Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
Greiddum bændum
fullt afurðaverð
— segir Friðrik Magnússon fram-
kvæmdastjóri sláturhússins í Þykkvabæ
um ummæli Gunnars Guðbjartssonar
„ÉG KANNAST ekki við þessa vöntun sem framkvæmdastjóri Framleiðslu-
ráðsins nefnir í þessari grein sinni því við greiðum bændum fullt verð fyrir
framleiðslu þeirra," sagði Friðrik Magnússon framkvæmdastjóri verslunar
Friðriks Friðrikssonar í Þykkvabæ er álits hans var leitað á þeim ummælum
Gunnars Guðbjartssonar framkvæmdastjóra Framleiðsluráðs í Mbl. í fyrra-
dag að 6,10% hefði vantað upp á að sláturhúsið skilaði bændum fullu
afurðaverði og vöxtum við síðasta uppgjör.
Friðrik sagði að sláturhúsið í ráð að birta samanburð sláturhús-
Þykkvabæ hefði greitt bændum
fullt grundvallarverð, fulla vexti
og fullar uppbætur og kvaðst hann
ekkert skilja hvernig Framleiðslu-
ráð færi að fá 6,10% vöntun út úr
því. Skoraði hann á Framleiðslu-
anna i heild og forsendur útreikn-
inga sinna, þessi skýrsla væri ekki
meira trúnaðarmál en svo að þeg-
ar væri búið að birta niðurstöður
varðandi fjögur sláturhús.
Landsbanki og Búnaöarbanki:
Útlán stöðvuð
Verðandi laxveiðimenn
Reykvíkingar nutu veóurbiíðunnar í gær. Þessir ungu veiðimenn voru í Sundahöfn í gær og renndu fyrir fisk.
Kannski verða þetta laxveiðimenn, þegar þeir vaxa úr grasi.
ÚTLÁN Landsbankans og Búnað-
arbankans hafa verið stöðvuð fram
til 13. ágúst næstkomandi. Þetta
kemur í framhaldi af ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar að gefa innlánsstofn-
unum aukið frelsi við ákvörðun
vaxta, en þeim er skylt að leggja
fram tillögur um vexti inn- og útlána
til Seðlabankans fyrir 11. ágúst. Ef
Samgönguráðiuieytið:
Ólafur Steinar
Valdimarsson
skipaður ráðu-
neytisstjóri
FORSETI íslands hefur, að tillögu
samgönguráðherra, skipað Ólaf Stein-
ar Valdimarsson i embætti ráðuneytis-
stjóra samgönguráðuneytisins. Jafn-
framt hefur Halldór S. Kristjánsson
veríð skipaður skrífstofustjóri sam-
gönguráðuneytisins.
Auk Ólafs Steinars sóttu Jón
Thors deiidarstjóri í dómsmálaráðu-
neytinu og Ólafur Stefánsson um
embætti ráðuneytisstjórans. Þeir
ólafur Steinar og Halldór hafa báðir
i eitt ár verið settir til að gegna þeim
embættum sem þeir voru nú skipaðir
í. Þeir voru skipaðir frá 1. júli 1983.
Seðlabankinn gerir ekki athuga-
semdir við tillögurnar öðlast ákvarð-
anir viðskiptabankanna og spari-
sjóðanna gildi frá og með 13. ágúst.
Að sögn þeirra bankamanna
sem Morgunblaðið ræddi við í
gær, er gert ráð fyrir að flestar
innlánsstofnanir muni halda að
sér höndum og minnsta kosti
draga úr útlánum næstu tvær vik-
urnar, en búast má við að vextir
útlána hækki, samfara hækkun
inniána, þar sem vaxtamismunur
má ekki hækka. Við ákvörðun
vaxta er bönkum og sparisjóðum
bannað lögum samkvæmt að hafa
samráð.
Þessi stöðvun gildir ekki um þau
lán sem afgreidd voru fyrir 1. ág-
úst.
