Morgunblaðið - 06.05.1984, Blaðsíða 36
84
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
Hótel Holt:
Sjónvarpstæki
í öll herbergi
Tónleikar
Berkofskys
ÞRIÐJUDAGINN 8. maí kl. 20.30
e.h. mun Martin Berkofsky, píanó-
leikari, halda fyrirlestur/hljómleika
í Norræna húsinu til styrktar bygg-
ingar tónlistarhúss í Reykjavík.
Heitir dagskrár hans er: „Amer-
ican piano music; A sideways look
at its fascinating and sometimes
very humourous history". „Amer-
ísk píanótónlist; Óvenjuleg og
stundum brosleg saga hennar
skoðuð í nýju ijósi“.
(Fréttatilkynning.)
SJÓNVARPSTÆKI í hvert her-
bergi eru einn liðurinn í allsherjar
andlitslyftingu Hótels Holts, sem
verið er að vinna að þessa dagana.
Allar innréttingar hótelsins verða
endurnýjaðar, sem og teppi,
gluggatjöld og öll lýsing. Þá verða
gerðar útlitsbreytingar á hótelinu
og bætt við nýrri setustofu. Stefnt
er að því að breytingunum verði
lokið fyrir 1. júní að sögn Skúla
Þorvaldssonar, hótelstjóra.
Hótel Holt er fyrst íslenskra
hótela til þess að setja sjón-
varpstæki í hvert herbergi. Önn-
ur hótel j höfuðborginni munu
vera í svipuðum hugleiðingum.
Tækin, sem Hótel Holt keypti,
eru af Sharp-gerð og reyndar
sérstaklega hönnuð fyrir sviss-
neskan markað, þar sem gerðar
eru óvenju miklar öryggiskröf-
ur. Að sögn Kristjáns Zophaní-
assonar hjá Hljómbæ, umboðs-
aðila Sharp á íslandi, er hér um
að ræða svonefnd „monitor"-
tæki með tvöföldu gleri, fjar-
stýringu og inntaki fyrir kap-
alkerfi. Skjárinn er 16 tommur í
þvermál.
„Við höfum alltaf haft sjón-
vörp til leigu, en viljum nú bjóða
gestum okkar upp á þessa auknu
þjónustu. Þessar svo og allar
aðrar breytingar okkar miðast
reyndar fyrst og fremst við ein-
staklinginn, þ.e. kaupsýslu-
manninn, sem er á ferðalagi. Við
erum ekki að miða þetta við
hinn almenna ferðamann þótt
auðvitað njóti hann góðs af
þessu eins og aðrir, sem hjá
okkur dveljast," sagði Skúli.
Skúli Guðmundsson, hótelstjóri (t.v.), og Kristján Zophaníasson frá
Hljómbæ koma einu sjónvarpstækjanna fyrir. Morgunbiaðíð/KÖE.
Vel Menntað Fólk
í UMÖNNUN HÁRS
getur frætt þig um Jheri Redding og stolt hans:
„Milk’n
Honee
vörumar.
Hafi Jheri Redding haft hendur í hári þínu, þá nýtur þú þess lengi á eftir.
Það var Jheri Redding sem uppgötvaði
hve mikilvægt er að Ph gildi snyrtivöm sé rétt.
Milk’n honee vömmar njóta sérstakrar þekkingar hans.
í sjampóið setur hann t.d. mjólkurprótein til að styrkja hárið og hunang
sem heldur í því rakanum og hárið verður gljáandi og meðfærilegt.
„Milk'n frá jheri Redding
nonee ^ Hárfín formúla fyrir þitt hár.
jheri
edding
COtLAOtN-ALOC , 9B| SALON
•nmetMO fOA'W'JRá. **IOV| a
CXTRA SOO'I'
AOMMUtA