Morgunblaðið - 19.05.1984, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1984
&■
OPEL
Urvals notaðir
bílar til sölu
Isuzu Trooper bensín
Ch. Monte Carlo m/öllu
Oldsmobile Delta Royal
diesel einkabíll
Isuzu Pick-up diesel
Opel Caravan
Isuzu Gemini
Buick Skylark Sport 6 cyl.
Ch. Caprice Classic
Ch. Pick-up 6 cyl. beinsk.
Ch. Malibu Sedan
Scout II4 cyl. vökvast.
Opel Kadett Luxus
Ford Fairmonth Station
Volkswagen Golf
Mazda Pick-up
Saab 96
Plymouth Volarie
Premier St.
Ford Fairmonth Decor
BMV 316
Volkswagen Golf
Volvo 343 GLS
Ch. Suburban beinsk. V8
Lada 1600 Canada
Mazda 323 Station
Árg. Ekinn Kr.
1982 17000 550.000
1979 45000 320.000
1979 70000 420.000
1982 20000 360.000
1982 17000 440.000
1981 29000 195.000
1980 20000 410.000
1979 70000 375.000
1981 20000 525.000
1979 40000 220.000
1980 67000 475.000
1981 33000 240.000
1978 109000 180.000
1980 82000 170.000
1983 7000 280.000
1974 65.000
1978 67000 220.000
1978 79000 175.000
1982 37000 325.000
1982 33000 235.000
1982 25000 320.000
1979 7000 700.000
1981. 135.000
1980 73000 165.000
$
OLOSMOBILE
BiFREIDADEiLD
SAMBANDSINS
HÖFÐABAKKA9 SIMI 39810
OPIÐ MANUDAGA TIL FÖSTUDAGA KL. 9-18
(OP1Ð I HADEGINU) LAUGARDAGA KL. 13—17
Gaiðagióðurinn
bíður efdr
ábuiðinum!
Fiskimjöl er áhrifamikill garðáburður sem
d inniheldur nauösynleg næringarefni fyrir
| gras og plöntur.
< Fiskimjöl garðáburður fæst í hentugum
umbúðum hjá blómaverslunum og víðar.
Heildsöludreifing
Lýsi h.f.
S: 28777.
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ÁGÚST ÁSGEIRSSON
Reynist Rússum
hefndin sæt?
Fréttin um að Rússar hefðu hætt við þátttöku í Ólympíuleikunum í
Los Angeles vakti bæði undrun og gremju, og enn á ný velta menn
framtíð hinna ólympísku leika fyrir sér. Leiðtogar ólympíuhreyfingar-
innar eru sárgramir vegna þess að í apríllok létu Rússar í það skína að
fullnægjandi trygging væri fyrir hendi til að þeir tækju þátt, en tveimur
vikum síðar, í þann mund sem leiðtogi Alþjóðaólympíunefndarinnar
(IOC), Juan Antonio Samaranch, gekk á fund Reagans Bandaríkjafor-
seta til að tala máli Rússa enn frekar, ákveða þeir að fara hvergi.
Rússar báru við ónógu öryggi þátttakenda meðan á leikunum stæði, og
einnig að stofnuö hefðu verið í Bandaríkjunum hryðjuverkasamtök til
höfuðs sovéskum íþróttamönnum. En talið er að aðrar ástæður liggi að
baki.
Margir, sem málum eru
kunnugir, telja að skýr-
ingar Rússa séu aðeins yfirvarp.
Þeir séu einfaldlega að hefna
Bandaríkjamönnum heimaset-
unnar 1980. Jafnframt vilji þeir
ná sér niðri á Reagan forseta,
sem síst af öllu hefur verið
mjúkmáll í þeirra garð. Sé það
ætlan Rússa að gera honum erf-
itt fyrir meðan hann reynir að
ná endurkjöri.
