Morgunblaðið - 13.05.1984, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAÍ 1984
23
Þannig lítur orkublik mannsins út |— sUerð þess sýnir heilsu viðkom-
andi eða lífsorku. Teikning: Erla Stefánsdóttir
Viðtal:
Bragi óskarsson
um.
vitað kemur það sér oft vel. Og
það má reyndar segja um
skyggnihæfileikana yfirleitt að
þeir koma sér vel ef maður kann
að fara með þá, og þó þeir hafi
oft verið til óþæginda vildi ég
ekki missa þá fyrir nokkurn
mun. Það má líkja þessari
skynjun við blómarækt, ef mað-
ur hlúir að henni og notar hana
til góðs, þá ber hún blóm og
stækkar.
Fylgir því ekki einhver óhugn-
aður að sjá sýnir sem þessar?
Það hefur ekki verið oft að ég
hafi séð neitt verulega óhugn-
anlegt — flest sem ég sé er bæði
fagurt og uppbyggilegt. Fram-
liðið fólk er ósköp áþekkt því
Merking litanna
í tilfinningaámnni
Hér fer á eftir lausleg skilgrein-
ing Erlu á merkingu litanna í til-
finningaárunni. Merking þessara
sömu lita í hugarárunni er í flestum
tilrikum hlidstæd. Erla leggur
áberslu á ad hér sé u m tiltölulega
ónákræma og jafnrel rillandi
skilgreiningu litanna að ræða —
skilningur á litunum ráðist einnig
af eðli þeirra, innbyrðis hreyfingu
og áferð — brort þeir eru Ijósir eða
dökkir, bjartir eða dimmir, hnökr-
óttir eða skínandi. Þá ræðst
merking litanna einnig af þrí hrort
þeir birtast í tilfinninga-, hugar- eða
innsæisárunni.
Gult — rinátta, samúð, hlýja, óeig-
ingjörn ástúð.
Gulbrúnt — sjálfsánægja, sjálfs-
elska, eigingirni.
Rautt — gleði, kátína, ást, (hrifn-
ing).
Rauðbrúnt — afbrýði, reiði, háð,
hroki, frekja.
Rauðgult — gleði og stríðni.
Grænn — rinátta, rinsemd, samúð.
Brún-mosagrænn — nöldur, erg-
elsi, órinsemd, óþolinmæði.
Blár — rinátta og traust.
Dimm-blár — þrermóðska, innilok-
un.
Blá-grænt — dagdraumalitur, skiln-
ingur.
Dimm-blágrænt — rantraust og tor-
tryggni.
Fjólurautt — hrifning (kyrrð).
Fjólublátt — hátíðleiki (kyrrð).
Dimm-fjólublátt — getur merkt
slægð og tortryggni.
Hrítt — hreinleiki.
Grátt — óhreinleiki.
Brúnt — græðgi.
ungur og ástfanginn.
fólki sem maður sér hér, enda
ekki svo mikill munur á. Ég hef
hins vegar reynt að beina
skyggni minni frá framliðnum
og tekist það að nokkru leyti —
því ég vil heldur sjá og vinna
með því fólki sem er hérna meg-
in.
Ára fólks er yfirleitt fögur og
getur verið mjög falleg hjá ham-
ingjusömu fólki. Sé fólk hins
vegar fjandsamlegt eða dapurt
verður ára þess grá og heldur
óhrjáleg að sjá. Illar hugrenn-
ingar og kenndir skapa and-
styggilega litbletti í tilfinninga-
áruna og getur það verið ljót
sjón. Samt er innsti kjarni
mannsins ávallt fagur og ber
hinum guðlega uppruna hans
órækt vitni.
Framliðið fólk
-Það er afar algengt að fólk
sjái framliðna og þarf ekki allt-
af mikla skyggni til. Það leita
mjög margir til mín í því skyni
að fá skýringar á þess háttar
sýnum en þetta er í rauninni
einfalt mál. Það eru ekki nærri
eins skýr mörk milli þessa
heims og annars og fólk al-
mennt heldur. Og það fólk sem
framliðið er verður okkur oft til
góðs og veitir okkur mikla
hljálp.
Á mörkum þessara tveggja
heima er hins vegar svæði sem
er afar hrjóstrugt og ljótt og
fullt af sora — þangað hefur
safnast margt illþýði sem ekki
er allt af mannlegum uppruna.
Því miður kemur það fyrir að
þessar verur ná tökum á jarðn-
esku fólki og hreinlega yfirtaka
það. Þetta verður með þeim
hætti að hin framandi vera
kemst einhvernveginn á milli
efnislíkamans og fínni líkam-
anna og útilokar þannig per-
sónuleika mannsins frá jarðlík-
amanum, og veldur þannig geð-
veiki sem venjulega er illlækn-
andi. Stundum eru það fram-
liðnir menn sem valda þessu.
