Morgunblaðið - 02.08.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
21
EFTIR EGGERT H. KJARTANSSON
og þeim Millet, Lehrmitte og
Michel Ange finnst þeir vera.
Segðu honum að vilji minn sé að
læra að vinna líkt og þeir, með
slíkum frávikum og breytingum
á raunveruleikanum að það megi
verða, nú já, lygi ef menn vilja,
en — virði hinn fullkomna
sannleika."
í málaralist sinni náði Van
Gogh meiri og meiri hæfni í því
að mála sinn eigin sannleika.
Allt sitt líf seldi Van Gogh að-
eins eitt málverk og það var síð-
asta árið sem hann lifði. Þegar
hann dvaldi i Parfs skrifaði
hann að hann hefði gjarna unnið
með fyrirsætum ef hann hefði
haft peninga til þess. Þar sem
hann hafði enga peninga, málaði
hann blómin „til þess að reyna
að endurskapa kröftuga liti en
ekki gráma meðalmennskunn-
ar“.
Van Gogh málaði eigin sann-
leika og það er þessi sannleikur
sem hrífur þá gesti sem heim-
sækja sýninguna. Um eitt af sin-
um verkum, „Kornakurinn með
sláttumanninum og sól“ frá 1889
skrifaði Van Gogh: „Ég tókst á
við dúkinn, nokkrum dögum áð-
ur en veikindi min byrjuðu,
hugmyndin bakvið verkið er fal-
leg og einföld. Ég sá þá í þessum
sláttumanni, óljósa persónu sem
hamaðist eins og ljón i miklum
hita við það að komast í gegnum
verk sitt, ég sá þá mynd dauðans
í þeirri merkingu að korn akurs-
ins var mannleg náttúra sem
slegin var. Það er sem sagt — ef
þú vilt — hið andstæða við sán-
ingarmanninn sem ég reyndi að
mála áður fyrr. í þessum dauða
er ekkert sorgmætt, þetta gerist
í dagsbirtu og gullnum geislum
sólarinnar."
Víst er að þær myndir sem nú
hafa verið teknar fram úr
geymslunni verða ekki til sýnis
aftur næstu árin. Hætt er við að
vegna ljósnæmni geti þær skað-
ast. Sýningin er opin fram til 2.
september.
Vegurinn með cyprus og stjörnum. Olfulitir á dúk, 1889—’90.
Skagafjörður:
Fjölmennt kristniboðsmót
MikUbte, Skaganrði. í júlf.
FJÖLMENNT kristniboðsmót var
haldið dagana 20.—22. júlí að
Löngumýri í Skagafirði. Þátttakend-
ur voru víðsvegar af Norðurlandi og
slógu mótsgestir upp tjöldum f garð-
inum fagra, sem prýðir staðinn.
Kristniboðar sögðu frá reynslu sinni
og sýndu litskyggnur frá starfinu í
Afríku (Kenýa).
Langamýri er í eigu þjóðkirkj-
unnar og þar fer fram félagslegt
starf af ýmsu tagi. Frá vori fram á
haust dvelja þar hópar aldraðra.
Hver hópur samanstendur af
rúmlega 30 einstaklingum sem
dvelja 10 daga í senn.
Yfir vetrartímann er Langa-
mýri miðstöð kirkjulegs starfs í
Skagafirði, og reyndar Norður-
landi vestra. Þar eru haldin æsku-
lýðsmót, fermingarbarnamót,
námskeið ýmis konar, ráðstefnur
og fundir og fl. Einnig fer þar
fram heimilisfræðikennsla frá
Varmahliðarskóla. Þessari öflugu
starfsemi stýrir Margrét K.
Jónsdóttir, forstöðukona.
Með tilstuðlan góðra manna var
sundlaug tekin i notkun á Löngu-
mýri fyrir nokkrum dögum og
bætir hún ennþá góða aðstöðu þar.
Og ekki er ónýtt að geta kælt sig
niður, þegar hitinn er um 20°C
dag hvern. Slikt veður kunna
bændur einnig að notfæra sér og
eru nú óðum að fylla hlöður sínar
og ljúka fyrstu yfirferð í heyskap.
Ef að likum lætur munu bændur
slá upp þau tún, sem slegin voru
snemma í júlí, og fer þá seinni
sláttur fram um eða upp úr miðj-
um ágúst.
Jöfn og þung umferð er um
þjóðveg nr. 1 og margir bílar
draga hjólhýsi eða tjaldvagna á
leið úr eða i sumarfrí.
Þórsteinn
Morgunblaðid/Þorsteinn.
Kristniboðarnir sem störfúðu í Kenýa og Eþíópíu, Kjartan Jónsson og Valdís
Magnúsdóttir, og börn þeirra, Skúli Svavarsson og Kjelbrún Svavarsson
ásamt börnum sínum og Helgi Hróbjartsson og Margrét Hróbjartsdóttir.
fttot&tsstMafeife
Áskriftarsíminn er 83033
úrval af nykomnum skom,
samfestingum o.m.fl.
á góöu verði
t/ ■
Laugavegi 24, s. 12880