Morgunblaðið - 06.05.1984, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
85
NÝTT STORÐ
í FÆÐINGU
„VIÐ ERUM Á fullri ferð,“ sagði Haraldur J. Hamar, þegar Mbl. innti hann
eftir tímaritinu Storð, sem hóf útkomu í fyrra. Blaðamaður hitti hann að máli
ásamt Aðalsteini Ingólfssyni, en hann er nýorðinn ritstjóri Storðar ásamt
Haraldi.
„Við tókum okkur góðan tíma til
að kryfja reynslu fyrsta ársins til
mergjar. Storð fékk ágætar við-
tökur, en við ráðgerðum alltaf að
stokka spilin í upphafi þessa árs,
vega og meta og athuga hvort við
þyrftum ekki endurnýjunar við.
Öll útgáfustarfsemi af þessu tagi
verður að vera í stöðugri endur-
skoðun og útgefendur jafnframt í
stöðugri sjálfsskoðun,“ sagði Har-
aldur. „Storð hefur þegar kynnt
sig og hún mun gera betur grein
fyrir sér með hverju nýju blaði.
Það næsta er á leiðinni."
Mér fannst það sérlega ánægju-
legt og vera til marks um að við
séum búin að „brjóta ísinn" hvað
útgáfuna snertir, að Flugleiðir
hafa óskað eftir því að hafa ákveð-
inn fjölda eintaka um borð í öllum
þotum á millilandaleiðum. Við
höfum gert samning um umtals-
verða sölu, sem væntanlega eykur
árspplag Storðar um 8—10 þúsund
eintök.
Ég er líka ánægður með að hafa
fengið Aðalstein Ingólfsson að út-
gáfunni. Okkur hefur alltaf gengið
vel að vinna saman og hann er
með hæfustu mönnum til að fjalla
um ýmsa þætti menningarmála.
Hans meginverkefni verður að rit-
stýra Storð, ég ætla að spila þar á
kantinum þegar fram í sækir, því
ég hef í mörg önnur horn að líta.
Útgáfa mín hefur bólgnað svo út
að ég á orðið í fullu fangi með að
halda í spottana," sagði Haraldur,
sem gefur út og ritstýrir Iceland
Review fjórum sinnum á ári, News
from Iceland mánaðarlega og At-
lantica 3—4 sinnum á ári, en síð-
astnefnda blaðið er þegar um borð
í Flugleiðavélum, sem kunnugt er.
Þar að auki rekur Haraldur bóka-
útgáfu.
„Það var engin tilviljun að ég
þáði boð Haralds J. Hamar um að
koma til starfa hjá Iceland Revi-
ew-útgáfunni og Storð, er ég gerði
hlé á framhaldsnámi mínu í lista-
sögu fyrir jól,“ sagði Aðalsteinn.
„Ég hef ævinlega borið mikla virð-
ingu fyrir því sem hann hefur ver-
ið að gera í sinni útgáfu, og hef
skrifað fyrir hann greinar í tíu ár.
Mér finnst sérstaklega spenn-
andi að fá tækifæri til að stjórna
Storð ásamt Haraldi," hélt Aðal-
steinn áfram. „Það hlýtur að vera
draumur hvers þess sem fengist
hefur við blaðamennsku, að fá að
vinna að slíku riti einhvern tím-
ann á ævinni. Storð brýtur í raun
blað í íslenskri tímaritsútgáfu
hvað öll vinnubrögð snertir. Mark-
ið er þar sett langtum hærra en
við eigum að venjast á íslandi.
Helst má líkja blaðinu við ýmiss
erlend úvalsrit. Enda hafa erlend-
ir sérfræðingar borið mikið lof á
Storð, sagst vera undrandi á því
að hægt skuli að gefa út slíkt rit á
íslandi."
Haraldur skaut þarna inn í: „Að
vissu leyti vorum við búnir að búa
í haginn fyrir Storð með útgáfu
Færey-
inga
kaffi
FÆREYSKAR konur hér í
Reykjavík og nágrenni, sem eru í
kristilegu félagi færeyskra kvenna
og heitir Sjómannskvinnu hring-
urinn, halda í dag, sunnudag, ár-
legan kaffisöludag í hinu nýju
færeyska sjómannaheimili í Skip-
holti 29. Ágóðinn rennur til smíði
hússins, sem nú er á lokastigi.
