Morgunblaðið - 20.06.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 20. JÚNl 1984
33
Hvers vegna segi ég mig
úr Sjálfstæðisflokknum?
— eftir Sigrúnu
Þorsteinsdóttur
Ég sagði mig úr Sjálfstæðis-
flokknum á stjórnarfundi Lands-
sambands sjálfstæðiskvenna 24.
maí sl.
Ég er sannfærð um að það verð-
ur að eiga sér stað afgerandi
stefnubreyting hér á landi og í öll-
um heiminum, ef ekki á að fara
illa. Framtíðarinnar vegna ætla
ég að leggja fram krafta mína til
þess að þessi breyting geti átt sér
stað.
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki sú
breiðfylking, það lifandi afl, sem
hann var á dögum Ólafs Thors og
Bjarna Benediktssonar. Hann er
orðinn stöðnuð stofnun sem
stjórnað er í reynd af fámennri
klíku (ekki endilega forystunni).
Þess vegna skora ég á það fólk
innan Sjálfstæðisflokksins, sem er
ekki ánægt með hvernig stefnir
hér á landi og i heiminum, að
segja sig úr flokknum. Vera síðan
með í að mynda nýja hreyfingu,
nýjan flokk, sem héldi á lofti
gömlum og sígildum baráttumál-
um flokksins, a) frelsi einstakl-
ingsins, b) sjálfstæði þjóðarinnar.
Aðeins nánari skýringar
Ég hef verið með í flokksstarf-
inu meira og minna frá því á ungl-
ingsárum. Kannski má segja að ég
hafi fæðst inn í Sjálfstæðisflokk-
inn eða að mér fannst hann bara
skástur af því sem í boði var, þó að
ég væri aldrei fyllilega sátt við
það hvernig á málum var haldið.
Hrottaleg kúgun raun-
veruleiki milljóna
nútímans
Fyrir um það bil 15 árum las ég
bók eftir suður-amerískan Nóbels-
verðlaunahafa, Asturías, sem
heitir „Forseti lýðveldisins". Lest-
ur bókarinnar gerbreytti þeirri
ímynd sem ég hafði af heiminum.
Á einu vettvangi gerði ég mér
grein fyrir þeirri hrottalegu kúg-
un, sem stór hluti mannkynsins
býr við núna. Hinar „svörtu mið-
aldir“ og ofbeldisfengnir „leikir
Rómverjar" heyrðu ekki sögunni
til. Heldur eru lifandi raunveru-
leiki nútímans fyrir milljónum
venjulegs fólks á þessum svoköll-
uðu „friðartímum". Ástæðuna
fyrir því að augu mín opnuðust
einmitt þarna má ef til vill rekja
til þess að þetta var ekki löngu
eftir fæðingu fyrsta barnsins
okkar. Ýmislegt dreif síðan á dag-
ana. Ég tók mismikið þátt í starfi
Sjálfstæðiskvennafélagsins, bak-
aði fyrir kosningar o.fl. þess hátt-
ar, þar til fyrir 4—5 árum að ég
fór að vakna meira og meira til
meðvitundar um vandamál flokks-
ins, þjóðarinnar og heimsins.
Smám saman gerði ég mér grein
fyrir ábyrgðarleysi og eigingimi
stjórnmálamanna og sofanda-
hætti almennings (kjósenda) og
hvernig sofandahátturinn og
sjálfsflóttinn eykst samhliða vax-
andi græðgi ráðamanna í völd.
Sofandháttur fjöldans
veldur vanmáttarkennd
og uppgjöf
Ég gerði mér grein fyrir því að
ástæðan fyrir sofandahætti fjöld-
ans er óvirkni hans og þátttöku-
leysi. Það veldur svo vanmáttar-
kennd og fólk fer að trúa því að
það sé ekkert hægt að gera til að
breyta ástandinu. Ég ákvað því að
fara að taka meiri þátt til að
reyna að hafa einhver áhrif. Um
þetta leyti hafði ég kynnst aðferð-
um Samhygðar og hugðist freista
þess að nýta þær í þágu fólksins
innan Sjálfstæðisflokksins. Ég var
kosin í stjórn Landssambands
sjálfstæðiskvennafélaganna og
þegar friðarmál voru þar á
dagskrá, lagði ég fram ályktun um
frið. Ályktunin var byggð á aðferð
Sigrún Þorsteinsdóttir
„Það er greinilegt að
Sjálfstæðisflokkurinn er
ekki flokkurinn „stétt
með stétt“ eins og oft er
í veðri látið vaka.
