Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984 GaU steypt á Akranesi. Morgunblaíia/Jón Gunnlaugsson. J|in nýja heimavist Fjölbrautaskólans, sem tekin verður í notkun í haust. Miklar framkvæmdir á vegum Akranesbæjar: Götur steyptar í fyrsta sinn í mörg ár í sementsbænum Akranexi, 30. júlí. MIKLAR framkvæmdir hafa sUðið yfir hjá Akranesbæ nú í sumar og ber þar hæst framkvæmdir við gatnakerfi bæjarins en nokkrar ^ötur verða steypUr á þessu sumri. A undanförn- um árum hefur nær eingöngu verið lagt malbik eða olíumöl á göturnar. Þær götur, sem steyptar verða í sumar, eru Einigrund og Vallar- braut en við þær götur eru nær eingöngu fjölbýlishús og búa þar nær 500 manns. Auk þeirra verður Innnesvegur einnig steyptur en hann er um 450 m að lengd. Fyrr- nefndu göturnar tvær eru alls 458 m, þannig að steyptir verða alls röskir 900 m á þessu ári. Við steypuvinnu á götunum er unnið samkvæmt tilboði frá Þorgeir & Helga hf. og sjá þeir um mótun á götunum og stillingu niðurfalla, en steypuvinna er unnin í samráði við bæjarstarfsmenn. Akranesbær er búinn að koma sér upp þjálfuðum mannskap i steypulagningu. Tækjabúnaður þeirra er mjög einfaldur og auð- veldur í notkun en starfsmennirnir sjálfir hafa hannað hann. Jafn- framt þessu verða væntanlega lagðar gangstéttir við þessar götur og verða þær einnig steyptar. Alls lætur nærri að steyptir verði um 2.500 m* af gangstéttum en um 8.000 m2 af götum en steypuþykkt þeirra er 12—18 cm. Af öðrum gatnagerðarframkv- æmdum sem unnið er að má nefna að búið er að undirbyggja um það bil 500 m langa götu á Breiðinni, en þar munu væntanlega rísa hús tengd fiskverkun til viðbótar þeim sem fyrir eru. í nýjasta bygginga- hverfi bæjarins, Jörundarholti, verður haldið áfram uppbyggingu. Akurnesingar eru enn nokkuð vel birgir af lóðum í því hverfi. Rólegt er yfir byggingaframkvæmdum nú sem stendur, enda hefur aðeins verið úthlutað 8 einbýlishúsalóðum það sem af er þessu ári. Aætlað er að Jörundarholt fullnægi eftir- spurn eftir lóðum næsta árið, en eftir það verður að taka ný svæði til skipulagningar. Brekkulækjar- skóli stækkaöur Hafnar eru framkvæmdir við stækkun Brekkulækjarskóla en vegna mikilla þrengsla í skólanum var sú framkvæmd orðin mjög brýn. Alls er grunnflötur nýju byggingarinnar 786 m2 að stærð og er stefnt að því að byggingin verði fokheld nú í haust. Heimavist fjöl- brautaskólans í haust verður tekin í notkun ný heimavist fyrir fjölbrautaskólann. Er það aðeins hluti af því sem koma skal þvi aðeins verður f fyrstu tekin i notkun önnur hæðin af tveim. Alls eiga 64 nemendur að geta búið þar og batnar þá mjög aðstaða aðkomunemenda skólans. Heimavistin er byggð að mestu úr forsteyptum einingum, líkt og verknámshús skólans, sem tekin voru í notkun árið 1982. íþróttamannvirki við Jaðarsbakka Samþykkt hefur verið í bæjar- stjórn að hefja byggingu iþrótta- miðstöðvar við Jaðarsbakka. í þessari miðstöð er áætlað að gera laug og hafa búningsaðstöðu og einnig íþróttasal af fullri stærð. I fyrsta áfanga verður lögð mesta áhersla á byggingu laugarkars, sem verður steinsteypt og 25 m langt og breidd þess 12,5 m. Bún- ingsaðstaða verður í sömu bygg- ingu og vallarhúsið er nú, en verður stækkuð mikið. Auk búningsað- stöðunnar er gert ráð fyrir rými fyrir félagslega aðstöðu og annað tilheyrandi. fþróttabandalag Akraness mun sjálft standa að byggingu íþrótta- salarins. Heilsugæslustöð Hafnar eru framkvæmdir við byggingu heilsugæslustöðvar við Sjúkrahús Akraness. Unnið er að jarðvegsskiptum og síðan er áætlað að í fyrsta áfanga verði grunnur byggingarinnar fullgerður. Aðrar framkvæmdir Verið er að byggja þjónustuibúð- ir fyrir aldraða við dvalarheimilið Höfða. Fyrsti áfangi er núna full- búinn og standa vonir til að flutt verði í fbúðirnar nú í haust. Ákveð- ið er að halda áfram byggingu þjónustuíbúða og verða lfklega byggðar 8—10 íbúðir í næsta áfanga og munu framkvæmdir hefjast fljótlega. Ýmis fyrirtæki eru að byggja yfir starfsemi sína og má þar nefna að 7—8 fyrirtæki hafa tekið sig saman og byggja yfir sig í svokölluðum iðngörðum og er þar um að ræða nokkur smærri fyrirtæki. OLÍS er að hefja byggingu á nýrri bensín- og olíustöð við Kal- mansbraut. Vélaleiga Birgis Hann- essonar hefur að mestu lokið við byggingu 800 fermetra húss undir starfsemi sina og sömuleiðis Trésmiðjan Jaðar, svo nokkrir séu nefndir. — JG Vjdterum komin i eina sæng
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.