Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
Flugleiðir semja um pflagrímaflug:
Um 40.000 manns
verða fluttir milli
Alsír og Jeddah
SAMNINGUR milli Flugleiða og aðila í Alsír um pílagríma-
flug frá Alsír til Jeddah var undirritaður á þriðjudag. Flugið
mun hefjast 15. ágúst næstkomandi og verða til þess notaðar
þrjár leiguvélar, en starfsmenn Flugleiða munu annast af-
greiðslu flugsins á jörðu niðri.
Sigfús Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs
Flugleiða, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að Flugleiðir
flyttu með þessum hætti rúm-
lega 20.000 pílagríma fram og
til baka frá fimm borgum í Al-
sír og Jeddah eða rúmlega
40.000 manns í allt. Flogið yrði
frá fimm borgum í Alsír, Al-
sírborg, Konstantin, Oran,
Gordea og Amaba til Jeddah.
INNLENT
Fyrri lota hæfist 15. ágúst og
stæði til ágústloka við flutn-
inga til Jeddah og 10 dögum
siðar yrði svo byrjað að flytja
pílagrímana heim.
Til flugsins verða notaðar
þrjár DC-8-leiguvélar frá
Sterling í Danmörku, ONA í
Bandaríkjunum og World
Ways í Kanada. Sigfús sagði,
að þetta væru veruleg viðskipti
og Flugleiðum mjög þýðingar-
mikil og nú væri að hefjast
þriðja árið, sem fyrirtækið
annaðist þetta flug eitt er-
lendra flugfélaga. Það væri
mjög mikilvægt að halda góðu
nafni á þessum vettvangi og
því yrði stefnt að því, eins og
undanfarin ár, að veita eins
góða þjónustu og mögulegt
væri.
Ósviklnn gædingur
fyrír kr. 6.950,
12 gíra, 28“, 58 cm grind
DBS-reiðhjólin hafa margsannað yfirburöi sína viö
íslenskar aöstæöur.
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJONUSTA
FALKINN 105 REYKJAVIK
SUÐURLANDSBRAUT 8 - SIMI 91-84670
Hjólin fást einnig á eftirtöldum stööum: I
Akranes Bolungarvík
Pípulagningarþjónustan, Versl. Einars
Ægisbraut 27. Guöfinnssonar.
Borgarnes Dalvík
Kaupfélag Borgfirðinga. Jón Halldórsson,
Stykkishólmur Drafnarbraut 8.
Versl. Húsiö. Akureyri
Blönduós Viöar Garöarsson,
Kaupfélag Húnvetninga. Kambageröi 2. Egilsstaöir
ísafjöröur Versl. Skógar.
Vélsmiöjan Þór, Neskaupsstaöur
Suöurgötu 12. Kaupfélagiö Fram.
Keflavík Hafnarfjöröur
Henning Kjartansson, Músík og Sport,
Hafnargötu 55. Reykjavíkurvegi 60.
Ljóamynd Mbl. Jútfus.
Bandarísku varnarliösmennirnir á Keflavíkurflugvelli og fjölskyldur þeirra geta fylgst meö viöburöum Ólympíu-
leikanna um leiö og þeir fara fram í Los Angeles.
Vamarliðsmenn horfa á beinar útsendingar frá Ólympíuleikunum:
„Höfum ekki leyfi til þess að
nýta efni sem varnarliðið fær“
— segir Gústav Arnar, yfirverkfræðingur hjá Pósti og síma
EINS og flestir landsmenn vita
hófust 23. Ólympfuleikarnir f Los
Angeles um helgina. Setningarat-
höfnin fór fram aðfaranótt sunnu-
dags að íslenskum tíma en lands-
menn sáu hana f sjónvarpi síðastlióið
sunnudagskvöld, tspum sólarhring
seinna en varnarliðsmennirnir á
Keflavfkurflugvelli. Þeir fylgjast með
gangi leikanna um leið og þeir fara
fram, í beinni útsendingu. Minna
loftnetið hjá Skyggni tekur við send-
ingunum og beinir þeim beint til
Keflavíkur.
„Við höfum ekkert leyfi til að
senda þetta efni út til fslenskra
sjónvarpsáhorfenda," svaraði
Gústav Arnar yfirverkfræðingur
hjá Pósti og síma, þegar Mbl.
spurði hann nánar um ástæðu þess
að varnarliðið nyti beinnar útsend-
ingar frá leikunum en ekki aðrir
hér á landi. „Samkvæmt samning-
um gengur litla loftnetið allan sól-
arhringinn og tekur við efni sem
sjónvarpsstöð bandarfska hersins
sendir á loft til stöðva sinna út um
heiminn f gervitungli. Við beinum
efninu beint til móttökustöðvar á
Keflavíkurflugvelli og f fæstum til-
fellum höfum við hugmynd um
innihald þess, enda höfum við enga
aðstöðu hér hjá Skyggni til að
horfa á bandaríska sjónvarpið. Við
fylgjumst einungis með að mynd-
gæðin séu f lagi. Bandaríski herinn
nýtur sérkjara við kaup á mynd-
efni fyrir sína menn og ef við ætl-
uðum að nýta efnið frá Ólympfu-
leikunum fyrir islenska áhorfend-
ur þyrfti að breyta samningum
hersins við hlutaðeigandi
aðila.
