Morgunblaðið - 02.08.1984, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
Bandaríkin unnu
sveitakeppnina
í fimleikum!
— í fyrsta skipti í áttatíu ár
KEPPNI er nú lokiö i sveita-
keppninni í fimleikum og öllum á
óvart þá sigraöi sveit Bandaríkj-
anna í karlaflokki og er þetta í
fyrsta sinn ( áttatíu ár sem
Bandaríkjamenn sigra í þeirri
keppni. Þeir tæplega 10.000
áhorfendur sem fylgdust meö
síöustu keppnisgreinunum í fim-
leikunum stóðu allir og öskruöu
„USA, USA“ og minnti stemmn-
ingin einna helst á úrslitaleikinn í
íshokkí áriö 1980 milli Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna.
Bandaríska sveitin sigraði eins
og áöur sagöi í keppninni, hlaut
591,40 stig en Kínverjar uröu
næstir og hlutu þeir 590,80 stig. f
þriöja sæti varö sveit Japan meö
586,70 stig. Bandaríska sveitin
haföi naumt forskot áöur en
keppni hófst síöasta daginn og
henni tókst aö halda forustunni allt
til loka undir miklum hvatningar-
ópum áhorfenda, en þessi íþrótta-
grein hefur veriö einokuö af Asíu-
þjóöum og ríkjum frá Austur-
Evrópu.
Dómarar í keppninni gáfu alls
sjö sinnum hæstu einkunn sem
hægt er aö fá fyrir æfingar í svelta-
keppninni, 10,0 og fengu þrír
Bandaríkjamenn þessa ágætis-
einkunn, þrír Kínverjar og einn
Japani. Mitch Gaylord í hringjum,
Bart Connor á tvíslá og Tim Dagg-
er á svifrá fengu tíu fyrir Bandarík-
in. Kínverjarnir sem fengu tíu voru
þeir Tong Fei og Li Ning sem
kepptu í hringjum og Lou Yun í
stökki. Japaninn Shinji Morisue
fékk einnig tíu í einkunn en hann
keppti á svifrá.
Þeir sem kepptu fyrir hönd
Bandaríkjanna í sveitakeppninni
voru þeir Bart Conner, Tlm Dagg-
er, Mitch Gaylord, James Hartung,
Scott Johnson og Peter Vidmar.
Morgunblaötó/ Símamynd AP.
• Jinging Lu frá Japan fagnar hór eftir aö hafa akoraö glæsilega
körfu í leik Japans og Frakklands sem þeir unnu 85:83 og þaö var
einmitt Lu þessi sem skoraði sigurkörfu Japana þegar skammt var
eftir af leiknum. Frakkar fengu þó tækifæri til aö jafna en þeim
tókst það ekki og liö Japans fagnaöi því sigri í leiknum. Þaö er
Frakkinn Philippe Szanviel sem fylgist hér vonsvikinn meö fögnuöi
Lu.
„Sorglegur endir á
stórkostlegum leik“
— sagði Þorbjörn Jensson fyrirliði landsliðsins
Los Angeles, 1. ágúst. Frá Svelnl Svelnssynl, fréttamannl Mbl.
„ÞETTA var sorglegur endir á
stórkostlegum leik,“ sagöi Þor-
björn Jensson, landsliösfyrirliöi
íslands í handknattleiknum, í
samtali viö Mbl. um leikinn við
Júgóslava.
„Ég er mjög ánægöur meö leik-
inn aö undanskildum siöustu mín-
útunum — sem voru hræöilegar af
okkar hálfu. Ég átti ekki von á aö
byrjunin yröi svona góö, en eftir
fyrri hálfleikinn (12:8) var ég
hræddur um aö viö myndum tapa
Hörð keppni verð-
ur í spjótkastinu
Loe Angeles, 1. ágúst. Fri bórarni Ragnsrssyni, blaéamannl Morgunblaðsins.
Undanúrslitin f spjótkasti fara
fram hér í Los Angeles á laugar-
dag. Keppnin hefst kl. 10 aö
morgni og fá kastararnir þrjú
köst. Þeir sem kasta yfir 83 metra
fara í úrslitakeppnina daginn eft-
ir.
Einar Vilhjálmsson hefur sagt aö
hann muni aöeins nota eitt kast og
á hann aö vera nokkuö öruggur
um aö komast i úrslitin, en stóra
spurningin er hvernig honum kem-
ur til meö aö ganga í keppni viö
bestu spjótkastara heims á sunnu-
deginum. Flestir spá Bandaríkja-
manninum Tom Petranoff sigri en
hans besti árangur í ár er 93,68
metrar. Landi hans, Duncan At-
wood, hefur kastaö 93,43 metra i
ár. En þaö eru fleiri en Bandaríkja-
mennirnir sem gætu komist á
verölaunapallinn.
Finnar eiga mjög góöa spjót-
kastara og sá besti þeirra, Raimo
Manninen, hefur kastaö 92,42
metra í ár. Þá er Vestur-Þjóöverj-
inn Klaus Tafelmeier mjög sterkur
um þessar mundir og hefur marg-
oft kastaö 90 metra en besti
árangur hans er 90,10 metrar.
