Morgunblaðið - 19.05.1984, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1984
Laskaöist í árás
Olíuskipið Bahra í höfn í Shuwaikh { Kuwait þar sem gert verdur við
skemmdir, sem það varð fyrir á mánudaginn þegar óþekkt orrustuflugvél
réðst á það. Kuwait-stjórn hefur sakað frani um árásina.
„Kengúruaöferðin“
bjargar fyrirburum
Genf, 17. maí. Al*.
AÐ SÖGN starfsmanna hjá Barnahjálparsjóði Sameinuðu
þjódanna hafa tveir kólombískir læknar bjargað lífí margra
fyrirbura án þess að nota þau fullkomnu og dýru tæki, sem
ómissandi þykja í velferðarlöndunum.
Venjulega er fyrirburinn settur
í fæðingarkassa þar sem honum er
haldið heitum og gefið í gegnum
slöngur en kólombísku læknarnir
hafa þann háttinn á, að þeir láta
móðurina vera með barnið innan
klæða, við brjóstin, allan sólar-
hringinn fyrst í stað. Þar er því
heitt og brjóstamjólkin alltaf til-
tæk en læknarnir segja, að fyrir
börnin geti engin fæða komið í
hennar stað. Vanalega komast
mæðurnar heim með fyrirburana
sína eftir 2—12 daga.
Eftir að farið var að nota þessa
aðferð á San Juan de Dios-sjúkra-
húsinu í Bogota hafa 95% fyrir-
bura lifað en áður dó helmingur
þeirra. Er þá átt við börn, sem eru
tvær til átta merkur. Aðferðina
kalla kólombísku læknarnir
„kengúruaðferðina" og kostar hún
ríkissjóð sáralítið en í Bandaríkj-
unum er talið, að stundum geti
það kostað allt að 100.000 dollara
að bjarga einum fyrirbura þar í
landi.
Atkvæðagreiðsla
um leynireikninga
Bern, 18. maí, frá (>nnu BjarnadóUur, fréttnriUru Mbl.
SVISSLENDINGAR munu ákveða (
þjóðaratkvæðagreiðslu nú um helgina
hvort svipta eigi hulunni af svissnesk-
um bönkum. Strangar leyni- og
þegnskyldureglur hafa gilt síðan 1934
um handhafa bankareikninga og upp-
hæðir á þeim.
Svissneskir sósíalistar hófust
handa við að safna undirskriftum til
að fá þessum reglum breytt með
þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir sjö ár-
um, eftir að upp komst um mikið
fjármálasvindl, sem Credit Suisse,
einn af þremur stærstu bönkunum,
blandaðist inn i. Bankarnir hafa
slakað aðeins á reglunum á undan-
förnum árum og talið er víst að til-
laga sósíalista verði felld í atkvæða-
greiðslunni.
Tillagan felur í sér að hægt verði
Friðsöm þjóð-
hátíð í Noregi
Ónló, 18. maí. Krá Jan-Krik Laurc. frcttaritara
NORÐMENN héldu upp á þjóðhátíð-
ardag sinn í gær, 17. maí, og fór allt
vel fram að venju. Tugþúsundir
barna tóku þátt í barnagöngunni og
var gengið fram hjá höllinni og hinn
áttræði öðlingur Olafur Noregskon-
ungur hylltur innilega. Nokkuð höfðu
menn óttast, að hatursmenn innflytj-
enda í Noregi efndu til mótmæla en
af því varð ekki. Margir tóku því hins
vegar illa, að innflytjendur skyldu að
nokkru vera látnir sjá um hátíða-
dagskrána í sjónvarpinu um kvöldið.
Norskir nýnasistar og önnur slík
samtök sendu um 20 skólum í Ósló
bréf 16. maí og vöruðu við, að börn
innflytjenda fengju að taka þátt f
barnagöngunni. Kváðust ella
mundu grípa til sinna ráða og ekki
par faliegra. Sem betur fer gerðu
þeir þó ekki alvöru úr hótuninni.
