín frásögn sína. „Fyrst flugum við til Amsterdam, þar sem við skiptum um vél og fór- um um borð í Boeing 747 frá Indó- nesíuflugfélaginu Garuda, sem svo heitir eftir fuglinum sem flutti guð- inn Vishnu. Við milliientum tvisvar til að taka eldsneyti, i París og Abu Dhabi, en lentum loks í Bangkok snemma á laugardagsmorgni þann fimmta nóvember. í Bangkok gistum við í glænýju Hilton-hóteli, ólýsanlegum ævin- týraheimi með risastórum garði í kring, þar sem bæði var ræktaður og ósnortinn gróður. Þarna var allt til alls og þjónustan í senn áreynslulaus og elskuleg. Það var nú lítið gert þennan fyrsta dag. Menn voru þreyttir eftir ferðalagið og notuðu daginn til að slappa af og safna kröftum í herbergjum sínum eða sundlaug hótelsins. En um kvöldið borðuðum við saman thailenskan kvöldverð og horfðum á þjóðdansa. Fljótandi markaðurinn og hof smaragðsbúddhans Daginn eftir var farið í kynnis- ferð til Fljótandi markaðarins f Mamnern Saduak, suðvestur af Bangkok og í Rósagarðinn við Nak- orn Chaisri-ána. Fljótandi markað- urinn er stórt verslunarsvæði þar sem sala fer fram úr litlum bátum sem lóna á síkjunum. Rósagarður- inn er hins vegar eins konar úti- leikhús, þar sem ýmiss konar starf- semi fer fram, dansar, skylmingar, giftingar, vigsla munka og fleira og fleira. Þann sjöunda nóvember fórum við síðan í kynnisferð um Bangkok. Bangkok er höfuðborg Thailands og stendur á bökkum Chao Phya-ár- innar, lífæðar landsins. Þetta er borg andstæðnanna, þarna ægir „Ekki má gleyma nuddkonunum“ Rætt við hjónin Colin Porter og Heklu Smith „Þetta var eitt ævintýri út í gegn. Við höfum ferðast víða við hjónin, fórum meðal annars í heimsreisuna til Mexíkó, en þetta er það ævintýralegasta sem við höfum komist í kynni við,“ sögðu þau Colin Porter og Hekla Smith, yfir sig ánægð með ferðalagið. En hvað var svona ævintýralegt? „Nánast allt,“ var svarað um hæl, ^fólkið, lifnaðarhættirnir, fornminjarnar, fegurðin og kyrrð- in, útsýnið yfir pálmatrén og haf- ið, og svo framvegis. Þetta var allt svo framandi og ólikt því sem við höfum áður séð. En það sem okkur fannst kannski einna skemmtileg- ast að sjá voru minjarnar í Bangk- ok, konungshallirnar og muster- in.“ „Já, og ekki má gleyma hótelun- um,“ segir Hekla, „þau voru sér- stakur kapítuli út af fyrir sig. Það lá við að ef maður bleytti á sér hárið kæmi hárþurrka æðandi út úr veggnum! Svo er fólk að segja við mann, Hekla Smith og Ingólfur Guðbrandsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.