Fyrir tveimur árum fengum við
bréf frá dreifingarfyrirtækjum
sem sjá um efnið frá leikunum, þar
sem okkur var boðið að fá beinar
sendingar frá Los Angeles. Við
kynntum þær hugmyndir fyrir yf-
irmönnum ríkisútvarpsins, en
þeim fannst hagkvæmara að fá
efnið sent á spólum frá
Kaupmannahöfn, þannig að nú
fáum við Ólympfuleikana frá
Danmörku. Við höfum alla tækni
til að taka við beinum sendingum
frá leikunum en við getum ekki
neytt útvarpið til að taka við efni
sem það hefur ekki áhuga á,“ sagöi
Gústav að lokum.
Unglingaskákmótið í New York:
Þrír íslenskir piltar
unnu allar skákir sínar
Ljósm. Mbl. Júlíus.
Ungu skákmennirnir þrfr sem unnu allar skákirnar slnar á unglingamótinu f
New York í júll. Á myndinni eru talið frá vinstri: Jóhann Sigurbjörnsson,
Þráinn Vigfússon og Sigurður Daði Sigfússon.
UNGLINGAMÓT í skák milli ís-
lenskra unglinga og bandarískra var
haldið í New York dagana 14.—22. júlí
síðastliðinn. Ails fóru 25 skákmenn
héðan á aldrinum 11—18 ára og unnu
þeir bandaríska liðið með 44 vinning-
um gegn 38. Þrfr íslensku skákmann-
anna unnu allar sínar skákir, en hver
skákmaður tefldi fjórar skákir.
Ungu skákmennirnir þrír sem
unnu allar sinar skákir á unglinga-
mótinu í New York nú á dögunum
eru: Þráinn Vigfússon 16 ára, Jó-
hann Sigurbjörnsson 16 ára og Sig-
urður Daði Sigfússon 12 ára.
Þráinn tefldi við Elvan Turtel frá
Bandaríkjunum og landa hans Kurt
Holyst. Jóhann tefldi við Banda-
rfkjamennina Ross Eldridge og EIv-
in Lederman, og Sigurður Daði tefldi
við Bandaríkjamanninn Nickolai
Parker og Tomer Scachi frá ísrael,
en ísraelar áttu nokkra skákmenn á
þessu móti.
Þráinn Vigfússon sagði f samtali
við blm. Mbl. að hann hafi byrjað að
tefla af alvöru fyrir fjórum árum, en
hann lærði mannganginn 9 ára.
Hann teflir með Taflfélagi Reykja-
vfkur, eins og þeir Jóhann og Sigurð-
ur Daði, og fer á æfingar þar einu
sinni eða tvisvar í viku. Þá teflir
hann stundum við bróður sinn,
Hannes, sem einnig keppti á ungl-
ingamótinu f New York og átti ein-
mitt 12 ára afmæli þar. Hannes hef-
ur getið sér gott orð sem skákmaður
og þykir einn af þeim efnilegri hér á
landi. Hann vann til að mynda ís-
landsmeistaratitilinn f flokki 14 ára
drengja og yngri sfðastliðið vor, en á
mótinu í New York hlaut hann 2V4
vinning.
Þráinn var f Fjölbrautaskólanum f
Breiðholti sfðastliðinn vetur, á
viðskiptasviði, og hyggst halda þar
áfram næsta vetur. Sem stendur
vinnur hann f Áburðarverksmiðju
rfkisins í Gufunesi. Hann hefur 1650
fslensk ELO-skákstig.
Jóhann Sigurbjörnsson lauk námi
í 9. bekk Fellaskóla nú í vor. Hann
hefur 1345 islensk ELO-skákstig og
hóf að tefla fyrir tveimur árum með
Taflfélagi Reykjavíkur. Sagðist
hann áður hafa haft fótbolta sem
sitt helsta áhugamál, en fyrir tveim-
ur árum hafi hann farið á æfingu
hjá TR með vini sfnum og heillast af
skákfþróttinni. Hann segist fara á
æfingar hjá félaginu tvisvar f viku
og tefla þess á milli við bróður sinn.
Sigurður Daði gekk f Taflfélag
Reykjavíkur fyrir röskum tveimur
árum og hefur teflt á mörgum ungl-
ingamótum siðan. Einnig hefur hann
m.a. tekið þátt í sveitakeppni
grunnskólanna og á Skákþingi ís-
lands síðastliðið vor. Þykir árangur
hans f mótum á sföastliðnu ári mjög
góður miðað við ungan aldur , en
hann er, sem fyrr segir, aðeins 12
ára. Sigurður Daði, sem vann allar
skákirnar sfnar á unglingamótinu í
New York, hefur náð 1340 fslenskum
ELO-skákstigum.