Morgunblaðið - 20.06.1984, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JUNÍ 1984
43
Þorvaldur Thorodd-
sen — Kveðjuorð
% m gm iR
i. |
Aron Halldórs-
son — Minning
Fæddur 31. ágúst 1909.
Dáinn 7. júní 1984.
Um tíu ára tímabil sem ég var
erindreki áfengisvarnaráðs kom
ég í fundaferðum á hverju ári í öll
lögsagnarumdæmi landsins. Pat-
reksfjörður var einn af fast
ákveðnum fundarstöðum. í fyrstu
ferð minni til Patreksfjarðar
þekkti ég þar mjög lítið til, en
vissi þó að þar bjó frændkona mín,
Elín Björnsdóttir með manni sín-
um, Þorvaldi Thoroddsen, hrepp-
stjóra.
Hlakkaði ég til að hitta Elínu,
því auk náinnar frændsemi okkar
var með okkur góð vinátta frá
unglingsárum.
f fyrstu ferð minni til Patreks-
fjarðar fékk ég í flugrútunni upp
lýsingar um heimili Elínar og Þor-
valdar og stormaði heim að fal-
legu hvítmáluðu húsi í Aðalstræti
67.
Elín frænka mín var heima og
tók mér að vonum ágæta vel. Og
stuttu síðar kom Þorvaldur maður
hennar heim frá vinnu sinni.
Strax við fyrstu kynni geðjaðist
mér sérstaklega vel að Þorvaldi.
Hann var hár og gjörvilegur með
drengilegum svip, virðulegur en
laus við allan yfirlætisbrag. Kynni
mín af Þorvaldi urðu all mikil, því
að í heilan áratug kom ég á hverju
ári til Patreksfjarðar, og gisti allt-
af á heimili Elínar og Þorvaldar,
og allar stundir hjá þeim voru mér
góöar og minnisstæðar. Elín mikil
og góð húsmóðir og bæði voru þau
hjónin samhent í sinni gestrisni.
Þorvaldur hafði mjög góða frá-
sagnargáfu, var bráðskemmti-
legur með fágað skopskyn sem
skemmdi engan.
Ferðalög eru auðvitað misjafn-
lega skemmtileg, en frá fyrstu
komu minnar til Patreksfjarðar
hlakkaði ég alltaf til fundaferða
þangað. Og alltaf bjó ég þar, borð-
aði og gisti hjá Elínu og Þorvaldi.
Auðvitað gjörði ég ónæði og
skapaði erfiði með veru minni sem
stundum var dögum saman. En
sjálfselska mín og fáguð gestrisni
húsbændanna eyddu þeirri um-
hugsun.
Elín og Þorvaldur áttu langa
samleið í stríðu og blíðu. Fyrst á
sjúkrahúsi í baráttu við berklana.
Síðar með eitthvað skerta heilsu
en sterkan vilja tókst þeim að
byggja sér fallegt heimili á Pat-
reksfirði sem ekki veitti aðeins
þeim sjálfum skjól heldur og
mörgum öðrum sem að garði
þeirra báru.
Eitt er mér minnisstæðast við
Patreksfjörð auk þeirrar elsku-
semi sem ég naut á Aðalstræti 67,
sem áður er getið, og það var sól-
arsýnin þar alia daga. Á strönd-
inni á móti kaupstaðnum sá ég
alltaf sólskinsbletti þó ský byrgðu
sólu. Og það tók mig þó nokkurn
tíma að átta mig á því, að hvíti
skeljasandurinn í nágrenni æsku-
stöðva Þorvaldar átti til þessa
aukasól.
Og eitt er víst að Þorvaldur
Thoroddsen átti alltaf mikla sól-
arsýn í stríðu og blíðu.
Guð blessi minningu Þorvaldar
Thoroddsen.
Björn Stefánsson
Fæddur 23. nóvember 1962
Dáinn 13. júní 1984
í dag er til moldar borinn ást-
kær vinur okkar, Aron Halldórs-
son. Hann var sonur hjónanna
Halldórs S. Björnssonar og Þór-
eyjar Kristjánsdóttur, og var
hann eldri sonur þeirra.
Það er sannarlega margs að
minnast frá æsku- og unglingsár-
um okkar Arons. Ofarlega í huga
okkar eru allar þær ferðir, sem við
fórum saman út í náttúruna, úti-
legur og fjallgöngur, og hafði Ar-
on ávallt mestu ánægju af slíkum
ferðum.
Það sem einkenndi Aron mest
var það hversu góður drengur
hann var og góður vinur vina
sinna. Hann var alltaf kátur og
hrókur alls fagnaðar, hvar sem
hann kom. Hann stundaði vinnu
sína og nám af kappi, og átti hann
stuttan tíma eftir til þess að ljúka
námi í vélvirkjun.
Síðustu árin hafði hann verið í
sambýli með Rakel Ólafsdóttur og
áttu þau saman eina dóttur, önnu
Báru, sem var honum mjög kær og
átti áreiðanlega hug hans allan.
Það er sárt að kveðja vin sinn
svona ungan, þegar manni finnst
að lífsstarfið sé rétt að byrja, og
því er erfitt að tjá hugsanir sínar.
Við vottum ástvinum hans
okkar innilegustu samúð og biðj-
um þeim blessunar Guðs.
Við ljúkum þessum fáu kveðju-
orðum með orðum skáldsins, sem
segir:
Krjúptu að fótum friðarboðans,
fljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa Guðs um geim.