Hann er mjög jafn kastari. Þá eiga
Svíar góöan spjótkastara, Eld-
enbrink aö nafni, og hefur sá kast-
aö 90,06 metra. Af þessari upp-
talningu má sjá aö Einar fær haröa
keppínauta. Einar náöi sínum
besta árangri, 92,40 metrum, á
bandariska háskólameistaramót-
inu og stóra spurningin er hvort
hann hafi fariö of snemma á topp-
inn eöa hvort honum hefur tekist
meö ströngum æfingum aö finna
út rétta daginn og vonandi verður
sú raunin og aö allt springi út hjá
honum á réttu augnabliki — á
sunnudaginn kemur.
A Ólympíuleikunum í Moskvu
vannst spjótkastskeppnin á 91,20
metrum, en sigurvegarinn varð
Kula frá Rússlandi. Heimsmetiö í
greininni á Uwe Hohn, Austur—
Þýskalandi, sem ekki keppir hér í
Los Angeles, en hann kastaöi á
dögunum 104,80 metra.
Bandaríkjamenn:
Komu á óvart
í handboltanum
Los Angslm, 1. ágúét. Frá Þórarni Ragnsrmyni, blaðamanni Morgunblaðaina.
Bandaríkjamenn komu mjög á
óvart gegn Vestur-Þjóöverjum (
landsleik þjóöanna ( handbolta
hér á leikunum (gær. Þegar fimm
mínútur voru til leiksloka höföu
Bandaríkjamenn forustu 18:17.
Bandaríska liöiö lék góðan hand-
bolta, sterka vörn og hefur fariö
mikið fram. fslendingar eiga enn
nokkuö góöa möguleika á ööru
sæti ( riölinum, ef þeir vinna
Sviss, Japan og Alsír þá ræöur
markahlutfallið — veröi liðiö jafnt
aö stigum ( 2. til 3. sæti ásamt
Júgóslövum eins og margt bendir
til. Stórsigur Sviss á Japan kom
nokkuö á óvart, en Sviss sigraói
20:13.
Þorbjörn Jensson
forskotinu niöur í byrjun seinni
hálfleiks, eins og svo oft hefur
gerst áöur, en viö héldum foryst-
unni — vorum allir í góöu formi —
fram á síöustu mínútu. Þá fór allt í
vitleysu hjá okkur — þá komu
Júgóslavarnir fram í vörninni, —
og þaö var hryllilega svekkjandl aö
sjá á eftir ööru stiginu," sagöi
Þorbjörn.
Eftir leikinn sást á myndbandi
aö vendiþunktur var í leiknum er
Þorbjörn var sendur í baö — úti-
lokaöur frá frekari þátttöku í leikn-
um — og sást óöryggi og hræösla
hjá leikmönnum, sem eflaust átti
sinn þátt í slæmum lokamínútum.
íslendingar voru einum færri í
samtals tíu mínútur af leiknum og
fengu þeir 3 víti á móti 9 vitum
Júgóslava. Svíar er sáu leikinn
sögöust ekki vilja lenda á móti fs-
lendingum i þessum ham.
Aframhaldandi
sigurganga
Bandaríkjamanna
Los Angslss, 1. égúsl. Frá Þðrsrni Rsgnarssyni, blaðamsnni Morgunblaðsins.
Sigurganga bandarísku
íþróttamannanna á Ólympfuleik-
unum heldur áfram. Þeir hafa
hlotiö sextán gullverölaun, ajö
silfurverölaun og ein bronsverö-
laun þegar keppt hefur verið (
þrjá daga.
Bandaríkjamenn hafa mikla yflr-
buröi í sundi og síöan kom landsliö
þeirra í fimleikum mjög á óvart (
gær er þaö sigraöi heimsmeistara
Kínverja í liöakeppninni. Sigurlnn
var aö vísu naumur en sigur engu
aö síöur. Þetta er i fyrsta skipti i 52
ár sem Bandaríkjamenn vinna gull-
verölaun í liöakeppni ( fimleikum
og var gífurlegur fögnuöur yfir
þessum óvænta sigri.
Iþróttafólk Kfna hefur unnið til
ellefu verölauna á leikunum og
hefur frammistaöa þelrra vakiö
mikla athygli. Þeir eiga án efa eftir
að bæta mörgum verölaunum í
safn sitt. Áhuginn á Ólympíuleikun-
um er sífellt aö aukast hér f Banda-
ríkjunum, frá því snemma á
morgnana þar til langt fram á
kvöld er ABC-sjónvarpsstööin
meö beinar útsendingar frá hlnum
ýmsu greinum og í könnun sem
gerð var kom í Ijós aö þrír af hverj-
um fimm Bandaríkjamönnum fylgj-
ast meö leikunum. Þá hefur eftir-
spurn eftir miöum aukist gífurlega
en þaö er svo til alveg sama hvaöa
keppnisgrein er um aö ræöa —
alls staöar eru áhorfendastæöin
þéttsetin og fjölmargir fylgdust t.d.
meö landsleik islands og Júgó-
slava.