Um kvöldið var hátíðadagskrá í
sjónvarpinu og stjórnuðu henni
norsk kona og önnur pakistönsk.
Skemmtiefnið var svo aðallega í
höndum erlendra ríkisborgara og
var þetta allt saman meira en sum-
ir Norðmenn gátu sætt sig við.
Hringdu þeir í sjónvarpið og svo
Mbl.
var álagið mikið, að allt fór úr sam-
bandi. Þegar um hægðist seinna
um kvöldið komust nokkrir að og
hótuðu yfirmanni sjónvarpsins og
umsjónarkonu þáttarins, norsku
konunni, alls kyns kárínum og
jafnvel dauða.
að rannsaka bankareikninga, þegar
grunur leikur á skattsvikum í Sviss
eða erlendis eða þegar talið er að
gjaldeyrisreglur hafi verið brotnar;
að bankar birti nákvæmar skýrslur
um fjármál sín og stöðu auk upplýs-
inga um svokallaða „falda fjársjóði";
að starfsemi bankanna verði tak-
mörkuð við bankastarfsemi og eign-
arhluti þeirra í öðrum fyrirtækjum
verði takmarkaður; að bankarnir
verði að tryggja sparifé sem við-
skipavinir treysta þeim fyrir.
Bankarnir berjast hart á móti til-
lögunni og hafa stuðning ríkisstjórn-
arinnar og meirihluta þingsins. Til-
lagan þykir gagna of langt og grafa
undan gamalgrónu trausti borgar-
anna á bönkunum. Það er ekki leng-
ur hægt að leggja inn eða taka út
háar fjárfúlgur án þess að láta nafns
sins getið.
Samningur við Bandarfkjamenn
um samstarf við glæparannsóknir
hefur verið i gildi síðan 1977 og við
aðrar þjóðir sfðan 1983. Talsmenn
bankanna telja að fé streymi inn á
svissneska bankareikninga vegna
hæfni og góðrar þjónustu, sem þeir
veita, stöðugleika svissneska frank-
ans og rfkisstjórnar, en ekki vegna
leyndarinnar, sem hvílir yfir svissn-
eskum bönkum.
Verkföll haröna
í V-Þýzkalandi
Krankfurt, 18. maí. AI*.
ÞÚSUNDIR verkfallsmanna í málm-
iðnaði og prentiðnaði Vestur-Þýzka-
lands lokuðu í dag bflaverksmiðjum
og blaðaútgáfum. Fara verkfóllin
þar í landi nú harðnandi dag frá
degi og er talið, að á mánudag muni
verkfallið ná til 100.000 manna.
Vestur-þýzka vinnuveitenda-
sambandið skoraði í dag á stjórn
sambands málmiðnaðarmanna að
halda áfram samningaumleitun-
Bandaríkin:
Mikill hagvöxtur
HAGVÖXTUR í Bandaríkjunum
nam 8,8 % fyrstu þrjá mánuði þessa
árs miðað við ársgrundvöll. Hefur
þessi áframhaldandi mikli hagvöxt-
ur farið fram úr vonum bjartsýnustu
hagfræðinga.
Margir sérfræðingar í efna-
hagsmálum höfðu spáð því, að
hagvöxtur á fyrsta fjórðungi þessa
árs yrði 4—5 % eða svipað og á
sfðustu þremur mánuðum ársins í
fyrra.
um og reyna með því að koma f
veg fyrir „lamandi áhrif verkfall-
anna, sem eigi eftir að hafa í för
með sér stórfellt efnahagstjon".
Málmiðnaðarsambandið, sem er
eitt fjölmennasta stéttarsamband
f heimi, með 2,5 millj. félaga, lýsti
því yfir, að það myndi svara þess-
um tilmælum á morgun, laugar-
dag.
Ein helzta krafa verkfalls-
manna er 35 klukkustunda vinnu-
vika án launaskerðingar, og halda
þeir því fram, að með henni verði
unnt að fækka verulega atvinnu-
lausu fólki í landinu, en nú eru um
2,25 millj. manna, eða 9,1% af öllu
vinnufæru fólki í landinu,
atvinnulaus.
