Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984 Terylenebuxur, kr. 555,00, 595,00, 625,oo og 785,00. Karlmannaföt, kr. 1995,00, 2450,oo og 2975,00. Gallabuxur, kr. 475,00 og 595,00. Kvensnið, kr. 490,00 og fl. ódýrt. Andrés, Skólavördustíg 22A, sími 18250. Kynning áPROLOG á vegum Reiknistofnunar Háskólans Kynning Reiknistofnunar Háskólans á forritunar- málinu PROLOG, hefst mánudaginn 20. ágúst nk., kl. 16—18 og verður auk þess dagana 21., 23. og 27. ágúst, eða alls 8 tíma. Þess á milli er frjáls aðgang- ur að tölvum til æfinga. Þátttökugjald er kr. 3.000,-. Kennari er prófessor Oddur Benediktsson. Stuðst verður við bók Clark og Mccabe: Micro- Prolog, Programming in logic og fæst hún í Bók- sölu stúdenta. PROLOG er um flest ólíkt heföbundnum forritunar- málum, svo sem Fortran, Cobol, Pascal o.fl. PROL- OG hefur ásamt LISP náö mikilli útbreiöslu á sviöi tölvurits (Artificial Intelligence), m.a. viö gerð svonefndra þekkingarkerfa (Expert Systems). Ástæöa er til aö ætla aö PROLOG eöa svipuö mál eiga eftir aö gerbreyta notkun tölva í framtíöinni. Til dæmis hafa Japanir valiö PROLOG til notkunar á fimmtu kynslóöar tölvum sínum. Námskeiöiö er öllum opið, en gert er ráö fyrir að þátttakendur hafi kynnst a.m.k. einu forritunarmáli. Þátttaka tilkynnist sem fyrst til Ólafar Eyjólfsdóttur í síma 25088 (fyrir hádegi). Reiknistofnun Háskólans. OFBELDI GEGN BÖRNUM HVER ÍBÚÐ MEÐ SÍNU LAGI — Hugmyndir bandaríska arkitektsins Susan A. Roeder um hvernig megi lífga upp á íslensk fjölbýlishús. Á FJÖLLUM MEÐ FRÆNDA — Feröasaga Indriöa G. Þorsteinsson- ar, rithöfundar, ásamt fleiri „sögum í farteskinu". FATNAÐUR OG FÖRÐUNí LITRÍKUM HRÆRIGRAUT Föstudagsblaðid ergott forskot á helgina Bæjarstjóm Eskifjarðar: Afkoma óhóflega EskinrAi, 30. júlí. Á FUNDI bæjarstjórnar Eskifjarðar 24. júlí var eftirfarandi ályktun sam- þykkt samhljóða: „Bæjarstjórn Eskifjarðar skor- ar á stjórnvöld, að grípa þegar í stað til aðgerða er leiðrétt geti hag sjávarútvegs í landinu svo ekki þurfi að koma til stöðvunar fiski- skipanna. Það er alrangt, sem haldið hefur verið fram itrekað nú undanfarið, að rekstrarörðugleik- ar útgerðar og fiskvinnslu stafi af offjárfestingu og minnkandi afla. Hann stafar augljóslega fyrst og fremst af því, að allur kostnað- fólks byggist á mikilli yfírvinnu ur innanlands svo sem olíuverð, flutningsgjöld og viðgerðir hafa hækkað úr hófi fram á sama tíma og genginu er haldið stöðugu svo fiskafurðir, sem seldar eru úr landi og skila þjóðarbúinu 70% af gjaldeyristekjum þess, hækka ekkert í krónum talið. Nú, þegar kreppir að og atvinna dregst sam- an, kemur það berlega í ljós, að þokkaleg afkoma fólksins í sjávar- plássunum hefur byggzt á óhóf- lega mikilli yfirvinnu. Enginn get- ur lifað mannsæmandi lífi af 13.000 króna mánaðarlaunum eins og dagvinnutekjur fiskvinnslu- fólks eru nú. I bæjarfélögum, þar sem langflestir íbúanna vinna við útgerð og fiskvinnslu, heldur nú við stöðvun allra framkvæmda af þessum sökum. Bæjarstjórn Eskifjarðar treyst- ir því að ríkisstjórnin meti fram- lag sjávarútvegsins í landinu og þess fólks, sem að honum vinnur svo mikils, að hún geri sitt ítrasta til að koma á jafnvægi milli at- vinnugreina og landshluta, þannig að stöðvaður verði sá fólksflótti, sem nú er úr dreifbýli til þéttbýlis til stórskaða fyrir alla íslendinga, hvar sem þeir búa.