Morgunblaðið - 19.05.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAl 1984
19
Skemmdar kartöflur; síðasta glappaskotið?
KARTOFLUR
FYRRI GREIN
Eftir bitra reynslu af erlendri
einokun er þyngra en tárum taki
að á ofanverðri 20. öld er enn til
það fólk á íslandi sem trúir að
þetta fyrirkomulag eigi rétt á sér.
Kartöflumálið svokallaða hefur
opnað augu manna fyrir því að
ekki aðeins lifir einokun enn góðu
lífi með þjóðinni, heldur eiga
verstu agnúar hennar það til að
skjóta upp kollinum fyrirvaralaust.
I*að er eitt að þurfa að sætta sig
við að neytendum sé boðið upp á
skemmda vöru, en annað að þetta
sé eini kosturinn sem í boði er og
að það sé ríkið sem stendur fyrir
innflutningnum.
Það er að vísu rétt að hinar
skemmdu afurðir voru aðeins brot
af þeim farmi sem hingað var flutt-
ur, en það breytir nákvæmlega
engu um það sem er kjarni þessa
máls.
Staðreyndin er sú að íslenskir
neytendur eru nú komnir í upp-
reisn gegn þessu kerfí og munu
ekki framar líta á það sem boðleg-
an valkost eftir þau tíðindi sem nú
hafa gerst.
íslenskur landbúnaður
Mikið hefur verið rætt og ritað
um íslenskan landbúnað á undan-
förnum árum og mörgum óvit-
urlegum athugasemdum hefur
skolað á land í þeirri umræðu.
Hafa jafnvel heyrst raddir um
að hann beri að leggja niður.
Þeir sem þannig hafa mælt hafa
víst ekki áttað sig á því að þaö er
óaðskiljanlegur þáttur í sjálfstæð-
isbaráttu smáþjóðar að framleiða
sem mest af eigin mat óháð duttl-
ungum voldugri aðila.
Um hitt hljóta menn ávallt að
deila hvaða fyrirkomulag eigi að
viðhafa við sölu og dreifingu á
slíkri vöru og mun sitt sýnast
hverjum í því efni héðan í frá
sem hingað til.
En einokun, í hvaða mynd sem
hún birtist, getur aldrei talist
boðlegur kostur til frambúðar,
eftir dr. Jón Öttar
Ragnarsson
jafnvel ekki einokun á dreifingu
eigin vöru í einu og sama fyrir-
tæki.
En þegar þessir sömu aðilar
krefjast þess að viðhalda einok-
un á öllu sem flutt er inn af þeim
vörum sem þeir sjálfir eru í sam-
keppni við fer skörin að færast
upp í bekkinn.
Núna þegar neytendur hafa
svo óþyrmilega verið minntir á
verstu ókosti þessa kerfis með
því að stofnun af þessu tagi hef-
ur dreift skemmdri vöru er kom-
ið mál að setja punkt.
Aöskilnaður hagsmuna
Framleiðendur eiga að fram-
leiða. Það er þeirra hlutverk.
Þeir eiga að sérhæfa sig í því að
framleiða þær vörur sem full-
nægja best þeim kröfum sem
neytendur gera hverju sinni.
lnnflytjendur eiga að flytja
inn. Það er þeirra hlutverk. Þeir
eiga að sérhæfa sig í því að
flytja inn þær vörur sem upp-
fylla þær kröfur sem þessir
sömu neytendur setja.
Þessir tveir þættir, innlenda
framleiðslan og innflutningurinn,
eiga að vera aðskildir svo þeir
veiti hvor öðrum samkeppni og
aðhald og stuðli að betri þjón-
ustu og meiri gæðum.
Þannig er það eitt helsta hags-
munamál bæði garðyrkju- og
kartöflubænda að innflutningur-
inn takist sem best svo neytend-
ur venjist ekki af því að borða
garðávexti þann tíma sem inn-
lend framleiðsla er ófáanleg.
Það er auðvitað sjálfsögð
krafa að innlendir framleiðend-
ur njóti forgangs fram yfir inn-
flytjendur á þeim tíma sem hin
innlenda framleiðsla fullnægir
þörfum neytenda fyrir þessar
vörur.
En á þeim tíma sem íslenskar
afurðir eru ekki á boðstólum eiga
innflytjendur vitaskuld að keppa
innbyrðis um markaðinn óháð
hagsmunum og sjónarmiöum inn-
lendra framleiðenda.
Þetta kallar á úrskurðaraðila
sem veitir innflutningsleyfí til
þeirra sem fullnægja settum kröf-
um um góðar geymslur og aðra að-
FÆÐA
OG________
HEILBRIGÐI
stöðu þann tíma sem innlend vara
er ófáanleg.
Kerfi af þessu tagi verður auð-
vitað aldrei fullkomið frekar en
önnur mannanna verk, en verður
engu að síður að teljast happadr-
ýgsti kosturinn eins og allt er í
pottinn búið.
Enn sem komið er vil ég per-
sónulega trúa því að Grænmetis-
verslun ríkisins og Sölufélag garð-
yrkjumanna eigi að þjóna því
hlutverki að koma innlendri
framleiðslu á framfæri.
Hitt mun vafalaust færast í
vöxt að innlendir aðilar kjósi að
koma vöru sinni á markað milli-
liðalaust, t.d. með því að koma á
fót garðávaxtamörkuðum víðs
vegar um landið.
Það sem mestu máli skiptir er
að þannig sé að hinni innlendu
framleiðslu búið að hún haldi
áfram að aukast að magni og
gæðum jafnt og þétt í samræmi
við sívaxandi kröfur um meiri
hollustu og betri heilsu.
Lokaorð
Til að fullnægja þeim mark-
miðum sem manneldisfræðingar
hafa sett þurfa innlendir fram-
leiðendur að auka kartöflu-
framleiðsluna til muna og auk
þess að margfalda framboð á
hvers kyns grænmeti.
Meginvandinn nú er sá að það
einokunarkerfi sem hér hefur
verið við lýði hefur endanlega
gengið sér til húðar og stendur
beiniínis í vegi fyrir frekari
framförum á þessu sviði.
Vonandi verður þetta síðasta
glappaskot ekki til þess að ís-
lenskir neytendur hætti að borða
kartöflur, heldur stuðlar því að
fyrirkomulaginu verði nú loks
breytt ... til frambúðar.
^\llar sendíngar af SKODA '84 híngað
tíl eru uppseldar.Verksmíðjurnar hafa varla
undan að framleíða bílana, vegna meLsölu
víða um heím. Þrátt fyrír það tókst okkur
að fá aukasendingu af SKODA '84 og það á
sama lága verðínu: 139 þúsund krónur.
Tryggðu þér eínn, áður en þessí sendíng
klárast líka.
JÖFUR
HF.
NYBÝLAVEGI2
KÓPAVOGI
SÍMI 42600
wmWm
— —- i jr ■ m W JTTTiS ^ 1 '&i:
V- ’l ífelylr ■*' k.JS 'Æ «LT" 1 EIMSKIpffi