Morgunblaðið - 06.05.1984, Page 12
60
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
Hikum ekki við að koma
fégráðugum fálkaræn-
ingjum undir mannahendur
Símtal við Ólaf K. Nielsen helsta
sérfræðing okkar um fálkastofninn
SÁ MAÐUR sem hefur sennilega mest allra íslendinga stundað rannsóknir á
fálkastofninum hér á landi er Olafur K. Nielsen líffræðingur á Akureyri. Um
árabil hefur hann stundað fálkarannsóknir, einkum á Norðurlandi og Norð-
austurlandi. í vetur er leið flutti hann mjög fróðlegan fyrirlestur um lifnað-
arhætti fálkans á fundi í Fuglaverndarfélaginu. Kom hann þá inn á ýmsa
þætti í lífskeðjunni. Komst að þeirri niðurstöðu að fálkastofninum hérlendis
væri vel borgið. Kvaðst hann ekki sjá neinar sérstakar hættur steðja að.
Eftir talsverðan eltingarleik við Ólaf tókst Mbl. að ná símtali við hann
seint í fyrrakvöld. Þá var hann staddur norður við Mývatn, en hann er nú í
rannsóknarleiðangri þar um slóðir.
Blaðið ræddi við hann um síðustu atburðina, fálkaeggja-ránið á dögunum.
ÉG ER sannfærður um að þessir
fálkaræningjar, sem náðust á dög-
unum hafi komið hingað til lands í
sömu erindum áður, sagði Ólafur
Nielsen er blaðamaður náði síma-
sambandi við hann norður við Mý-
vatn í bækistöð hans þar.
Getum við komið í veg fyrir að
ferðafólk komi hingað til lands í
slíkum tilgangi?
Almenningur getur það, eins og
bóndinn, sem vakti athygli yfir-
valda á grunsamlegum ferðalöng-
um, en við það fór allt í gang. Það
er það aðhald sem þarf og almenn-
ingur á ekki að hika við að tilkynna
lögregluyfirvöldum án tafar. Þau
munu sjá um framhaldið. Það
sannaðist í þessu tilfelli.
Fálkaræningjar, sem er eiginlegt
samheiti fyrir þetta fólk, koma
hingað til lands í ránsleiðangra
sína tvisvar á ári. Annað hvort
koma þeir nú í apríllok eða maí-
byrjun, til þess að ræna eggjum
fálkans. Svo kemur aftur hættu-
tímabil á miðju sumri. Þá eru ung-
arnir enn í hreiðrum vegna þess að
þeir eru ekki orðnir fleygir.
Þér er kunnugt um hreiðurstað-
ina, sem rændir voru þarna á Mý-
vatnssvæðinu?
Já. Hreiðurstaðirnir eru fimm.
Þeir eru allir svo nærri þjóðvegin-
um, að fálkaræningjar með augu á
hverjum fingri í leit að bráð,
þurftu ekki að fara úr bílnum til
þess að koma auga á þá. Úr bíl-
stjórasætinu mátti sjá staðina án
þess að bregða upp sjónauka. Sá
staður sem erfiðast var að komast
að er ca. 15 mínútna fjarlægð frá
vegi. Augljóst er að á þessum stöð-
um hafa sömu menn verið að verki,
sagði Ólafur.
Setjum sem svo að tekist hefði að
ná eggjaþjófunum strax. Hefði ver-
ið hægt að bjarga eggjunum?
Sennilega, en enginn veit hvernig
fuglinn hefði brugðist við, hvort
fálkinn hefði viljað leggjast á þau
aftur.
Er hægt að setja eggin 8 sem
náðust í vél og unga þeim út? Þess-
ari spurningu var beint til Ólafs,
því hann hefur sjálfur kynnt sér
starfshætti í fálkauppeldisstöð
vestur í Bandaríkjunum.
Setja eggin í vél, endurtók hann.
Það er auðvitað hægt, en málið er
miklu flóknara en það, ef í slíkt er
ráðist. Slíkt útheimtir kunnáttu,
mjög góða aðstöðu, tæki og óhemju
vinnu og þolinmæði. Ég get sagt
þér það að í þessari fálkaeldisstöð
kostar það ekki minna en 2.500
dollara i beinhörðum peningum að
koma upp einum fálka og gera
hann færan um að spjara sig, sem
villtur fugl í náttúrunni. Fálkaung-
ar eru mjög viðkvæmir og fyrstu 10
dagana eru þeir svo veikburða að
þeir geta ekki haldið nægum hita á
sálfum sér. Þá líða 45 dagar frá því
að fálkaunginn skríður úr eggi sínu
uns hann er fleygur orðinn. I stöð-
inni er stöðugt eftirlit með ungan-
um þennan tíma. Að 30 dögum
liðnum er farið með fálkaungana
úr stöðinni sjálfri út í náttúruna og
þeir hafðir þar í þar til gerðum
kössum. Næstu 2—3 vikurnar eru
þeir svo að aðlaga sig náttúrunni
og þeir eru búnir undir það að tak-
ast á við náttúruna sjálfir, óháðir
Bráðefnilegir fálkaungar í hreiðri sínu einhvers staðar á íslandi.
manninum. Þessar vikur eru mjög
mikilvægar. Ungunum er séð fyrir
mat á hverjum degi. Það er ekki
staðið að því eins og þegar verið er
að fóðra alifugla heima á hlaði.