Launamismunur eykst
stöðugt, þrátt fyrir að
hið gagnstæða hefur
verið á stefnuskrá
flokksins í áratugi fyrir
kosningar.“
Samhygðar til að byggja upp frið
innra með manninum og breyt-
ingar á þjóðfélaginu (því að innan
verður friðurinn að koma, ófriður-
inn liggur nefnilega ekki í vopnun-
um eins og sumir virðast álíta).
Eftir „nefndarsöltun" var álykt-
unin felld á fundi, sem ég var ekki
á.
Síðan ákvað ég að bjóða mig
fram til varaformanns flokksins.
Þó svo að ég hafi nú tæplega
reiknað með að ráðandi öfl innan
Viðbrögð ráðherrans
móðgun við neytendur
AÐALFUNDUR Neytendafélags
Reykjavíkur og nágrennis var hald-
inn mánudaginn 28. maí. Á fundin-
um var kjörin ný stjórn. Jóhannes
Gunnarsson, sem verið hefur for-"
maður frá stofnun félagsins, gaf
ekki kost á sér áfram og var nýr
formaður kjörinn, Sigurður Sigurð-
arson.
Að loknum aðalfundarstörfum
var umræða um sölu og dreifingu
kartaflna, grænmetis og garð-
ávaxta. Framsöguerindi fluttu
Eiður Guðnason, alþingismaður,
Ólafur Björnsson, formaður félags
matvörukaupmanna, og Sigurður
Sigurðarson. í framhaldi var sam-
þykkt ályktun um sölu kartaflna,
grænmetis og garðávaxta. Aðal-
fundur Neytendafélags Reykjavík-
ur og nágrennis, haldinn 28. maí
1984, lýsir furðu sinni á meðhöndl-
un landbúnaðarráðherra á kröfum
20.000 landsmanna um frjálsan
innflutning á kartöflum á þeim
tíma, sem innlend gæðafram-
leiðsla annar ekki eftirspurn.
Viðbrögð ráðherrans eru móðgun
við neytendur og síður en svo fall-
in til að efla hag neytenda, hvað
þá framleiðenda. Því er tímabært
að spyrja, hvort hann ætli sér að
leyfa frelsi á þessu sviði innflutn-
ings.
Kartöflusala og dreifing hefur
verið árviss vandi hér á landi und-
anfarna áratugi. Meðhöndlun
kartaflna hefur verið stórlega
áfátt á leið frá framleiðendum til
neytenda og einnig hefur uppsker-
an oft ekki nægt markaðnum
nema rétt fram í byrjun sumars.
Yfir engum matvörutegundum
er kvartað eins mikið og kartöfl-
um, grænmeti og garðávöxtum.
Óánægja neytenda beinist einkum
að gæðum vörunnar, en einnig að
verðlagningu, dreifingu og með-
ferð.
Aðalfundur Neytendafélags
Reykjavíkur og nágrennis mót-
mælir því einnig, að ríkisstjórnin
skuli ekki hafa sinnt kröfum Neyt-
endasamtakanna um opinbera
rannsókn á innflutningi finnsku
kartaflnanna. Kartöflumálið hef-
ur sýnt og sannað nauðsyn öflugra
neytendafélaga hér á landi. Tilvist
þeirra og áhugi og athygli al-
mennings á hagsmunamálum
neytenda getur lyft Grettistaki.
