Morgunblaðið - 20.06.1984, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 1984
Friðarfrumkvæði þjóðarleið-
toga og Staksteinalágkúra
— Yfirlýsing frá Ólafi Ragnari Grímssyni
l'egar Morgunblaðinu barst utan
úr heimi fréttin um friðarfrumkvæði
sex þjóðarleiðtoga var hún sett sem
önnur aðalfrétt á forsíðu blaðsins.
Um leið og DV greindi frá því að
undirritaður hefði átt þátt í mótun
þess frumkvæðis sló Morgunblaðið
algerri þögn um málið nema hvað
agnúast var útí mig í leiðara daginn
eftir að utanríkisráðherrar Banda-
ríkjanna og Belgíu voru spurðir um
þetta friðarfrumkvæði í sérstökum
hátíðarþætti um NATO.
I gær var svo þessi þögn rofin
með lágkúrulegri grein í hinum
nafnlausa Staksteinadálki. Þar
var því annars vegar haldið að les-
endum, að atburðurinn sem Morg-
unblaðið setti á forsíðu — meðan
það vissi ekkert um hlutdeild und-
irritaðs í friðarfrumkvæðinu —
hefði bara verið smámál og hins
vegar reynt að læða þeirri grun-
semd að lesendum í spurnarformi
að ég hefði misnotað fjármuni Al-
þingis þegar ég vann að undirbún-
ingi þessa frumkvæðis Indiru
Gandhi, Olof Palme, Andreas Pap-
andreou, Julius Nyerere, Miguel
de la Madrid og Raul Alfonsin.
Morgunblaðið má gjarnan reyna
að telja lesendum sínum trú um að
forsíðufréttin 23. maí hafi verið
um smámál. Slíkt snertir mig
ekki. Blöð, sjónvarp og útvarp í
Bandaríkjunum, Evrópu, Suður-
Ameríku, Asíu og Afríku sýna
hins vegar að mat blaðamannanna
í erlendu fréttadeild Morgun-
blaðsins var réttara en pirringur-
inn í Staksteinahöfundi. Hins veg-
ar er mér ekki sama um að vera
sakaður um misnotkun á al-
mannafé jafnvel þótt sú ásökun sé
sett fram í skjóli þeirrar nafn-
leyndar sem Staksteinar veita.
Þótt ásökunin sé sett í spurnar-
form er níðstilgangurinn engu að
síður augljós.
Ég læt því þess vegna ekki
ósvarað þegar slík skrif birtast.
Alþingi Islendinga greiddi engan
kostnað vegna ferða minna og
vinnu við undirbúning friðar-
frumkvæðis þjóðarleiðtoganna
sex. Allur sá kostnaður var
greiddur af samtökunum sem önn-
uðust undirbúninginn.
Ég vona svo að Morgunblaðið
beri einhvern tíma gæfu til þess
að læknast af þeirri lágkúru sem
of oft sést í skrifum blaðsins um
andstæðinga i stjórnmálum. Slíkt
sæmir ekki stærsta blaði íslensku
þjóðarinnar.
Olafur Ragnar Grímsson
Aths. ritstj.
Hér er birt mynd af forsíðu
Morgunblaðsins frá 23. maí sl.
sem Ólafur R. Grímsson nefnir í
grein sinni. Lesendum skal bent á
að fréttin sem hann gerir að um-
talsefni ber fyrirsögnina „Vilja
banna kjarnorkuvopn" og fær hún
það rými sem Morgunblaðinu þyk-
ir við hæfi þegar sex þjóðarleið-
togar vilja banna kjarnorkuvopn,
þótt ekki sé fyrr en nú upplýst að
þeir hafi jafnframt bannað Morg-
unblaðinu að segja frekari fréttir
af málinu vegna þess að ólafur R.
Grímsson kom og kemur við sögu
þess. Hið rétta er að ekkert hefur
verið meira af málinu af frétta.
