Morgunblaðið - 20.06.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNt 1984
25
Tap á Listahátíð ekki undir 3 milljónum króna:
Auglýsingaátakið kom of seint
— segir Bjarni Ólafsson, framkvæmdastjóri hátíðarinnar, um kynningu atriðanna
LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík
1984 lauk á sunnudag með
einhverjum fjölmennasta
dansleik, sem sögur fara af
hérlendis. Var fjöldi gesta
slíkur, að Laugardalshöllin
nægði ekki undir hann. Var
aðsóknin öll önnur og betri
en á marga af viðburðum
Listahátíðar, sem voru bók-
staflega illa sóttir, sér í lagi
leiksýningar. Aðsókn að
nokkrum tónlistarviðburðum
var þó góð svo og aðsókn á
sýningu listamannanna 10,
sem sýndu að Kjarvalsstöð-
um, svo dæmi séu nefnd. Þá
er ótalinn lokadansleikurinn.
Hjálpaði vafalítið til með aö-
sóknina að honum, að ís-
lendingar héldu upp á 40 ára
afmæli lýðveldisins þennan
sama dag.
Háværar gagnrýnisraddir hafa
komið fram á meðal almennings
jafnt sem í fjölmiðlum í garð
framkvæmdastjórnar Listahátíð-
ar að undanförnu og hefur sitt
sýnst hverjum. Flestir eru þó sam-
mála um að hátíðin hafi verið of
umfangsmikil, þ.e. hafi staðið of
lengi yfir og atriðin, sem boðið var
upp á, hafi verið allt of mörg.
ógerningur hafi verið að ætlast til
þess að allir atburðirnir yrðu fjöl-
sóttir. Þeir hörðustu hafa jafnvel
gengið svo langt, að krefjast þess
að Listahátíð verði lögð niður.
Ekki sé forsvaranlegt að láta hinn
almenna skattgreiðanda borga
a.m.k. 3 milljóna halla af „hátíð
útvalinna" eins og einn viðmæl-
andi blm. Mbl. orðaði það.
Ekkert endanlegt uppgjör
Bjarni Ólafsson er fram-
kvæmdastjóri Listahátíðar í ár.
Blm. Mbl. ræddi við hann í gær og
lagði fyrst fyrir hann þá spurn-
ingu hvort hann væri ánægður
með Listahátíð 1984.
„Það er dálítið erfitt að svara
þessari spurningu núna,“ sagði
Bjarni. „Það er svo margt, sem ég
á enn eftir að athuga, t.d. eru enn
ekki komnar endanlegar tölur yfir
aðsókn að hátíðinni og miðasalan
hefur t.d. ekki enn verið gerð upp
svo dæmi séu nefnd."
— Liggur fyrir hversu mikill
halli verður á hátíðinni?
„Nei, endanlegar tölur liggja
ekki fyrir enn. Ég lagði hins vegar
fram kostnaðaráætlun í maí og í
henni kom fram, að ég áleit gjöld
umfram tekjur verða a.m.k. 3
milljónir í ljósi þeirrar dagskrár,
sem boðið yrði upp á. Inni í þess-
ari tölu var einnig halli af kvik-
myndahátíðinni í febrúar. Þetta
er ekki ný staðreynd, en ég á ekki
von á að niðurstöðutölur verði
lægri."
— Hart hefur verið deilt á
Listahátíð. Finnst þér gagnrýnin
hafa verið ósanngjörn?
„Gagnrýni er aðeins af hinu
góða og það er Iangt í frá að ég sé
ósáttur við hana. Hins vegar þótti
mér skjóta skökku við, að á sama
tíma og gagnrýnendur kepptust
við að hæla hverju atriðinu á fæt-
ur öðru, voru æði margir, sem
skrifuðu neikvætt um hátíðina
sem slíka. Fannst hún of kostnað-
arsöm. Svona hátíð verður ekki
haldin án mikils tilkostnaðar."
Þáttur fjölmiðla
— Eftir þér var haft í einu dag-
blaðanna, að kynning á hátíðinni
hefði ekki tekist sem skyldi.
Varstu þarna að sneiða að fjöl-
miðlunum?
„Nei, alls ekki. Fjölmiðlarnir
sýndu hátíðinni mikinn áhuga,
sumir e.t.v. meiri áhuga en hægt
var að krefjast. Það, sem ég átti
við, var að það var of seint í rass-
inn gripið. Almenningi virtist það
ekki fyllilega ljóst fyrr en Lista-
hátíð var komin vel á veg, að hún
stóð yfir. Ráðinn var sérstakur
starfsmaður til þess að standa að
þessum málum, en það er ekki
mitt að meta hvernig til tókst.
Hins vegar tel ég rangt, að ætlast
til að kynning í því formi, sem
lögð var mest áhersla á, skili sér
eins og beinharðar auglýsingar."
— Voru það ekki alvarleg mis-
tök að leggja ekki meira fjármagn
í beinar auglýsingar?
