Morgunblaðið - 13.05.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MAl 1984
35
Sextugur:
Björn Tryggvason
aðstoðarbankastjóri
Hinn 13. maí árið 1924 fæddist
hjónunum Önnu Klemensdóttur
og Tryggva Þórhallssyni þáver-
andi ritstjóra og alþingismanni
sonur, sem í skírninni hlaut nafn-
ið Björn Bjarnar.
Var hann 6. barn þeirra hjóna.
Áður voru fædd: Klemens, hag-
stofustjóri, Valgerður, skrifstofu-
stjóri Þjóðleikhússins, Þórhallur,
bankastjóri Búnaðarbanka ís-
lands, Ágnar, framkvæmdastjóri
búvörudeildar SÍS, og Þorbjörg,
framkvæmdastjóri Fjölritunar-
stofu Daníels Halldórssonar.
Yngst þeirra barna Önnu og
Tryggva er Anna Guðrún, alnafna
móður sinnar.
Að Birni Tryggvasyni standa
styrkar stoðir. Voru föðurforeldr-
ar hans hjónin Valgerður Jóns-
dóttir hreppstjóra á Bjarnastöð-
um í Bárðardal, f. 1863, og Þór-
hallur Bjarnarson prófasts Hall-
dórssonar í Laufási við Eyjafjörð,
f. 1855.
Þórhallur var skipaður biskup
yfir íslandi 19. september 1908.
Hafði hann þá gegnt prestembætti
á ýmsum stöðum og verið for-
stöðumaður Prestaskólans en auk
þess tekið virkan þátt í stjórnmál-
um, m.a. setið á Alþingi fyrir
Borgfirðinga og verið forseti
neðrideildar um skeið.
Móðurforeldrar Björns voru
hjónin Þorbjörg Stefánsdóttir,
sýslumanns Bjarnasonar, f. 1862.
Klemens var þingmaður Eyfirð-
inga og Rangæinga, forseti neðri-
deildar Alþingis um skeið, sýslu-
maður, amtmaður, landritari og
ráðherra.
Of langt má! yrði að rekja ættir
Björns Tryggvasonar lengra í
stuttri sextugsafmæliskveðju en
óhætt mun vera að fullyrða að þar
væri að finna fleiri sem áhrif hafa
haft á sögu þjóðarinnar í andleg-
um og veraldlegum efnum en al-
mennt gerist.
Hver er svo maðurinn, sem svo
styrkir stofnar standa að?
Varla hefur bernskan verið
daufleg í hópi tápmikilla systkina
á heimili þar sem faðirinn var
einn aðsópsmesti stjórnmálaskör-
ungur þjóðarinnar.
Stjórnmálasaga Tryggva Þór-
hallssonar var ekki ýkja löng en
stormasöm. Hafa þau átök vafa-
laust haft djúp áhrif á hugarfar
hins unga manns. Tryggvi andað-
ist 31. júlí 1935 aðeins 46 ára að
aldri og hafði þá markað dýpri
spor í stjórnmálasögu landsins en
flestir aðrir á jafn skömmum
tíma. Móðir Björns, Anna, lifir
enn.
Björn naut þess í æsku að kynn-
ast almennum störfum til lands og
sjávar. Sveitastörfum kynntist
hann m.a. þegar hann dvaldist að
Fjósatungu í Fnjóskadal og á
Kirkjubæjarklaustri. Á skólaár-
um sínum vann hann í saltfiski í
Reykjavík, ók síðar vörubílum
fyrir Reykjavíkurhöfn og stundaði
síldveiðar í mb. „Viktoríu" fyrir
Norðurlandi. Sennilega hafa störf
hans í Útvegsbankanum þó geðj-
ast honum best, a.m.k. urðu bank-
ar aðalstarfsvettvangur hans síð-
ar.
Allt þetta gaf honum þá innsýn
í atvinnulíf þjóðarinnar sem mót-
að hefur víðsýni hans síðan.
Björn lauk lögfræðinámi frá
Háskóla íslands í febrúar 1951
með fyrstu einkunn.
Sumarið 1951 dvaldist hann í
London við framhaldsnám i lög-
fræði en 1. des. 1951 var hann ráð-
inn lögfræðingur Landsbanka ís-
lands. Frá 14. ágúst 1967 hefur
hann gegnt störfum aðstoðar-
bankastjóra Seðlabanka íslands.
