Morgunblaðið - 19.05.1984, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1984
Vinningsnúmer
hjólreiðadagsins
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá kvennadeild
Styrktarfélags lamaðra og fatladra:
* „Árlegur hjólreiðadagur SLF
var haldinn 12. maí sl. Hjólað
var i þágu þeirra, sem ekki geta
hjólað. Kvennadeild SLF stóð að
þessu sinni fyrir framkvæmdum.
Leitað var til nemenda grunn-
skóla í Reykjavík, Kópavogi,
Garðabæ og Hafnarfirði, Sel-
tjarnarnesi og Mosfellssveit um
aðstoð við fjársöfnun til upp-
byggingar hvíldar- og dvalar-
heimilis fatlaðra barna í Reykja-
dal í Mosfellssveit. Var nemend-
um í allflestum skólum sýnd
kvikmyndin „Dagur í Reykja-
dal“, sem Styrktarfélag lamaðra
og fatlaðra lét gera á ári fatl-
aðra. Myndin sýnir, eins og
nafnið gefur til kynna, einn dag
á dvalar- og hvíldarheimili fatl-
aðra barna.
Grunnskólanemendur tóku er-
indi Kvennadeildar SLF mjög
vel og söfnuðu einni milljón og
tvöhundruð þúsund krónum á
fjórum dögum. Þetta er frábært
afrek grunnskólanema. Sýna
þeir með þessu afreki stuðning
sinn við jafnaldra sína. Kvenna-
deild SLF þakkar þeim, svo og
öllum aðilum, sem lögðu okkur
lið.
Hvert söfnunarspjald var
jafnframt happdrættismiði. Eft-
irtalin númer hlutu vinning:
31, 112, 113, 173, 189, 224, 264,
312, 336, 337, 342, 363, 371, 387,
392, 412, 447, 483, 488, 499, 528,
589, 599, 640, 663, 814, 834, 956,
999, 1009, 1038, 1059, 1134, 1215,
1248,1251,1258, 1321, 1349,1372,
1425, 1458, 1462, 1598,1665,1667,
1745,1765,1800,1806,1910, 1939,
2268, 2289, 2358, 2359, 2378, 2448,
2536, 2600, 2628, 2686, 2700, 2827,
2912, 2976, 2990, 2997, 3032, 3123,
3208, 3219, 3382, 3418, 3434, 3442,
3457, 3464, 3466, 3467, 3499, 3501,
3777, 3788, 3798, 3812, 3832, 3945,
3982, 4028, 4052, 4151, 4213, 4223,
4231, 4289, 4310, 4357, 4360, 4405,
4742, 4800, 4808, 4821, 4824, 4832,
4861, 4862, 4867 og 4887.
Furðuföt á flóamarkaði FEF um helgina
VORFLÓAMARKAÐUR Félags
einstæðra foreldra verður um
helgina í Skeljanesi 6 og hefst á
laugardag og sunnudag klukkan
14. í fréttatilkyningu FEF segir
að „fríkuð furðuföt" muni að lík-
indum vekja einna mesta at-
hygli, en þar er eins og orðin
benda til hinn furðulegasti og
skrautlegasti fatnaður á boðstól-
um. Ekki má gleyma öðrum
fatnaði, sérstaklega er mikið úr-
val af aldurhnignum tízkukjól-
um og herrafatnaði, skóm, bús-
áhöldum, lampaskermum og
leikföngum. Þá eru á markaðn-
um húsgögn svo sem skrifborð,
svefnbekkir og barnarúm og er
þá fátt eitt talið.
Leiðrétting
í útvarpskynningu Morgunblaðs-
ins á fimmtudag, þar sem skýrt
var frá þætti, sem hlotið hefur
nafnið Lýriskir dagar og var út-
varpað þá um kvöldið, misritaðist
nafn eins höfundanna, sem lesið
var upp úr verkum eftir. Það var
nafn Sigurðar Grímssonar og bið-
ur Morgunblaðið hlutaðeigendur
velvirðingar á þessum mistökum.
Kvennadeild SLF vill biðja
handhafa þessara númera að
vitja vinninga sinna á Æfinga-
stöð SLF, Háaleitisbraut 11—13
í dag, laugardag 19. maí, kl.
13.30. Að lokum endurtökum við
þakklæti okkar til allra þeirra er
gerðu okkur fært að standa fyrir
þessari fjársöfnun til handa fötl-
uðum börnum og vonumst til að
mega leita' til þeirra að ári
liðnu." Birt án ábyrgðar.
Garðar um fiskeldistillögu Hjörleifs:
Get ekki stutt hana
Met framtak þeirra sem hafizt hafa handa
Hjörleifur Guttormsson (Abl.)
flutti snemma þings tillögu til þings-
Helgi Vilberg, skólastjóri, annar frá hægri, ásamt 4 nemendum skólans við uppsetningu verka. Ljósm. G.BerK.
Vorsýning Myndlistarskólans á Akureyri
Akureyri, 18. maí.
VORSÝNING Myndlistarskólans
á Akureyri verður opnuð í salar-
kynnum skólans að Glerárgötu 34,
þriðju og fjórðu hæð, klukkan tvö
eftir hádegi á laugardaginn. Þetta
er sUersta og veglegasta sýning
skólans til þessa og verða sýnd
u.þ.b. 700 verk nemenda hinna
ýmsu deilda hans.
