Morgunblaðið - 06.05.1984, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
68
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Fiski-
súpur
Heilagfiskisúpa með grænmeti
(banda 3—4)
700 g heilagfiski (stórlúða)
1 lítri vatn
2 tsk salt í fisksoðið
5 piparkorn
5 allrahandakorn
'k tsk fenugreek
1 lárviðarlauf
1 stór rófa
2 meðalstórar gulrætur
100 g hvítkál eða örlítið grænkál
1 lítill blómkálshaus eða samsvarandi magn sprotakál
(brokkoli)
Hveitihristingur
1 egg + salt milli fingurgómanna
1 tsk smjör
1. Skerið uggana af fiskinum og skafið roðið. Skerið
fiskinn ekkert í sundur.
2. Setjið vatn í pott, bætið salti í. Látið sjóða upp.
3. Setjið piparkornin, allrahandakornin, fenugreekið
og lárviðarlaufið í grisju, bindið fyrir og setjið í vatnið.
4. Leggið fiskinn í vatnið, látið sjóða upp, minnkið hit-
ann og látið vera við suðumark í 20 mínútur.
5. Setjið lftið vatn í annan pott, setjið örlítið salt út í.
Látið sjóða upp, afhýðið rófuna og skerið í litla bita,
skerið hvftkálið frekar smátt. Setjið í vatnið og látið
sjóða í 10—15 mínútur.
6. Þegar fiskurinn hefur soðið í 12 mínútur, er gulrót-
um í sneiðum bætt út í ásamt blómkáli eða sprotakáli.
7. Takið síðan fiskinn og kálið upp úr soðinu og haldið
heitu. Best er að setja það í skálina sem súpan er borin
fram í, setja lok eða álpappír yfir skálina.
8. Búið til hveitihristing og jafnið súpuna. Hún á að
vera frekar þunn. Takið kryddpokann upp úr, kreistið
örlítið en fleygið sfðan. Takið pottinn af hellunni og
látið kólna örlítið.
9. Hrærið eggið með örlitlu salti, hellið örlitlu af súp-
unni út í eggið og jafnið vel saman, setjið síðan eggið út
1 í súpupottinn. Hrærið hratt svo að eggið skilji sig ekki.
Fagur fiskur flyðran í sjónum!
Flyðra, heilagfiski, spraka, stór-
lúða. Þau eru mörg nöfnin, sem
þessum fiski eru gefin. Á Seyðisfirði, þar
sem ég ólst upp, var þessi fiskur alltaf
nefndur spraka eða heilagfiski. Nafnið
stórlúða heyrði ég fyrst fyrir fáum árum
í Reykjavík, og var þá fiskurinn þannig
aðgreindur frá smálúðu eða lúðuloki.
Sunnanlands heyr-
ist nú sjaldan ann-
að orð en stórlúða.
Þessi fiskur er #
hinn besti mat-
fiskur, feitur og
bragðgóður. Fisk-
urinn er bestur á
sumrin og haustin,
en á veturna er
fullorðni fiskurinn
magur að lokinni
hrygningu. Heilag-
fiski er almennt
borðað nýtt eða
hert (riklingur)
hérlendis, þó hefur
á seinni árum verið hægt að fá reykt
heilagfiski. „Flyðran er stærst allra flat-
fiska. Getur orðið 3—4 metrar, allt að 200
kg og 40—50 ára. Nú á dögum eru sjald-
gæfar flyðrur lengri en 2 m. Vegna hins
hæga vaxtar og hve seint fiskurinn verð-
ur kynþroska er stofninum mikil hætta
búin af ofveiði." Feitur fiskur eins og
heilagfiskið hentar vel í súpur. Hér er
uppskrift að heil-
agfiskisúpu með
grænmeti, sem er
mjög ljúffeng.
Einnig er önnur
uppskrift af súr-
sætri súpu sem
margir, einkum af
eldri kynslóðinni,
hafa dálæti á. Þeg-
ar fiskisúpur eru
bornar á borð þarf
‘ÍErOf ekkert annað en
djúpa diska og
skeiðar. Einnig eru
fá áhöld notuð við
tilb. á súpunum.
10. Setjið rófurnar og hvítkálið út í súpuna. Setjið
smjörið út í. Takið fiskinn í sundur í Iitla bita. Hellið
súpunni yfir fiskinn og grænmetið og berið fram.
Athugið: Þið getið fjarlægt roðið og beinin áður en þið
hellið súpunni yfir fiskinn, en sumir vilja borða roðið og
sjúga beinin.
Súr-sæt heilagfískisúpa
(handa 3—4)
700 g heilagfiski (stórlúða)
1 lítri vatn
2 tsk salt
1 lárviðarlauf
2 tsk edik
safi úr Vz lítilli sítrónu
12 mjúkar sveskjur
'h dl rúsínur
1 epli
hveitihristingur
1 egg
1 'h tsk sykur
1 tsk smjör
'h sítróna í örþunnum sneiðum
1. Skerið uggana af fiskinum og skafið roðið. Skerið
fiskinn ekkert í sundur.
2. Setjið vatn í pott, bætið salti, lárviðarlaufi, ediki og
sítrónusafa saman við. Látið sjóða upp.
3. Leggið fiskinn 1 vatnið og látið sjóða upp, minnkió
hitann og látið vera við suðumark í 20 mínútur.
4. Þegar 10 mínútur eru eftir af suðutímanum er
sveskjum og rúsínum bætt út í.
5. Afhýðið eplið og takið úr því kjarnann, skerið síðan í
báta. Sjóðið í súpunni síðustu 5 minúturnar.
6. Takið fiskinn úr soðinu og haldið heitum. Best er að
setja hann í skálina sem súpan er borin fram í, setja lok
eða álpappir yfir skálina.
7. Búið til hveitihristing og jafnið súpuna. Hún á að
vera frekar þunn. Takið pottinn af hellunni og látið
kólna örlítið.
8. Hrærið eggið með sykrinum, hellið örlitlu af súpunni út
í eggið og jafnið vel saman, setjið síðan eggið út í súpupott-
inn. Hrærið hratt svo að eggið skilji sig ekki.
9. Setjið smjörið i súpuna. Takið fiskinn i sundur i litla
• bita. Hellið siðan súpunni yfir hann í skálinni. Skerið 'h
sitrónu í örþunnar sneiðar og leggið ofan á súpuna.
Athugið: Þið getið fjarlægt roðið og beinin áður en þið
hellið súpunni yfir fiskinn, því sumir vilja borða roðið
og sjúga beinin.
Heilsóluð radial-
dekk á verði sem
fáir keppa við
yílkaup
155 x 12 kr. 1.08G.
155 x 13 kr. 1.090,-
165 x 13 kr. 1.095.-
175 x 14 kr. 1.372,-
185 x 14 kr. 1.396,-
175/70x13 kr. 1.259,-
185/70 x 13 kr. 1.381.-
VEITUM
FULLA
ÁBYRGÐ
Síðumúla 17, inngangur að
neðanverðum austurenda.
Sími 68-73-77.
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær
Skúlagata
Miötún
Laugavegur frá 101 — 171
Hátún II
Hátún III
Samtún