Morgunblaðið - 30.03.1984, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MARZ 1984
41
Rólegt jafntefli
Skák
Bragi Kristjánsson
KASPAROV beitti uppáhaldsbyrj-
un sinni, Tarrasch-viirn í 8. einvíg-
isskákinni við Smyslov í gær-
kveldi. f byrjun tefldist skákin
eins og önnur einvígisskákin, en i
13. leik brá Kasparov út af. Smys-
lov tefldi fremur ráðleysislega og
náði Kasparov spili, sem leiddi til
þess, að Smyslov fékk stakt peð.
Ekki reyndi Kasparov að gera sér
mat úr þessu, því jafntefli var sam-
ið eftir 27 leiki. Kasparov ætlar
greinilega ekki að taka neina
áhættu með tveggja vinninga for-
skot.
Staðan:
Kasparov 5
Smyslov 3
8. einvígisskákin
Hvítt: Smyslov
Svart: Kasparov
Tarrasch-vörn
1. d4 — d5, 2. Rf3 — c5, 3. c4.
Eftir 3. dxc5 — e6, 4. e4 —
Bxc5, 5. Bb5+ — Rc6, 6. exd5 —
exd5, 7. 0-0 — Rge7, 8. Rbd2 —
0-0, 9. Rb3 — Bd6,10. c3 er kom-
ið upp Tarrasch-afbrigðið í
franskri vörn!
3. — e6, 4. cxd5 — exd5, 5 g3.
Óvenjuleg leið er í þessari
stöðu 5. Bg5 — f6, 6. Be3 — c4, 7.
g3 - Bb4+, 8. Bd2 - Bxd2+, 9.
Dxd2 - Re7, 10. Bg2 - 0-0 og
staðan er nokkuð jöfn.
5. — Rf6, 6. Bg2 — Be7, 0-0 — (M),
8. Rc3 — Rc6.
Nú er komin upp venjuleg
staða í Tarrasch-vörn eftir sömu
óvenjulegu leikjaröðina og í 2.
skákinni.
9. Bg5.
Algengasti leikurinn í þessari
stöðu, en aðrir leikir koma einn-
ig til greina: 9. dxc5, 9. b3 og 9.
Be3.
9. — cxd4, 10. Rxd4 — h6.
Margeir Pétursson hélt jafn-
tefli í skák við sovéska stór-
meistarann Jusupov á Heims-
meistaramóti stúdenta í Chicago
í fyrra með 10. — He8. Fram-
haldið varð 11. e3 — h6, 12. Bxf6
- Bxf6, 13. Rxd5 - Bxd4, 14.
exd4 — Be6,15. Hel — Bxd5,16.
Hxe8+ - Dxe8,17. Bxd5 - Hd8,
18. Dh5 - Rxd4, 19. Bxb7 -
Hb8, 20. Dd5 - Da4, 21. De4 -
He8, 22. Dd3 - Db4, 23. Bd5 -
Dxb2, 24. Hbl - Dc3, 25. Hdl -
Dxd3, 26. Hxd3 — Re6 o.s.frv.
11. Be3 — He8, 12. a3.
Smyslov beitir sama leik og í
2. skákinni, en hann er hugmynd
Kortsnojs, sem fyrst kom fram í
einvígi Kasparovs og Kortsnojs í
London í lok síðasta árs.
12. — Be6, 13. Khl.
Enn leikur Smyslov eins og í 2.
skákinni. Kortsnoj lék 13. Db3
með framhaldinu: 13. — Dd7,14.
Rxe6 — fxe6, 15. Hadl — Bd6,
16. Bcl - Kh8, 17. Da4 - De7,
18. e3 — a6,19. Dh4 — Hac8 með
þægilegra tafli fyrir hvítan. (2.
skák Kortsnoj — Kasparov).
13. — Bg4.
í 2. skákinni lék Kasparov hér
13. — Dd7, sem Smyslov svaraði
með 14. Rxe6. Nú gefur Kasp-
arov andstæðingi sinum ekki
lengur kost á að drepa á e6.
14. 13 — Bh5, 15. Bgl.
Hvítur getur ekki látið biskup-
inn á e3 standa óvaldaðan f línu
hróksins á e8.
15. — Dd7, 16. Da4 — Bc5, 17.
Hadl - Bb6, 18. Hfel — Bg6, 19.
Db5.
Taflmennska Smyslovs er ráð-
leysisleg.
19. — Had8, 20. e3 — Dd6, 21.
Rce2.
Óvirkur leikur. Hvers vegna
ekki að reyna 21. Ra4?
21. — Re5.
Riddarinn er á leiðinni til d3
eða c4 eftir atvikum.
22.1)b3 — Ba5, 23. Rc3.
Eftir 23. Hfl — Rc4 hótar
svartur m.a. — Rd2.
23. — Rd3, 24. He2 — Rc5, 25.
Da2 — Bxc3, 26. bxc3 — Da6, 27.
Hed2 — Ra4 og keppendur
sömdu um jafntefli.
Hvíta peðið á c3 fellur, en
svarta á d5 á ekki langa lífdaga
fyrir höndum. Kasparov tekur
enga áhættu, en ekki virðist
hann þurfa að hætta miklu, þó
hann tefli þessa virku stöðu
áfram.
I Gódan daginn!
