Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
49
íslendingar koma
og fara í Minnesota
— eftir Valdimar
Björnsson
Hátt upp í 40 Islendingar, nær
eingöngu bændur og frúr þeirra,
hafa verið á ferðalagi í Kanada og
Bandaríkjunum núna í lok júlí og
byrjun ágústmánaðar. Upplýs-
ingaþjónusta landbúnaðarins setti
sig snemma í samband við Helga
Austman í Gimli, Manitoba, sem
er yfirmaður International Agri-
cultural Exchange Association.
Var Helgi lengi aðstoðarbúnaðar-
málaráðherra Manitoba-fylkis
með aðsetur í Winnipeg en hefur
átt heima á höfuðbóli Nýja-
íslands, Gimli, um nokkurt skeið.
Þar hefur hann fengið hjónin
Stefán og Ollu Stefánsson sem
ferðaleiðtoga hópsins sem gerir
„yfirreið" um stórt svæði frá
komu þeirra til Winnipeg þriðju-
daginn 24. júlí þangað til flogið er
aftur þaðan til íslands laugardag-
inn 11. ágúst. Ted Árnason, for-
stjóri Viking Travel Service á
Gimli, og margir aðrir víðsvegar í
byggðum íslendinga, hafa staðið í
undirbúningsráðstöfunum lengi.
Bændur frá fslandi og aðrir úr
ýmsum stéttum hafa farið í svip-
aðar hópferðir i nokkur ár núna,
bundnar venjulega við íslendinga-
daginn í Gimli í kringum 2. ágúst.
f bændahópnum í þetta skipti eru
þátttakendur aðallega af Suður-
landinu, fernt úr Árnessýslu,
þrennt úr Rangárvallasýslu og svo
fjórir úr Suður-Múlasýslu, fjórir
úr Barðastrandarsýslu og nokkrir
af Snæfellsnesinu, einnig úr Kjós,
og Mýrasýslu og Norður-Þingeyj-
arsýslu.
Fyrstu áfangarnir fyrir lok júlí-
mánaðar eru Winnipeg, Brandon,
Argylebyggð og Morden í Mani-
toba, og svo fslendingabyggðin í
Norður-Dakota, í námunda við
Cavalier, Garðar og Mountain.
Þaðan er farið til Minneapolis,
Minnesota, mánudaginn 30. júlí.
Tveir dagar þéttskipaðir þar að
sjá sig um í Minneapolis, St. Paul
og nágrenni. Bændur fara í búnað-
artilraunastöð og konurnar á
matreiðslusýningu í Betty-
Crocker’s Kitchen, rekið af Gener-
al Mills-fyrirtækinu. Tími veitist
til frjálsra ferða en einn hápunkt-
urinn verður „picnic“-skemmtun
með Heklufélagi íslenzkra kvenna
nálægt Lake Nokomis í Minnea-
polis 31. júlf.
Frá Minneapolis fer „bus“, sem
hópurinn hefur á leigu, um Bem-
koma til mín, en bannið þeim það
ekki því þeirra er guðsríki.
Við samhryggjumst móðurinni
og manni hennar, sem sátu yfir
honum flestum stundum meðan
hann var í öndunarvélinni í þrjár
vikur á gjörgæsludeild Borgar-
spítalans. Við vottum einnig föður
hans, ömmum og öfum og litlu
systkinunum, frændum og vinum
okkar dýpstu samúð.
Veri hann Guði falinn um tíma
og eilífð.
Dagbjört og Þorleifur.
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu meö góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í sfðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. f
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
idji fyrir norðan og svo alla leið til
Riverton, Manitoba, nyrzt í Nýja-
íslandi, 2. ágúst. Þá verða þrír
dagar við hátíðahöldin á Gimli og
viðkoma á Lundar i leiðinni suður
til Winnipeg aftur. Aukadagur
gefst þar að sjá sig um og hitta
Vestur-Islendinga með heimferð
hafna laugardaginn 11. ágúst, er
flugvélin leggur af stað frá Winni-
peg til íslands.
Ferðafólkið hefur líklegast
hlakkað til fararinnar en eins má
segja um landa sem hafa ánægju
af að hitta gestina „að heiman“
eins og sagt er.
Stofnar skart-
gripaverslun
Ekki er alveg tíðindalaust með-
al Vestur-íslendinga i Minnesota
og í „nærliggjandi sveitum“.
Heklufélags-konur og fleiri létu
leið liggja til Ellsworth, Wiscons-
in, ekki langt frá „tviburaborgun-
um, 12., 13. og 14. júli. Þar var
stallsystir þeirra, Helga Felt, sem
fluttist frá Reykjavík fyrir nokkr-
um árum, að opna fina skartgripa-
verzlun, Helga’s Jewelry Store
and Gift Shop. Hún keypti verzl-
unina fyrir skemmstu, hefur aukið
hana mikið frá þvi fyrrverandi
eigendur fóru og var hún með góð-
gerðir á boðstólum í „vígslunni".
John Felt, maður Helgu, starfaði
sem verkfræðingur á Keflavíkur-
flugvelli um tíma og giftust þau
hér í Bandaríkjunum 1962. John
vinnur verkfræðingastörf sín að-
allega í St. Paul. Hjónin eiga tvö
börn, John Erik, 16 ára, og Önnu
Huldu, 12 ára. Helga er Jónsdóttir
Erlingssonar grasalæknis í
Reykjavík Filippussonar, og eru
ættir hennar aðallega af Austur-
landi.