í viðtali Helgarpóstsins við ólaf
R. Grímsson sem rætt var um í
Staksteinum i gær var ekki
minnst einu orði á frásagnir is-
lenskra blaða af yfirlýsingu þjóð-
arleiðtoganna heldur sagt að „er-
lend stórblöð" hefðu kallað þetta
„frétt þessa árs“. f Staksteinum
var dregið i efa að þessi yfirlýsing
gæti staðist og því til sönnunar
birt mynd af tveggja dálka inn-
síðufrétt franska stórblaðsins Le
Monde um málið, en það blað legg-
ur sig fram um að birta allt er
gerist á alþjóðlegum stjórnmála-
vettvangi og mat fréttina af frum-
kvæði sexmenninganna minna en
flest annað 24. maí. (Vissi Le
Monde um aðild Ólafs R. Gríms-
sonar að málinu?) í grein sinni nú
segir ólafur R. Grímsson að málið
sé stórfrétt af því frá því hafi ver-
ið sagt á forsíðu Morgunblaðsins
ogDV.
Það var síður en svo að ástæðu-
lausu sem spurt var að því í Stak-
Duarte öðlast traust
á Bandaríkjaþingi
Vilja banna
kjarnavopn
SfSsg Auknar tilraunir til að
" Sfe#- hemja 1’ersaflóa.striA
«■_ plB! W^t
Sovétnijórnin nendir 200
manng £ (')|ymp(U|ei|tana
steinum hvort Alþingi hefði greitt
kostnað vegna þátttöku Ólafs R.
Grímssonar í Samtökum þing-
manna er vilja koma á reglu í
heiminum (Parliamentarians for
World Order). I fræðslubréfi sem
samtökin hafa sent Morgunblað-
inu kemur fram að þau eru fjár-
mögnuð með „framlögum úr sjóð-
um, frá fyrirtækjum, einstakling-
um og þjóðþingum". Að saka rit-
stjóra Morgunblaðsins um níð og
lágkúru fyrir að spyrjast nánar
fyrir um þetta atriði lýsir furðu-
legri viðkvæmni. Svar Ólafs R.
Grímssonar sker að vísu ekki úr
um það hvort Alþingi greiði til
þessara samtaka en samkvæmt
upplýsingum frá Friðjóni Sigurðs-
syni, skrifstofustjóra Alþingis, er
svo ekki.
Iðnþróunarfélag Suðurnesja
Félagið veiti upplýsingar um alla þætti iðnþróunar og atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum
Guðmundur Gestsson, formaður Iðnþróunarfélags Suðurnesja, og Jón E.
Unndórsson, iðnráðgjafi.
Vopjm. 16. júni.
NÝLEGA var stofnað Iðnþróunarfé-
lag Suðurnesja, eða þann 12. apríl sl.
Á stofnfund mættu 75 félagar, sem
eru einstaklingar, fyrirtæki, sveitar-
félög, sparisjóður og stéttarfélög.
Síðan hafa fimm bæst í hópinn.
í stjórn Iðnþróunarfélagsins
voru eftirtaldir kjörnir: Guðmund-
ur Gestsson formaður, Einar Guð-
berg varaformaður, Kristinn Bene-
diktsson og Elsa Kristjánsdóttir
ritarar, Þórarinn St. Sigurðsson
gjaldkeri. Meðstjórnendur eru Vil-
berg Þ. Jónsson og Eyjólfur Þórar-
insson.
Fréttaritari Morgunblaðsins
ræddi við Guðmund Gestsson for-
mann félagsins og Jón E. Unndórs-
son iðnráðgjafa um undirbúning að
stofnun félagsins, hlutverk þess og
áform á næstunni.
