Morgunblaðið - 14.06.1984, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ 1984
41
fclk í
fréttum
Victoria Principal þykir laus á kostunum og einkalíflð er öllu viðburðaríkara en ætla mætti af Dallas.
Minnispunktar um
Victoriu Principal
+ Victoria Principal þykir ekki
neitt sérstaklega gáluleg sem Pam-
ela Ewing í Dallas, en í raunveru-
leikanum er hún léttlyndari en
þær flestar. Enska dagblaðið The
Sun hefur tekið saman dálítinn
lista yfir afreksverk Victoriu og
lítur hann þannig út:
+ Victoria gerir sér ekki mikinn
mannamun þegar karlmenn eru
annars vegar, en af þeim öllum
hefur enski knattspyrnumaðurinn
Lance Rentzel verið hvað sístur.
Hann hefur verið dæmdur fyrir
kynferðisafbrot gegn börnum og
eiturlyfjaneyslu.
+ Milljónamæringurinn Bernie
Cornfeld (sem síðar var dæmdur
fyrir fjárglæfri) varð svo ástfang-
inn af Victoriu, að hann gaf henni
flugvél og borgaði laun flugmanns-
ins, Rolls-Royce með bilstjóra og
lífvörð í afmælisgjöf þegar hún
varð 19 ára gömul.
+ Þegar Victoria varð 20 ára gaf
Cornfeld henni villu í einu af fín-
ustu hverfum Lundúna og kostaði
hana á námskeið hjá eftirsóttum
leiklistarkennara.
+ Á þeim þremur árum, sem þau
þekktust og voru saman Victoria
og Cornfeld, breyttist hann úr
grannvöxnu glæsimenni i afdank-
aðan fitukepp.
+ Þegar réttvísin þóttist eiga
eitthvað vantalað við Cornfeld
sneri Victoria sér að Hollywood-
lækninum Mark Saginor en það
stóð aöeins í fjóra mánuöi, þá tók
við bílasalinn Charlie Schmidt.
+ Victoria átti að þessu búnu
nokkra ástafundi með Frank Sin-
atra, en þau reyndu að leyna sam-
bandi sínu eins og þau gátu. Þau
sáust t.d. aldrei saman opinber-
lega.
+ Victoria hitti leikarann
Christopher Skinner við upptökur
á Dallas og giftist honum. Hann er
eini maðurinn sem hún hefur verið
gift.
+ Hjónabandið stóð aðeins í 11
mánuði, en skilnaðarmálin hins
vegar nokkru lengur.
+ Söngvarinn Andy Gibb fluttist
inn til Victoriu þremur dögum eft-
ir að þau sáust fyrst.
+ Nokkru síðar voru þau í veislu
og þá gaf Andy Victoriu reisupass-
ann svo allir heyrðu. Þar með lauk
þeirra samvistum.
+ Á eftir Andy tók við arabíski
auðkýfingurinn Hani Salaam.
Hann flaug frá London til Los
Angeles bara til að borða með
henni hádegisverð.
+ Næsta fórnarlamb Victoriu
var rithöfundurinn Ernest
Thompson. Eftir sex vikna kynni
kynnti hann hana fyrir móður
sinni, en þá var hún raunar þegar
farin að vera með leikstjóranum
Fred Whitehead.
+ Á meðan Victoria var með
Fred fór hún að hitta lýtalækninn
Harry Glassman á laun.
+ Harry Glassman gengur illa
að ákveða brúðkaupsdaginn því að
börnin hans vilja ekki sjá Victoriu
fyrir stjúpmóður.
+ Victoria vill ekki eignast börn.
Hún er hrædd um að það komi
niður á vextinum og hefur boðist
til að taka barn í fóstur en á það
má Glassman ekki heyra minnst.
007-stúlkunni þykir vænt
um milljarðana sína
+ Barbara Carrera, sem varð fyrst
kunn sem leikkona eftir að hafa
komiö fram í James Bond-myndinni
„Never Say Never Again", er ekki
eins hrifin af karlmannlegum vexti
og ætla mætti. Á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes, sem hatdin var nú
fyrir nokkru, var Barbara óspör á
viðtölin og alls staðar gat hún komið
að manninum sínum, sem er svo
væskilslegur að hennar sögn, að
„hann gæti varla komið blautum
tennisbolta yfir netið".
„Aftur á móti,“ bætir Barbara við
brosandi, „gæti hann keypt Björn
Borg til að gera það fyrir sig.“
Eiginmaður Barböru heitir eða er
kallaður Nicky og er eftirnafnið
Malroleon. Hann er erfingi grisks
útgerðarmanns og hefur nú fengið
frí hjá pabba sínum til að ferðast um
heiminn með konunni sinni.
Barbara Carrera er frá Nicaragua
og var faðir hennar sendiherra lands
síns á sínum tíma. Þegar Barbara
var 15 ára var hún send til Banda-
ríkjanna að læra á fiðlu en var fljótt
uppgötvuð sem fyrirsæta. Þegar
Barbara var í viðtölunum var eigin-
maðurinn hennar litli alltaf nálægur
með konfekt og annað góðgæti og
hún var heldur ekki að fara í felur
með tvær af brúðargjöfunum hans,
eins karats demant og annan þriggja
karata, báða hjartalaga. „Eg gæti
raunar metið Nicky sjálfan í karöt-
um,“ segir Barbara og þegar hún er
spurö að því hvað hún hafi gefið
honum, svarar hún til: „Ó, það sem
er mest í tísku núna, það sem enginn
karlmaður getur verið án, nátt-
treyju."
Barbara (arrera: „Maðurinn minn gæti
keypt Björn Borg.“
COSPER
COSPtR
— Og af hvaða minnimáttarkennd þjáist þú,
maður minn?
Litir: Bleikt, ijósblátt.
Stærðir: 20 - 30.
Verð: 199-
Litir: Grátt, dökkblátt.
Stærðir: 28-35.
Stærðir: 36 - 41
Verð: 499,-
Litir: Dökkblátt, rautt.
Stærðir: 21 - 30.' n
Verð: 359.-
Litir: Grátl, svart
Stasrðir: 36 - 41.
Verð: 399.-
Litir: Vínrautt, dökkblátt.
Stærðir: 25-35.
Verð: 399,-
Stærðir: 36 - 41.
Verð: 459 -
Litir: Gult. Ijósblátt, grátt.
Stærðir: 36 - 41.
Verð: 299,-
Litir: Blátt, vínrautt
Stærðir: 36 - 41.
Litir: Rautt,
Stærðir: 36
Verð: 789 -
Stærðir: 42 - 46.
JZerð: 459.-
Litir: Ljósbtátt, dökkblátt. grátt.
Stærðir* 27 - 34
Verð: 299,-
Sími póstversiunar er 91-30980
HAGKAUP
Reykjavík Akureyri Njarðvík