Morgunblaðið - 06.05.1984, Blaðsíða 32
r ft
80
tspr ÍAM a HUOAaiIMMTIf? fHCÍ A,mVÍTTOíTOM
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
HAUST- OG
VETRAR-
TÍSKA
1984—85
MBL. BERAST nú ört myndir af nýjustu tískuflíkunum sem hafa verið að
koma fram á sýningum í París með fatnaði fyrir haustið 1984 og veturinn
1985. Við birtum hér 3 myndir frá tískuhúsi Nínu Ricci, tvær af glæsilegum
samkvæmiskjólum, öðrum stuttum og hinum síðum, og þá þriðju af útifatn-
aði, plíseruðu köflóttu pilsi sem nær niður á miðjan mjóalegg og drapplitum
víðum ullarjakka, en innan undir er silkiblússa með nokkuð sérkennilegu
bindi úr sama efni.
Við birtum mynd af jakka frá öðru tískuhúsi, Salvet, sem einnig er nokkuð
karlmannlegur, breiður á axlirnar og nær líka niður á miðjar mjaðmir. Sá er
úr tweedefni og notaður með niðurmjóu dökku pilsi og dökkri blússu með
venjulegu karlmannsbindi, en línan á að mjókka frá breiðu öxlunum og
niður að pilsfaldi. Þriðji jakkinn er frá Othon, þykkur og verklegur og hægt
að hneppa vel að sér með fjórum hnöppum.
Þá er hér gróf tweedkápa frá Olivier Strelli, sem notuð er með ullarsíð-
buxum og peysu. Og svo fínni kápa sem sennilega er ekki eins hlý. Hún er úr
rúskinni, sem unnið er úr lambsskinni, og skreytt með svörtu rúskinni og
silfurleðurleggingu frá öxlinni. Þessi kápa er finnsk, frá Friitala Oy, og var
sýnd á „Pret-a-porter“-sýningunni í París í febrúar.
Loks látum við fylgja hér samkvæmisskóna, sem gjarnan eru skreyttir
glitsteinum.