Þeir sögðu atvinnumálanefnd
Suðurnesja hafa unnið um nokkurt
skeið að undirbúningi, atvinnu-
málanefndir sveitarfélaganna
hefðu fjallað um málið og síðan
hefði verið boðað til almennra
kynningarfunda í öllum sveitarfé-
lögunum. Á aðalfundi hefðu síðan
75 aðilar gengið i félagið og sex
bæst í hópinn síðan. Þeir sögðu þó
nafn félagsins væru iðnþróunarfé-
lag, þá væri alls ekki um það að
ræða að í féiaginu væri aðeins þeir
er tengdust iðnaði, heldur þvert á
móti, enda væri félaginu ætlað að
vinna á sviði alhliða atvinnuupp-
byggingar. Þeir sögðu félagið vett-
vang sveitarfélaga og félagsmanna
til að styðja framtak einstaklinga
og fyrirtækja á einstökum stöðum.
Félagið hefur þegar komið nokk-
um verkefnum af stað. Við spurn-
ingu frettaritara hvort félagið
hygðist halda áfram af þeim krafti
sem verið hefði f starfinu frá stofn-
un, sögðu þeir Guðmundur og Jón
alls ekki starfað af krafti, heidur
biðu nokkur brýn verkefni, sem
þyldu enga bið. Þeim hefði verið
komið af stað. Þau eru helst, að
sveitarfélögunum öllum hefur ver-
ið sent bréf, þar sem greint er frá
stefnu félagsins, að gert verði
heildarskipulag á landsvæði fyrir
atvinnustarfsemi á Suðurnesjum.
Bent er á eftirfarandi atriði sem
höfð séu í huga: tegund atvinnu-
starfsemi, orkumál, þ.m.t. virkjun-
armál, vatnsveitu og frárennsli.
Æskilegt er að upplýsingar um áð-
urgreind atriði séu til staðar hjá
félaginu. En til félagsins leita
gjarnan menn með hugmyndir um
atvinnustarfsemi, til að fá vitn-
eskju um hvar æskilegast sé að
finna fyrirtæki þeirra stað. Þá upp-
lýsti iðnráðgjafi að til sín bærust
fyrirspurnir með um það bil hálfs
mánaðar millibili um hagkvæma
staðsetningu fyrir stóriðjufyrir-
tæki. Allir aðilar, orkusölu-
fyrirtæki, sveitarfélög og iðnráð-
gjafi, vísuðu hver á annan. Þessu
vill félagið breyta.
Þá hefur félagið látið útbúa
spurningalista, sem sendur verður
fyrirtækjum á Suðurnesjum. Er
það gert til konnunar á stöðu fyrir-
tækjanna og könnunar á vinnu-
markaði á svæðinu. Þeir sögðu t.d.
árstíðabundinn vanda í fiskvinnslu,
eins skapaðist árstíðabundinn
vandi á vorin þegar skólum lyki.
Þeir sögðu könnunina gerða m.a. til
að mæta þessum vanda. Þá sögðu
þeir alltaf talað um atvinnuleysi,
en kannað yrði hvernig það lýsti
sér, með tilliti til starfsgreina
o.s.frv. Fram kom að gerð hefur
verið áætlun um að á Suðumesjum
þurfi 150—200 ný störf árlega með
tiliiti til fólksfjölgunar sl. ár.
Iðnþróunarfélagið býður upp á
ný námskeið, sem eru fyrir stjórn-
endur fyrirtækja. Verður það í
framhaldi af könnuninni á stöðu
fyrirtækjanna. Stjórnendur fyrir-
tækjanna geri úttekt á eigin fyrir-
tæki á námskeiðinu. Þá býður fé-
lagið upp á námskeið um stofnun
fyrirtækja. En félagið hefur nýlega
efnt til námskeiðs um tölvuvæð-
ingu lítilla og meðalstórra fyrir-
tækja.
Ákveðið er að félagsmönnum
verði reglulega send fréttabréf.
