Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 58
58 M0RGUN6LAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGCST 1984 „HamngícM. 5anna,í j-lún seg'ir c£é> í ruesta mdnabi iaki eg <6oo Kr A/rir heimAÓkn'tna./' 3.-2. c 1984 llniveftal Press Syndicate Þé glasió heiti viskýglas þá er h«gt að drekka vodka úr því, viss- ir þú það ekki? HÖGNI HREKKVtSI HVEKNIö VAfZ UÁMSKEIP'P 1 HJ/^LP / i/iPLÖúOMr" Bréfrítari er ekki allskostar ánægður með nýjar reglur sem settar hafa verið varðandi umgengni í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Um þjóðgarðinn á Þingvöllum Júlíana G. Bender skrifar: „Kæri Velvakandi. Ég spyr: Hver á þjóðgarðinn á Þingvöllum? Ég hef alltaf haldið að hann væri sameign þjóðarinn- ar, hingað til hef ég ekki haft ástæðu til að láta mér detta annað i hug. Við hjónin eigum mjög oft leið um þjóðgarðinn, því við erum í hópi þeirra heppnu sem eiga hús- kofa til að dvelja í þegar tími leyf- ir, svo við þurfum engan að ónáða. En það hefur svo sannarlega glatt augað að sjá allt þetta unga og glaða fólk að leik með börnum sín- um þarna á flötunum. Við höfum oft á vorin haft það að leik að geta okkur til um hvað mörg hjólhýsi eða tjaldvagnar væru komnir á sinn stað. Okkur hefur hlýnað um hjartarætur við að horfa á allt fólkið njóta þessara fáu sólskins- daga, sem guð gefur okkur að ég held algerlega hlutdrægnislaust, hvort sem um er að ræða Jón eða séra Jón. Þarna hafa foreldrar gengið með börnum sínum og kennt þeim að ganga vel um og láta sér þykja vænt um staðinn. Þau hafa sjálf- sagt horft með tilhlökkun til næsta sumars, er þau skyldu við staðinn sl. haust, og ekki gátum við hjónin séð að um óeðlilegar skemmdir eða rask á svæðinu væri að ræða, af völdum þessa fólks. Við höfum heyrt að þarna hafi átt að vera um óhóflega vinneyslu að ræða, en aldrei höfum við séð merki þess. Það má vel vera að einhverjir hafi átt flösku en þeir hafa þá farið vel með vínið, og ekki er síður um slikt að ræða hjá þeim sem búa í tjöldum og eru barnlausir. Margt af þessu fólki hefur varið stórfé til kaupa á hjólhýsum eða tjaldvögnum, i þeirri góðu trú að geta notið sumarsins á þessum fagra stað. En hvað skeður? Allt í einu heyrum við það ótrúlega, að ekki sé leyft lengur að skilja þessa hluti eftir yfir sumarið, eða á milli helga. Fólki er sem sagt ætlað að flytja hjólhýsi sin og tjaldvagna með sér fram og aftur um hverja helgi. Þessu neita ég hins vegar að trúa. Hver ætlar að taka ábyrgð á slíkum flutningum? Mér hefur nú ekki fundist ís- lenskt vegakerfi bjóða upp á of mikið álag. Nóg er vist samt um framúrakstur og rúðubrot. Hætt er við að margir yrðu óþolinmóðir og reyndu að komast fram úr lest hjólhýsa úti á vegum og ekki er víst að allir slyppu eins vel og Jón- as og fjölskylda forðum, þó að það gengi nú á ýmsu í hjólhýsinu hjá þeim. Eitt langar mig til að spyrja um: hvenær var farið að leyfa hrossabeit í þjóðgarðinum? Við höfum oft séð fjölda af hestum á beit inn um allar flatir. Ekki hefði ég nú haldið að þeir skyldu betur við staðinn en börnin. Mér er kunnugt um að fólk hefur þurft að greiða fyrir að fá að dvelja á staðnum, og mér dettur svona í hug að kannski mætti bæta eitthvað hugsanlegar skemmdir með því fé. Hvað umgengnina snertir, þá höfum við þjóðgarðs- vörð til að hafa auga með henni. Ég tek það hér fram að ég hef enga persónulegra hagsmuna að gæta, hef hvorki verið með hjól- hýsi, tjald eða tjaldvagn i þjóð- garðinum. Óskiljanlegir hleypidómar Þorleifur Kr. Guðlaugsson skrif- ar: Heiðraði Velvakandi. Hleypidómar Alþýðubandalags- ins og Þjóðviljans eru verðugir rannsóknar. Nú skamma þeir Davíð Oddsson borgarstjóra allt hvað af tekur fyrir útboðið á lóð- unum i Stigahlið sem seldar voru hæstbjóðendum. Þeir halda þvi fram að borgar- stjórinn hafi ætlað að halda verð- inu leyndu, því fljótlega var það á flestra vitorði, en hefðu alþýðu- bandalagsmenn grafið það upp með leynd, hefðu þeir örugglega hælt sér af þvi. Nú er það einu sinni þannig, að ef rétt væri farið með staðreyndir, en það gera all- aballarnir sjaldan, þá mættu þeir vera borgarstjóra þakklátir fyrir að ná þarna inn peningum til borgarsjóðs og í félagsþjónustuna þeirra elskulegu, sem alltaf er misnotuð og mætti rekja mörg dæmi þess. Þeir mættu dáðst að borgar- stjóranum okkar fyrir að ná sér rækilega niður á skattsvikurunum með svona klókindalegu bragði. Var það ekki gott hjá Davíð? Skattsvikarar hafa löngum verið uppáhaldsumræðuefni Þjóðvilja- manna og ættu þeir nú að sanna sitt mál, því fyrr trúi ég þeim ekki. Ef hægt er að svíkja undan skatti, er það álagningarkerfinu að kenna. Ég spyr því: Er það kannski lygi að menn sem eiga innistæður í bönkum, þurfa ekki að greiða skatta af þvi? Er það þá bara til að tæla fólkið til að telja fram innistæður sínar og læðast svo aftan að því og láta það greiða skatta tvisvar af peninum sem það hefur sparað? Þetta væri skiljan- legt undir stjórn Alþýðubanda- lagsins, sem engum getur unað að eiga peninga. Það er lítilmótlegt að vera með heiftarlegar árásir á fólk sem sparar, því öðruvísi verður þetta ekki skýrt, þar til annað verður sannað. ÞjóðViljamenn þykjast hafa borið saman útsvör þessara manna, sem keyptu lóðirnar, í skattaskránni og fundið aðeins lít- il útsvör eða engin. Eftir því dæma þeir síðan. Ekki hefur þetta farið mjög leynt, en þeir grípa um- svifalaust til heiftarlegra árása á saklaust fólk. Það er áhugavert að rannsaka hugsunarhátt Þjóðviljamanna því margt undarlegt kemur fram í dagsljósið ef grannt er skoðað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.