(J.H.)
Skapti og Gulli.
+
Maðurinn minn, faöir okkar, sonur og tengdasonur,
MAGNÚS SÆVAR GUNNLAUGSSON,
húsasmíöameistari,
Kvíholti 4, Hafnarfiröi,
sem lóst 14. þ.m., veröur jarösunginn fró Hafnarfjaröarkirkju
fimmtudaginn 21. júní kl. 15.00.
Sigríöur Jónsdóttir,
Anna Elisabet Sævarsdóttir,
Gunnhildur Harpa Sævarsdóttir,
Anna D. Magnúsdóttir, Valgeir Vilhjálmsson,
Jón Ólafsson, Elisabet Einarsdóttir.
t
Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma,
AOALHEIÐUR SIGURRÓS FRIÐRIKSDÓTTIR,
Breiöageröi 10,
sem lést 13. júní, veröur jarösungin frá Bústaöakirkju fimmtudag-
inn 21. júní kl. 15.00.
Kristján Arngrímsson,
Margrát Kristjánsdóttir, Hannes Thorarensen,
Óskar Kristjánsson, Birna Árnadóttir,
Anna Kriatjánsdóttir, Hjálmar D. Arnórsson,
Kristleifur Kristjánsson, Bjarnveig Bjarnadóttir
og barnabörn.
+
Sonur minn og bróðir okkar,
JÓN HEIÐAR MAGNÚSSON,
bifreiöastjóri
frá Lækjarskógi,
Flúöaseli 95.
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju 22. júní kl. 13.30.
Lilja Kristinsdóttir,
Georg Magnússon,
GunnarMagnússon.
+
Hugheilar þakkir til allra þeirra er auösýndu okkur samúö og
vinarhug viö fráfall móöur okkar, tengdamóöur og ömmu,
GUÐRÚNAR ÁSTU ANDRÉSDÓTTUR,
Borgarnesi.
Stefanía Sigurgeirsdóttir,
Signý Rafnsdóttir, Völundur Sigurbjörnsson,
Ævar Rafnsson, Laufey Björnsdóttir
og barnabörn.
Egilsstaðir:
Atvinnumálanefnd
gengst fyrir útimarkaði
^ilNKtöóum, 7. júní.
í GÆR var opnaður útimarkaður
hér i Egilsstöðum þar sem 15 aðil-
ar, fyrirtæki og einstaklingar,
buðu gestum og gangandi vörur
sínar til kaups. Ætlunin er að
markaðurinn verði opinn þrjá daga
vikunnar í sumar á grasbala vest-
an við Valaskjálf, miðvikudaga kl.
15—20, fimmtudaga kl. 11—17 og
sunnudaga kl. 16—21.
„Tilgangurinn með þessu er
fyrst og fremst að lífga upp á
mannlifið hér og fá túristana til
að stansa örlítið lengur en verið
hefur,“ — sagði Laufey Eiríks-
dóttir, hreppsnefndarmaður á
Egilsstöðum — en hún ásamt
Helgu Aðalsteinsdóttur frá
atvinnumálanefnd Egilsstaða-
hrepps og Sigurlaugu Jónasdótt-
ur, starfsmanni útimarkaöarins,
kynnti væntanlega starfsemi
útimarkaðarins fréttamönnum í
gær.
„Hingað getur hver sem er
komið með framleiðslu sína eða
aðra söluvöru og selt,“ sögðu þær
stöllur. „Seljendur þurfa ð vísu
að greiða lítilsháttar leigu fyrir
aðstöðuna, einstaklingar 200,-
kr. fyrir daginn en fyrirtæki
100,- kr. fyrir hverja klukku-
stund. Einnig tekur starfsmaður
útimarkaðarins að sér sölu fyrir
aðila — en þá verða þeir að
greiða 15% sölunnar til úti-
markaðarins.”
í gær voru á boðstólum afurð-
ir, hvers konar heimilisiðnaður,
ullarflíkur frá Prjónastofunni
Dyngju og póstkort frá Hér-
aðsprenti sf.
„Við tökum við hvers konar
framleiðslu," sögðu forsvars-
menn útimarkaðarins — „Eggj-
um, rabarbara, blómum,
skinnskóm svo að eitthvað sé
nefnt. Þeir sem vilja koma með
vörur sínar hafi einungis sam-
band við Sigurlaugu í síma 97-
1326 daginn áður.“
Það var atvinnumálanefnd
Egilsstaðahrepps, sem hratt
þessari hugmynd um útimarkað
í framkvæmd með stuðningi
hreppsnefndar. Aðstaðan er
e.t.v. nokkuð frumstæð enn sem
komið er — enda ekki vitað
hvert framboð verður af söluvör-
um — en eftir miðjan mánuð
verður komið upp myndarlegum
palli og aðstaðan að öðru leyti
löguð að framboði og eftirspurn.
Á miðvikudögum og fimmtu-
dögum er mikil umferð útlend-
inga hér un\ og væntanlega
finna þeir eitthvað við sitt hæfi
á útimarkaðnum — en á sunnu-
dögum vænta forsvarsmenn
fyrirtækisins þess að fá nábúa
sína úr fjörðum niðri í heimsókn
— og þá verða e.t.v. einhver
skemmtiatriði ef vel gengur. Fé-
lagasamtökum verður þá einnig
gefinn kostur á að efna til kaffi-
sölu á markaðssvæðinu til hress-
ingar gestum.
— Ólafur.