Morgunblaðið - 14.06.1984, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ1984
26
Tófunni fjölgar
suð-vestanlands
ÍSLENSKI villirefastofninn hefur stækkað mikid suðvestanlands á undanfornum
árum að sögn Sveins Einarssonar veiöistjóra. í vor hefur þó ekki borið mikið á
dýrbítum enn sem komið er, enda hvolparnir enn það litlir aö þeir þurfa lítinn
mat, en í fyrrasumar bar talsvert á dýrbítum og voru þá unnin nokkur slík greni í
Mosfellssveit og víðar.
Sveinn sagði að svo virtist sem
stofninum væri haldið í skefjum
annarsstaðar á landinu með veiðum.
Hér í nágrenni höfuðborgarinnar
hefði áróður gegn tófudrápum, með
órökstuddum fullyrðingum um að
stofninn væri í hættu, haft þau áhrif
að dregið hefði úr grenjavinnslu og
eins hefðu menn ekki verið nógu
duglegir við að leita á gömlu grenj-
unum en við þetta hefði stofninn
vaxið óeðlilega. Sagði Sveinn að
nauðsyn bæri til að gera átak í veið-
unum til að halda stofninum niðri,
en með þeim veiðum sem hér hefðu
verið undanfarin ár, 1.400—1.600 dýr
væri ekki nein hætta á að stofninum
yrði útrýmt. Sagði hann ekki vitað
með vissu hve margir refir væru í
landinu en kvaðst reikna með að þeir
væru nálægt 2.000 alls.
Sumarnámskeið skák
skólans að
Sumarnámskeið skákskóla Frið-
riks Ólafssonar munu standa yfir
Óheppileg
myndbirting
VEGNA kvörtunar konu einnar
út af „óskemmtilegri ferð með
sérleyfisbifreið" á milli Akureyr-
ar og Reykjavíkur sem birtist í
Velvakanda á miðvikudag, vill
Morgunblaðið taka fram að þrátt
fyrir að með greininni hafi birst
mynd af tveimur langferðabif-
reiðum Sæmundar Sigmundsson-
ar, sérleyfishafa í Borgarfjörð, á
hann engan aðild að því máli sem
um var rætt. Er hann hér með
beðinn velvirðingar á þessari
óheppilegu myndbirtingu.
hefjast
dagana 18. júní til 6. júlí. Nám-
skeiðin eru fyrir alla aldursflokka og
kennt er í byrjendaflokki og fram-
haldsflokki I og II, auk þess sem
sérstök námskeið eru fyrir fyrri
nemendur skólans, þar sem áhersla
verður lögð á byrjanir og höfð hlið-
sjón af fyrra námi.
Hvert námskeið er tíu klukku-
stundir og kennt er tvisvar í viku,
tvær klukkustundir í senn.
Kennsluna munu annast alþjóð-
legu meistararnir, Helgi ólafsson
og Jón L. Árnason og mun kennsl-
an fara fram í húsakynnum skák-
skólans að Laugavegi 51. Þátt-
tökugjald er krónur 1.000 fyrir
yngri en 14 ára, en 1.300 fyrir eldri
en 14 ára.
Innritað er á námskeiðin í síma
25550 dagana 12.—16. júni frá kl.
16-19.
Afmælishappdrætti
Sjálfstæðisflokksins
DREGIÐ var hjá borgarfógeta í af-
mælishappdrætti Sjálfstæðisflokks-
ins 9. júní síðastliðinn. Upp komu
eftirtalin vinningsnúmer:
Nr. 63519 Sólarlandaferd í leigudu^i með flrval
fyrir 2 (il Mallorka.
Nr. 6328 Sólarlandaferð frá fltaýn í leiguflugi
fyrir 2 að eigin vali.
Nr. 76793 Flugfar fyrir 2 með Klugleiðum til
New York.
Nr. 26836 Sólarlandaferð í leiguflugi með Úrval
fyrir 2 til Ibiza.
Nr. 13688 Sólarlandaferð frá fJtsýn í leiguflugi
fyrir 2 að eigin vali.
Nr. 73584 Flugfar fyrir 2 með Flugleiðum til
New York.