Jafnframt er talið að Rússar
óttist fjöldaflótta íþróttamanna
í lok leikanna, og gífurlegur
kostnaður við að senda 800
manna sveit til Los Angeles vaxi
þeim í augum. Jafnframt að
Rússar telji sig vera í íþrótta-
legri lægð og sjái fram á að fleiri
verðlaun fari til Austur-Þjóð-
verja og Bandaríkjamanna, og
ávinningur af þátttöku verði því
minni en ella. Skemmst er að
minnast að A-Þjóðverjar hlutu
fleiri gullverðlaun en Rússar á
vetrarleikunum í Sarajevo.
Heimaseta Banda-
ríkjamanna 1980
Langlíklegasta skýringin á
ákvörðun Rússa er þó heimaseta
Bandaríkjamanna og fleiri þjóða
1980, er leikarnir fóru fram í
Moskvu, í mótmælaskyni við
innrásina í Afganistan. Heima-
setan kom illa við Rússa. Þeir
höfðu lagt hart að sér til að gera
leikana sem mesta og besta.
Leikarnir áttu að sýna og sanna
mátt kommúnismans og skipu-
lag og nákvæmni, sem aldrei
yrði skákað í ríkjum kapítalista.
Ekki er vitað hversu dýrir
leikarnir voru Rússum, en fátt
var til sparað. Mörg íþrótta-
mannvirki voru reist, einnig
heilu íbúðarhverfin og ný flug-
stöð var pöntuð frá Vestur-
Þýskalandi.
Leikarnir áttu að laða til sín
hálfa milljón ferðamenn og töfra
milljónir sjónvarpsáhorfenda.
En það fór á annan veg, aðeins
60 þúsund ferðamenn lögðu leið
sína til Moskvu, til að sjá sjón-
arspilið mikla og tekjurnar urðu
í samræmi við það. Rússar sátu
eftir með sárt enni, fullir heiftar
í garð ríkjanna sem heima sátu,
því fjarvera þeirra átti mestan
þátt í því hvernig fór. Og m.a.
þess vegna vilja þeir ná sér niðri
á Bandaríkjamönnum, en spurn-
ing er hvort hefndin muni reyn-
ast sæt, því allt önnur tengsl eru
á milli leikanna i Los Angeles og
stjórnvalda þar í landi en á miili
Moskvuleikanna og Kreml.
Gremja ólympíuleiðtoga
Samaranch leiðtogi IOC hefur
auðsýnt gremju sína í garð
Rússa. Kvað hann Reagan for-
„Þú getur þó altént tekið þátt í
aukagreinunum í Afganistan."
seta hafa á eigin spýtur beitt sér
fyrir úrbótum og veitt þá trygg-
ingu, sem Rússar hefðu sjálfir
beðið um. Áður hafði IOC beitt
sér fyrir Rússa gagnvart fram-
kvæmdaraðilum leikanna i Los
Angeles, með þeim árangri að
Marat Gramov forseti sovésku
ólympíunefndarinnar sá ástæðu
til þess að lýsa því yfir í Moskvu
24. apríl að Rússar myndu mæta
til leiks og ekki hefna Banda-
ríkjamönnum heimasetunnar
1980.
Hefur Samaranch boðað ól-
ympíuleiðtoga til neyðarfundar í
Lausanne af þessu tilefni, og
einnig óskað eftir áheyrn hjá
Konstantin Chernenko formanni
sovéska kommúnistaflokksins til
þess að reyna að fá Rússa ofan
af ákvörðun sinni. Fjölmiðlar í
Moskvu og ýmsir leiðtogar þar
hafa hins vegar ítrekað sagt að
ekki verði aftur snúið.
Stjórnmál og íþróttir
Enn á ný blandast saman
stjórnmál og íþróttir, en stjórn-
mál hafa oftast nær haft einhver
áhrif á leikana og þátttöku i
þeim, t.d. strax á fyrstu leikana í
nýjum sið, í Aþenu 1896, er Þjóð-
verjar hættu við þátttöku þar
sem Frakkar notuðu leikana
m.a. til að hervæðast.
