Morgunblaðið - 20.06.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 1984
5
Vigfús Sigurgeirsson
Ijósmgndari látinn
Vigfús Sigurgeirsson ljósmynd-
ari lést laugardaginn 16. júní 84
ára að aldri. Hann fæddist 6. jan-
úar árið 1900 á Stóruvöllum í
Þingeyjarsýslu, og nam ljós-
myndasmíði hjá Hallgrími Ein-
arssyni á árunum 1920—1923. Síð-
an starfaði Vigfús sem ljósmynd-
ari á Akureyri frá 1923—1935, en
stundaði auk heldur nám í tónlist
þar frá 1922-1926. Árið 1935 hélt
hann til Danmerkur og Þýska-
lands þar sem hann kynnti sér
nýjungar í ljósmyndagerð, og
kvikmyndagerð í Þýskalandi á ár-
unum 1936—37. Árið 1937 gerðist
Vigfús ljósmyndari í Reykjavík
þar sem hann starfaði upp frá því,
og hóf að taka kvikmyndir af at-
vinnuháttum íslendinga, þjóðlífi
og þróun atvinnuveganna. Vigfús
var einnig um langt skeið kvik-
myndatökumaður í fylgd með for-
setum íslands í opinberum ferðum
þeirra.
Vigfús var tvíkvæntur. Fyrri
Vigfús Sigurgeirsson
kona hans, Bertha Þórhallsdóttir,
dó árið 1932, en hin síðari, Val-
gerður Magnúsdóttir, lést árið
1982. Þau Vigfús eignuðust tvö
bðrn.
Formannafundur VMSÍ:
Skorar á félögin
að segja upp samn-
ingum 1. september
Kormannafundur Verkamannasam-
bands íslands samþykkti einróma
áskorun til aðildarfélaga að segja upp
launaliðum núgildandi kjarasamninga
frá I. ágúst, þannig að þeir verði lausir
I. september næstkomandi. Jafnframt
er gerð krafa um að lágmarkslaun
verði 14 þúsund krónur á mánuði,
taxtakerfi VMSf verði endurskoðað,
þar sem fullt tillit verði tekið til vinnu-
álags og starfsaldurs og reiknitölur
fylgi töxtum. Þá segir að VMSÍ muni í
komandi samningum taka fullt tillit til
raunhæfra verðlækkana sem kjara-
bóta.
I greinargerð sem fylgir áskorun-
inni segir að óviðunandi sé að samn-
ingsbundnir taxtar séu allt niður í
rúmar 10.500 krónur þegar dag-
vinnutekjutrygging er 12.913. Þetta
raski álagi á yfirvinnu og sé það til
dæmis 20% í stað 40% á eftirvinnu,
sé miðað við 10. launaflokk. Alvarleg
hætta sé á að slíkt ástand verði var-
anlegt, sé ekki gripið til gagnráð-
stafana. f því sambandi er bent á
samninga frá 1968, en þá var tíma-
bundið samið eingöngu um hækkun
á dagvinnu, sem gerði það að verkum
að hlutfall eftirvinnu féll úr 60%
niður í 40% og næturvinnu úr 100%
í 80% og gildi þau hlutföll enn þann
dag í dag. Þá segir að sama gildi um
bónus og ýmis kaupaukakerfi: þau
eigi að miðast við lágmarkstekjur en
ekki taxta.
Ennfremur segir að þetta ástand
hafi leitt til þess að aldurshækkanir
hafi í raun fallið niður, þar sem eng-
inn af töxtum VMSÍ nái dagvinnu-
tekjutryggingu og geri þetta að verk-
um að byrjendur og þeir sem unnið
hafa í 10 ár séu á sama kaupi, þrátt
fyrir það að gert sé ráð fyrir ald-
urshækkunum.
Síðan segir: „Samningar ASÍ og
VSf 21. febrúar sl. miðuðust við að
kaupmáttur 4. ársfjórðungs 1983
héldist óskertur út samningstíma-
bilið. Ræikisstjórnin tók í raun
ábyrgð á samningunum með þátt-
töku í samningsgerðinni. Nú liggur
fyrir að kaupmáttur er í dag minni
en gert var ráð fyrir 21. febrúar sl.
Þá er ekki reiknað með neinum
óvæntum aðgerðum eða hækkunum,
svo sem oliuverðshækkunum eða
öðrum slíkum, sem þó liggja í loft-
inu.“
Segir að til þess að ná meðaltals-
kaupmætti ársins þurfi 15,1% kaup-
hækkun 1. september og fyrirsjáan-
legt sé að grundvöllur núverandi
kjarasamninga sé brostinn.
Feróaskrifstofan
Austurstræti 17,
sími 26611.
Akureyri:
Hafnarstræti 98,
sími 22911.
KNATTSPYRNU-
FERÐ m
HOLLANDS
17.-21. ÁGÚST
Ásgeir Sigurvinsson, Stuttgart Amór Guðjohnsen, Anderlecht
Ferðatilhögun
Flogið verður meö Arnarflugi til Amsterdam þ. 17. ágúst og frá Am-
sterdam þ. 21. ágúst. Frá Amsterdam veröur ekið meö langferöabíl til
Rotterdam ca. klukkutlma ferö. 17,—20. ágúst verður dvaliö í Rott-
erdam á góöu 4 stjörnu hóteli. Um kvöldiö þ. 17.ágúst veröa 2 leikir,
Manchester United og Stuttgart kl. 19.00 og Feyenoord og Ander-
lecht kl. 21.00. Þ. 19. ágúst kl. 15.00 leika þeir saman sem töpuöu og
kl. 18.00 fer fram úrslitaleikurinn. Þ. 20. ágúst verður ekið til Amster-
dam og gist þar eina nótt.
Verö pr. pr. I þriggja m. herbergi kr. 11.500,-
Verð pr. pr. I tveggja m. herbergi kr. 13.200,-
Verð pr. pr. í eins m. herbergi kr. 15.800.-
Innifalið I ofanskráðu veröi er: Flugfargjald, akstur, gisting, morgun-
veröur, aögöngumiöi á 4 leiki (sæti), kynnisferö um Amsterdam og
fararstjórn. Staöfestingargjald kr. 2.500,- 1. júnl 1984.
FEYENOORD - STUTTGART -
ANDERLECHT - MANCHESTER UNITED
Síðast var fariö til Stuttgart en nú skal halda til Rotterdam. Feröa-
skrifstofan Útsýn efnir til hópferöar á knattspyrnumót sem haldiö
veröur I Hollandi. Fjögur sterk 1. deildarlið taka þátt i þessu móti. Nú
gefst tækifæri á aö sjá okkar frábæru knattspyrnumenn Asgeir Sigur-
vinsson, Stuttgart og Arnór Guðjohnsen Anderlecht leika listir sinar.
„ómar í aldarfjórðung“
ein allra léttasta og besta
skemmtun sem sviðsett
hefur verið hér á landi nú
í allra síðasta sinn laug-
ardags- og sunnu-
dagskvöld í
CCOAC
Hljómsveit Ingimars Eydals frá
Akureyri kemur til borgarinnar I
tilefni þess og leikur Ingimar
m.a. nú undir hjá Ömari og svo
fyrir dansi.
Auk þess syngja
þau Björgvin og
Þuríður nokkur lög
og fyrrum undir-
leikarar Ómars
koma fram.
Missiö ekki af
þessari einstæðu
skemmtun sem
svo sannarlega
hefur slegiö í gegn.
Vegna anna ómars í sumar veröur
ekki unnt aö halda þessum
skemmtunum áfram.
Miða- og boröapantanir
í síma 77500.