„Þegar ég lagði fram fjárhags-
áætlun mina óskaði ég eftir að fá
Bjarni Ólafsson, framkvæmdastjóri
Listahátíðar.
að auglýsa fyrir ákveðna upphæð.
Það var úr því dregið, en menn
áttuðu sig á mistökunum þegar
komið var inn í miðja hátíð. Ég
greip þá til þess ráðs að auglýsa
upp einstaka atburði. Það var ein-
faldlega ekki um annað að ræða.“
Markaðaslögmál
— Ertu sammála þeirri gagn-
rýni, að hátíðin hafi verið of löng
og atriðin of mörg?
„Um það má lengi deila. Sjálf-
sagt hefur framkvæmdastjórnin
viljað gera vel og gera sem flest-
um til hæfis. Það er hins vegar
spurning um hversu lengi markað-
urinn tekur við. List er af hinu
góða, en hún er engu að síður háð
markaðslögmálunum eins og önn-
ur neysla. Við getum ekki dengt
list yfir þjóðina endalaust. Þetta
hefði eflaust mátt vera heldur
minna í sniðum."
— Áttu von á því að núverandi
form Listahátíðar verði endur-
skoðað í ljósi þessarar reynslu?
„Mér þykir það eðliegt og sjálf-
sagt, að eftir hverja hátíð sem
þessa séu gögn skoðuð og hlutirnir
yfirfarnir. Jú, það er spurning um
hvort ekki ætti að hafa þessa há-
tíð á þriggja eða fjögurra ára
fresti eða þá að hafa hana oftar en
þá minni í sniðum. Það eru þessir
tveir valkostir."
— Hvað fannst þér sjálfum
vera ljósasti punkturinn við þessa
hátíð?
„Þeir voru að mínu viti margir.
Ég er nú ekki neinn listgeggjari en
naut margra góðra atriða á hátíð-
inni þrátt fyrir langan vinnudag.
Hefði samt kosið að sjá fleira.“
— SSv.
Ómaklega veist að íslensk-
um ferðaskrifstofum
— eftir Karl Sigurhjartarson ^
forstjóra ferðaskrifstofunnar Úrvals
í FRAMHALDI af frétt sjón-
varpsins og umfjöllun Morg-
unblaðsins um mismun á
verði á sólarlandaferðum hér
og erlendis, hefur Karl Sigur-
hjartarson, forstjóri ferða-
skrifstofunnar Úrvals, sent
Morgunblaðinu eftirfarandi:
í fréttum sjónvarps 6. júní sl.
var slegið upp frétt um hve óhag-
stætt það væri fslendingum að
ferðast í beinu leiguflugi til sólar-
landa. Niðurstaða fréttamannsins
var að hjón með eitt barn gætu
sparað sér 25 þúsund krónur, með
því einfaldlega að fljúga í áætlun-
arflugi til London, síðan með
enskri ferðaskrifstofu til Mallorca
og gista þar á Royal Magaluf í
þrjár vikur.
Á vegum ferðaskrifstofunnar
Úrvals hafa þúsundir íslendinga á
undanförnum árum flogið í leigu-
flugi og gist þetta fyrsta flokks
hótel. Þó fréttamaður hafi
kannski ekki ætlað að beina spjót-
um sinum að Úrvali sérstaklega,
þá vita þessir viðskiptavinir okkar
og fjölmargir aðrir að Úrval hefur
einkaumboð á íslandi fyrir þetta
vinsæla hótel. Því hljótum við að
taka upp hanskann.
f viðtali við Mbl. 8. júní sl. ásak-
aði ég sjónvarpið fyrir óvönduð
vinnubrögð, með því að afla sér
ekki nauðsynlegra gagna áður en
fréttin var birt, þrátt fyrir ábend-
ingar þar um. Það er nefnilega
ógerningur að gera alvarlegan
samanburð á verði tveggja aðila
nema verðskrá liggi fyrir frá báð-
um, ekki síst ef um ferðalög er að
ræða, en þar spilar margt inn í,
s.s. á hvaða tíma er ferðast,
barnaafsláttur, staðgreiðsluaf-
sláttur o.fl. o.fl.
Með því að kynna sér verðskrá
og bækling Úrvals hefði frétta-
maður uppgötvað að Úrval veitir
8% staðgreiðsluafslátt sé greitt
með 3ja vikna fyrirvara, en ensku
hjónin áttu að hafa greitt með
a.m.k. tíu vikna fyrirvara skv.
kvittun. Með því að kynna sér
bækling og ferðaáætlun OSL (sem
er sá aðili sem sér um framkvæmd
þessara ferða, þó svo Callers Peg-
asus hafi í þessu tilfelli selt ferð-
ina), svo og skilmála á rauðum
apex-gjöldum til London, hefði
fréttamaðurinn séð að til að koma
við rauðu apex-gjaldi þurfti viku-
dvöl í London, sem er gott og
blessað fyrir þá sem vilja stoppa
viku í London, en afleitt fyrir hina
sem ekki hafa áhuga eða tíma eða
peninga til slíkra huggulegheita. í
mínum samanburði hef ég því not-
að grænt apex svokallað, sem er
um 4.000 kr. hærra fyrir fullorð-
inn, en styttir viðdvölina í London
um sex nætur og er því ódýrara í
reynd.