Áttu þá við hina gömlu trú um að
fólk geti verið andsetið?
Já, trú sem byggir á stað-
reynd, því miður. Þetta eru
heldur óskemmtilegir hlutir en
það væri betra ef menn hefðu
meiri skilning á fyrirbærinu því
þá ykjust möguleikarnir til að
hjálpa fólki sem orðið hefur
fyrir þessari ógæfu.
Tónleikar í litum
Nú segist sumt listafólk sjá ein-
hverskonar litaflökt í kringum
leikara á sviði og einnig á hljóm-
leikum — telurðu að auðveldara
sé að sjá árur við þessar kringum-
stæður?
Það fólk sem hrífst af listum
getur orðið næmara á þessu
sviði fyrir bragðið. Mér virðist
t.d. að skilyrði þess að verða
góður leikari sé að hafa sterka
áru. Svo virðist sem miklir leik-
arar geti jafnvel stjórnað stór-
um hluta áru sinnar — þeir
hreinlega skipta um hugar- og
tilfinningaáru þegar þeir fara
inn í hlutverkið. Þetta á einnig
við þann hluta árunar sem snýr
að huganum og við getum kallað
huglíkama. Það er mjög auðvelt
að ráða af lögun hans og lit
hversu mikla hæfileika fólk hef-
ur til að einbeita sér.
Á hljómleikum er litaflóðið
svo geysilegt að margir hljóta
að geta séð eitthvað af því. Það
eru ekki aðeins hljóðfæraleikar-
arnir og áheyrendur í sínum
marglitu árum, heldur er tón-
listin í litum og litadýrðin verð-
ur svo yfirgnæfandi að maður
verður helst að setja plötuna á
fóninn þegar maður kemur heim
til að fá að heyra sjálfa tónlist-
ina.
Telurðu að það hafi hagnýtt
gildi að sjá áruna?
Það getur tvímælalaust haft
hagnýtt gildi. Það er t.d. mögu-
legt að sjúkdómsgreina fólk með
því að skoða áru þess, því það
sést greinilega í árunni hvar
sjúkdómur er í jarðlíkamanum.
Margir sjúkdómar eiga sér upp-
tök í fínni líkömunum og eru þá
sjáanlegir þar áður en þeir
koma fram í vefjum líkamans.
Það er líka hægt að lækna í
gegnum áruna með því að beita
tækni og þekkingu. En það er
ástæðulaust að fara lengra út í
þá sálma hér.
Spegill
hugarfarsins
Þú spyrð um hagnýtt gildi í
sambandi við áruna. Eg held að
það sé alltaf hagnýtt að þekkja
tilveruna eins og hún er, og með
því að kanna áruna getum við
öðlast meiri þekkingu á okkur
sjálfum. Það er tvímælalaust
hagnýtt fyrir fólk að þekkja
þetta fyrirbæri því þá gerir það
sér fremur ljóst að maðurinn —
sérhver maður — er stórkost-
legt undur útaf fyrir sig. Maður-
inn er annað og meira en flókin
vél sem hægt er að skilja og skil-
greina. Árur fólks eru afar fjöl-
breytilegar, engar tvær eru eins
og þær eru sífellt að breytast,
því við erum sífellt að endur-
skapa áruna með hugarfari
okkar og hneigðum. Það hlýtur
að vera manni hvatning að
vanda hugarfar sitt þegar mað-
ur veit að þessu er svona varið
— að hugsanir eru raunverulega
hlutir sem við sköpum og fylgja
okkur eftir. Sterkar og jákvæðar
hugsanir skapa fallega áru og
stuðla að hamingju okkar og
annarra. Séu neikvæðar hugsan-
ir hins vegar ríkjandi verður ár-
an eins og grár flóki, tilvera við-
komandi verður dapurleg og
snauð, og þessi áhrif finna allir
sem þurfa að umgangast hann.“
Blm. Mbl. tekur saman skrif-
færi sín og sýnir á sér fararsnið.
Ætli það geti verið að dr. Kilner
hafi haft rétt fyrir sér — að
maður hafi áru og hún endur-
spegli hugarfar manns í hví-
vetna? „Ég vona bara að þú haf-
ir náð einhverju af þessu sem ég
var að útskýra," segir Erla.
„Fólk þarfnast meiri þekkingar
á þessu sviði — þetta verður
fyrst gott þegar hægt verður að
taka myndir af árunni og menn
fá þær í passann sinn. Slíkar
passamyndir myndu vera tölu-
vert meira upplýsandi um við-
komandi en þær myndir sem nú
tíðkast."
— bó