Morgunblaðið - 15.02.1984, Side 30

Morgunblaðið - 15.02.1984, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1984 Hljómsveitin Drýsill í vígahug. Hljómsveitin DrýsiH kemur fram úr skúmaskotinu: „Framtíö þessa flokks undir bárujárnsrokkunnendum komin“ „Þaö er engum blödum um þaö að fletta aö framtíö þessarar hljómsveitar er alfariö undir þungarokksunnendum landsins komín. Viö aatlum okkur að leika grjóthart bárujárnsrokk og ekk- ert annað. Falli þaö ekki í góðan jaröveg erum viö ekki á því aö skipta ekki um tónlist til þess aó laga okkur aö fjöldanum. Heldur lýsum viö okkur sigraöa. Enginn okkar trúir ööru en aö starfs- grundvöllur fyrir sveitina sé fyrir hendi.“ Bárujárnsflokkurinn Drýsill er kominn fram úr fylgsni sínu og þaö voru meölimir hans, sem áttu oröin hér að ofan. Drýsill er splunkuný sveit, hefur enn ekki leikiö opin- berlega. Fyrstu bókuöu tónleikarn- ir eru í Safari 8. mars, en möguleiki er á aö sveitin komi fram fyrr. Þeir sem skipa Drýsil eru Eiríkur Hauksson, stórsöngvari, Einar Jónsson, gítarleikari, Sigurður Reynisson, trommuleikari, og Jón Ólafsson, bassaleikari. Vanir menn Eiríkur er alþjóö vel kunnur fyrir söng sinn. Hann var síöast í Deild 1, „megasveit" sem aldrei komst almennilega af staö. Einar var síö- ast í Start, þar áöur í Þrumuvagn- inum og starfrækti að auki um tíma eigin sveit, Tíví. Siguröur Reynisson hefur ekki veriö lengi í ákveöinni sveit, en lék síðast meö Þrumuvagninum. Jón Ólafsson kannast menn viö úr ótalmörgum sveitum. Síðast var hann meðlimur í hljómsveitlnni Foss, lék þó stutt meö henni. Hefur áöur veriö í mörgum af vinsælustu sveitum landsmanna. Járnsíöan rabbaöi í síöustu vlku viö meölimi Drýsils, sem er nánast einasta bárujárnssveitin á landinu aö Centaur undanskilinni. Þeir fjórmenningar voru fyrst aö því spuröir hver aödragandinn aö stofnun sveitarinnar heföi veriö. „Ég held aö þetta hafi nú upp- haflega veriö mín hugmynd," sagöi Eiríkur. „Eg var búinn aö ganga meö þaö lengi í maganum aö stofna hljómsveit, sem heföi þaö eitt aö markmiöi aö leika grjóthart rokk. Reyndar átti þetta aö veröa buröartónlist í prógramminu hjá Deild 1, en ágreiningur innan þeirr- ar sveitar kom í veg fyrir aö hægt væri aö framfylgja þeim áætlunum. Drýsli var svo eiginlega hleypt af stokkunum um mánaöamótin október/nóvember, en fyrstu tón- leikarnir verða ekki fyrr en eftir tæpan mánuö. Þó er möguleiki á aö viö komum fram fyrr.“ Til í slaginn — Eruö til tilbúnir í slaginn strax ef til þess kæmi? „Já, viö erum þaö. Viö erum búnir aö þaulæfa níu frumsamin lög og erum svo meö nokkur til viöbótar í pokahorninu. Viö æföum geysilega stíft framan af, en und- anfarinn hálfan mánuö höfum við heldur slakaö á klónni. Nú veröur hugarfarsbreyting og allt sett í botn á ný.“ — Þiö taliö um grjóthart rokk. Fá menn þá loksins aö heyra báru- járnsrokk hjá íslenskri sveit þegar Drýsill mætir til leiks? „Viö stöndum á því fastar en fótunum. Reyndar er ekki hægt aö segja meö góöri samvisku aö hér sé um einhverja byltingarkennda tónlist aö ræöa, enda hefur þunga- rokkiö aldrei fengiö orö á sig fyrir að vera nýjungakennt. Okkar tón- list svipar aö mörgu leyti til þeirrar tegundar þungarokks, sem menn kannast viö erlendis frá.