Karl Sigurhjartarson
Með því að skoða verðskrá OSL
hefði fréttamaðurinn einnig séð
að brottför í síðustu viku apríl sbr.
breska fjölskyldan er verulega
lægri í verði (ca. 25%) heldur en
brottför í fyrstu viku maí sbr. ís-
lenska fjölskyldan. Munurinn
minnkar með auknum barnaaf-
slætti í maí, en er þó um kr. 3.000
fyrir fjölskylduna. Þar sem Úrval
bauð ekki upp á brottför þessa síð-
ustu viku í apríl er samanburður
byggður á verði OSL fyrstu viku í
maí.
Einnig má koma með sparðatín-
ing svo sem ónákvæmni í meðferð
A. Hjón með eitt 9 ára barn
Brottíor í Brottíor í
byrjun maí byrjun júlí
1. I leiguflugi með Úrvali kr. 58.305 kr. 63.710
2. I áætlun til London, þaðan
með enskri ferðaskrifstofu kr. 57.134 kr. 74.858
Mismunur kr. 1.171 kr. 11.148
Sem er ódýrara um London ódýrara með Úrvali
B. Hjón með tvö börn 9 ára og 13 ára
1. 1 leiguflugi með Úrvali kr. 65.412 kr. 72.036
2. í áætlun til London, þaðan
með enskri ferðaskrifstofu kr, 73.253 .kr. 89.733
Mismunur kr. 7.841 kr. 17.697
Sem er ódýrara með Úrvali Ódýrara með Úrvali
Forsendur:
1. Verð í leiguflugi hjá Úrvali með 8% staðgreiðsluafslætti samkv.
verðskrá.
2. Innifalið: Fargjald Reykjavík — London — Reykjavík: Grænt
apex. Verð London — Mallorca — London með gistingu á Royal
Magaluf samkv. vírðskrá OSL.
Dvalarkostn. London: Gistinótt £35.- fyrir 2ja manna herbergi.
Aukarúm £10.-
Matarkostn. £10,- pr. mann.
Akstur ca. £25.-
Samanburður á þriggja vikna sólarlandaferð til Mallorca, þar sem gist er í
íbúð á hótelinu Royal Magaluf.
gengis krónunnar og flugvalla-
skatts.
Að öllu þessu samanlögðu þarf
þvi ekki að koma á óvart að niður-
stöður hafa nokkuð breyst. Með
tilvisun í meðfylgjandi töflu, þá
hefur 3ja manna fjölskyldan, sem
ferðast í mai, sparað sér kr. 1.167
með viðkomu i London, og er þá
miðað við að hægt sé að komast af
með eina gistinótt þar.
Sé sama fjölskylda á ferðinni i
júlí, breytist dæmið enn og er nú
rúmlega ellefu þúsund krónum
ódýrara í leiguflugi með Úrvali.
Viðkoman í London verður enn
ódýrari þegar um 4ra manna fjöl-
skyldu er að ræða en þá er leigu-
flug Úrvals ódýrara sem nemur
kr. 7.841 í maí og 17.697.
I fréttinni 6. júní fullyrðir
fréttamaðurinn að ekki sé um sér-
staka afsláttarferð að ræða. Við-
mælendur mínir hjá Callers Peg-
asus og OSL staðfesta hins vegar
að verðið sé ekki samkvæmt verð-
skrá, án þess að gefa upp um hvers
konar afslátt sé að ræða. Það gef-
ur augaleið að slík afsláttargjöld
eru ekki samanburðarhæf við verð
skv. verðskrá. íslenskar ferða-
skrifstofur hafa einnig auglýst
sértilboð eða veitt afslátt þó slíkt
sé í lágmarki í ár.
Hér að ofan hefur einungis ver-
ið fjallað um verðsamanburð, en
ekki gæði. Það verður hver að gera
upp við sig hvort hann vill stoppa
í London til lengri eða skemmri
tíma með tilheyrandi kostnaði,
eða fljúga með íslenskri vél á
áfangastað. Sömuleiðis er erfitt að
meta til fjár það öryggi að geta
treyst á daglega aðstoð íslensks
fararstjóra í stað vikulegrar
heimsóknar ensks fararstjóra. Ég
læt aðra um að dæma um það.
Niðurstaðan er sú að hér hafi
verið ómaklega og að lítt rannsök-
uðu máli veist að íslenskum ferða-
skrifstofum. Staðreyndin er nefni-
lega sú að íslenskar ferðaskrif-
stofur hafa í gegnum árin sýnt
ótrúlega útsjónarsemi, hug-
myndaflug og áræði í þeirri við-
leitni sinni að bjóða íslendingum
upp á sem hagkvæmasta og fjöl-
breyttasta ferðamöguleika. M.a.
ferðir til Mallorca um London fyr-
ir þá sem það hentar.