Morgunblaðið - 14.06.1984, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1984
17
Mark Reedman og Strengjasveitin
Tónlist
Egill Friöleifsson
BústaAakirkja 11. 6. ’84.
Flytjendur: Strengjasveit.
Stjórnandi: Mark Reedman.
Kfnisskrá: J.S. Bach, Branden-
borgarkonsert nr. 3.
D. Shostakovich, Kammersinfónía.
R. Strauss, Myndbreytingar fyrir
23 strengi.
Strengjasveit undir stjórn
Marks Reedman efndi til tón-
leika á vegum listahátíðar í Bú-
staðakirkju á mánudagskvöld.
Frá því Mark Reedman hóf
störf við Tónlistarskólann í
Reykjavík hefur hann unnið
þrekvirki við uppeldi fiðlunga á
íslandi. Honum hefur tekist að
lyfta Strengjasveit Tónlistar-
skólans á hærra plan en áður
hefur heyrst meðal strengja-
nemenda hérlendis, enda hlotið
athygli og lof fyrir ótvíræðan
árangur bæði hér heima og einn-
ig erlendis. Hann hefur og sýnt
metnað í vali verkefna og flutt
okkur margar af perlum tónbók-
menntanna. Því er á þetta
minnst, að margir af meðlimum
strengjasveitarinnar, sem fram
kom, eru eða hafa verið nemend-
ur hans. Það kemur því ekki
lengur á óvart að heyra
strengjasveit undir stjórn Marks
Reedman spila hreint og frísk-
lega. En mikið vill meira, enda
viðmiðunin aðeins ein hjá fram-
sæknum tónlistarmanni, þ.e.
gæðin ofar öllu. Tónninn, sem
Mark Reedman laðar fram, er
alltaf hreinn og klár, en að mínu
áliti of harður og einlitur og allt
að því forseraður á stundum. Öll
óþarfa tilfinningasemi er honum
víðsfjarri við túlkun viðfangs-
efna sinna. Honum virðist alltaf
vera mikið niðri fyrir og tekst
með ákafa sínum að mana hina
ungu hljóðfæraleikara til veru-
legra átaka. Mér er nær að halda
að honum takist að kreista út úr
þeim allt sem þeir geta gefið. En
þessi ákafastíll, að spila alltaf
eins og þeir eigi lífið að leysa, er
of einlitur og getur orðið dálítið
þreytandi þegar hlustað er heilt
kvöld. Ef til vill er þetta honum
eðlilegur tjáningarmáti. En haf-
andi enn í eyrunum hinn silki-
mjúka og sveigjanlega strengja-
hljóm Fílharmóníunnar frá
London tvö næstu kvöld á undan
verður munurinn skýr. Slíkur
samanburður er ekki sanngjarn
og þó. Mark Reedman er metn-
aðarfullur, hæfileikaríkur lista-
maður sem mikils má af vænta.
Það hefur verið gæfa okkar ís-
lendinga, að á fjörur okkar hefur
öðru hvoru rekið síðustu hálfa
öldina mikilhæfa leiðbeinendur,
sem lyft hafa grettistaki í tón-
menntamálum okkar. Einn þess-
ara manna er Mark Reedman.
Annars hófust tónleikarnir á
þriðja Brandenborgarkonserti
J.S. Bach, þeim í G-dúr BWV nr.
1048. Þessi konsert hefur þá sér-
stöðu meðal Brandenborgarkon-
sertanna að vera aðeins í tveim-
ur köflum og báðir eru þeir
harðir. Stundum eru kaflarnir
tengdir saman með sembal-
kadensu sé semball á annaðborð
notað sem continuo-hljóðfæri.
Og þó slíkum „sögulegum kröf-
um“ hafi ekki verið sinnt hér,
rýrnar tónbálkurinn ekki við það
í þessu verki. Það var hins vegar
Gréta Guðnadóttir sem lék fal-
lega strófu áður en fiðlungar all-
ir lögðu af ákafa á brattann og
léku síðan þáttinn, eins og allt
annað þetta kvöld, hreint, frísk-
lega en hart.