Brenndist
á vítissóda
STARFSMAÐUR Sláturfélags Suð-
urlands brenndist illa i andliti i
gærkvöldi er hann fékk vítissóda i
andlitið. Maðurinn var að losa stiflu
úr niðurfalli er lögurinn spýttist á
andlit og í augu hans. Var hann
fluttur á slysadeild Borgarspítalans
ásamt félaga sinum sem brenndist
minna.
Enn er allt í óvissu með hrossin á Auðkúluheiði:
„Ótilneyddir sækj-
um við ekki hrossin“
— segir Einar Höskuldsson á Mosfelli
ENN er ekki vitað hvort þeir
fjórir bændur í Svínavatns-
hreppi sem ráku hross sín á
Auðkúluheiði þrátt fyrir
bann landbúnaðarráðuneyt-
isins muni fara eftir þeim til-
mælum sem til þeirra var
beint á sameiginlegum fundi
hreppsnefnda þeirra þriggja
hreppa sem upprekstur eiga á
heiðina, ráðuneytismanna og
fleiri, sem haldinn var að
fnimkvæði sýslumanns í
Húnaveri á mánudag. Á
fundinum var samþykkt til-
laga þar sem upprekstur
þeirra var harmaður og þess
óskað að þeir sæktu hross
sín sjálfir nú þegar.
Jón ísberg, sýslumaður Hún-
vetninga, sagði I samtali við Morg-
unblaðið I gær að hann væri búinn
að boða tvo upprekstrarmenn til
sín og koma boðum til þess þriðja
en þar sem góður þurrkdagur
hefði verið í gær og menn átt mik-
ið hey flatt vildi hann gefa þeim
tima til að sinna heyskapnum. Jón
sagðist ætla að gera þeim ljóst um
hvað málið snerist og kvaðst vona
að í framhaldi af því væri hægt að
ná svipuðu samkomulagi og náðist
varðandi Eyvindarstaðaheiðina.
Vildi hann sem minnst um það
segja hvað gert yrði ef bændur
neituðu að reka hross sín af heið-
inni en sagði það meira en líklegt ,
Vinnuyeitendasambandið svarar Alþýðusambandínu:
Kaupmáttur í ár jafnvel
ívið meiri en í lok 1983
7% kauphækkun 1. sept. stefnir atvinnu í voða
Vinnuveitend&samband íslands
(VSÍ) hefur skýrt afstöðu sína til
þeirra sjónarmiða sem fram koma
hji Alþýðusambandi íslands (ASÍ)
vegna uppsagnar kjarasamninga 1.
september næstkomandi og til
röksemda ASÍ um þróun kaup-
máttar á þessu ári miðað við síð-
asta ársfjórðung 1983. Telur
Vinnuveitendasambandið að mun-
urinn á útreikningi sínum og ASÍ á
þróun kaupmáttar felist í tvennu: f
fyrsta lagi geri verðbólguspá Al-
þýðusambandsins ráð fyrir meiri
verðbólgu en Vinnuveitendasam-
bandsins. f öðru lagi meti Vinnu-
veitendasambandið félagslegu að-
gerðirnar sem gripið var til á síð-
asta vetri ekki til lækkunar á
kaupmætti eins og Alþýðusam-
bandið gerL
í greinargerð um þetta efni
sem Vinnuveitendasambandið
sendi Morgunblaðinu í gær segir,
að VSÍ meti stöðuna þannig að
frá upphafi til loka árs 1984
hækki framfærsluvísitalan um
13,8% en ASf telji hins vegar að
hækkunin verði 14,3%.
Félagslegu aðgerðirnar í vetur
miðuðu að því að færa byrðar frá
hinum betur settu til þeirra sem
verr standa, sérstaklega ein-
stæðra foreldra, barnafólks og
aldraðra. Vinnuveitendasam-
bandið telur að vinnuveitendur
eigi ekki að gjalda þessara fé-
lagslegu aðgerða. Þeir hefðu
hugsað sig um tvisvar þegar þeir
ákváðu að standa að tillögum um
þær, ef Iegið hefði fyrir í febrú-
ar, að það yrði notað gegn þeim
síðar og vísað til þeirra sem for-
sendu fyrir uppsögn samninga 1.
september. Telur VSÍ að félags-
legu aðgerðirnar svari til 1%
kaupmáttaraukningar frá maí-
byrjun, en þær hafi kostað um
1% af ráðstöfunartekjum.