Ljóst er að Grettistökin eru mörg
og þung, sum rótföst, og því langt
í frá að brautin sé rudd fyrir neyt-
endur. Aðalfundur NRON hvetur
íbúa á höfuðborgarsvæðinu að
ganga til liðs við félagið í þessu
máli.“
Samþykkt var ályktun um af-
greiðslu sölubúða. í henni skorar
Neytendafélag Reykjavíkur og
nágrennis á kaupmenn og starfs-
fólk verslana að leitast við að
halda óbreyttri þjónustu við neyt-
endur, jafnt sumar sem vetur. Á
undanförnu ári hafi náðst veru-
legur árangur um rýmkun af-
greiðslutíma sölubúða og nú sé
hann að mestu í samræmi við
óskir Neytendafélagsins. „Nú hef-
ur verið boðað að afgreiðslutíminn
verði skertur og er slikt í andstöðu
við vilja neytenda. Þótt ekki verði
um frekari skerðingu að ræða en
laugardagslokun, er það samt
óviðunandi, sérstaklega ef tekið er
tillit til þeirrar góðu reynslu, sem
fengist hefur af verslun á laugar-
dögum.“ ,
Ályktun um merkingar heimil-
isvarnings var samþykkt á fund-
inu. í henni er skorað á yfirvöld að
setja þegar í stað reglur um var-
úðarmerkingar á vörum, sem
hætta getur stafað af. Allar sölu-
vörur, sem ætlaðar eru til heimil-
isnota, verði merktar á íslensku og
með viðurkenndum aðvörunar-
táknum séu vörurnar hættulegar
heilsu manna eða húsdýra. Grein-
argóðar upplýsingar verði einnig
um geymslu og fyrstu viðbrögð, ef
slys ber að höndum.
Aðalfundur Neytendafélags
Reykjavíkur og nágrennis beindi
þeim tilmælum til mjólkursam-
laga, að þess sé gætt að upplýs-
ingar um síðasta söludag séu jafn-
an það skýrar á umbúðum mjólk-
urvara, að vel læsilegt sé fyrir
neytendur. Á umbúðum verði
jafnframt getið um framleiðslu-
dag.
(FrétUtilkynning)
flokksins væru það framsýn og
kjörkuð að þekkja sinn tíma,
kynna sér rækilega hvað væri
þarna á ferðinni og koma til móts
við þarfir nútímans til að leita
nýrra leiða til að virkja flokks-
meðlimi, þá óraði mig ekki fyrir
því að ólýðræðisleg vinnubrögð
væru eins mikil og raun ber vitni.
Það var til dæmis haft á orði, að ef
einhver alvara hefði verið á fram-
boði Friðriks Sophussonar í for-
mannssætið, hefði verið staðið allt
öðruvísi að kosningaráróðrinum
af hans mönnum. Þetta og fleira
sýnir að flokkurinn er það staðn-
aður, nú þegar, að illmögulegt yrði
að breyta verulega stefnu hans og
starfsháttum. Þess vegna ákvað ég
að segja mig úr flokknum. Svipað
og ef maður hefur átt bíl um
eitthvert skeið, þá lætur maður
gera við hann upp að vissu marki,
en þegar það er orðið óhagkvæmt
að eiga bílinn lengur vegna þess að
ekki er treystandi á að hann gegni
því hlutverki, sem honum er ætl-
að, þá fær maður sér nýjan far-
kost til að komast á þangað sem
ferðinni er heitið.
Sjálfstæðisflokkurinn
ekki lengur flokkurinn
„stétt með stétt“
Það er greinilegt að Sjálfstæðis-
flokkurinn er ekki flokkurinn
„stétt með stétt“ eins og oft er í
veðri látið vaka. Launamismunur
eykst stöðugt, þrátt fyrir að hið
gagnstæða hefur verið á stefnu-
skrá flokksins í áratugi fyrir kosn-
ingmr. Nú er svo komið að það er
virkilega að myndast grundvöllur
fyrir varanlega stéttaskiptingu
hér á landi.
