Morgunblaðið - 02.08.1984, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 02.08.1984, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984 Rustafengin reisa Kvikmyndír Sæbjörn Valdimarsson Chevy Chase og Beverly D’Angelo í merkilegu ferðalagi um vesturríkin í myndinni „Ég fer í fríið“ í Austurbæjarbíó. Austurbæjarbíó: Ég fer i fríið („National Lampoon’s Vacation") ★ ★'A Leikstjóri: Harold Ramis. Handrit: John Hughes. Kvikmyndataka: Victor J. Kemper. Tónlist: Ralph Burns. Aðahlutverk: Chevy Chase, Beverly D’Angelo, Anthony Mic- hael Hall, Imogene Coca, Randy Quaid. Sýningartími: 98 mín. Frumsýnd 1983. Bandarísk, fri Warner Bros. Háðfuglarnir sem standa á bak við skopblaðið National Lampoon hafa gert nokkrar kvikmyndir á siðustu árum. M.a. þá ágætu N.L. Animal House og jafn lélegu N.L. Class Reuninon. Nú er röðin komin að N.L. Vacat- ion og að venja eru það kraftar úr Saturday Night Live sjónvarps- þáttunum sem fara með aðal- hlutverkin báðum megin mynda- vélarinnar. Að þessu sinni tekst flestum virkilega vel upp. Ég fer í fríið er bráðfyndin á sinn rustafengna hátt. Við fylgjumst með ósköp venjulegri, bandarískri fjöl- skyldu í sinu árlega sumarfrii. Það er skemmst frá því að segja að það fer allt i handaskolum og á annan veg en ætlað var, sjálf- umglaður og klaufskur eigin- maðurinn (Chevy Chase), missir allt úr böndunum. Hér er gert púragrín að frí- tímamunstri meðalhjóna. Ferð- inni er heitið frá Chicago til „Wally World" í Californiu. óheppnin eltir söguhetjurnar á röndum, allt frá því að þau fá rangan bíl afgreiddan i upphafi, uns til Wally World er komið og þessi gríðarlegi skemmtigarður er lokaður um stundarsakir, vegna viðgerða — svo Chase grípur til örþrifaráða... Ég fer í friið er röð af uppá- komum, sem velflestar eru hlægilegar i orðsins fyllstu merkingu. Fyndnustu atriðin eru þegar Chase heimsækir frænd- fólk sitt í dreifbýlinu, ferðalagið með frænku gömlu og þá einka- nlega óhöppin i eyðimörkinni — sem reynist vera Monument Valley, án vitundar fararstjór- ans og heimilisföðurins!, svo og endalokin í „Walley World". Sem að líkum lætur eru önnur ekki jafn fyndin, eða kannski full „amerísk" fyrir okkar smekk. Ég get til dæmis ekki séð hvaða tilgangi nærvera hinnar íðilfögru fyrirsætu Christie Brinkley þjónaði. Henni rétt bregður fyrir, uppá punt? Sjálfsagt þykir einhverjun fyndnin í grófari kantinum, líkt og þegar hundskömmin gleym- ist, hnýtt aftan í bílinn, eða þeg- ar frænka gamla hrekkur uppaf og er flutt á toppnum til síns heima. Skilin þar eftir á verönd- inni í ruggustól, bíðandi heimil- isfólksins með regnhlíf í úrfell- inu! En þetta er línan sem Nat- ional Lampoon gefur, og þrátt fyrir að hún sé ekki beinlínis smekkleg á köflum þá verður grínið oftast ofaná. Þar kom að því að Chase sýnir að hann er i rauninni ágætis gamanleikari — ef efnið er fyrir hendi. Beverly D’Angelo hefur úr fátæklegra hlutverki að moða sem hin samvinnuþýða eigin- kona. Fær naumast tækifæri til að viðra kyntöfrana, hvað þá heldur annað. Randy Quaid er óborganlegur sem Eddie frændi og þau standa sig einnig dável Imogene gamla Coca og Anthony Michael Hall. „Ég fer í fríið“ er í flesta staði meinfyndið og eftirminnilegt ferðalag. Franskt geimskip í Regnboganum Kvikmyndir ÓlafurM. Jóhannesson Handrit: Jacques Vilfred. Kvikmyndun: Alain Darbon. Tónlist: Raymond Lefevre. Leikstjóri: Jean Girault. Sýnd í Regnboganum. Hvað ætli myndi gerast, ef eitthvert okkar kæmi hlaupandi um bæinn, hrópandi upp þá fregn að ... fljúgandi diskur væri sestur á mosabarð uppi Heiðmörk? Ætli slíkur hrópandi í eyðimörkinni