Morgunblaðið - 19.05.1984, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAl 1984
itOsm&ö oaáQ
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 243. þáttur
Ragnar Lár á Akureyri
sendir mér nokkrar „ambög-
ur“, og má ég ráða hvað ég geri
við þær.
Fyrst hefur hann skráð:
„Það eru fljót að skipast veður
í lofti.“ Þetta er ekki beinlínis
ambaga, en útflött gerð máls-
háttarins: Skjótt skipast veður í
lofti. Sögnin að skipast merkir
hér að breytast, taka á sig aðra
skipan, annað skipulag. Ætli
sögnin að skipta(st) sé ekki af
sama stofni?
„Að ræsa fimmtíu og tvær
keppendur.“ Keppandi er auð-
vitað karlkynsorð, svo að
þarna ætti að vera tvo, en ekki
tvær. Aftur á móti má hugsa
sér að til væri fuglategund
sem bæri heitið keppönd, flt.
keppendur eða keppandir.
Endur má temja. Því er
hugsanlegt að ræsa fimmtíu
og tvær keppendur, t.d. í
kappflug.
„Daginn er tekið að lengja
og snjóinn að bráðna,“ hefur
Ragnar Lár upp úr Popphólf-
inu. Þarna hefur mönnum ekki
verið ljós munur persónulegra
og ópersónulegra sagna. Dag-
inn lengir (ópersónulegt), en
snjórinn bráðnar (persónulegt).
„Hann langar til að heyra
unga stulku, Björku Guð-
mundsdóttir, syngja." Vafa-
samt er hvort hafa skuli
u-hljóð í þágufalli orðsins
björk, jafnvel þó að gert sé að
skírnarnafni kvenna og mætti
þá hafa hliðsjón af Björg og
öðrum nöfnum í þeim beyg-
ingaflokki. Hitt telst tvímæla-
laust rangt mál, að hafa þágu-
fallsmyndina dóttir í staðinn
fyrir dóttur. Þvílík áhrifsbreyt-
ing út frá nefnifalli er þó alls
ekki fátíð, hvorki fyrr né síðar.
„Hér er það sungið af karla-
kórnum Þrestir í Hafnarfirði."
Kemur nú að talsverðu vanda-
máli, þ.e. hvort beygja skuli
einkunnir, þegar þær eru sér-
nöfn, eins og Þrestir í fyrr-
greindu dæmi. Meginregla
Bjarnar Guðfinnssonar var sú
að beygja skyldi þvílíka ein-
kunn, ef hún væri eitt orð, síð-
ur ef heitið væri samsett af
fleiri orðum. Hefur um þetta
verið fjallað rækilega hér í
þættinum áður. í dæminu hér
á undan er ég í vafa, af því að
heiti kórsins er í fleirtölu.
Enginn vafi væri, ef kórinn
héti Þröstur. Þá myndi ég
segja að lagið væri sungið af
karlakórnum Þresti. En þar
sem ekki er samræmi milli
eintölunnar karlakór og heitis-
ins Þrestir, hygg ég að ég léti
kyrrt liggja, það sem í dæmi
Ragnars stendur. Ég myndi
sem sagt síður segja: Lagið er
sungið af karlakórnum Þröst-
um í Hafnarfirði.
Umsjónarmaður hefur svo
sjálfur skráð hjá sér þrjár
„ambögur" úr fréttum útvarps
og sjónvarps:
1. „Best þjálfaðasta fólkið."
Hér er tvöföld stigbreyting.
Rétt væri: Best þjálfaða
fólkið. Þetta minnir óneit-
anlega á staglið um hina
lægst launuðustu.
2. „Klukkan ekki orðin há-
degi.“ Þarna finnst umsjón-
armanni ótækt að sleppa
orðunum „tólf á“.
3. „Rætt var um stöðvun her-
væðingu." Hér á auðvitað að
vera stöðvun hervæðingar,
og er margrætt um eignar-
fallsfælni af þessu tagi áð-
ur.
•k
Umsjónarmanni þykir sem
fjölmiðlar ríkisins eigi að vera
til fyrirmyndar um málfar og
hefur hann sent sjálfum sér
eftirfarandi bréf:
„Sífelldar aðfinnslur verða
mönnum síst til uppörvunar.
Þessi setning úr gömlu staf-
setningarverkefni rótfestist í
mér, þegar ég kenndi undir
landsprófið sæla.
Vertu gætinn í gagnrýni og
ör á hrós, segir í siðareglum
alþjóðahreyfingar sem skotið
hefur seigum rótum á íslandi.
Ég hef mikið hugsað um
þetta, það er að segja um hið
fagra fordæmi fremur en víti
til varnaðar.
Mér kemur þetta oft í hug í
sambandi við íslenskt mál.
Mér er ljóst að þáttur minn
hér í blaðinu hefur gert meira
að því að setja út á en sýna
fyrirmyndir. Oft fer þó hvort
tveggja saman, dæmi tekin
bæði af hinu lakara og hinu
sem má vera til fyrirmyndar. Og
fyrirmyndartextar hafa birst.
