Morgunblaðið - 06.05.1984, Síða 16
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
Macintosh
Þessi frábæra nýja 32 bita tölva frá Apple er væntanleg í mjög
takmörkuöu magni næstu daga. Vinsamlegast staöfestiö pantanir.
^cippkz computcr
Skipholti 19 — Sími 29800.
vZterkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Sumarbúðir
í Hlíóardalsskóla
Aldur: 8—12 ára.
Tímabil: Hópur I: 6. júní—15. júní.
Hópur II: 18. júní—27. júní.
Hópur III: 29. júní—8. júlí.
Sundlaug, sögustundir,
leikfimisalur, föndur,
kvöldvökur, leikir.
gönguferöir,
Uppl. og innritun
í síma 91-13899.
Sovézkur
hershöfðingi
tekinn af lífi
í Afganistan
París, 4. maí. AP.
AFGANSKIR skæruliðar náðu á sitt
vald sovéskum hershöfðingja í apríl
sl., en tóku hann af lífi þegar sov-
éski herinn reyndi að koma honum
til bjargar. Greindi talsmaður
skæruliðanna frá þessu í París í dag.
Homayoun Madjrouh, talsmaÖ-
ur Sameinuöu afgönsku frelsis-
hreyfingarinnar, sagði, að
snemma i apríl hefðu skærulið-
arnir hjálpað fjórum sovéskum
hermönnum og þeir aftur hjálpað
skæruliðunum þegar þeir sátu
fyrir sovéskri herflutningalest og
bent þeim á hvar hershöfðingjann
væri að finna. Tveimur vikum síð-
ar hefðu Sovétmenn hafið mikla
sókn á hendur skæruliðunum með
loftárásum og stórskotaliðsárás-
um. Skæruliðarnir stóðust árás-
irnar í 11 daga en tóku þá hers-
höfðingjann af lífi, áður en þeir
féllu sjálfir. Voru þeir 94 talsins
en liðsafli Sovétmanna skipti
hundruðum manna.
Kona
Sakharovs
sökuð um
launráð
Moskvu, 4. maí. AP.
LÖGREGLUMENN lokuðu öllum
aðkomuleiðum að íbúð Yelenu
Bonner eiginkonu andófsmannsins
Andrei Sakharovs í dag eftir að hún
hafði verið sökuð um ráðabrugg með
handarískum diplómötum, sem
sagðir voru hafa ætlað að veita
henni hæli í bandaríska sendiráðinu
í Moskvu er maður hennar hæfi
hungursvelti.
Bandaríska sendiráðið í Moskvu
gaf út yfirlýsingu í dag, þar sem
segir að ásakanir TASS-frétta-
stofunnar séu með öllu tilhæfu-
lausar.
TASS-fréttastofan sagði að
„áætlunin hefði verið upprætt“
vegna tfmanlegra aðgerða lög-
regluyfirvalda. Lögreglan hefur
undanfarin ár staðið vörð við ibúð
Yelenu meðan hún hefur dvalist í
Moskvu. Eigi fylgdi fréttum hvar
þau hjónin eru niðurkomin nú.
Frakkland:
Kenna
Tyrkjum
um spreng-
ingarnar
P.rís, 4. nui. AP.
HREYFING Armena I Frakklandi,
sem berst gegn Tyrkjum, efndi í dag
til umfangsmikilla mótmælaað-
gerða. Tilefnið var þrjár öflugar
sprengingar, sem áttu sér stað á
fimmtudag við nýtt minnismerki
Armeníumanna í bænum Alfortville
suðvestur af París. í þessum spreng-
ingum særðust 13 manns en enginn
lífshættulega.
Ara Torian, leiðtogi armensku
þjóðernisshreyfingarinnar, skor-
aði á Armeníumenn búsetta í
Frakklandi að safnast saman í Al-
fortville síðdegis í dag til þess að
mótmæla þessum sprengjuaðgerð-
um, sem hann sagði, að væru þátt-
ur í langvinnri árásarherferð
Tyrkja á hendur Armeníu-
mónnum.
Minnismerkið hafði verið af-
hjúpað sl. sunnudag og höfðu
Armeníumenn reist það til minn-
ingar um 1% millj. samlanda sína,
sem þeir halda fram, að Tyrkir
hafi myrt árið 1915.