Nr. 81213 Sólarlandaferð í leiguflugi með Úrval
fyrir 2 til Mallorka.
Nr. 71879 Sólarlandaferð frá ÍJteýn í leiguflugi
fyrir 2 að eigin vali.
Nr. 96445 Flugfar 6/30 fyrir 2 með Flugleiðum
til Amsterdam.
Nr. 97303 Sólarlandaferð í leiguflugi með IJrval
fyrir 2 til Ibiza.
Nr. 85077 Flugfar 6/30 fyrir 2 með Flugleiðum
til London.
Nr. 78838 Sólarlandaferð frá fJtsýn í leiguflugi
fyrir 2 að eigin vali.
Nr. 28438 Sólarlandaferð í leiguflugi með fjrval
fyrir 2 til Ibiza.
Nr. 95689 Flugfar 6/30 fyrir 2 með Flugleiðum
til Luxemborgar.
Nr. 81474 Sólarlandaferð frá ÍJteýn í leiguflugi
fyrir 2 að eigin vali.
Nr. 26183 Sólarlandaferð frá fJtsýn í leiguflugi
fyrir 2 að eigin vali.
Nr. 65505 Flugfar 6/30 fyrir 2 með Flugleiðum
til London.
Nr. 43525 Sólarlandaferð í leiguflugi með f'rval
fyrir 2 til Mallorka.
Nr. 67764 Sólarlandaferð frá ÍJteýn í leiguflugi
fvrir 2 að eigin vali.
Nr. 78821 Flugfar 6/30 fyrir 2 með Flugleiðum
til Kaupmannahafnar.
Nr. 99291 Sólarlandaferð frá f'Lsýn í leiguflugi
fyrii 2 að eigin vali.
Nr. 79549 Sólarlandaferð í leiguflugi með Úrval
fyrir 2 til Ibiza.
Nr. 70890 Sólarlandaferð frá fjteýn í leiguflugi
fyrir 2 að eigin vali.
Nr. 35229 Flugfar 6/30 fyrir 2 með Flugleiðum
til Osló.
Nr. 52019 Sólarlandaferð í leiguflugi með fJrval
fyrir 2 til Mallorka.
Nr. 81426 Sólarlandaferð frá fJtsýn í leiguflugi
fyrir 2 að eigin vali.
Eigendur ofantaldra vinnings-
miða framvísi þeim í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, Reykjavík.
Sjálfstæðisflokkurinn þakkar
öllum þeim fjölmörgu, sem þátt
tóku í stuðningi við flokkinn með
kaupum á happdrættismiðum.
(Fréttatilkynning.)
Ragni Kolle Kierulf, dansahöf-
undur og dansari.
Exultate
tónleikar með upplestri
dansi og orgelleik
HÉR á landi eru nú staddir
þrír norskir listamenn, Per
Cristensen eldri, leikari, Ragni
Kolle Kierulf, dansahöfundur
og dansari, og Björn Káre Moe,
organleikari. Þau eru að ljúka
tónleikaferð um Norðurlönd og
munu halda tvenna tónleika
hérlendis. Þeir fyrri verða í
Dómkirkjunni í Reykjavík,
laugardaginn 16. júní og þeir
seinni í Akureyrarkirkju, mið-
vikudaginn 20. júní. Á efn-
isskrá þeirra eru verk eftir
Reger, Bach, Nystedt og Hvosi-
ef. Listamennirnir hlutu styrk
til fararinnar frá Norræna
menningarsjóðnum.
Steinar Skúlason bifreiðastjóri fslenskra eðalvagna í fullum herklæðum við bflaflota fyrirtækisins. Rolls Royce
Phantom V bifreiðin er til vinstri en Silver Shadow I til hægri. Morgunblaðið/ KEE
„Drottningarbíll“ á
götum Reykjavíkur
FYRSTA Rolls Royce Phantom V
bifreiðin, sem kemur til íslands,
var í gær skipað upp úr lest Eyrar-
foss, skipi Eimskipafélags íslands,
sem kom frá Felixstowe í fyrradag.
