Morgunblaðið - 06.05.1984, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
55
Allt í einu stytti upp og sólin
braust fram. Jafnharðan birtist
tvöfaldur regnbogi yfir vellinum
og í miðju bogans stóð Englandsf-
áni útstrekktur á flaggstöng
kirkju er stóð við völlinn. En vind-
inn lægði örlítið og er 15 mínútur
voru til leiks kannaði Stampfl
hvort þremenningarnir treystu
sér til atlögunnar. Brasher varð
fyrstur til og sagði já, Chataway
kvaðst þá vera hlutlaus en Bann-'
ister var siðast spurður og kvaðst
hann ekki treysta sér til atlögunn-
ar. Var þá kannað hvort Chataway
gæti hlaupið tvær mílumar, en
Iiðsstjóri enska liðsins hafnaði því
alfarið.
Fimm mínútum áður en hlaupið
skyldi hefjast kannaði Stampfl
hug þremenninganna öðru sinni,
og vísaði til þess að vindinn væri
tekið að lægja töluvert. Brasher
sagði já og Chataway einnig, en
Bannister nei, þó öllu óákveðnar
en fyrr. Klæddust þeir nú keppn-
isskónum sínum og tóku 150 metra
sprett eftir brautinni, og við svo
búið kom Bannister til Stampfls
og sagðist vilja reyna, enda hefði
veðurhæðin snarminnkað. Loksins
var ljóst að atlaga skyldi gerð að
fjögurra mínútna múrnum í mílu-
hlaupi.
Brasher var greinilega ólmur í
að reyna sitt besta til að sigrast
mætti á múrnum og svo ákafur að
leggja upp að hann brá of skjótt
við í fyrstu tilraun. Er skotið var
öðru sinni rauk hann af stað.
Handan vallarins hafði verið kom-
ið upp hátalara svo þulur gæti gef-
ið millitíma á hverjum 220 stikum,
jördum, til hlauparanna.
Bannister misheyrðist er ka.ll-
aðir voru fyrstu millitimarnir og
bað Brasher að hlaupa hraðar, en
Brasher vissi hvað tímanum leið
og hélt sínu striki, en hann hljóp
fyrsta hringinn á 57,4 sekúndum
og hálfa míluna á 1:58,0, svo hann
stóð vel fyrir sínu. Fljótlega eftir
það tók að draga af honum og
Chataway tók við eftir 2‘/i hring.
Reyndi hann að missa sem minnst
niðúr hraðann þótt vegalengdin
væri í það skemmsta fyrir hann.
Er hringur var í mark var tíminn
3:00,4 og ljóst að Bannister þyrfti
að neyta krafta sinna til hins ýtr-
asta ef hann ætti að ná takmarki
sínu.
Tók hann loks forystu er 230
metrar voru í mark og greikkaði
skrefið. Einbeitnin og ákveðnin
skein úr augum hans, þótt ásjónan
væri tekin að fölna af erfiðinu.
Áhorfendur hvöttu hann án afláts,
vitandi að þeir væru líklega að
upplifa einn mesta viðburð
íþróttasögunnar. Og er Bannister
geystist framhjá 1500 metra
markinu, þar sem Ross McWirth-
er stóð með skeiðklukku sína, á
heimsmetstíma, 3:43,0 mínútum,
var ljóst að hverju stefndi. Aðeins
fall á brautinni gæti komið í veg
fyrir að Bannister hlypi undir
fjórum mínútum. Fagnaðarópin
voru ógurleg er Bannister hljóp
síðustu metrana og sleit snúruna
áður en hann hné örmagna í faðm
staðarprestsins, Nicolas Stacey,
sem keppti í 200 metra hlaupi á
Ólympíuleikunum í Helsinki
tveimur árum áður. Ekki urðu
fagnaðarlætin minni er þulur
mótsins, Norris McWirther, til-
kynnti árangur Bannisters, og
keppni hófst ekki að nýju fyrr en
hálfri stundu síðar vegna uppi-
standsins á vellinum.
Skömmu eftir hlaupið renndi
kappakstursbifreið frá BBC svo í
hlað og eftir nokkra umhugsun lét
Bannister undan og féllst á að
verða ekið á ofsahraða til Lund-
úna þar sem honum var sam-
stundis dembt inn í sjónvarps-
sendingu og spurður í þaula um
hlaupið mikla. Fögnuður Breta
var mikill og fagnaði Bannister
hinum merka áfanga með félögum
sinum fram eftir nóttu. Lagðist
hann loks til hvíldar á heimili
Brashers í Highgate í London
klukkan sjö næsta morgun.
— ágás.
Frá 7. maí til 1. september
loka skrifstofur félagsins kl. 16.00.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur,
Húsi verzlunarinnar 8. hæö.
Gardínuhúsið
NÝKOMIÐ:
Ódýr dralonefni og stórisar, ítölsk efni, damask, velour,
eldhúskappaefni, bómullarefni, felligluggatjöld og fl. og
fítBftHn uh tiifið
Iðnaðarhúsinu,
Hallveigarstíg 1,
sími 22235.
StíkkostJeg verðlækkun!
Nú geta allir fengið sér alvöru tölvu
Nú hafa verið felldir niður tollar og söluskattur af tölvubúnaöi.
Þetta gerir íslendingum kleift aö tölvuvæöast í samræmi viö
kröfur nútímans. Nú átt þú næsta leik!
Nú getum viö boöiö þér vinsælustu alvöru einkatölvu í heimi,
Apple / / e, en hún hefur nú selst í 1.500.000 eintökum. Meira
en 20.000 forrit eru fáanleg á Apple / / e, en þaö er mun meira
en nokkur önnur tölva getur státaö af. Mörg íslensk forrit eru
fáanleg á vélina, t.d. fjárhagsbókhald, viöskiptamannabókhald.
lagerbókhald, launabókhald, tollvörugeymsluforrit, veröútreikn-
ingar o.fl. Mundu þaö, aö án forrita er tölva eins og bensínlaus
bíll.
Á Apple / / e er staölaö íslenskt lyklaborð, og hentar hún því
einkar vel til ritvinnslu.
Notendaminni vélarinnar er 64K, en þaö er stækkanlegt í 128K
og ætti þaö aö vera nægilegt fyrir flesta.
Apple tölvur eru notaöar hjá skólum, bönkum, opinberum
stofnunum, einkafyrirtækjum, skipafélögum, flugfélögum, verk-
fræöistofum, læknastofum, rannsóknarstofum, lögfræðistof-
um, endurskoöendum, vélsmiöjum, fataframleiöendum, ráð-
gjafarfyrirtækjum, verktökum, útgáfufyrirtækjum, prentsmiöj-
um og þannig mætti lengi telja. Fjölmargir einstaklingar nota
Apple, svo sem kennarar, rithöfundar, visindamenn, forritarar,
rafeindavirkjar, radioamatörar, stjórnendur fyrirtækja og stofn-
ana, læknar, verkfræöingar, þýðendur og blaðamenn, og eru
þá aöeins tekin örfá dæmi.
Tilboö:
aðeins kr. 39.980.-
Útborgun kr. 8.000 og eftirstöövar
á 10 mánuðum!
Skipholti 19, sími 29800.