Ég tók mjög vel eftir loka-
þætti Sigurðar Jónssonar um
daglegt mál í útvarpinu. Sá
þáttur þótti mér að mörgu
skynsamlegur. Við vitnum
löngum í Odd Gottskálksson
og Guðbrand Þorláksson um
hið góða fordæmi og það með
réttu. Hvernig megum við
rækja það og gjalda þeim
þakkarskuldina?
Þakkarskuldina við þá og
aðra málvarnarmenn getum
við auðvitað skilvíslegast gold-
ið með því að tala og rita sem
best mál, hvert og eitt.
En svo er það um hið góða
fordæmi, fyrirmyndina. Og nú
reyni ég að færa í letur eina
hugmynd af mörgum sem bor-
ið hefur fyrir sjónir mér.
Menningarsjóður hefur gefið
út bækur sem borið hafa heitið
íslenskar úrvalsgreinar. Hann
hefur einnig gefið út úrval
ljóða frá síðustu áratugum. Nú
er uppástunga mín sú að sjóð-
urinn gefi út úrval óbundins
máls árlega, greinar, ræður,
jafnvel bókarkafla, sögur og
svipmyndir. Einhverjir glögg-
skyggnir menn verði til kvadd-
ir að fara yfir árennilegasta
lesmál fyrra árs og velja síðan
nokkrar, eigum við að segja
10—20, greinar og kafla sem
kæmu út undir áðurgreindu
nafni. Með þessu væri að sjálf-
sögðu ekki sagt að þetta væri
10—20 bestu greinar á ís-
lensku máli þetta árið, heldur
aðeins það sem í heitinu felst,
að þetta sé úrval. Greinarnar
og höfundar þeirra hefðu með
þessu fengið vissan gæða-
stimpil. Hér skal einnig lagt til
að höfundarnir fengju ekki að-
eins þessa viðurkenningu,
heldur og nokkra fjárhæð, ekki
minni en 25 þúsund krónur.
Hvort tveggja má verða mönn-
um til uppörvunar.
Mikill vandi hlýtur að vera
að taka saman þess konar úr-
val sem hér er gert ráð fyrir,
en vegsemd má fylgja þeim
vanda, og þetta er ekki
óframkvæmanlegt. í fé og
fyrirhöfn er ekki horfandi,
þegar beita skal áhrifum upp-
örvunar til þess að vernda og
fegra mál okkar og treysta svo
þjóðernið. Gott ætti það að
vera kennurum og öðrum
leiðbeinendum að geta vitnað
til fyrirmynda úr nútímanum í
stað þess að nefna helst forn-
sögur, Vídalínspostillu og
Þjóðsögur Jóns Árnasonar.
Gagnslítið er að segja við
menn að þeir skrifi eða tali lít-
ilsiglt, lágkúrulegt eða jafnvel
rangt mál, ef ekki er jafnharð-
an hægt að sýna þeim með
dæmum hið gagnstæða."
Stefáni Þorlákssyni, stödd-
um í Þýskalandi, þótti það
ljóður á ágætri þýðingu enskri
á Afi minn fór á honum Rauð, að
sú þýðing varð ekki sungin
með sama lagi og frumtextinn.
Hann snaraði því þeim góða
texta á þýsku. Af tæknilegum
ástæðum eru stuðlarnir í
fyrstu braglínu ekki alveg eins
máttugir og í þriðju, en þar á
móti kemur nú sú kveðandi
sem notaleg hlýtur að vera ís-
lenskum eyrum, hvað sem
Þjóðverjum líður:
Opa mein ritt auf dem Rot,
Richtung náchstes Stadchen;
holte Wein und Honigbrot,
helles Bier und Mádchen.
Messu-
kaffi Seyð-
firðinga
Seyðfirðingafélagið í Reykjavík
heldur messukaffi í Bústaðakirkju
eftir guðsþjónustu, sem hefst kl. 14
á morgun, sunnudag.
Væntir félagið þess að sem
flestir Seyðfirðingar á höfuðborg-
arsvæðinu mæti þar, en þangað er
sérstaklega boðið öllum 70 ára og
eldri.
Sjávarlóð
Lóö á sunnanveröu Seltjarnarnesi til sölu ef viöun-
andi tilboö fæst.
Tilboö sendist augl.deild Mbl. merkt: „Lóö — 773“.
1=
FLÓKAGÖtU1 ^
SÍ1VII 24647
Parhús
Við Heiöargerði á 2 hæðum. 7
herb., 2 eldhús, tvíbýlisaöstaða.
Svalir. Samtals 215 fm. Auk
þess bílskúr, 26 fm. Nýleg
vönduð eign.
Engihjalli
4ra herb. sérstaklega vönduð
falleg endaíbúð á 4. hæð.
Tvennar svalir.
Engihjalli
3ja herb. rúmgóð íbúð í góöu
standi. Suðvestursvalir.
Helgi ólatason,
löggiltur fasteignatali,
kvökfsimi: 21155.
Hafnarfjörður
Opið frá kl. 1—4
í dag
Til sölu m.a.
Álftanes
5—6 herb. einnar hæðar vand-
að nýlegt steinhús. Tvöf. bíl-
skúr. Fullfrág. lóð.