Á sínum bankaferli hefur Björn
m.a. starfað sem aðstoðarbanka-
stjóri Alþjóðabankans í Wash-
ington. Vegna reynslu sinnar og
þekkingar hefur Björn verið
kvaddur til setu í samninganefnd-
um um viðskipti við erlend ríki og
sótt ótal fundi og ráðstefnur fyrir
hönd landsins erlendis.
Jafnframt fastastörfum að
bankamálum hefur Björn varið
miklum tíma og orku að ýmsum
félagsmálum. Rís þar að sjálf-
sögðu hæst framlag hans fyrir
Rauða kross íslands.
Þegar eldgosið varð í Vest-
mannaeyjum hafði Björn nýlega
tekið við formennsku Rauða
krossins. Alþjóð er kunnugt
hvernig sú stofnun brást við og
leysti þau fjölmörgu vandamál
sem þá risu. Þá lagði Björn nótt
við dag í þágu þeirra sem urðu að
forða sér í land. Vakti frammi-
staða Rauða krossins undir for-
ystu Björns Tryggvasonar þá
verðskuldaða athygli bæði hér á
landi og víða um heim.
Fyrir störf sín var Björn sæmd-
ur Riddarakrossi hinnar ísl.
Fálkaorðu 1966 og Stórriddara-
krossi 1974.
Þótt störfin og umhugsun um
þau fyigi Birni langt út yfir hefð-
bundinn vinnutíma er því fjarri að
þau tæmi athafnaþrá hans og
starfsorku.
Á æskuárum sínum var Björn
vel liðtækur íþróttamaður. Lék
m.a. knattspyrnu með kappliði
Víkings. Enn í dag, nær hálfri öld
síðar, þykist Björn ekki fullbúinn
til sumarferða nema hafa fótbolta
í farangri sínum. Þó hafa aðrar
íþróttir vikið fótboltanum til hlið-
ar, m.a. sund og skíði, laxveiði,
rjúpna- Qg gæsaveiði svo nokkuð
sé nefnt.
Björn er maður kappsamur að
hverju sem hann gengur. Þá er
hann klífur fjöll að sumarlagi er
honum ógeðfellt að aðrir fari
hraðar og sama er þegar hann
rennir sér svig á skíðum að vetr-
arlagi, skiptir þá aldursmunur
litlu máli né hve brekkan er brött.
Áhugasvið Björns er vítt og
margslungið. Hann er óvenjufróð-
ur um landafræði bæði íslands og
annarra landa. Hann nýtur þess
að ferðast um land'sitt, helst utan
alfaraleiða. Þekkir örnefni og
kann sögu landsins betur en flest-
ir jafnaldrar hans. Gætinn ferða-
maður og úrræðagóður. Fæddur
forystumaður um byggðir og
óbyggðir.
Strax á stríðsárunum kom í ljós
að Björn hefur óvenju næmt eyra.
Þekkti hann þá flugvélar, án þess
að þær sæjust, á hljóðinu einu
saman. Naut hann þess að búa í
Laufási, næsta nágrenni við flug-
völlinn í Vatnsmýrinni. Fór fátt
framhjá athygli hans af því sem
þar gerðist.
Eyrað er líka næmt fyrir tón-
list. Aldrei hefi ég vitað Björn
snerta hljóðfæri. Þó þekkir hann
og kann fleiri tónverk en margir
sem taldir eru músíkalskir.
Björn er sögumaður góður og
söngelskur. Sjálfkjörinn forsöngv-
ari í ferðalögum heima og erlend-
is.
Björn hefur yndi af að spila
bridge og gerir það vel. Kemur þar
og fram kapp hans og metnaður.
Þykir honum ekki verra að sveit
Björns Tryggvasonar fagni sigri.
Björn er maður vinsæll og
vinmargur. Mannglöggur og
mannblendinn. Hefur ánægju af
félagsskap manna. Björn er gæfu-
maður. Mest munar þar um, að
árið 1952 gekk hann að eiga
Kristjönu Bjarnadóttur, læknis og
alþingismanns Snæbjörnssonar og
Helgu Jónasdóttur.
Þau fagna barnaláni, en þeirra
er eldri Anna Guðrún, f. 1956, en
yngri Bjarni Þór, f. 1959.
