Morgunblaðið - 20.06.1984, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JÚNl 1984
37
i Hvað ættum við að lesa
1 í sumarleyfinu?
texti JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIK
Colleen McCullough:
An Indecent Obsession.
Útg. Futura.
Colleen er ástralskur höfund-
ur, þekkt hér á landi sennilega
einkum fyrir Þyrnifuglana. Á
síðasta ári kom út önnur bók eft-
ir hana hér, Tim, framúrskar-
andi falleg og vel gerð bók, ákaf-
lega ólík Þyrnifuglunum að efni
og uppbyggingu, svo að það er
augljóst að höfundurinn á til
ýmsa strengi í hljóðfæri sínu og
slær þá alla fagurlega.
Sama gildir um bókina sem
hér um ræðir. Hún gerist til að
byrja með á hersjúkrahúsi á
Kyrrahafseyjum í síðari heims-
styrjöldinni. Þar er systir Lang-
try aðalsögupersónan og hún
annast hermenn sem hafa bilað
á geði í bardögunum eða eru
bardagaþreyttir og geta ekki
meira. Stríðið við Japani hefur
ekki staðið nema fáeina daga,
þegar nýr maður birtist í þessari
sérstæðu veröld sjúkrahússins,
Michael Wilson. Og þær hrær-
ingar sem koma hans hefur í för
með sér bæði á sjúklinga og
starfslið hefur svo aftur ófyr-
irsjáanlegar afleiðingar. Systir
Langtry verður hrifin af honum
og upp hefst togstreita milli
skyldunnar og ástarinnar...
Þetta gæti orðið svo væmið og
hvimleitt í meðförum annarra
höfunda en þeirra sem ekki geta
farið bil beggja. Colleen McCull-
ough er snillingur í að forðast að
detta í billegar gildrur. Það gef-
ur bókum hennar gildi umfram
að vera afþreyingarsögur.
Rolf Ggil Moe:
Ragnarok.
Útg. Aschehoug.
Rolf Egil Moe er rúmlega hálf-
fimmtugur norskur höfundur og
sendi frá sér sína fyrstu bók Og
djevelen plantet baobak treet
fyrir um fimmtán árum. Þá
hafði hann unnið alllengi í
þróunarlöndum Afríku og sótti
efnivið sinn þangað. Seinna
skrifaði hann smásagnasafn, og
leitaði þá fanga i bandarísku
nútímalífi.
í Ragnarok eru þrettán smá-
sögur, ætli mætti ekki kalla þær
Rolf Egil Moe Jette Drewsen
framtíðarfantasíur. Ekki held ég
þær gætu flokkast undir vísinda-
smásögur, þó að ýmis einkenni
hafi þær í sér. Það er út af fyrir
sig óhætt að segja að við þekkj-
um hér ýmislegt úr samtíma
okkar sem höfundur dregur upp
og margt er ansi haganlega gert.
óttinn við framtíðina — þá
framtíð sem er varla meira en
farið að grilla í nú. Á stundum
fannst mér sögurnar einum of
daufgerðar, þrátt fyrir að efnið
sé oft og einatt krassandi. En
Moe skrifar vel og smásagna-
formið hentar honum prýðilega.
Svo að það er ágætlega auðvelt
að hafa nokkra ánægju af að iesa
þessar sögur hans.
Jette Drewsen:
Hvad tænkte egentlig Arendse?
Útg. Gyldendal.
Jette Drewsen er hugleikið að
skrifa um hjónabandið, þá full-
nægju sem það á að veita konum.
að vera heima og sinna börnum
sínum og geta síðan fagnað eig-
inmanninum opnum örmum þeg-
ar hann kemur heim. Hjónin í
þessari bók eru að visu ekki þessi
tegund af hjónum. Maðurinn á
til að lemja konuna sína og kon-
an er ósköp kyrrlát og óspenn-
andi, og þó svo að það gangi á
ýmsu í hjónabandinu breytir það
engu, að því er virðist. Það getur
verið að þessi hjón skilji eftir tíu
ár í viðbót, en það skiptir svo
sem ekki öllu máli. Og þá má
öllum vera dálítið sama. Verst er
þó hvað höfundurinn sjálfur er
ópersónulegur í bókinni og nær
aldrei almennilegu taki á fólkinu
sem er að skrifa um.
En þetta er fljótlesin bók og
vinnur á við kynningu. Og það er
náttúrulega alltaf gaman að lesa
um konu skrifa um konur. Þó svo
að það fari að verða einhæft. Á
bókarkápu segir að á þessum síð-
ustu tímum hafi það einkum ver-
ið karlmenn, sem hafi skrifað
um hjónabandið og konuna. Ég
inætti kannski leyfa mér að mót-
mæla þessu. A.m.k. hafa skand-
inaviskir og enskuskrifandi höf-
undar úr röðum kvenna ekki lát-
ið sitt eftir liggja, nema síður
væri.
Len Deighton:
Berlin Game.
Útg. Panther books.
Ekki man ég hvað ég hef lesið
margar njósnasögur, sem tengj-
ast Berlín á einhvern hátt. Al-
tént býsna margar. Og dálítið
keimlíkar. En Len Deighton mun
vera mjög þekktur afþreyinga-
höfundur og því fannst mér ekki
úr vegi að glugga í bók hans
Berlin Game, sem hefur eins og
aðrar „Berlínarbækur„ góðra af-
þreyingahöfunda fengið góðar
móttökur.
