Morgunblaðið - 06.05.1984, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ1984
71
Þráttað um listasafn
og verkin í geymslu
Furstafjölskyldan í Liechtenstein
á eitt elsta og verömætasta lista-
verkasafn í heimi. Gamall prins byrj-
aði að safna málverkum fyrir einum
300 árum og dýrmætar myndir hafa
stöðugt bæst við síðan. Franz Josef
II, furstinn í Liechtenstein, sagði
þjóð sinni fyrir nokkriftn árum að
hún gæti fengið safnið til sýnis ef
hún byggði fullkomna safnbyggingu
fyrir þaö. íbúar Vaduz, höfuðborgar-
innar og stærstu kantónunnar, sam-
þykktu í atkvæöagreiðslu (konur
fengu að vera með í ákvarðanatök-
unni af því að þetta var „héraðs-
mál“) að reisa byggingu og undir-
búningur hófst.
Stór og mikil bygging var teikn-
uð og henni valinn staður í miðri,
borginni, sem er ekki ýkja stór.
Mörgum þótti þetta ekki hentugur
staður og söfnuðu undirskriftum
til að mótmæla því að borgin
keypti landið. Sú tillaga var sam-
þykkt í atkvæðagreiðslu. Það þótti
benda til þess að fólk hefði skipt
um skoðun á safnbyggingunni og
það var spurt í einni atkvæða-
greiðslunni enn hvort það ætti að
velja byggingunni nýjan stað.
Svarið við því var nei. Svo nú er
alls ekki ljóst hvað fólkið vill og
hvað á að gera, en ríkistjórnin tel-
ur að fólkið vilji enn reisa lista-
safn. Málinu hefur verið vísað til
dómstólanna og niðurstöðu er beð-
ið þaðan.
Á meðan er meirihluti lista-
verkanna í geymslu í kastalanum
og enginn fær tækifæri til að sjá
Barnamynd frá Biedermeier-tímabil-
inu í Vín.
þær. Hans Adam, erfðaprins,
sagði í samtali að fjölskyldan
hefði haft mikið geymslurými inn-
réttað en það væri synd að mynd-
irnar væru ekki sýndar. Kastalinn
væri of lítill til þess að sýna lista-
verkin og hýsa furstafjölskylduna.
Fjölskyldan kysi að búa þar og
listaverkin yrðu að vera í geymslu
þangað til íbúar Vaduz koma sér
saman um stærð og staðsetningu
safnbyggingar.
Hluti listaverkanna er til sýnis í
litlum húsakynnum við aðalgötu
Vaduz. Þar eru margar frægar og
feikifallegar myndir eftir Rubens,
nokkrar styttur frá barokktíman-
um og afar skemmtilegar myndir
Furstafjölskyldan á feiknin öll af
frábærum Rubens-myndum.
frá Biedermeier-tímanum í Vín.
Furstafjölskyldan bjó þá þar og
prinsarnir keyptu af Bied-
ermeier-listamönnunum á meðan
þeir voru á Iífi, fengu þá jafnvel til
að gera myndir af börnunum í
fjölskyldunni, svipaðar myndir og
fólk tekur nú með polaroid-
myndavélum, nema hvað það eru'
frábær listaverk og litirnir hald-
ast sem betur fer í geymslunni í
kastalanum.
Listaverkin eru geymd í kastalanum, en hann er ekki opinn almenningi.
Fyrstir íEvrópu!
VC-481
Myndsegulband n
Módel 84/85
Við í Hljómbæ erum
fyrstir í Evrópu til að geta
boðið þetta nýja vídeó-
tæki frá SHARP — Módel
’84—’85
Nýjungar:
Fullkomnari framhlaöning.
Sjálfvirk endurspólun.
Sjálfvirkur myndleitari.
Stórir litaðir stjórntakkar.
Auk þess hefur tækiö 7 daga prógram-
minni.
8 aógeröa fjarstýringu.
Snertitakka.
10 faldan hraóa á myndleitara.
Truflanalausa kyrrmynd.
Stillanlegan litatón.
Og allt þetta á þessu ótrúlega veröi.
Meö fjarstýringu
Aðeins
35.900
stg.
HLJÖMBÆR
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999