Eg held að við Björn höfum ver-
ið kunnugir frá fæðingu. Ekki
voru nema 2 hús milli heimila for-
eldra okkar við Laufásveg þegar
ég fæddist.
Á minnið er vart að treysta en
með þeim fyrirvara tel ég mig
muna eftir okkur saman árið 1931
um svipað leyti og þingrofið
fræga, þegar faðir hans kom and-
stæðingum sínum í opna skjöldu.
Síðan held ég að vinátta okkar
hafi staðið svo að fyrir nóg er að
þakka.
Fjölmargar samveru- og
ánægjustundir okkar verða ekki
raktar hér. Ekki svo að skilja að
alla tíð höfum við verið á einu
máli. Minnist ég þess t.d. er við
ætluðum að lesa saman lögfræði
undir próf en urðum að hætta
vegna ágreinings um stjórnmál.
Hin skiptin eru þó miklu fleiri
þegar skoðanir okkar á mönnum
og málefnum hafa farið saman.
Þau Jana og Björn dveljast er-
lendis um þessar mundir.
Hvar sem þau eru á jarðkringl-
unni berast þeim heillaóskir,
kveðjur og þakkir fyrir órofa vin-
áttu og tryggð.
Valgarð Briem
P.s. Kristjana og Björn dveljast
nú á Hótel Ambassador Concorde
14—16 BLD Haussmann 75009 —
París.
pltfgmOT
Áskrifíarsíminn er 83033
SUMARTIMI
Viö viljum vekja athygli viöskiptavina á aö frá og meö 17. maí til 1.
september veröur afgreiöslutími okkar þannig frá mánudegi til föstu-
dags: Skrifstofa Austurstræti 18. Opiö frá kl. 08.00—16.00. Bóka-
klúbbur, afgreiösla í verslun Sigfúsar Eymundsonar. Opiö frá kl.
09.00—18.00. Vöruafgreiösla Skemmuvegi 36, Kópavogi. Opiö frá kl.
08.00—17.00.
Viðskiptavinir bókaklúbbs AB ath. aö símsvari er á línum BAB sími
25360, og í síma Hjálparkokksins 25125 á kvöldin og um helgar.
Almenna bókafélagiö, Austurstræti 18, s. 25544, 25360, 25125.
Vöruafgreiösla Skemmuvegi 36, Kóp. s. 73055.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Kópavogur — Kópavogur
i tiletni af 30 ára afmæli Sjálfstæöiskvennafólagsins Eddu i Kópavogi
efnir félagið til fagnaöar aö Hamraborg 1, 3. hæö, laugardaglnn 19.
mai 1984 frá kl. 16.00—19.00. Eddukonur fjölmenniö og takiö meö
ykkur eiginmennina.
St/órn Eddu.
Viö Laugaveg
Til leigu er verslunarhúsnæöi á mjög góðum
stað viö Laugaveg. Húsnæöið býöur upp á
fjölbreytta möguleika í verslunarrekstri. Til-
boö sendist augl.deild Mbl. fyrir 17. maí nk.
merkt: „L — 3084“.
Keflavík
Sjálfstæðiskonur
Suöurnesjum
Sjálfstæölskvennafélaglö „Sókn" heldur félagsfund þrlöjudaglnn 22.
maí nk. kl. 20.30 í Sjálfstæölshúsinu, Hafnargötu 46.
Muniö Opid húa þriöjudginn 15. maf kl. 17.30 til 19.00.
Björg Einarsdóttir kemur i heimsókn.
Stjórnin.
húsnæöi i boöi
Til leigu við Ármúla
ca. 80 fm skrifstofuhúsnæöi fullfrágengið.
ca. 220 fm á jaröhæö meö innkeyrslu.
ca. 422 fm á 1. hæö.
Nánari uppl. eru gefnar hjá Útboösþjónust-
unni, Ármúla 5, í síma 35400 á skrifstofu-
tíma.
íbúð í New York
íbúö til leigu á góöum staö á Manhattan frá
miðjum júní til miös september. Uppl. í síma
37234.
Til leigu
270 fm á 3. hæö viö Hafnarstræti. Afhendist
tilbúiö undir tréverk. Upplýsingar í síma
12500 og eftir kl. 6 í síma 84352.