Eitt er vandasamast í þessum loka-
þætti fálkauppeldisins. Meðan á
daglegu eftirliti stendur með fálka-
ungunum í kössunum og fóðrun fer
fram, má það aldrei verða að ung-
arnir sjái til ferða mannsins sem
annast þá og fóðrar. Fálkinn má
nefnilega aldrei fá aðstöðu til þess
að tengja saman mann og mat. —
Ef þetta mistekst er ákaflega
sennilegt að mjög erfitt verði fyrir
fálkann að aðlaga sig hinni viltu
náttúru þar sem hann verður að
bjarga sér sjálfur. Maturinn, sem
fálkaungunum er gefinn, er látinn
detta niður um þar til gerða lúgu á
fuglakassanum. Það var mjög vel
að þessu öllu staðið í hinni amer-
ísku fáikaeldisstöð. Þar hefur nú
tekist að ala upp ameríska föru-
fálka og þeir eru fluttir til svæða,
sem þeir voru útdauðir og horfnir
af. En ég vil aðeins undirstrika að
þetta útheimtir mikla nákvæmni,
allt frá því að eggin eru sett í vél-
ina þar sem hita og rakastig verður
að vera nákvæmt uns hægt er að
sleppa þeim úr kössunum, sem ég
var að segja þér frá, sagði Ólafur.
Spurningu þinni um hvort hægt
hefði verið að setja eggin 8 sem
tekin voru af Þjóðverjunum í vél og
unga þeim út má hugsanlega svara
játandi, þó mér þyki sennilegra að
eggin verði blásin og sett í eggja-
safn. En hugsanlegt er að 2—4 ung-
ar hefðu komið úr eggjunum, því
reikna verður með afföllum m.a.
vegna þess hnjasks sem eggin hafa
orðið fyrir. — En þá er spurningin:
Hver átti svo að taka við ungunum
og annast framhaldið ef þeir ættu
að geta sparjað sig í hinni isl. nátt-
úru.
Við vikum aftur að fálkahreiðr-
unum sem rænd voru í Mývatns-
sveit. Það gerðist fimmtudag og
föstudag í fyrri viku. Tvö fálkapör
voru örugglega orpin, og hreiður
þeirra hafa verið rænd. Þá sáust
fálkahjón við tvö hreiður í vor. Þau
eru horfin og þar eru engin egg.
Mér þykir líklegt að eggjaþjófarnir
hafi verið hér að verki. Ég tel að
fimmta hreiðrið hafi einnig orðið
fyrir barðinu á þessum óboðnu
gestum.
í vetur sagðir þú, Ólafur, í fyrir-
lestri sem þú fluttir í Fuglavernd-
arfélaginu, að þú teldir ísl. fálka-
stofninn ekki vera í hættu?
Já ég sé ekki aðra hættu fyrir
fálkastofninn en þá að hingað hóp-
ist fálkaræningjar á hverju ári.
Það er svo sennilega undir okkur
sjálfum komið hvernig við bregð-
umst við þessari hættu. Því kem ég
aftur að því að nauðsynlegt er að
ná samstöðu og bægja þessari
hættu frá. Fálkaræningjum þarf að
koma í skilning um að almenningur
á Íslandi hikar ekki við að koma
fégráðugum fuglaræningjum undir
mannahendur. — Og við skulum
gera okkur grein fyrir því að slíkir
ræningjar hvort heldur þeir koma
snemma á vorin eða á miðju sumri
munu ekki halda sig við ákveðna
landshluta, heldur geysast um
landið þvert og endilangt með
hagnaðarvohina af ránsförinni til
íslands að leiðarljósi, sagði Ólafur
Nielsen dýrafræðingur að lokum.
Aðspurður um ástand og horfur
sagði hann að vel hefði viðrað fyrir
fálkana á þessu vori og bersýnilega
væri mikið af rjúpu. Það teljast góð
skilyrði og varp fálkans virðist
ætla að heppnast vel að þessu
sinni.
Fjórir kaupmenn heiðraðir
með gullmerki Kaupmanna-
samtaka íslands
Á árshátíð Kaupmannasamtakanna fyrir skemmstu voru fjórir kaup-
menn heiðraðir með gullmerki samtakanna. Allir hafa þeir starfað um
árabil að málefnum kaupmanna. Myndin var tekin við þetta tilefni.
Á myndinni eru, talið frá vinstri: Sigurður E. Haraldsson, formaður
Kaupmannasamtaka íslands, Ásgrímur P. Lúðvíksson, húsgagnasmiður
og húsgagnabólstrari, Hreinn Sumarliðason, kaupmaður í Kjörbúðinni
Laugaási, Jónas Gunnarsson í Kjötborg og össur Aðalsteinsson í Bygg-
ingavörum hf.