Morgunblaðið - 20.06.1984, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 1984
41
Sumarstarf tóm-
stundaráðs hafið
á Egilsstöðum
Kgilsstödum, 4. júní.
I dag byrjuðu af fullum
krafti þau sumarstörf sem
börnum og ungmennum hér í
Egilsstaðahreppi er boðið upp
á.
í dag var vænn hópur 8—10
ára krakka í önnum við að
setja niður útsæði í skólagörð-
unum. Að sögn umsjónar-
manns skólagarðanna, Ingu
Þóru Vilhjálmsdóttur, tóm-
stundafulltrúa Egilsstaða-
hrepps, eru þátttakendur í
skólagörðunum rúmlega 40 að
þessu sinni. Krakkarnir luku
víð að setja útsæðið sitt niður í
dag en á morgun munu þeir sjá
hvers konar grænmetisfræi.
Síðan munu þeir koma tvisvar í
viku til að hirða reitinn sinn
allt til þess tíma að líður að
uppskeru.
Þá hóft unglingavinnan í dag
og byrjuðu unglingarnir á
hefðbundnum verkefnum — að
hreinsa og snurfusa umhverfið
innan bæjarmarka. Launin í
unglingavinnunni fara eftir
aldri. Munu 13 ára frá kr. 40,96
á tímann; 14 ára kr. 44,85 og 15
ára kr. 50,83 á tímann.
Þá mun brátt hefjast leikja-
Úlfljótsvatn:
Gilwell-námskeið hald-
ið á vegum Banda-
lags íslenskra skáta
DAGANA 27. maí — 3. júní
stóð Bandalag íslenskra
skáta fyrir Gilwell-námskeiði
á þjálfunarmiðstöð sinni við
Úlfljótsvatn í Grafningi.
Gilwell-námskeið er alþjóð-
legt námskeið og æðsta for-
ingjaþjálfun sem skátafor-
ingi getur hlotið.
Hugmyndin að Gilwell-
þjálfuninni kom frá stofnanda
skátahreyfingarinnar, Lord
Baden-Powell. Hann hugsaði
sér að árangursríkt væri að
safna saman foringjum til
lengri útilegu og tengja saman
foringjafræði og upplifun í
skátastarfi. Fyrsta námskeiðið
var haldið í Gilwell Park árið
1919. Fyrsta námskeiðið af
þessu tagi á íslandi var haldið
að Úlfljótsvatni árið 1959.
Stjórnendur námskeiðsins
voru Kristín Arnardóttir, Þórð-
ur Bogason, Þorvaldur B. Jóns-
son, Benjamín Árnason og Je-
an-Pierre Isbendjean, erindreki
foringjaþjálfunar Evrópu-
bandalags skáta.
i
Krakkarnir í skólagörðunum voru önnum kafnir við að setja niður f dag. Ljósm.: Mbl./Olafur
námskeið fyrir krakka á öllum
aldri og starfsvöllur verður
opnaður 12. þ.m. — þar sem
hugmyndaríkir og athafna-
samir krakkar geta fengið út-
rás.
Nýlega gaf tómstundaráð út
dreifibréf þar sem getið er
helstu viðburða í sumar á sviði
tómstundamála. Kemur þar
m.a. fram að Hestamannafé-
lagið Freyfaxi efnir til reið-
námskeiða fyrir börn 8 ára og
eldri dagana 7.—14. júní og
fyrir fullorðna 15. og 16. júní.
Þá mun nýstofnaður siglinga-
klúbbur gangast fyrir sérstök-
um siglingadegi á Urriðavatni
hinn 23. júní og síðast en ekki
síst mun Flugklúbbur Egils-
staða efna til sérstakra flug-
daga 30. júní og 1. júlí — þar
sem sýnt verður listflug og
fallhlífarstökk — og búist er
við fjölda þátttakenda víðs
vegar af landinu.
— Ólafur
SÖLUAÐILAR: REVKJAVÍK: Sess Garðarstræti 17. HAFNARFJÖRÐUR: Sess Reykjavíkurvegi 64.
AKRANES: Versl. Bjarg. BORGARNES: Kaupfél. Borgfirðinga. ÓLAFSVÍK: Kompan. STYKKIS-
HÓLMUR: Húsið. PATREKSFJÖRÐUR: Rafbúð Jónasar. TALKNAFJÖRÐUR: Bjarnabúð. ÍSA-
FJÖRÐUR: Húsgagnaversl. Isafjarðar. HVAMMSTANGI: Versl. Sig. Pálmasonar. BOLUNGARVlK:
Jón Fr. Einarsson. BLÖNDUÓS: Kaupfél. Húnvetninga. SAUÐÁRKRÓKUR: Hátún. SIGLUFJÖRÐ-
UR: Bólsturgerðin Siglufirði. ÓLAFSFJÖRÐUR: Valberg. DALVlK: Versl. Sogn. AKUREYRI: Versl.
Grýta Sunnuhlíð. HÚSAVlK: Versl. Hlynur. EGILSSTAÐIR: Versl. Skógar. SEYÐISFJÖRÐUR: Versl.
Dröfn. NESKAUPSSTAÐUR: Nesval. SELFOSS: 3K Húsgögn og Innréttingar. KEFLAVlK: Dropinn.
VESTMANNAEYJAR: Þorvaldur og Einar.