“ — Ævar Dagverðames: Fjölsótt kirkjuhátíð Sunnudaginn 22. júlí var kirkju- hátíð í Dagverðarnesi í Dalasýslu. Þá var minnst 50 ára vígsluafmælis Dagverðarneskirkju en hún var vígð 22. júlf 1934. Hátíðin hófst með guðsþjónustu í Dagverðarneskirkju kl. 2 e.h. þar sem sr. Þórir Stephensen, dóm- kirkjuprestur, prédikaði, en hann þjónaði kirkjunni um 5 ára skeið á árunum 1955—60. Altarisþjónustu önnuðust sóknarpresturinn sr. Ingiberg J. Hannesson, prófastur á Hvoli, og sr. Friðrik J. Hjartar í Búðardal og sr. Gísli H. Kolbeins f Stykkishólmi. Sóknarprestur flutti ávarp f messulok og sagði m.a. sögu kirkjunnar. Athöfnin í heild var hin hátíð- legasta og var fjölsótt, því nokkuð á annað hundrað manns munu hafa sótt hátíðina. Veður var fremur gott, skýjað en þurrt, og komu menn bæði sjóveg og land- veg eftir því sem aðstæður leyfðu, en þess verður að geta að ekki er hlaupið að því að komast á kirkju- staðinn á landi, þvf þangað er naumast akfær vegur nema þegar þurrast er og best að sumarlagi og þá helst á torfærubifreiðum, enda Dagverðarnes í eyði og vegagerð þangað lítið sinnt. Þeim mun ánægjulegra var það hversu margir komu til hátíðar- innar, og mun það næsta fátftt nú orðið að sjá kirkjugesti koma gangandi um langan veg til kirkju sinnar, en svo var um flesta kirkjugestina, sem ekki lögðu bfla sína í torfæruakstur eða vildu njóta þess að koma gangandi til kirkju. Mun vera um klukkutíma gangur frá aðalvegi og niður í Dagverðarnes en kirkja hefur ver- ið þar lengi staðsett, því frá því á 13. öld eru heimildir um hálf- kirkju þar, en sóknarkirkjan verð- ur þar fyrst með konungsbréfi 9. júní 1758. Þegar núverandi kirkja var byggð í Dagverðarnesi 1934 var sóknin allstór og nærliggjandi eyjar allar í byggð, en nú er öldin önnur, eyjarnar allar komnar í eyði og sóknin orðin fámenn, því þar eru nú aðeins heimilisfastir 24 menn og þeir þó ekki allir þar með fasta búsetu. Það var því allmikið átak fámennum söfnuði að minn- ast þannig hálfrar aldar afmælis kirkju sinnar, við erfiðar aðstæð- ur, en þó myndarlega á allan hátt. Á eftir messu voru veitingar fram bornar f tjöldum á hlaðinu í boði sóknarnefndar og var þar vel veitt. Áthöfnina sóttu allmargir brottfluttir sóknarmenn og sveit- ungar og áttu allir þarna sérlega ánægjulegan dag. í tilefni afmæl- isins var gefinn út veggplatti með mynd af kirkjunni, teiknaður af Lísbet Sveinsdóttur, í 400 tölusett- um eintökum. Er hann fáanlegur hjá sóknarpresti og formanni sóknarnefndar, Selmu Kjartans- dóttur á Ormsstöðum. Fréttaritari VINNUHESTAR frá Talbot og Peugeot Sendiferðabifreið Framhjóladrifinn Sparneytinn Burðarmagn 500 kg Allar frekari upplýsingar veittar á staðnum. HAFRAFELL Vagnhöfða 7, Reykjavík Símar 685211 og 685537 Pallbifreið Sparneytinn Með sjálflæsandi mismuna- drifi Burðarmagn 1250 kg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.