Hér er skyggnst inn í heim
njósnaranna og lif þeirra og svo
S —
£W A oovel by
Æ the oufhor of
Jk THE
/j Vthorn
% h .Aðirds
IndkenT
05SÖ5IOH
Colleen
McCullough
k
ír
hinna sem miðla njósnurunum
upplýsingum, þær eru stundum
ekki áreiðanlegar, oft beinlínis
plat. Þá er snilldin í því fólgin að
greina þar kjarna frá hisminu.
Stundum eru „plottin“ í svona
bókum svo flókin og sett upp
með þvílíkum sveiflum að maður
er töluverða stund að komast til
botns í hvað er eiginlega um að
vera.
Hér er það Bernie Samson sem
er sendur til Berlínar, auðvitað
aðallega Austur-Berlínar, þar er
„þeirra rnaður" eitthvað að
guggna og Bernie er þrátt fyrir
ýmsa annmarka — sem ég áttaði
mig nú ekki á hverjir voru lengi
vel — sendur á svæðið. Bernie á
hina gséfulegustu konu, Fionu,
hún heffcr mikinn áhuga á starfi
manns síns, eins og góðum eig-
inkonum ber, en hins vegar tókst
Deighton ekki að gera Fionu svo
úr garði að „umbreyting" hennar
undir lokin væri nógu sannfær-
andi.
En fyrir þá sem hafa gaman af
njósnasögum er þetta kjörin bók
í farangurinn.
Pennavinir
Sautján ára hollenzk stúlka með
mikinn íslandsáhuga:
Gerrie Hoogendam,
Aalsmeerderdyk 645,
1435 bx Rysenhout,
llolland.
Þritugur einhleypur íri með
áhuga á tónlist, ljósmyndun,
ferðalögum, bréfaskriftum og frí-
merkjum. Vill skrifast á við
karlmenn:
Padraig M. Delaney,
45 Bracklone Street,
Portarlington,
Co. Laoise,
Ireland.
Nítján ára sænskur piltur með
áhuga á tónlist, bilum auk þess
sem hann safnar frímerkjum:
Jan Josefsson,
Salti Arbetsskola,
S-153 00 Járna,
Sweden.
Fimmtán ára japönsk stúlka með
tónlistaráhuga:
Kaoru Mori,
1-12-8 Nishicori,
Otsu city Shiga,
520 Japan.
Frá Ástralíu skrifar 22 ára piltur
sem vill eignast hér pennavini:
Glen K. Richards,
53 Wilson Road,
Mount Hutton,
N.S.W. 2290,
Australia.
Fimmtán ára japönsk stúlka með
áhuga á blaki:
Keiko Nishimura,
233-17 Shimomabuse,
Kadoma-shi,
Osaka,
571 Japan.
NORÐDEKK
hetlsóluð radial dekk,
íslensk framíetðsía
Framleiðandi Gúmmívinnustofan hf,
Réttarhálsi 2, R.
Við tökum fulla ábyrgð
á okkar framleiðslu
Umboðsmenn um allt land
Reykjavík
Gúmmívinnustofan hf, SKIPHOLTI 35. s.31055 & 30360
Gúmmívinnustofan hf, RÉTTARHÁLSI 2. s.84008 & 84009
Höfðadekk hf, TANGARHÖFÐA 15. s.85810
Hjólbarðastöðin sf, SKEIFAN 5. s.33804
Hjólbarðahöllin, FELLSMULA 24. s.81093
Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns, HÁTÚNI 2a. s. 15508
Hjólbarðaverkstæði Jóns Olafssonar, ÆGISSÍÐU. s.23470
Holtadekk sf, BJARKARHOLTL s.66401
Landið
Hjólbarðaverkstæði Björns, LYNGÁS 5, RANG. s.99-5960
Kaupfélag Arnesinga, SELFOSSI, s.99-2000
Vélaverkstæði Björns og Kristjáns, REYÐARFIRÐL s.97-4271
Ásbjörn Guðjónsson,STRANDGÖTU 15a, ESKIFIRÐL s.97-6337
Hjólbarðaverkstæði Jónasar, ÍSAFIRÐL s.94-3501
Hjólbarðaþjónustan, HVANNAVÖLLUM 14b, AKUREYRL s.96-22840
Smurstöð Shell - 01is,FJÖLNISGÖTU 4a, AKUREYRL s.96-21325
Bifreiðaverkstæði Ragnars Guðmundssonar, SIGLUFIRÐL s.96-71860
Dagsverk, VALLAVEGL EGILSSTÖÐUM. s 97-1118
Hjólbarðaviðgerðin hf, SUÐURGÖTU 41, AKRANESL s.93-1379
Hjólbarðaþjónustan, DALBRAUT 13, AKRANESL s.93-1777
Bifreiðaþjónustan hf, ÞORLÁKSHÖFN. s.99-3911
Aage V Michelsen, HRAUNBÆ, HVERAGERÐL s.99^1180
Bifreiðaverkstæði Bjarna, AUSTURMÖRK 11, HVERAGERÐL s.99-4535
Aðalstöðin hf, HAFNARGÖTU 86, KEFLAVÍK. s.92-1516
Jteynir sf, HNJÚKABYGGÐ 31, BLÖNDUÓSI, s.95-4400