Vinnuveitendur halda því hins
vegar fram, að nái þessi krafa
fram að ganga, þá eigi hún eftir að
hækka framleiðslukostnað í land-
inu um 14—18% og eyðileggja
þannig samkeppnisgetu Vestur-
Þýzkalands á alþjóðamörkuðum.
„Félagi Kim og ég“
Miðopnan í BT með dagbók Jörgensens úr Norður-Kóreuferðinni.
Kaupmannahöfn, 18. maí. AP.
ANKER Jörgensen, formaður Jafn-
aðarmannaflokksins danska og fyrr-
um forsætisráðherra, hefur verið
harðlega gagnrýndur fyrir ræðu,
sem hann hélt en þar var ekki ann-
að að heyra en hann hrósaði „syni
sólarinnar" og alvaldanum í Norð-
ur-Kóreu, Kim II Sung.
„Skammarlegt og hneykslan-
legt,“ sagði hægri maðurinn John
Arentoft um ræðu Jörgensens, en
Viggo Fischer úr Hægriflokknum
kaus að taka þannig til orða, að
Jörgensen hefði „látið nota sig“.
Jörgensen sagði hins vegar, að
hann hefði sem gestur í landi
Kims bara verið að reyna að vera
kurteis, þegar hann sagði um Kim
í ræðunni, að hann væri „einstæð-
ur leiðtogi“, sem hefði „helgað allt
sitt líf kóresku þjóðinni og velferð
hennar".
Uffe Ellemann-Jensen, utanrík-
isráðherra, kvaðst ekki taka mark
á afsökun Jörgensens. „Viðhorf
Hvellur í Dan-
mörku vegna
hrósyrða
Anker Jörgen-
sens um
Kim II Sung,
leiðtoga
Norður-Kóreu
Anker Jörgensens til norður-
kóresku stjórnarinnar eru allt
önnur en danskra stjórnvalda
bæði fyrr og 'síðar," sagði Ellem-
ann-Jensen I viðtali við Jyllands-
posten. „Þegar hann lofaði „gleði
vinnunnar" og „agann“ í Norður-
Kóreu var hann að hrósa líklega
mestu alræðis- og kúgunarstjórn í
heimi og hann var líka að hrósa
persónudýrkun, sem á sér enga
hliðstæðu nú á dögum," sagði
Ellemann-Jensen.
Berlingske Tidende sagði á mið-
vikudag frá ræðunni, sem Jörg-
ensen hélt fyrir hálfum mánuði,
þegar hann var I opinberri heim-
sókn í Pyongyang, höfuðborg
Norður-Kóreu, en í öðrum blöðum
var sagt frá henni í gær, fimmtu-
dag.
„Félagi Kim og ég“ var fyrir-
sögnin I BT og síðan opnufrásögn
af málinu ásamt dagbók, sem
Jörgensen hélt í ferðinni til
Norður-Kóreu. Myndin sem fylg-
ir, er tekin úr málgagni Norður-
Kóreustjórnar á ensku, Pyong-
yang Times, og er myndatextinn á
þessa leið: „Hinn mikli leiðtogi,
félagi Kim II Sung, ásamt for-
manni Jafnaðarmannaflokksins í
Danmörku eftir að hann hafði
tekið á móti honurn."
I Aktuelt, málgagni jafnaðar-
manna, segist Jörgensen munu
standa við sín fyrri orð og skýr-
ingar á þessu máli og endurtekur,
að hann hafi aðeins viðhaft al-
mennt kurteisishjal á sama hátt
og hann gerði í heimsókn til Kína
og Sovétríkjanna þegar hann var
forsætisráðherra. „Eg forðaðist
meira að segja sérstaklega að
segja „hinn mikli og ástkæri leið-
togi“ eins og þó er venjan í
Norður-Kóreu,“ sagði Jörgensen.