Það er fyrirtækið íslenskir eðal-
vagnar, sem flytur inn bflinn frá
Bretlandi, en hann er árgerð 1961
og hefur skrásetningarnúmerið
AJB 589A. Fyrstu Rolls Royce bif-
reiðina, af gerðinni Silver Shadow
I, fékk fyrirtækið í síðustu viku.
Ólafur Arnarson stjórnarfor-
maður íslenskra eðalvagna sagði
í samtali við Morgunblaðið í lest
Eyrarfoss, að bifreiðin kostaði
hálfa aðra milljón króna komin
á götuna, en hún væri sömu
gerðar og viðhafnarbifreið
Bretadrottningar og í einkalit-
um bresku konungsfjölskyldunn-
ar. Fyrirtækið hygðist leigja bíl-
inn við sérstök tækifæri og
mundi leigan verða um 1.500
krónur á klukkustund. Bifreiðin
yrði leigð með bílstjóra en í
henni yrðu myndbands- og sjón-
varpstæki auk bílasíma, vín-
stúku og snyrtiborðs. Ólafur
sagði ekki ráðgert að selja
Phantom bílinn, en sennilegt
væri, að góðum tilboðum yrði
ekki hafnað.
Ólafur Arnarson kvað samn-
inga um sölu fyrstu Rolls Royce
bifreiðar fyrirtækisins vera að
nást og væri söluverð um milljón
krónur, en stefnt væri að því að
flytja inn fleiri bíla þessarar
gerðar nú í ár. „Það verða líklega
notaðir bílar," sagði Ólafur og
bætti því við, að nýr Rolls Royce
af gerðinni Silver Spirit kostaði
rúmar sex milljónir króna kom-
inn á götuna hér á landi.
íslenskir eðalvagnar hyggjast
sýna báða bíla fyrirtækisins síð-
ar í þessum mánuði.
Formannaráðstefna Alþýðusambands Austurlands:
Skorar á aðildarfélög að segja
upp samningum frá 1. september
Á formannaráðstefnu Alþýðu-
sambands Austurlands, þar sem
mættir voru formenn allra aðildarfé-
laga nema tveggja, var eftirfrandi
ályktun samþykkt:
„Formannafundur ASA haldin
að Egilsstöðum 12. júní 1984 sam-
þykkir eftirfarandi tilmæli til að-
ildarfélaga ASA: Þar sem allar
forsendur fyrir síðustu kjara-
samningum hafa brostið á samn-
ingstímanum og kjaraskerðingin
fer sívaxandi, landbúnaðarafurðir
hafa hækkað um allt að 40% síðan
um áramót, lyf og læknishjálp
hafa margfaldast í verði og lækn-
ishjálp varla fáanleg vegna sparn-
aðar, svo fátt eitt sé nefnt, þá
beinir formannafundur ASA því
til verkalýðsfélaganna á Austur-
landi að þau standi öll saman um
að segja upp kaupliðum kjara-
samninga fyrir 1. september næst-
komandi."
Ályktunin var samþykkt ein-
róma.
Hópurinn sem brautskráðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík.
Tónlistarskólinn í Rvk. brautskráir 29 nemendur
Tónlistarskólanum í Rcykjavík
var slitið í Háteigskirkju 29. maí sl.
Brautskráðir voru 29 nemendur og
er það stærsti hópur sem sem lokið
hefur burtfararprófi í einu frá skól-
anum.
Nemendurnir sem brautskráð-
ust að þessu sinni voru einleikar-
ar, einsöngvarar og nemendur úr
hinum ýmsu kennaradeildum
skólans. Meðal þeirra voru sex
nemendur úr tónfræðadeild, þeir
fyrstu sem Ijúka þaðan námi, en
deildin tók til starfa haustið 1981.
Nám í deildinni miðast við nám til
BA-prófs við erlenda tónlistar-
háskóla.
í skólaslitaræðu sinni minntist
Jón Nordal, skólastjóri, Björns
Ólafsssonar konsertmeistara sem
lést í mars sl., en Björn var yfir-
kennari í strengjadeild skólans í
áratugi og stjórnandi Hljómsveit-
ar Tónlistarskólans.