Kammersinfónia Shosta-
kovich er sérkennileg tónsmíð,
þar sem þrír af fimm köflum
verksins bera yfirskriftina largo.
Hafandi ýmis önnur verk þessa
höfundar í huga eru þessi róleg-
heit harla óvenjuleg. Þess vegna
myndar annar kaflinn, Allegro
molto, skarpa andstæðu við hina
og þar naut harður og ákveðinn
tónn strengjasveitarinnar sín
vel.
Tónleikunum lauk með
myndbreytingum fyrir strengi
eftir R. Strauss, og skal ég ekki
lengja þetta greinarkorn með því
að reyna að lýsa þessu tregafulla
verki, þar sem Strauss, um leið
og hann vitnar í Wagner og
Beethoven, grætur hörmungar
seinni heimsstyrjaldarinnar og
fall Þýskalands.
Það hlýtur að ylja hverju tón-
elsku hjarta að sjá og heyra
þetta unga fólk spila af jafn
mikilli reisn, jafnvel þó maður
óski eftir því að tónninn sé
mýkri og sveigjanlegri.
bjóðum aðeins
gæðagripi
Mesta úrval landsins af þekktum viöurkenndum
merkjum. 10 ára ábyrgð á stelli og framgaffli.
Varahluta- og viögerðaþjónusta.
Þekking — öryggi — reynsla.
Sérverslun i meira en hálfa öld
.. Reióhjólaverslunin
ORNINN
Spitalastig 8
Sveigjanleg greiöslukjör. símar 14661 - 26888
fCYCLES
l" PEUCEOT
S) KALKHOFF
ISLENSK FLOGG
ALLAR GERDIR
FLAGGSTANGIR
ÚR TREFJAGLERI, FELLAN-
LEGAR MEO FESTINGU,
FLEIRI STÆROIR
FLAGGSTANGAR-
HÚNAR
FLAGGLÍNUR
FLAGGLÍNUFESTINGAR
•
ÁLSTIGAR
2FALDIR
MARGAR LENGDIR
•
GARÐYRKJUÁHÖLD
SKÓFLUR ALLSKONAR
RISTUSPAÐAR
KANTSKERAR
GARÐHRÍFUR
HEVHRÍFUR, ORF
GARÐSLÁTTUVÉLAR
GARÐKÖNNUR
VATNSÚOARAR
SLÖNGUKRANAR
SLÖNGUTENGI
SLÖNGUGRINDUR
GAROSLÖNGUR
JÁRNKARLAR
JARDHAKAR
SLEGGJUR
HJÓLBÖRUR, GALV.
•
TIL SJÓSTANGAVEIDI
HANDFÆRAVINDUR
MED STÖNG
SJÓSPÚNAR OG
PILKAR
MJÖG FJÖLBR. URVAL
HANDFÆRAVINDUR
FÆREYSKAR
NÆLONLÍNUR
HANDFÆRAÖNGLAR
MEÐ GERVIBEITU
HANDFÆRASÖKKUR
SIGURNAGLAR
HÁKARLAÖNGLAR
SKÖTULÓDARÖNGLAR
SILUNGANET
UPPSETT
BLÝ OG FLOTTEINAR
•
BOLTAJÁRN, GALV.
BAKJÁRN, GALV.
TJÖRUHAMPUR
BIK, SVART OG HVÍTT
' •
BJÖRGUNARVESTI
FYRIR BÖRN OG FULLORDNA
ARAR — ÁRAKEFAR
BÁTADREKAR — KEÐJUR
BÁTADÆLUR
VÆNGJADÆLUR
V.
ANANAUSTUM
SÍMI 28855
iW
OPIÐ LAUGARDAGA
KL. 9—12