Morgunblaðið - 02.08.1984, Síða 5

Morgunblaðið - 02.08.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984 5 „Unnt að greina sjúkdóm- inn um tveimur árum áður en einkenni koma í ljósu — segir Steinunn Bækkeskov, lífefnafræðingur, sem hefur gert merka uppgötvun í baráttu gegn sykursýki. _ »l|t tó treimur inun einkenni kom» 1W* Zrg?> Wur en «njnle« e,- ÍSLENSK kona, Steinunn Bækkeskov, sem búsett er í Danmörku, hefur vakið mikla athygli vegna uppgötv- unar sem hún og sam- starfsmenn hennar á Hage- dorn-rannsóknarstofunni í Kaupmannahöfn hafa gert. llppgötvun þeirra hefur gert kleift að sjá hvort einstakl- ingur er haldinn sykursýki a.m.k. tveimur árum áður en einkenni sjúkdómsins koma í Ijós. „Það hefur verið vitað í nokkur ár, að áður en fólk verður sykur- sjúkt hefur það í blóði sínu mót- efni gagnvart þeim frumum sem mynda insúlín," sagði Steinunn þegar blm. sló á þráðinn til henn- ar til að fræðast um uppgötvun þessa. „Þessi mótefni hafa hingað til verið fundin á þann hátt að vitað hefur verið að þau bindast yfirborði frumanna. Hins vegar hefur ekki verið vitað áður gagn- vart hvaða eggjahvituefnum þessi mótefni eru. Það sem við fundum hins vegar núna er að þetta er eggjahvítuefni sem situr á yfir- borði frumanna sem mynda insúl- ín. Þegar við erum nú búin að finna eggjahvítuefnið getum við notað það til að mæla mótefni i blóði hjá fólki sem hefur tilhneig- ingu til að fá sykursýki. Ég á þá fyrst og fremst við það fólk sem fær hættulega sykursýki, þ.e. þarf að fá insúlín á hverjum degi. Það er ekki sú sykursýki sem fólk fær þegar það er tekið að eldast og oftast er hægt að ráða við með sérstöku mataræði og lyfjagjöf." Sykursýki er tvenns konar, ann- ars vegar sykursýki sem fólk fær oftast á unga aldri og stafar af því, að þær frumur sem mynda insúlín eru ónýtar. Insúlín er lík- amanum nauðsynlegt og er þessi tegund sykursýki því lífshættuleg. Hin tegund sykursýki kemur yfir- leitt ekki fram hjá fólki fyrr en það hefur náð nokkuð háum aldri. Sú sykursýki stafar ekki af þvi að líkaminn geti ekki framleitt insúl- ín, heldur af því að frumurnar i likamanum geta ekki notfært sér það. Með hollu mataræði og lyfja- gjöf er því unnt að lifa eðlilegu lífi, þrátt fyrir sykursýkina. — Hvers vegna eyðileggjast frumurnar, sem mynda insúlin? „Fyrir nokkrum árum fór menn að gruna, að það stæði í sambandi við skekkju í mótefnakerfi likam- ans, þannig að það myndast allt i einu mótefni, sem ráðast á eigin frumur i stað þess að ráðast gegn ókunnum efnum, sem komast inn i líkamann," svaraði Steinunn. „Það hafa síðan komið fram sifellt fleiri sannanir sem styðja þessa tilgátu. Við á Hegedorn-rannsóknarstof- unni fundum siðan þetta sérstaka eggjahvítuefni á yfirborði frum- anna sem mynda insúlín og getum nú mælt mótefni í blóðinu. Hættu- lega sykursýkin gengur mikið i ættir og ef einstaklingur hefur sérstaka vefjategund eru líkur á því að hann fái sjúkdóminn. Eftir nokkur ár, og ég vil leggja áherslu á að þetta tekur langan tima, ætti því að vera unnt að taka blóðsýni úr einstaklingum með þessa vefja- gerð og mæla hvort likaminn myndar þessi mótefni. Ef slíkt uppgötvast nógu snemma, þá verður unnt að beita lyfjum til að hemja mótefniskerfið." Steinunn sagði enn fremur, að gerðar hefðu verið tilraunir með rottur og hefðu þær sýnt að 80—90% dýranna fengju sykur- sýki þegar þau væru 60—80 daga gömul. Rotturnar hefðu hins veg- ar verið farnar að mynda mótefni þegar þær voru milli 12—20 daga gamlar. Það hefði sannað að eyði- legging frumanna hefst mjög snemma en langur timi liður þar til einkenni koma i ljós. Steinunn Bækkeskov lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1968 og hélt siðan til Kaupmannahafnar þar sem hún lagði stund á lifefnafræði. sasssssts >u “u,n , , r,nn» elnio. 'TSZJsíz 'iTJSÍ W* ■t*1 M6N **'***. *? ^ttu »6 »•«*• **V urúákur hlAterufu ■ maaí k»n> ’•““' \7i, M- *•* ‘ Frétt Morgunblaðsins 24. júlí sl. um uppgötvun Hagedorn-hópsins, sem Steinunn Bækkeskov tilheyrir. -60% afsláttur stendur sem hæst í sex verslunum samtímis. Tækifæri til að fá topp sumarvörur um há- sumar. Laugavegi 66 — Austurstræti 22 — Glæsibæ. Sími frá skiptiboröi 45800. Bonaparte ^SWffl® GARBO tjfe JL Austurstræl, 22 , _ Laugavegi 30.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.