W \IA DTA - OFURKRAFTUR -
▼ V/AIV I ” OTRULEG EIMDING
FRAMLEIÐENDUR
BETRI BÍLA í EVRÓPU
VELJA
VARTA RAFGEYMA
Elin K. Mouritsen í hlutverki Nóru og Borgar Garðarsson f hlutverki Krugstad.
Brúðuheimilið í Færeyjum:
Frumsýning í Norðurlanda-
húsinu á næsta leiti
BRÚÐUHEIMILI Ibsens verður
frumsýnt í Norðurlandahúsinu í l*órs-
höfn í Færeyjum, 6. apríl næst-
komandi. í frétt sem Mbl. hefur bor-
ist um sýninguna segir m.a:
„Sýning þessi verður talsverður
viðburður meðal annars vegna þess,
að í þessari sýningu leika saman
færeyskir og íslenskir leikarar og
hver á sínu máli og mun það fyrsta
sinn í sögunni, að þessar tvær
grann- og frændþjóðir vinna svo
náið saman á menningarsviðinu.
Það er Sveinn Einarsson sem
leikstýrir Brúðuheimilinu og með
honum eru í Færeyjum Borgar
Garðarsson og Pétur Einarsson, en
með stærstu hlutverkin af hálfu
Færeyinga fara Laura Joensen,
Olivur Ness og Elin Karbeck
Mouritsen, sem fer með hlutverk
Noru. Færeyski listamaðurinn
Tróndur Paturson sér um leikmynd
og hefur umsjón með búningum.
Færeyingar og íslendingar hafa
oft unnið saman að leiklist, sem og
ýmsum öðrum menningarmálum.
Þegar árið 1929 lék Leikfélag
Reykjavíkur leikrit eftir William
Heinesen, Ranafell, og fyrir nokkr-
um árum var leikið í Þjóðleikhúsinu
leikritið Skipið eftir Steinbjörn
Jakobsen; leikstjóri þeirrar sýn-
ingar var Eyðun Johannesen. Þá
hefur Sjónleikarfélagið í Þórshöfn
komið í leikför til íslands með Uppi
í einum eikilundi eftir Jens Pauli
Heinesen og leikhópurinn Gríma
með Kópakonuna, sem byggt er á
færeyskri þjóðsögu. íslenskir leik-
flokkar hafa svo margsinnis gist
Færeyjar, fyrst 1964 með Hart í
bak og nú síðast með Lokaæfingu
Svövu Jakobsdóttur í haust; ís-
lenskir leikstjórar hafa einnig verið
tíðir gestir í Færeyjum. Færey-
ingar hafa leikið mikið af íslensk-
um leikritum og til dæmis er um
þessar mundir verið að leika tvö ís-
lensk leikrit f Færeyjum, „Jóa“ eftir
Kjartan Ragnarsson í leikstjórn
Ásdísar Skúladóttur og „Gullna
hliðið". Sýningin á Brúðuheimilinu
markar þó nokkur tímamót af því
hvernig til hennar er stofnað, og
tilkoma Norðurlandahússins býður
upp á nýmæli í norrænni samvinnu
af þessu tagi. Mikil eftirvænting er
í Færeyjum vegna sýningarinnar,
sem verður nýstárleg miðað við það
sem menn hafa áður vanist þar,
meðal annars verður leikið á miðju
gólfi í aðalsal hússins og tæknibún-
aður hússins, sem þykir vandaður,
verður nýttur til að sýna nýja
möguleika hússins; sýninguna lýsir
Árni J. Baldvinsson frá Þjóðleik-
húsinu íslenska.
Þeir Jens Pauli Heinesen og
Sveinn Einarsson hafa þýtt leikinn
á hvort sitt málið og lagt þýð-
ingarnar þétt hvor að annarri með
það orðaval í huga, sem sameigin-
legt er báðum málunum. óskar
Hermannsson hefur verið þeim til
aðstoðar.
Danir, Norðmenn og Svíar hafa
leikið saman innbyrðis á sínum
málum, en hér er gerð ný tilraun,
sem væntanlega á eftir að hnýta
íslendinga og Færeyinga sterkari
böndum."
Stófhending^innan ■iónleikar—mBUrv: .
Dukkuheimið við foroyskum og
íslendskum leikarum
í Norðurlandahúsinum________________________________
„Mikil eftirvænting er í Færeyjum vegna sýningarinnar," segir í fréttinni.
Hér er úrklippa úr færeyska blaðinu Dimmalætting sem birti grein um
uppsetninguna, á forsíðu aukablaðs síns í síðustu viku, með þessari fyrir-
sögn.
I BILA SINA
Það segir meira en mörg orð.
Framleiðendur Mercedes Benz, BMW, Volkswagen
og fleiri, velja VARTA rafgeyma,
enda hefur reynslan sýnt að VARTA rafgeymum
má treysta. Þeir bjóða upp á meira kaldræsiþol,
eru viðhaldsfríir og einnig ódýrir.
60 AMP-stundir kr. 1.494.00.
70 AMP-stundir kr. 1.788.00.
Hentar flestum gerðum bifreiða.
Á OLÍS stöðvum færðu VARTA rafgeymi,
og ísetningu á staðnum.
VARTA GÆÐI Á GÓÐU VERÐI
ávallt í leiðinni