“ — Ef svo er þá er þessi tónlist talsvert frábrugöin þvi sem Þrumu- vagninn var aö gera á sínum tíma? „Já, þetta er ekki sami hluturinn þótt hvort tveggja flokkist undir þungarokk. Þaö er sennilega fyrst og fremst ólíkur söngur, sem gerir útslagið." „Þrumuvagninn var eiginlega bestur fyrst," sagöi Einar Jónsson og blandaði sér inn í spjalliö af meiri krafti en fyrr. „Síöan fór eitthvaö úrskeiöis. Þaö vantaöi þungann í tónlistina. Ég held líka, aö undir þaö síöasta hafi ekki allir í sveitinni verið sáttir viö tónlist- ina.“ — Eruð þiö sjálfir sáttir viö þá tónlist, sem þiö hafiö veriö aö æfa? „Þaö vantar ekki, aö viö höfum veriö mjög ánægöir meö útkom- una þar. Það þýöir hins vegar ekki aö allt veröi eins gott á sviöi, en þó er engin ástæöa til aö ætla annaö en vel takist til. Viö getum ekki leyft okkur aö vera bara „ágætir" á fyrstu tónleikunum. Viö verðum aö vera góöir. Þaö væri lélegt aö vekja upp einhverjar vonir hjá bárujárnsunnendum landsins og valda þeim svo vonbrigðum." Umsjón Siguröur Sverrisson Bældur hópur — Haldiö þiö, aö nægilega stór markaöur sé fyrir bárujárnsrokk- iö? „Tvímælalaust. Þessi tónlist nýt- ur geysilegra vinsælda á meðal ungiinga á aldrinum 12-16 ára, en er ekki eins áberandi hjá þeim sem eru eldri. Þaö er þó aöallega vegna þess, aö þaö er búiö aö hæöa menn svo mikiö fyrir aö hafa gam- an af þessari tónlist. Margir þora hreinlega ekki aö viðurkenna fyrir kunningjunum, aö þeir hafi gaman af henni. Viö vonum einlæglega, aö allir þeir, sem hafa áhuga á þessari tónlist, hvort heldur þeir eru 12 eöa 112 ára, mæti á tón- leika hjá okkur. Þaó er búiö aö troöa þennan hóp niöur í svaöiö allt of lengi og svo sannarlega kominn tími til aö bárujárnsunn- endur rísi upp á afturlappirnar og láti til sín taka. Unnendur þessarar tónlistar eru til um alla borg og bí, en hafa kannski hrakist inn í skúmaskotin undan nýbylgjugeng- ingu. Viö skorum á þá alla aö láta sjá sig.“ „Þaö þarf aö vinna bug á þess- um fórdómum í garö bárujárnsr- okksins," sagði Eiríkur. „Ég er t.d. alveg þeirrar skoöunar, aö margir þeirra, sem höföu gaman aö Egó í upphafi ferils hennar, eiga eftir aö hjafa gaman af tónlistinni hjá okkur." Einhuga sveit — Af þessum ummælum má ráöa, aö Drýsill höföar sterkt til eins ákveöins hóps er ekki svo? „Þaö er alveg rétt. Viö erum aö biöla til aödáenda þessarar tónlíst- ar. Okkur er alveg sama um hina. Þaö er nóg af hljómsveitum fyrir þá. Auövitaö eiga menn aldrei aó segja aldrei, en viö vonum a.m.k. hér og nú aö til þess þurfi ekki aö koma, aö viö skiptum um tónlist til þess eins aó láta aö óskum fjöld- ans. Viö erum allir fjórir einhuga Áhrif nýja breska poppsins á Bandaríkin — 3. hluti: „Lærðu tvö gítargrip og vertu öllum til ama“ „Ég hefi óbeit á þessari svok- ölluðu einingu, ástar- og friöar- kjaftæöi í tíma og ótíma,“ sagöi David Bowie eitt sinn. „Þetta var allt sama blekkingin, sljó og kæf- andi. Ofan á allt annaö var svo