Brúðkaup
Brúðkaup voru tíð í fjölskyldu
Braga og Gail Magnússonar ný-
lega. Eiga þau heima i Fridley
fyrir norðan Minneapolis og þar
voru Lynn, dóttir þeirra, og Rich-
ard Scarlato, gefin saman í hjóna-
band laugardaginn 7. júlí. Munu
þau eiga heima fyrst um sinn i
Nashville, Tennessee, þar sem þau
eru bæði við starf og nám. Dean,
sonur Braga, og Gail Magnússon-
ar, hefur starfað í Reykjavik í um
það bil tvö ár hjá Otto Michelsen-
fyrirtækinu í auglýsingum og
hönnun og þar leggur hann lista-
mannshönd á undirbúning aug-
lýsinga og var hann að giftast
unnustu sinni frá fslandi, í Frid-
ley 11. júlí. Brúðurinn var Ragn-
heiður Brynjólfsdóttir sem hefur
starfað við kennslu og endurhæf-
ingu vangefinna barna á Land-
spítalanum. Hún fékk sina gráðu á
Sorbonne-háskólanum í París og
byrjaði á starfi sínu í Frakklandi.
Heklufélags-konur voru með heið-
urssamsæti handa frú Ragnheiði
23. júlí á heimili Matthildar Kvar-
an i Minneapolis, konu Jóns
Björnssonar. Skarpar gáfur og
hlýleiki frú Ragnheiðar hrifu
sessunauta þar eins og alla sem
kynnast henni hér.
Háskólafólk
Sumir landar við nám í Minnea-
sota-háskóla hafa „skroppið heim“
í sumarfrí. Fáeinir alfarnir aftur
til íslands og má telja með þeim
prest og fjölskyldu hans. Sá er
séra Sigfinnur Þorleifsson, sókn-
arprestur á Stóra-Núpi í Ár-
nessýslu, þar sem Valdimar Briem
var einu sinni prestur. Frú
Bjarnheiður Guðmundsdóttir
kona hans og börnin voru náttúru-
lega með f heimferðinni. Eru þau
til heimilis á Tröð í Gaulverjabæj-
arhreppi. Séra Sigfinnur hefur
stundað framhaldsnám á Luther
Northwestern Theological Semin-
ary í St. Paul eins og nokkrir aðrir
prestar frá Islandi. Stofnunin
upprunalega norsk-lútherskur
prestaskóli. Kennari við þá stofn-
un, séra Daníel Sæmundsson, og
Sally kona hans eru nýlega komin
hingað vestur heim til sín eftir
ánægjulega dvöl á íslandi.
Dr. Carol Pazandak er tekin við
sinu starfi I Minnesota-háskólan-
um síðan um mánaðamótin júní/
júlí, þar sem hún er titluð „Assi-
stant to the President". Hún lætur
vel af veru sinni á Islandi þar sem
hún kenndi við háskólann i
Reykjavík frá því í janúar fram í
júní í sinu fagi sem sálfræðingur
og var líka með leiðbeiningar um
„student counseling". Nær lok
veru sinnar í Reykjavík var hringt
í hana frá Minneapolis og henni
sagt frá því að G. Peter Magrath
væri að fara um áramótin úr stöðu
sinni sem rektor háskólans hér að
taka við sama embætti í Mis-
souri-háskólanum. I heimsókn til
Islands fyrir nokkru byrjaði dr.
Magrath á nánara samstarfi milli
háskólanna í Minneapolis og
Reykjavík og heldur Carol Paz-
andak áfram með það starf sem
hún hefur lagt mikið til síðari ár-
in.
Skiptir
engu máli
Hljóm plotur
Finnbogi Marinósson
Rick Springfield
Hard To Hold — Kvikmyndatónlist.
Hver Rick Springfield er, hvað
hann hefur gert og hvaðan hann
kemur veit ég lítið um. Hann er
amerískur og ku vera dávinsæll
þar vestan hafs.
Tónlistin sem hann spilar er létt
og vandað amerískt rokk. Fyrr á
þessu ári kom út breiðskífa sem
inniheldur lög úr kvikmyndinni
„Hard To Hold“. R.S. hefur samið
bróðurpart laganna en auk hans
eiga Graham Parker, Peter Gabri-
el og Nona Hendryx sitt lagið
hvert. Lag G.P. er í hans vanalega
stíl og hvergi betra né verra en
það sem hann hefur gert áður.
Hingað til hafa margir farið á mis
við plötur hans og er það verr því
drengurinn á til dágóða spretti.
Peter Gabriel syngur lag sitt „I Go
Swimming" og passar það vel inní
plötunni. Gott lag frá góðum
dreng. Ekki veit ég nein deili á
Nonu Hendryx en R.S. hefur feng-
ið Randy Crawford til liðs við sig í
„Taxi Dancing". Saman syngja
þau ágætan dúett en lagið er rétt
eins og margir aðrir amerískir
popp-rokkdúettar, ljúft og
áreynslulaust.
Ekki held ég að plata þessi komi
til með að skipta okkur neinu
máli. Hún er ágæt svo langt sem
hún nær. I heilsteyptara lagi mið-
að við að vera kvikmyndatónlist
en hefur upp á frekar litið að
bjóða. Fyrir þá sem hafa áhuga á
að kynnast Rick Springfield má
benda á plötu hans „Success
Hasn’t Spoiled Me Yet“ en hún er
sögð vera mjög góð.
x,.....
a '
Teikniborö
Teiknivélar
Teikniskápar
Lampar á teiknivélar
Hjólaborð
ISKfflFSTDFUHUSGO^Nj
Hallarmúla 2 - Simi 83211