Morgunblaðið - 06.05.1984, Side 39
VÉLMENNI
MEÐ NJÁLG
„Ef ég vissi ekki betur
héldi ég að fyrirmyndin
væri vélmenni með njálg,
sem er að reyna að sleppa
út úr glerbúri á tungl-
inu,“ sagði einn sem er
kominn af léttasta skeiði
um nýjasta dans ungl-
inganna, Break-dansinn,
sem hefur farið eins og
eldur í sinu um gjörvalla
heimsbyggðina undanfar-
ið. Að sögn kunnugra er
Break-dansinn upprunn-
inn í fátækrahverfum í
Bandaríkjunum, og mun
hafa sprottið upp úr
slagsmálum ungmenna,
sem þar eru tíð. Ungl-
ingarnir komust að því að
það er mun þægilegri leið
til útrásar að dansa
hressilega, en lumbra
hver á öðrum.
Það er ekki langt síðan
sýnt var í sjónvarpinu frá
danskeppni unglinga í
Tónabæ, og þar virtist
Break-dansinn vera
fyrirmynd allra dansar-
anna. Tveir áhugamenn
um Break-dans komu á
ritstjórn Morgunblaðsins
fyrir skömmu, þeir Arnór
Björnsson og Einar Hall-
dór Jónsson, nemendur í
Hagaskóla, og tóku nokk-
ur spor fyrir Gunnlaug
Rögnvaldsson, ljósmynd-
ara. Þeir líta á Break-
dansinn sem látbragðs-
leik fyrst og fremst, þar
sem áherslan er á trylltar
hreyfingar. Þeir gefa lítið
út á það að þetta sé erfitt,
en telja að menn þurfi að
vera nokkuð liðugir til að
ná viðunandi árangri.
Einar Halldór Jónsson (t.v.) og Arnór Björnsson taka sporið.
í * I |
Er Gunnar farinn aö
selja Moggann?
Guanar V. Andrésson, Ijósmyndari DV, er ekki farinn ai> selja
Morgunblaðid eins og meðfylgjandi mynd gæti gefið til kynna.
Hann fór i stúfana I. maí, eins og margir kollegar hans, að fylgjast
með ræðuhöldum í miðbænum, og til að komast í betra skotfæri
brá hann sér upp i pylsuvagn i Lækjartorgi sem auglýsir Morgun
blaðið i þakbrúninni. Ragnar Axelsson, Ijósmyndari Mbl., stóðst
ekki mótífið, og smellti þessari skemmtilegu mynd affélaga sínum
ístarfi.
(
' HFITi
.fæsthér!
RALLKAPPAR eiga það
til að komast ekki í
mark, einsog kunnugt er.
Enda er meðferðin á
bílnum, þarfasta þjónin-
um, ekki alltaf í sam-
ræmi við 111. meðferð á
skepnum: fákurinn er
keyrður til hins ítrasta og
á það til að springa á
sprettinum fyrir bragðið.
En það er svekkjandi
þegar það gerist alveg
rétt við marklínuna eins
og átti sér stað hjá þeim
Ríkharði Kristinssyni og
Atla Vilhjálmssyni í Auto-
rallý ’84, sem fram fór í
síðastliðnum mánuði.
Þegar þeir áttu eftir um
300 metra í mark, brotn-
aði hjá þeim spindill og
annað framdekkið flaug
undan bílnum og út í
móa. Nú voru góð ráð
dýr, og brugðu þeir félag-
ar á það ráð að reyna að
keyra síðasta spölinn á
þremur hjólum og kom-
ust, merkilegt nokk, um
það bil 150 metra, en þá
harðneitaði skeifulausi
fóturinn að halda áfram
og gróf sig djúpt niður í
sandaurinn. Meðfylgj-
andi myndir sýna vel
raunir rallaranna, þegar
Ijóst var að bíllinn færi
ekki lengra.
Kcppnina unnu þeir
Halldór Úlfarsson og
Hjörleifur Hilmarsson,
en Ríkharður og Atli fóru
þó ekki verðlaunalausir
frá keppninni. Þeir unnu
til Morgunblaðsbikars-
ins, sem er farandbikar
og var veittur nú í fyrsta
sinn fyrir skemmtileg til-
þrif og íþróttamannslega
framkomu. Myndirnar
tók Gunnlaugur Rögn-
valdsson.