Vinnuveitendasambandið tel-
ur að meðalkaupmáttur kaup-
taxta miðað við 100 á 4. ársfjórð-
ungi 1983 verði 100,2 á árinu
1984 enda sé tekið tillit til fé-
lagslegu aðgerðanna í vetur, og
sambærileg tala er 99,9 I ár sam-
kvæmt útreikningum Alþýðu-
sambandsins að sögn VSf, en
99,2 hjá ASÍ í ár sé áhrifum fé-
lagslegu aðgerðanna sleppt og
99,5 hjá VSÍ, þannig að mest
munar 0,8 stigum í kaupmætti í
ár og í lok síðasta árs í útreikn-
ingum ASf.
I greinargerðinni segir Vinnu-
veitendasambandið að krafa ASÍ
um 7% launahækkun 1. sept-
ember næstkomandi samhliða
fullyrðingum um að samþykkt á
henni muni ekki raska þeim
áformum ríkisstjórnarinnar að
halda gengissigi innan 5%
marka á árinu byggist á of mik-
illi bjartsýni. Svo kunni að fara
nái 7% krafan fram að stóraukin
hætta verði á atvinnuleysi eink-
um vegna þrenginga sjávarút-
vegsins og þar með aukist þrýst-
ingur á gengisfellingu. Af þessu
megi sjá, að sögn Vinnuveit-
endasambandsins, hve lítið þurfi
útaf að bera til þess að krafa um
kauphækkun sé ekki jafnframt
krafa um kaupmáttarlækkun.
að þá yrðu hrossin sótt.
Einar Höskuldsson bóndi á
Mosfelli sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að þeir upprekstr-
armenn hefðu ekkert nýtt ákveðið
I málinu eftir Húnaversfundinn.
Þeir væru algerlega mótfallnir því
sem þar hefði verið samþykkt og
stæðu á því fastar en fótunum að
þeir væru að berjast fyrir réttlæt-
ismáli. „ótilneyddir sækjum við
hrossin ekki,“ sagði Einar.
Olís:
Bætiefni
sett í allt
bensín
OLÍUVERSLUN íslands, Olís, hefur
ákveðið að blanda sérstöku bætiefni
í það bensín, sem félagið selur. Segir
í fréttatilkynningu frá Olís, að bæti-
efnið, sem ber nafnið Orobis OGA-
3369, eigi að vera komið í allt bensín
á Olís-stöðvum frá og með 1. ágúst.
í fréttatilkynningu Olís segir
einnig, að það muni kosta félagið á
bilinu 2,5—3 milljónir árlega að
bæta þessu efni I bensínið. Þrátt
fyrir þennan aukna tilkostnað
verði þó ekki farið fram á leyfi til
að hækka bensínverð. Verði þetta
bætta bensín því selt á sama verði
og annað bensín á markaðnum.
I fréttatilkynningu Olís segir
ennfremur að orobis hafi þá eig-
inleika að hindra útfellingar og
sótmyndun í vélum nýrra og gam-
alla bifreiða og hreinsi að auki sót,
sem þegar hefur náð að myndast.
Án sóts og útfellingar gangi vélin
léttar, afköstin batni og oktanþörf
vélarinnar lækki. Vélin haldi lágu
hitaútstreymi, blöndungurinn
haldi betur stillingu og með betri
eldsneytisnýtni dragi úr bensín-
eyðslu. óreglulegur hægagangur
lagist, bilunum fækki og dragi úr
loftmengun. Ofangreindar breyt-
ingar eigi að koma í ljós eftir 4—6
áfyllingar.