Sogavegur — Reykjavík
Múrhúðað vandað timburhús,
kjallari, hæö og ris aö grunnfleti
60 fm. Stór lóð. Heimilt að
byggja nýtt hús á henni.
Skerseyrarvegur
5 herb. steinhús á einni hæð á
mjög rólegum stað.
Hverfisgata
5 herb. járnvarið timburhús,
hæö og kjallari. Falleg lóö.
Gunnarssund
4ra herb. timburhús, hæð og
kjallari, ný standsett.
Ölduslóö
3ja herb. góð íbúð á neöri hæð
í tvíbýlishúsi.
Öldutún
6 herb. sérhæð 150 fm. Allt sér.
Bílskúr.
Hólabraut
4ra herb. íbúð á neðri hæð í
tvibýlishúsi. Allt sér. Bílskúr.
Hólabraut
3ja herb. íbúð í fjöltjýlishúsi.
Sléttahraun
2ja herb. íbúö á 3ju hæð í fjöl-
býlishúsi. Ákveöin sala.
Kelduhvammur
3ja herb. 90 fm risibúð. Mikið
útsýni.
Fagrakinn
4ra til 5 herb. glæsileg íbúð á
neöri hæð i tvibýlishúsi. Allt sér.
Bílskúr.
Langeyrarvegur
3ja—4ra herb. nýstandsett lítiö
timburhús, hæð og kjallari.
Nönnustígur
7 herb. fallegt járnvarið timb-
urhús, hæð, kjallari og ris. Hús-
ið allt nýstandsett.
Hólabaut
6 herb. nýlegt parhús með innb.
bílskúr. Möguleiki á 2ja herb.
íb. í kjallara.
Móabarö
Stór 2ja herb. íb. á neðri hæö í
tvíbýli, með bílskúr.
Holtsgata
2ja herb. risíbúð í trmburhúsi.
Fjöldi annarra eigna á sölu-
skrá.
FASTEIGNASALA
Árna Gunnlaugssonar
Austurgötu 10 — S: 50764
VALGEIR KRISTINSSON, HDL.
Fasteignasalan Hátún
Nóatúni 17, s: 21870,20998
Opiö kl. 10—15
Njálsgata
| 35 fm einstakl íbúð, vel um-
gengin og snyrtileg. Verð 650
þús.
2ja herb.
Asparfell
Falleg ibúð á 4. hæð. Verð
1250—1300 þús.
Hraunbær
65 fm falleg íbúð á 3. hæð, suð-
ursvalir. Verð 1350 þús.
3ja herb.
Stelkshólar
86 fm góð íbúð á 1. hæö. Verð
1650 þús.
Njálsgata
90 fm góð íbúð í steinhúsi. Suö-
ursvalir. Verð 1550 þús.
Engihjalli
94 fm rúmgóð íbúð á 2. hæð.
Verð 1600 þús.
4ra—6 herb.
Rofabær
110 fm íbúð á 2. hæð. Nýtt gler.
Suðursvalir. Verð 1800 þús.
Blönduhlíö
130 fm falleg ibúð á 2. hæð.
Tvennar suðursvalir. Verð 2,7
millj.
Hraunbær
110 fm falleg íbúö á 1. hæð.
Vandaðar innr. Suðursvalir.
Verð 1900 þús.
Einbýlishús og raðhús
Hraunbær
137 fm falleg eign á einni hæð.
4 svefnherb. Blómaskáli. Ath.:
Búið að lyfta þaki. Bílskúr. Verö
3,1 millj.
Flúðasel
200 fm á þremur hæöum. Góð-
ar innr. Vandað hús. Verö 3,4
millj.
Sogavegur
Rúmlega 100 fm parhús, mikið
endurnýjað. Verð 2,4 millj.
Tjarnarflöt
240 fm eign á góðum stað.
Vandað hús. Arinn. Stórt yfir-
byggt garðhús. Mikill trjágróö-
ur. Verð 5,8 millj.
Garðsendl
Vandað 260 fm hús á góöum
stað. Stór bílskúr. Fallegur
garður. Verð 4,7 millj.
í byggingu
Ofanlelti
Eigum ennþá nokkrar 3ja og
4ra herb. íbúðir á einum besta
stað bæjarins þar af tvær
íbúðir með sérinng. íbúðirnar
afh. tilb. u. trév. i júní '85.
Reykás
Penthouse tilb. undlr tréverk.
Stórskemmtileg eign á tveimur
hæðum. Húsið er sérlega vel
byggt. Góður bílskúr. Mikið út-
sýni. Suðursvalir. Verö 2,5 millj.
Leirutangi
150 fm rúmlega fokhelf einbýl-
ishús. Verð 1950 þús.
Heiönaberg
140 fm endaraðhús á miklum
útsýnisstað. Afh. frág. að utan
og fokh. að innan. Innb. bílskúr.
Verð 2,2 millj.
m
Hilmar Valdimaraaon, a. 667225.
ðlafur R. Gunnarsaon, viðak.fr.
Helgi Már Haraldsson, s. 78058.