ekkert aö marka inntakiö í öllu kjaftæðinu." Vanþóknun Bowie á því and- rúmslofti er einkenndi and-menn- inguna á sjötta áratugnum kom enn betur í Ijós í gervum hans á sviði. Ný kynslóö var ekki alin upp viö lög á borö viö „All You Need Is Love“ meö Bítlunum, heldur tján- ingu Bowies á rokkinu sem meiri- háttar blekkingu og stórbrotinni skrautsýningu. „Málaöu þig í fram- an og gerstu popp-snobbari,“ sagöi Bowie. Öllum til ama Þótt krafturinn, fjöriö og spenn- an í tónlist þeirra væri meiri en áöur var inntakiö í speki Sex Pist- ols skilgreint á þennan hátt: „Læröu tvö gitargrip og vertu öll- um til ama." Þegar svo Sex Pistols höföu lagt grunn aö heimsfrægð sinni meö hrottafenginnl fram- komu sinni og byltingarkenndum textum sviptu þeir einnig hulunni af þróuninni. Hvergi varö þetta skýrara en í kvikmyndinni „The Great Rock’n’Roll Swindle", sem fjallaöi um feril hljómsveitarinnar og var gerö í samvinnu viö lestar- ræningjann Ronald Biggs. Þessi titill myndarinnar, rétt eins og myndin og Sex Pistols sjálfir, var hugmynd einhvers snilldarleg- asta, hugvitssamasta og um leið umdeildasta umboösmannsins í breska poppinu í dag, Malcolm McLaren. „Hrói höttur nútímans,” er lýsingin sem Boy George gefur á honum. „Þessa stundina viröist vera gíf- urlegur áhugi á þessu eina orói: „stíl". Fólk hefur miklu meiri áhuga á sokkunum hans Boy George en rödd hans," segir McLaren. Allir David Bowie eins og hann var fyrir áratug. vita, aö hann hefur góöa söng- rödd, en hvaö um sokkana hans? Atvinnuleysiö hér í landi hefur leitt til þess aö vinna sem dyggö er nokkuð, sem falliö hefur um sjálft sig. Eini samastaóur unglinganna er oft á tíöum gatan. Eina tækifæri þessa fólks er aö slást í hópinn meö næstu fylkingu, hver svo sem hún nú er, og taka þátt í fjörinu. Þaö var einmitt þetta fjör, sem er aö baki þessum „stíl", sem t.d. ein- kennir MTV (Music Television, sjá útskýringu í 1. grein, innsk. -SSv.). Boy George í talnastakknum kunna. Krakkarnir geta ekki keypt röddina hans Boy George, en þau geta keypt eins sokka og hann á. Þann- ig öölast þau hluta af poppstjörn- unni." Útlitið stórt atriði Meö fjölmiöla„jens“ á borö viö McLaren aö tjaldabaki er ekki aö undra hver staöa poppsins er í Bretlandi um þessar mundir. „Þaö er eins og einhvers staðar segir,“ segir McLaren, „útlitiö kann að vera Ijótt en skiptir samt öllu máli. Viö búum í landi, þar sem gamli aöalsmaöurinn heldur sig í kastal- anum með mynd af afa sínum uppi á vegg og dreymir um aö veröa alveg eins og hann. Fyrir slíkt fólk væri ekkert ákjósanlegra en aö tímataliö stöövaöist algerlega. Til þess aö hægt sé aö lifa viö aögeröarleysi á borö viö þaö, sem tíökast hjá þessu fólki, og hægt sé aö brjótast undan hinni hefö- bundnu stéttaskipan veröa menn aö klæðast stakk á borö vió þann, sem Boy George sýnir sig í.“ En er þaö klæðaburöurinn sem skiptir höfuömáli? Þrátt fyrir skrautlegan klæöaburö margra breskra hljómsveita er þaö annars eftirtektarvert hversu stór hluti þeirrar tónlistar, sem boöiö er upp

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.