Iceland Review og Atlantica, en
þar er líka reynt að setja markið
hátt. Sú reynsla hefur borið ár-
angur í Storð."
Aðalsteinn var spurður að því
hvernig hann vildi skilgreina hlut-
verk Storðar.
„Ég er á þeirri skoðun að menn
hafi verið að dreifa kröftum sín-
um um of í fyrri tölublöðum, enda
var þá verið að láta reyna á vin-
sældir ýmissa þátta. Ætlunin er
fyrst og fremst að gera Storð að
menningarriti á breiðum grund-
velli. Vitanlega höldum við áfram
þar sem frá var horfið í fyrra, með
ítarleg viðtöl við fólk sem er fram-
arlega í menningarlífinu, mynd-
listargreinar, en þar og í ljós-
myndun, njótum við okkar e.t.v.
best, greinar um kvikmyndir,
arkitektúr og annað sjónrænt efni.
En við viljum líka taka þátt í um-
ræðu um þjóðfélagsmál, og undir-
búa framlag okkar til slíkrar um-
ræðu á annan hátt en hér hefur
tíðkast, með því að fá alltaf hæf-
ustu aðila til að skrifa fyrir okkur,
með því að vinna nauðsynlega for-
vinnu og með því að beita ljós-
myndum á markvissan og smekk-
legan hátt,“ sagði Aðalsteinn.
Haraldur bætti við: „Takist
okkur að standa að öllum okkar
greinum, og sérstaklega greinum
um þjóðfélagsmál á þennan hátt,
ætti Storð að geta orðið sæmilega
varanlegt fyrirtæki. Alltént ætti
ritið ekki að hverfa í körfuna eftir
fyrsta lestur. En auðvitað er þetta
ekki auðvelt í jafn litlu þjóðfélagi
og okkar."
Aðalsteinn var spurður að því á
hvaða þætti aðra hann legði
áherslu við samsetningu Storðar.
„Við ætlum að halda áfram að
vera vettvangur fyrir fyrsta
flokks ljósmyndavinnu, fyrst og
fremst í litum, en einnig svart/-
hvítu en margir ljósmyndarar
telja svart/hvítu ljósmyndina enn
vera drottningu ljósmyndalistar-
innar," sagði hann. „Við leggjum
líka mikið upp úr því að fá gott og
glóðvolgt bókmenntaefni eftir
helstu rithöfunda landsins, en
margir þeirra hafa þegar lagt
okkur lið. Við teljum okkur geta
komið slíku efni á framfæri í
vandaðri búningi en nokkurt ann-
að rit á landinu, þannig að það
verði bæði höfundum og okkur til
sóma.
En umfram allt ætlum við að
reyna að vera opinhuga, en halda
samt áfram að gera kröfur og
meiri kröfur. Á endanum hlýtur
slíkur metnaður að bera árangur,
hljóta hljómgrunn. Við erum
sannfærðir um það,“ sagði Aðal-
steinn að lokum.
reglulega af
ölmm
fjöldanum!
fgtutMftfci ií»
ítdskur krístaU
ítölsk hönnm
Hagkaups veró
Donizetti
□ □
Líkjörsglas
Verð:
39.95
Vínglas
Verð:
69.95
For-drykkjarglas „Long-drink“ glas
Vcrð: Verð:
65.95 75.95
Michelangelo
Hvítvínsglas
Verð:
135.-
Líkjörsglas
Verð:
89.95
Rauðvínsglas
Verð:
139.-
Kampavínsglas
Verð:
169.-
Kampavínsglas
Verð:
139.-
Beethoven
□
Líkjörsglas
Verð:
49.95.-
Descrt skál
Vcrð:
79.95,-
For-drykkjarglas
Verð:
75.95.-
Wiskeyglas
Verð:
85.95,-
Vínglas
Vcrð:
75.95,-
„Long-drink” glas
Verð:
89.95,-
7?S. ‘Þetfa qœti áelát ufifr ú átKfiátcatcUc.
HAGKAUP
Reykjavík
Akureyri
Njarðvík