fengi ekki álíka móttökur og sá sem segðist hafa hitt frelsara vorn endurborinn? Ég er næstum viss um að slíkum hrópanda yrði skutlað í meðferð, enda álitinn haldinn tunglsýki eður messíasarkomplex. I nýj- ustu kvikmynd Regnbogans, Löggan & Geimbúarnir, kynn- umst við einum slíkum hróp- anda, nánar tiltekið á hinni sól- ríku Saint-Tropes-strönd Suð- ur-Frakklands. Maður þessi hef- ir því borgaralega hlutverki að gegna, að halda uppi löggæslu við hina fögru strandlengju og dag einn þegar hann ekur um sveitir i nafni embættisins, slokknar á mótor embættisbíls- ins. Hér er auðvitað að verki hinn fljúgandi diskur sem áður gat, en ekki er sopið kálið þótt i ausuna sé komið, þvi ekki trúir nokkur maður blessaðri lögg- unni, þá hún kemst loks heim við illan leik, og færir fréttir af undrum og stórmerkjum annars heims. Spinnst síðan söguþráður myndarinnar i kringum eltinga- leik löggunnar viö geimbúana, sem gæddir eru þeim hæfileika að þeir geta tekið á sig mennskt gervi að vild. Ekki get ég sagt með góðri samvisku að ég hafi haft mikið gaman af tiltektum löggumanns- ins, er Louis De Funes leikur, og geimbúanna sem eru í höndum síður þekktra leikara. Einstaka sinnum gat ég reyndar brosað útí annað, en einhvernveginn fannst mér einsog frönsku leik- ararnir sem þarna böksuðu við að mæla á enskri tungu — væru hreint ekki í essinu sínu. Kannski skárra að þeir héldu sig við móðurmálið blessaðir, og vafalaust er Louis De Funes, mikill brandarakarl á rómanska vísu. En sá húmor, sem karl er þekktur fyrir í heimalandi sínu, er kannski ekki endilega heims- markaðsvara. Samt er Louis De Funes alls góðs maklegur, slík- um þyrnum er listabraut þessa þrautseiga franska leikara vörð- uð. En þar sem saga De Funes er efni í nýja grein, læt ég hér stað- ar numið umfjöllun um þessa franskættuðu „gríngúrkumynd", sem ég er næstum viss um að hafa barið augum einhverntím- ann í fyrndinni. En nú er von að „gúrkutíð” sloti senn í Regnbog- anum, þvi ekki sá ég betur en kvikmyndin Fanny och Alexand- er, þetta lífsuppgjör Bergmanns, sé komin í viðbragðsstöðu í A-salnum. 4x í viku í 3 vikur Og nú hætta allir aö slóra! Suöurver opnar meö fullum krafti. Tímar 4x í viku í 3 vik- ur 13.—30. ágúst. ★ Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri. ★ Morgun — dag — kvöldtímar. ☆ Lausir tímar fyrir vaktavinnufólk. ★ Sturtur — sauna — Ijós. Þú finnur örugglega flokk viö þitt hæfi ( Suöurveri. Byrjendur — framhald eöa rólegri æfingar. Innritun í síma 83730 frá kl. 9—18 í dag og 7.—8.—9. ágúst. OIO j O PTO O O EH o c HH 0X0 Bolungarvík: Verkalýðs- og verzlunar- mannafélögin sögðu samn- ingunum upp Bolungarvík, 31. júlí. VERKALÝÐS- og sjómannafélag Bolungarvíkur og Verzlunarmanna- félag Bolungarvíkur bafa samþykkt að segja upp launaliðum gildandi kjarasamninga sinna. Aðeins um 13% félaga f Verkalýðs- og sjó- mannafélaginu tóku þátt f allsherjar atkvæðagreiðslu um uppsögnina, en hún stóð í þrjá daga. Allsherjar atkvæðagreiðslan stóð yfir frá klukkan 13 til 19 á föstudag, 10 til 19 á laugardag og 10 til 16 á sunnudag. Alls kusu 43 og voru 38 fylgjandi uppsögn en 5 voru henni andvígir. Atkvæða- greiðsla þessi var mjög vel aug- lýst, bæði með götuauglýsingum og í útvarpi auk vinnustaðafunda, þar sem staða mála var rædd. Kemur þessi dræma þátttaka því nokkuð á óvart. Á félagsfundi 1 Verzlunar- mannafélagi Bolungarvíkur 1 gærkvöldi var uppsögn samning- anna ennfremur samþykkt. Alls mættu 11 manns á fundinn, eða um 25% félagsmanna og sam- þykktu þeir uppsögnina sam- hljóða. Gunnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.