I lögum félagsins segir að til-
ganginum verði náð með eftirfar-
andi: að hjálpa iðnfyrirtækjum, og
aðilum, sem hyggja á iðnrekstur,
að greina þörf sína fyrir sérfræði-
aðstoð, og veita upplýsingar um
hvar slíka aðstoð sé að fá. Að vera
tengiliður milli tækni- og þjónustu-
stofnana iðnaðarins og þeirra aðila
sem starfa í iðnaði og að iðnaðar-
málum í landshlutanum. Að að-
stoða sveitarstjórnir, félagasam-
tök, fyrirtæki og einstaklinga við
athuganir á nýjum viðfangsefnum í
iðnaði, að miðla upplýsingum um
tækni og rekstrarmálefni og hafa
milligöngu um námskeiðahald og
aðra fræðslustarfsemi sem völ er á
fyrir starfsfólk í iðnaði. Að stuðla
að aukinni samvinnu iðnfyrirtækja
bæði innan starfsgreina og þeirra í
milli svo og tengslum við fyrirtæki
í öðrum greinum. Að vera til ráðu-
neytis þeim aðilum sem eiga þátt í
að móta atvinnumálastefnu i
landshlutanum. Hafa frumkvæði
að verkefnum, sem styrkt geta iðn-
að og eru til undirbúnings nýiðn-
aðar á Suðurnesjum, svo sem: Upp-
lýsingaöflun um nýiðnaðartæki-
færi. Tækni- og hagkvæmnikönnun
ákveðinna iðnaðartækifæra, er til
álita þykja koma á Suðurnesjum.
Markaðskönnun innanlands og er-
lendis eftir því sem starfsemi
félagsins gefur tilefni til. Hafa
samstarf við opinberar rannsókn-
ar- og þróunarstofnanir um athug-
anir á mögulegum iðnaðartækifær-
NÝSKIPAÐUR sendiherra Sviss, hr.
Arnold Hugentobler, nýskipaður
sendiherra Thailands, hr. Sathit
Sathirathaya, og nýskipaður sendi-
herra Lýðveldisins Kóreu, Hyoo
Hyun Lee, afhentu forseta íslands
trúnaðarbréf sín 13. júní sl. að við-
stöddum Geir Hallgrímssyni utan-
ríkisráðherra. Síðdegis þágu sendi-
um á Suðurnesjum. Fylgjast með
þróun tækni og markaðar m.t.t.
iðnþróunar á Suðurnesjum. Standa
fyrir námskeiðum í fyrirtækja-
stofnun. Standa fyrir þróun með
námstefnum og ráðstefnum um
hinar ýmsu atvinnugreinar t.d.
fiskiðnað, fiskeldi, og frekari úr-
vinnslu sjávarafurða. Standa fyrir
fræðslu um tölvumál, aðferðafræði
við greiningu vandamála fyrir-
tækja, nýtingu jarðvarma og hita-
orku á Suðurnesjum o.s.frv. Kanna
gaumgæfilega hvort æskilegt megi
teljast að stofna iðnþróunarsjóð
fyrir Suðurnes.
Þeir Guðmundur Gestsson for-
maður iðnþróunarfélagsins og Jón
E. Unndórsson iðnráðgjafi sögðu
markmiðið að til félagsins gæti
fólk komið og fengið upplýsingar
um alla þætti iðnþróunar og at-
vinnuuppbyggingar á Suðurnesj-
um.
E.G.
herrarnir boð forseta Íslands á
Bessastöðum ásamt fleiri gestum, að
því er segir í fréttatilkynningu skrif-
stofu forseta íslands.
Sendiherra Sviss hefur aðsetur í
Osló, sendiherra Thailands í
Kaupmannahöfn og sendiherra
Lýðveldisins Kóreu í Osló.
Á myndinni eru talið frá vinstri: Sathit Sathirathaya, sendiherra Thailands,
Hyoo Hyun Lee, sendiherra Lýðveldisins Kóreu, frú Vigdís Finnbogadóttir,
forseti íslands, Arnold Hugentobler, sendiherra Sviss, og Geir Hallgrímsson,
utanríkisráðherra.
Forseta íslands af-
hent trúnaðarbréf