Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
3
Íslenskír Aðalverktakar:
70 mönnum
var sagt upp
Óvíst hvort til uppsagnanna
kemur, segir framkvæmdastjórinn
Sjötíu starfsmönnum íslenskra
aöalverktaka á Keflavíkurflugvelli
hefur verid sagt upp störfum frá og
meö 1. október og þrjátíu starfs-
mönnum verður sagt upp í septem-
ber.
Að sögn Thors ó. Thors, fram-
kvæmdastjóra íslenskra aðal-
verktaka, er með öllu óvíst hvort
þessar uppsagnir koma til fram-
kvæmda, en eins og nú er ástatt er
ekki ljóst hvort næg verkefni eru
framundan. Kvað hann samt ekki
ástæðu til örvæntingar þvi svona
lagað hefði hent áður fyrir nokkr-
um árum en þá hefðu þeir, sem
sagt var upp, verið ráðnir aftur án
þess að hafa misst úr vinnu.
Aðspurður um hvort þessar
uppsagnir stæðu i einhverju sam-
bandi við þá ákvörðun stjórnvalda
að hætta við byggingu flugskýl-
anna á flugvellinum sagði Thor
það ekki vera en kvað ástæðuna
vera þá að ekki lægi fyrir hvort
Islenskir aðalverktakar fengju
fleiri verkefni i bráð og þvi væri
ástæðulaust fyrir þá að sitja uppi
með fleiri starfsmenn en nauð-
synlegt væri. Hann sagðist þó bú-
ast við að með haustinu færu lin-
urnar varðandi ný verkefni að
skýrast og vonandi yrði ljóst áður
en uppsagnarfresturinn rynni út
hvort segja þyrfti þessu starfs-
fólki upp eða ekki.
Nýr sveitar-
stjóri ráðinn
Sigurdur Valur Ásbjarnarson, bygg-
ingartreknifræðingur, hefur verið ráö-
inn sveitarstjóri í Bessastaðahreppi frá
og með 1. ágúst Sigurður hefur starfað
sem byggingarfulltrúi og tæknimaður
við bæjarfélagið undanfarin tvö ár.
Umsækjendur um starf sveitar-
stjóra voru 15, en jafnframt hafa
verið auglýst laus til umsóknar störf
tæknimanns hreppsins og veitu-
stjóra.
Dræmt í Langá.
f GÆR VORU komnir um 430
laxar á land úr Langá á Mýrum og
er það heldur döpur veiði miðað
við hvað sú á hefur best gert. Á
neðstu svæðunum, Langárfossi og
Ánabrekku, höfðu 260 laxar
veiðst, um 120 á miðsvæðunum,
Jarðlangsstöðum, Stangarholti,
Hvítstöðum og Háholti, loks um
50 fiskar af efsta svæðinu fyrir
löndum Grenja og Litla-Fjalls.
Að sögn Ingva Hrafns Jóns-
sonar fréttamanns og veiðirétt-
areiganda hafa veiðst um 10
merktir smálaxar sem eru úr
seiðasleppingum frá síðasta
sumri og eru þeir aðeins 3—4
pund, eða mun smærri en jafn-
aldrar þeirra sem veiddust í
fyrra. Nokkuð hefur veiðst af
stórum laxi í Langá og hafa
margir þeirra verið merktir, af-
rakstur seiðasleppinga úr haf-
beit 1982 eins og frá hefur verið
greint í Mbl. Annars er meðal-
þunginn ekki hár fremur en
endranær i Langá og sem fyrr
segir hefur smálaxinn verið
sannkallaður smálax, iðulega
2—4 punda. Sagði Ingvi það láta
nærri að það veiddust 10 til 15
laxar dag hvern í ánni allri og
útlitið væri ekki eins dökkt og
margir hefðu viljað vera láta,
því Langá hefði löngun verið
sein til og eftir væri allur ágúst
og hálfur september.
Smálax að ganga í
Laxá í Aðaldal
VEIÐI hefur verið viðunandi í
Laxá í Aðaldal það sem af er og
að sögn Jóhönnu Pálsdóttur í
veiðiheimilinu Vökuholti á Laxa-
mýri voru 709 laxar komnir á land
í morgun. „Þetta er yflrleitt held-
ur rólegt, en svo koma dagar þeg-
ar veiðin sprettur upp. í raorgun
komu fimm fiskar á land,“ sagði
Jóhanna.
Talsverð smálaxagengd hefur
verið neðst í ánni síðustu daga,
þannig veiddi ólafur Ágústsson
Veiði hefur verið köflótt í Veiði-
vötnum á Landmannaafrétti f
sumar eins og gengur, stundum
hafa komið hrotur en minna veiöst
á milli. Á meðfylgjandi mynd eru
tveir kappar með stórvæna urriða
úr Litla-Breiðavatni. Þetta eru
rúmlega 6 punda fiskar.
7 laxa fyrir neðan Æðarfossa
29. júlf og voru flestir smáir. í
morgun veiddust slíkir laxar
bæði í Bjargstreng og Mjósundi.
Stærsti laxinn var 20 pund og
veiddist í Kistukvísl. Meðal-
þunginn nyrðra er enn mjög
góður, en hefur minnkað eilítið
með fjölgun smálaxa á svæðinu.
FERÐANESTI
ðöv' <SB£3t.
"VornaUö.
*C svepPorn’
ft6'sK
?úiöápö^una-
kt>9-
Sam'oKurn sa\at, 2*
r*klusal-
saiat, amerrsK
33 "■9*-
W stK
„c t00W KQ-
I2S0W-W-
S\\datsaW
kg-
■"'S,"""»*•■ i
b'andaö
itaWót.
vepP^’ lauK.
Mjög gott marineraó
lambakjöt í grillið:
Kryddlegnar grillkótelettur 215 kr. kg.
Marineraöar lærissneiöar 238 kr. kg.
Framhryggssneiöar 238 kr. kg.
Lado-lamb, úrbeinaö læri 295 kr. kg.
Lado-lamb, hryggur m/beini 210 kr. kg.
Grillpinnar 355 kr. kg.
Urvals nautakjöt
Okkar tilb.
375.00
327.00
490,00
347,00
192,00
Skráö verð
608.00
487,00
709,70
590,00
325,50
26 kr. pr. stk.