í sambandi við leikana 1908 í
London blandaði Alþjóðaólymp-
íunefndin sér í stjórnmál með
því að lýsa yfir og leggja bann
við mismunun manna eftir kyn-
þætti og trúar- og stjórnmála-
skoðunum. Er leikarnir fóru
fram í Stokkhólmi 1912 bönnuðu
Rússar Finnum að keppa undir
eigin þjóðfána, og 1920 var Þjóð-
verjum meinuð þátttaka í leik-
unum í Antwerpen þar sem IOC
sagði þá bera ábyrgð á að heims-
styrjöldin fyrri braust út. Þjóð-
verjum var einnig meinuð þátt-
taka í leikunum í París 1924 af
sömu ástæðu.
Leikanna 1936 verður jafnan
minnst sem Hitlers-leikanna,
sem voru dæmigerðir fyrir það
hvernig einræðisríki getur notað
leikana í áróðursskyni fyrir
stjórnkerfi sitt og hugmynda-
kerfi.
Þjóðverjum var enn meinuð
þátttaka 1948, nú vegna heims-
styrjaldarinnar síðari. Árið 1952
fengu Sovétríkin í fyrsta sinn að
vera með eftir byltinguna 1918,
en fjórum árum seinna, í Mel-
bourne 1956, hættu þrjú ríki,
Sviss, Holland og Spánn, við
þátttöku í mótmælaskyni við
innrás Rússa í Ungverjaland
skömmu fyrir leikana. Suez-
deilan leiddi einnig til fjarveru
Egypta og Líbana.
Leikar hinna krepptu hnefa
hafa Mexíkóleikarnir 1968 verið
nefndir vegna mótmælaaðgerða
þeldökkra bandarískra sprett-
hlaupara á verðlaunapalli er
þjóðsöngur þeirra var leikinn.
A-Þjóðverjar fengu að vera með
í fyrsta sinn sem sérstakt ríki,
fram að þeim tíma urðu þýsku
ríkin tvö að senda sameiginlegt
lið til leikanna. Kínverjar voru
fjarverandi þar sem alþjóða-
ólympíunefndin hafði samþykkt
Formósu sem fulltrúa kínversku
þjóðarinnar. Jafnframt lá við að
Afríkuríki færu heim þar sem
Suður-Afríku var veitt aðild að
IOC.
Leikarnir 1972 eru mörgum
enn í fersku minni er palestíhsk-
ir hryðjuverkamenn fluttu Mið-
austurlandadeiluna til Múnchen
og myrtu þar fjölda ísraelskra
íþróttamanna. Flestar Afríku-
þjóðir fóru síðan heim í þann
mund sem leikarnir í Montreal
1976 voru að hefjast vegna þess
að knattleikslið frá Nýja-Sjá-
landi fór um svipað leiti í keppn-
isferð til Suður-Afríku.
í Moskvu hættu 62 þjóðir síð-
an við þátttöku vegna innrásar
Rússa í Afganistan hálfu ári
fyrir leikana. Frumkvæðið að
þessu hafði Jimmy Carter
Bandaríkjaforseti, sem vildi
refsa Rússum fyrir athæfið í
Afganistan.
Og þótt Rússar og fylgiríki
þeirra hætti við af pólitískum
ástæðum er einnig óttast að Afr-
íkuríki sitji heima vegna ferðar
enskra knattleiksmanna, sem
nýfarnir eru til keppnisferðar
um S-Afríku. Þessu til viðbótar
er þegar farið að tala um sam-
krull stjórnmála og íþrótta í
sambandi við Ólympíuleikana í
Seoul 1988.
Bytf({1 í greinum AP. Ilerald Tri-
bune, (íuardian, ObstTvcr ojí
norrænna blaða.
Agúst Ásgeirsson er bladamadur í
erlendri fréttsdeild Morgunblads-
ins.