Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
15
Réttur
dagsins
Margrét Þorvaldsdóttir
Fréttir berast nú um byggðina af
miklum birgðum í landinu af óseldri
rtekju. Væri ekki ráð, að leyfa ís-
lenskum neytendum að njóta góðs
af offramleiðslunni i hóflegu verði.
Hér er mjög góður kínverskur
rækjuréttur, sem snara mi i borðið
i aðeins 20 mín.
Steiktar
rækjur með
grjónum
1 bolli grjón (River) ca 200 gr
250 gr rækjur (2 bollar)
Vi bolli matarolía
2 stk. egg
Vi tsk salt
pipar malaður
2 matsk. fínt niðursneidd púrra
eða 1 matsk. smátt saxaður laukur
kínversk soya
1. 250 gr. af rækjum er 1 meðal-
stór pakki af frosnum rækjum.
Látið þær þiðna. Ágætt er að láta
undir þær tvöfalda bréfaþurrku á
diski. Þær þurfa að losna við
aukavökva áður en þær eru steikt-
ar.
2. Sjóðið grjónin á hefðbundinn
hátt. (1 bolli grjón, 2 bollar vatn.
Sjóðið í 10 mín. í lokuðum potti,
látið standa í aðrar 10 mín. — ekki
á heitri hellunni.)
3. Skerið síðan niður púrruna eða
laukinn, þeytið eggin, hafið rækj-
urnar tilbúnar, salt og pipar. Haf-
ið allt til staðar áður en steiking
hefst, hún tekur aðeins nokkrar
mínútur.
4. Hitið matarolíuna í djúpri
pönnu. Steikjið rækjurnar í feit-
inni I Vi mínútu, hreyfið þær stöð-
ugt í feitinni á meðan. Bætið eggj-
unum út í og lækkið hitann í með-
alhita, hrærið stöðugt í 2—3 min.
á meðan eggin eru að steikjast.
Þau kurlast.
5. Að siðustu eru soðin grjónin
sett saman við og steikt með í 1—2
min.
Rétturinn er tilbúinn.
Áður en rækjugrjónin eru borin
á borð, er niðurskorinni púrru
dreift yfir þau. Þeir sem þekkja þá
jurt mega vera rausnarlegri, hinir
ættu að prófa sig áfram. Ef laukur
er notaður gefur bestan árangur
að halda sig við 1 matsk. og dreifa
yfir rækjurnar i steikingu áður en
eggin eru sett saman við.
Soya-sósa er nauðsynleg með
rétti þessum. Hafið hana á borð-
inu svo hver geti skammtað sér
sjálfur að vild. Fyrir þá sem lítið
þekkja til kínversks matar skal
bent á, að hér i verslunum fæst
kínversk sósa undir nafninu Chun
King og kostar kr. 29.10 glasið.
Þessi sósa er mjög mild og á vel
við þennan rétt.
Berið fram með rækjunum heitt
brauð. Smyrjið það, kryddið með
hvítlauksdufti eða laukdufti og
hitið síðan.
Verð á hráefni
Grjón (Vfe pk) kr. 10.00
Rækjur (250 gr) kr. 62.00
Egg 2 stk. kr. 14.00
Púrra (lítil) kr. 14.00
Brauð kr. 20.00
Halda til Frakk-
lands og gera upp
gamlan kastala
„Hvað finnst ykkur svona
merkilegt við þaö, aö tvö ung-
menni skuli ætla sér aö dvelja í tvo
minuöi í Evrópu? Viö héldum að
það væri ekkert fréttnæmt við
það,“ sögðu Elín Björg Ingólfsdótt-
ir, 21 irs gamall nýstúdent, og
Gunnar Berg Gunnarsson, 23 ira
gamall múrari, bæði fri Akureyri,
þegar Mbl. leitaði frétta hji þeim
af fyrirhugaðri ferð þeirra til
Frakklands og víðar í Evrópu, en
þar munu þau m.a. ætla sér að
vinna við endurbyggingu og við-
hald i kastalanum de Portes, sem
er í Suður-Frakklandi við Cév-
ennes-fjöll, en þar mun vera mesta
veðursæld í Frakklandi.
Kastalinn var reistur á 14., 15.
og 16. öld og það eru samtök i
Frakklandi, sem sjá um viðhald
og endurbyggingu á honum
ásamt fjölda annarra fornra
bygginga. Samtök þessi nefnast
REMPART og á hverju ári
skipuleggja þau vinnu á um 150
stöðum víðs vegar um Frakkland
og vinna á vegum samtakanna
um 3.000 sjálfboðaliðar á hverju
ári, víðs vegar úr heiminum.
„Upphafið að þessari ferð
okkar má rekja til þess, að móð-
ursystir min, Steinunn F. Le-
Breton, býr í Frakklandi, og eftir
stúdentspróf skrifaði ég henni
og spurðist fyrir um atvinnu-
möguleika fyrir okkur Gunna i
Frakklandi i sumar. Okkur lang-
aði að flakka eitthvað um Evr-
ópu i sumar og höfðum hug á að
lengja dvölina eitthvað með þvi
að fá okkur atvinnu um tíma,“
segir Elín. „Eftir töluverðar
bréfaskriftir varð það úr að
okkur leist best á þennan stað af
mörgum sem til greina komu.
Við vitum í sjálfu sér ekki mikið
um hvað það er sem við eigum að
gera, en þarna mætist til sjálf-
boðavinnu ungt fólk viðs vegar
úr heiminum, og er þetta þá ekki
ein besta leið, sem hægt er að
hugsa sér, til þess að kynnast
ólíkum viðhorfum og blanda geði
við fólk af ólikum uppruna? Það
finnst okkur að minnsta kosti.“
Endurbyggingarvinna við
kastalann stendur yfir i júli og
ágúst og eftir að vinnu þar lýkur
munu þau Elín Björg og Gunnar
ætla sér að flakka eitthvað um
Evrópu fram til 25. september.
Þau höfðu góð orð um það að
leyfa lesendum Mbl. að frétta
nánar af sumarvinnu sinni ein-
hvern tíma i ágústmánuði.
FYRIR
FRÍIÐ
Topp jogging-gallar,
æfingagallar, sportskór,
sporttöskur c.fl.
Opið
á föstudögum til kl. 19.00
laiainWeil
-sportbúöin
Ármúla 38, sími 83555
——
Flordia frotte jogging-gallí
Toppefni, st. XS—XL, grór, ráuöur, bordo.
jr .Jp" y* I" Verö 2.508. ■
Pessuiti göilum mælum vtó meö.
Ef|um einnig til ódýrari jogging-galU
í ötlum stæröum og litum
i
Alls
kr. 120.00