Starfsemi Myndlistarskólans
er einkum tvíþætt. Annars vegar
eru það síðdegis- og kvöldnám-
skeið í hinum ýmsu greinum
sjónmennta og hins vegar full-
gildur dagskóli, það er að segja
fornámsdeild, sem er fyrsta ár
reglulegs listnáms og málunar-
deild, annað og þriðja ár.
Umsóknarfrestur um skólavist
næsta vetur í fornámsdeild er til
22. maí. Gefst því þeim sem hug
hafa á að sækja um skólavist
gott tækifæri til að kynnast
starfsemi skólans á laugardag og
sunnudag. Sýningin verður opin
frá klukkan tvö til tíu eftir há-
degi báða dagana.
Nemendur Myndlistarskólans
á Akureyri voru tvö hundruð og
tuttugu síðasta vetur og kennar-
ar þrettán. Skólastjóri er Helgi
Vilberg.
G.Berg.
Athugasemd frá Grænmetisversluninni
vegna sölu kartaflna til Hagkaupa
MORGUNBLAÐINU hefur borist
athugasemd frá Grænmetisverslun
landbúnaðarins vegna „frétta um
synjun hennar á afgreiðslu nýrra
kartafla til Ilagkaupa þann 17. maí
sl. Athugasemdin er svohljóðandi:
„Grænmetisverslun landbúnað-
arins vill leggja áherslu á að þessi
kartöflusending upp á 25 lestir var
þegar seld og rúmlega það. Þannig
að i framkvæmd varð fyrst að
stöðva frekari pantanir og síðan
að skera þær allar mjög niður, og
nú m.a. vegna tilhliðrunar við
Hagkaup verður því miður ekkert
af þessari sendingu sent út á
landsbyggðina, sem þó var ætlun-
in og verður það að bíða næstu
sendingar.
Ekki er það sanngjarnt að
Grænmetisverslun landbúnaðar-
ins skuli eiga að afhenda einum
vöru, sem þegar hefur verið fast-
sett öðrum og þar að auki fær
minna af pöntun sinni. Er óeðli-
legt að Grænmetisverslunin taki
tillit til stórinnflutnings Hag-
kaupa, þegar grípa þarf til
skömmtunar? Er þá ekki verið að
mismuna aðilum, þegar einn er
tekinn fram yfir annan, þó það sé
Hagkaup?
Getur Grænmetisverslun land-
búnaðarins talist brotleg, þegar til
eru aðrar gerðir kartafla, sem
hafa staðið Hagkaupum til boða?
Það hefur að jafnaði ekki verið
skipt upp á milli tegunda eða
sendinga á kartöflum, eða annarri
samkynja vöru.“
ályktunar um fiskeldi og rannsóknir
á klaki og eldi sjávardýra, sem
meirihluti atvinnumálanefndar Sam-
einaðs þings hefur lagt til að af-
greidd verði með vísun til ríkis-
stjórnar. í nefndaráliti Garðars Sig-
urðssonar, flokksbróður Hjörleifs,
kemur fram, að hann „geti ekki
stutt þingsályktunina óbreytta".
í greinargerð Garðars segir að í
tillögu Hjörleifs sé „blandað sam-
an gjörólíkum hlutum". Útilokað
sé að „eldi af því tagi geti borgað
sig“, sem tillagan greinir, og „ger-
ir hvergi á Vesturlöndum". Garðar
segir að hér geti verið um „stór-
kostlegan auðgefandi og öruggan
atvinnuveg að ræða, ef rétt er að
staðið, en til þess þarf að leggja í
þetta verkefni verulegar fjárhæð-
ir“. Orðrétt segir segir hann:
„Minnihlutinn telur að:
• 1) flytja þurfi frumvarp að
heildarlöggjöf í þessum efnum í
stað þingsályktunartillögu,
• 2) slíkt eldi verði undir sjávar-
útvegsráðuneyti
• 3) að strax verði hafizt handa
því að hafi verið þörf á viðbót arð-
samrar atvinnugreinar þá er það
nú nauðsyn.
Minnihlutinn getur ekki stutt
þingsályktunina óbreytta en met-
ur mikils áhuga flutningsmanns
og annarra þeirra sem hreyft hafa
lljörleifur
slíkum málum fyrr, en metur þó
mest framtak þeirra, sem hafizt
hafa handa."
Kópavogur:
Laun hjá Vinnu-
skóla ákveöin
LAUN unglinga í Vinnuskóla
Kópavogs fyrir sumarið 1984
hafa verið ákveðin og verða
sem hér segir: Unglingar fædd-
ir 1968 fá kr. 58,98 á tímann,
unglingar fæddir 1969 fá kr.
50,29, unglingar fæddir 1970 fá
kr. 44,70 og unglingar fæddir
1971 fá kr. 33,53. Innifalin er
2% kauphækkun sem koma á 1.
júni.
Private school í Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ sýnir um þessar
mundir myndina „Private school".
„Private school" er gamanmynd
um einkaskóla Stelpna og þar er
mikið fjör enda stutt í næsta
einkaskóla fyrir stráka. I frétta-
tilkynningu frá Laugarásbíói segir
að í þessari fjörugu og skemmti-
legu mynd hugsi stelpur mikið um
stráka og strákar um stelpur.