Morgunblaðið - 19.05.1984, Blaðsíða 3
3TICW 1X00
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAl 1984
3
úmaiFumm í uugahugimn hrhwhmr
PósiHússmcnB n.uaí aausnoRi
í tilefni flutninganna hefur Úrval tekið í
þjónustu sína reyndan og öruggan
barnafararstjóra, Eirík Fjalar. Eiríkur
mun stjórna stuttum ókeypis skoðunar-
ferðum um borgina með þeim hættisem
honum einum er lagið.
Fyrsta brottför verður með strætó
frá Austurvelli kl. 10.30, og síðan
eins oft og þurfa þykir til kl. 13.30.
Af augljósum ástæðum verður eldri
en 14 ára ekki veittur aðgangur nema
í fylgd með smábörnum.
Eiríkurmun vafalaust stjórna fjöldasöng
og útskýra andalífið á Tjörninni og
jafnvel tala ensku meðan á ferðunum
stendur.
í lokin mun Eiríkurdraga í Ferðahapp-
drætti Úrvals, en allir þeir sem hafa
bókað og greitt ferðir til Ibiza,
Mallorca, Noregs og Daun Eifel
fyrir laugardaginn eiga möguleika á að
fá ferðina sína ókeypis.
Sjáumst !
Nú um helgina leggur Ferðaskrifstof-
an Úrval land undir fót eða öllu heldur
stétt undirskó og flytursig um 63 skref
í suður í nýtt húsnæði í Pósthús-
stræti 13. Þessi ferð er ekki síður
ánægjuleg fyrir viðskiptavini Ún/als en
starfsfólk, því í nýja húsnæðinu skapast
aðastaða til stórbættrar þjónustu og
umhverfið er sérlega bjart og skemmti-
legt.
Nýja skrifstofan opnar laugardaginn
19. maí kl. 10.00 og verður opin til
kl. 14.00.
í tilefni dagsins verður húsnæðið tilsýnis
og Úrvalsstarfsfólk kynnir ferðamögu-
leika sumarsins. Bæklingar liggja frammi
og kynningarmyndir verða á skjánum.
Állir áhugamenn um ferðir og ferðalög
eru hjartanlega velkomnir.
Vegna flutnings á símakerfi ferðaskrif-
stofunnar má því miður búast við
verulegum truflunum á símasambandi á
laugardaginn og biðjumst við velvirðing-
ar á því.