Fyrir síðustu alþingiskosningar
var augljóst að næsta ríkisstjórn
þyrfti að hafa kjark til að gera
ráðstafanir til að lækka verðbólg-
una, en það getur nú varla talist
stórmannlegur kjarkur að ráðast
á garðinn þar sem hann er lægst-
ur, og koma verðbólgunni niður,
með stórfelldri kjaraskerðingu al-
menns launþega, á sama tíma og
bankar blómstra og stórverslanir
spretta upp. Og ekki virðist sífellt
aukin veðsetning í framtíð barn-
anna okkar vera hetjulegri.
Flokkar kerflsins eins
og gamlar „bfldruslur“
Ég hef oft orðið vör við mikinn
kraft og góðan vilja til uppbygg-
ingar hjá fólki innan flokksins.
Þessi góði efniviður nýtist þjóð-
inni ekki nægjanlega vel, þess
vegna er ég viss um að framtaks-
samt og rmunverulega sjálfstætt fólk
finnur sig ekki vel í flokknum í
dag, vegna þess að hann er orðinn
lítið annað en málsvari fámennrar
klíku.
Ég hef heyrt óánægjuraddir
víða og ég segi við þetta fólk:
„Haldið ekki í þessa gömlu bíl-
druslu.“
Hinir flokkarnir sem eru við
,lýði, eru að mínu viti síst betri.
Þess vegna skora ég á fólk hvar í
flokki sem það stendur að íhuga í
fullri alvöru hvort ekki er þörf á
nýju pólitísku afli. Hreyfingu eða
flokki sem stefndi að raunveru-
legu lýðræði og sjálfstæði. Flokki
sem setti manngildið ofar öllu.
Flokki sem væri „fyrir fólkið“, en
ekki fólkið fyrir flokkinn.
Lesandi góður, ef þú ert einn
þeirra sem æ meira uggandi spyrð
sjálfan þig: „Hvert stefnir þetta
allt?“ Taktu þá á þig rögg og vertu
með í að stofna svona flokk
mannsins, framtíðarinnar vegna.
Vestmannaeyjum, 8. júní 1984.
Sigrún Þorsteinsdóltir átti sæti í
stjórn Landssambands sjálfstæd-
iskrenna. Hún rar í framboói til
embættis raraformanns Sjálfstæð-
isflokksins á sídasta landsfundi.
Vönikyiming:
Fyrir
heimilið
Út er komið 11. rit Vörukynn-
ingar — Fyrir heimilið. t ritinu er
m.a. að finna uppskriftir að sjáv-
arréttum, prjónauppskriftir,
sumarföt, upplýsingar um nýjung-
ar á markaði o.fl. Utgefandi er út-
gáfufélag Vörukynningar, ritstjóri
og ábyrgðarmaður er Páll Krist-
jánsson. Ritið er prentað hjá Gdda
hf., en Korpus sá um litgreiningu
og filmuvinnu.
Blettabókin
ný handbók um
blettahreinsun
ÚT ER komin hjá Iðunni ný hand-
bók um hreinsun bletta og nefnist
hún Blettabókin. Bókinni er ætlað
að veita haldgóðar leiðbeiningar
t.d. um hvað gera skuli þegar
rauðvín fer í ný föt, þegar hellist
úr kaffibolla í gólfteppið eða þegar
bleksletta lendir í hægindastóln-
um, svo eitthvað sé nefnt.
í bókinni er einnig að finna yfir-
lit um flestöll þau hreinsiefni, sem
ráðlagt hefur verið að nota — gerð
er grein fyrir notkun þeirra og
hvar þau eru seld.
Blettabókin er 32 bls., prýdd
fjölda mynda. Leifur Franzson og
Margrét Ormslev þýddu.
(Úr fréculilkynnineu )
Hernaðarfram-
kvæmdum
mótmælt
FRIÐARSAMTÖK kvenna á
Þórshöfn og nágrenni, og aðrir
friðarsinnar þar um slóðir, hafa
ákveðið að efna til aðgerða þann 7.
júlí nk., til að mótmæla fyrirhug-
uðum hernaðarframkvæmdum á
Norðausturlandi. Er ráðgert að
aðgerðirnar hefjist á hádegi og
standi fram eftir degi.
Úr fréttatilkynningu.