Morgunblaðið - 02.08.1984, Page 16

Morgunblaðið - 02.08.1984, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984 Köfun niöur í flak Pourquoi pas? lokið: Fundur vélsímans sann- aði framburð skipbrots- manns 48 árum seinna Leidangursmenn höfðust við f tjöldum f Stranmfirði, þegar þeir voru við vinnu þar. Þeir urðu þó að flytja bækistððvar sínar til Akraness vegna rigningar. HÓPUR Frakka hefur dvalist hér á landi undanfarinn mánuð við gerð heimildarkvikmyndar um frönsku rannsóknarskútuna Pourquoi pas?, sem fórst í fárviðri út af Mýrum árið 1936. Skútan, sem var undir stjórn vísindamannsins dr. Charcot, var að koma úr leiðangri til Norðurskauts- ins í september það ár og hafði orðið of sein fyrir. Veður voru orðin slæm og endaði förin því með skipbroti við Mýrar. Aðeins einn skipverja komst lífs af og er haft eftir honum, að það síðasta er hann mundi var að skút- unni var skyndilega sveigt á stjórn- borða, í tilraun til að komast hjá strandi. Jean-Yves Blot er leiðangurs- stjóri kvikmyndamannanna. Hann sagði leiðangursmenn hafa komið hingað til að gera heimild- armynd um líf og starf dr. Charc- ot, sem var virtur vísindamaður. Þeir hefðu haldið að flak skútunn- ar væri á vísum stað því íslenskir kafarar hefðu nokkrum sinnum kafað niður að þvi, sfðast 1962. Það hefði þó tekið þá 4 daga að finna flakið, þvf fyrst hefðu þeir alltaf leitað að því við rangan klett. Eftir leiðbeiningum ís- lenskra kafara fundu þeir flakið síðan um einn kílómetra frá öðr- um kletti og síðan hefðu þeir kaf- að oft niður að þvf og fundið marga gripi. Má þar nefna kýr- augu, koparbolta, riffilskot, við- arbúta og vínflöskur. „Athyglis- verðasti gripurinn sem við fund- um er eins konar „svarti kassi“ skútunnar, þ.e. vélsíminn,“ sagði Maria-Leuise Blot, eiginkona leið- angursstjórans, með vélsímann sem sannar að skútunni Pourquoi pas? var sveigt til hægri áður en hún steytti á skeri og sökk. Ljósmyndari leiðangursins myndaði alla munina úr skútunni, þ.á m. þessi byssuskoL Jean-Yves Blot, leiðangursstjóri, ásamt kvikmyndatökumanni, býr sig undir kvikmyndatöku á þeim slóðum er skútan sökk. Leiðangursstjóri ráðfærir sig við einn samstarfsmanna. Fremst á myndinni má sjá nokkra muni úr flakinu. Vínflaskan Lh. er enn full af frönsku eðalvíni. ... Ljtan. Mbl./ Árni Ssberg. Jean-Yves Blot. „Á honum er unnt að sjá að síðasta hreyfing skút- unnar hefur verið á stjórnborða.“ Orð skipsbrotsmannsins hafa landar hans því sannað 48 árum síðar. Jean-Yves sagði mikið álag hafa fylgt starfinu hér á landi og leið- angursmenn hefðu ekki séð Island nema gegnum myndavél eða kaf- aragleraugu. „Sjórinn var kaldur, en þó ekki jafn kaldur og við bjuggumst við,“ sagði hann. „Við höfðum einnig ætlað okkur að haf- ast við í tjöldum, en sem betur fer fengum við inni í íþróttahúsinu á Akranesi. Það er hætt við að ann- ars hefðu tæki og menn verið orð- in ansi slæpt eftir rigningarnar undanfarið," bætti hann við og brosti. Frakkarnir luku við kvikmynda- tökur hér á landi á sunnudag, en auk myndatöku hér verða nokkur atriði tekin í Frakklandi. Myndin á að vera tilbúin til sýninga 1986, en þá eru liðin 50 ár frá skipbrot- inu. Mögulegt er að íslendingar fái að sjá árangur erfiðis Frakkanna hér á landi í íslenska sjónvarpinu það ár. Munirnir úr flaki skútunn- ar verða í vörslu Þjóðminjasafns- ins í Reykjavík. Jean-Yves Blot vildi að lokum koma á framfæri þökkum til allra íslendinga, sem lagt hafa þeim lið og kvaðst mjög ánægður með mót- tökur hér á landi. „Sá Pourquoi pas? síð- ast í blíðskaparveðri“ — segir Páll Björnsson, háseti á línuveiðaranum Sigríði 1936 „ÞENNAN dag lágu skipin sitt hvoru megin við Grófarbryggjuna, sem við kölluðum alltaf Sprengi- sand,“ sagði Páll Björnsson, sem var háseti á línuveiðaranum Sig- ríði, 150 tonna skipi, sem hélt til veiða sama dag og skútan Pourqu- oi pas? sigldi frá Reykjavík, í sept- ember 1936. „Það eru margir sem halda að Pourquoi pas? hafi verið að koma beint frá Grænlandi, en hið sanna er að skútan lá í Reykjavíkurhöfn í nokkra daga áður en hún hélt áleiðis til Frakklands", sagði Páll. „Við á Sigriði sáum síðast til skútunnar í blíðskaparveðri. Hún sigldi út úr höfninni um hálftíma á und- an okkur upp úr hádeginu. Við unnum á dekkinu en síðdegis skall á kolvitlaust veður og við vorum að baksa alla nóttina út af Snæfellsnesi. Síðan leituðum við í var og morguninn eftir vor- um við undir Ólafsvíkurenni. Það var slæmt veður marga daga á eftir en við urðum nú ekki fyrir teljandi skakkaföllum, a.m.k. héldum við áfram veiðum. Einn skipsfélaga minna , sem hafði verið mörg ár á sjó, hafði nú samt á orði að hann myndi ekki setja hvít rúmföt í kojuna sína aftur, því að í verstu hryðjunum kom sjór í hana.“ Páll Björnsson og skipsfélagar hans voru því ólíkt heppnari en áhöfnin á frönsku rannsókn- arskútunni, sem fórst í þessu sama ofsaveðri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.