Morgunblaðið - 02.08.1984, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
Kjólar — Kjólar
Vorum aö taka fram enska sumarkjóla. Seljum enn-
fremur nýja enska kjóla á kr. 450, 500 og 600.
Verslunin Dalakofinn,
Linnetstíg 1, Hafnarf., s. 54295.
_____________________________________✓
„Lukkudagar“
Vinningsnúmer 1,—31- júlí 1984:
1 14704 11
2 30545 12
3 13316 13
4 20500 14
5 32851 15
6 14763 16
7 33079 17
8 06639 18
9 48448 19
10 25255 20
4603 21 29574
5154 22 58532
47187 23 5826
54465 24 4174
35048 25 06620
24879 26 53365
39266 27 41001
37186 28 47833
19933 29 54310
02001 30 12013
31 25509
Vinningshafar hringi í síma 20068.
——
Pillðna
á rúðusprautuna
Hún eróbrigðult meðal við
óhreinum framrúðum!
Olíufélagið hf
Splendo pillan fæst á bensínstöðvum ESSO
* Áskriftarsíminn er 83033
Enginn vandi að selja
kerti ef verðið skiptir engu
— segir Kristinn Björnsson um nýja kertaverksmiðju í Vestmannaeyjum
„EF UM venjulegan aðila væri að
ræða, sem væri með verksmiðju af
þessu tagi, eins og hvert annað fyrir-
tæki, þá þýddi ekkert fyrir okkur að
barma okkur, því hann þarf að híta
sömu lögmáium markaðarins og við,
en í þessu tilfelli er því ekki til að
dreifa,“ sagði Kristinn Björnsson
framkvæmdastjóri, Nóa-Síríusar og
Hreins hf. þegar hlaðamaður Morg-
unblaðsins innti hann eftir áliti hans
á fyrirhugaðri kertaverksmiðju í
Vestmannaeyjum, en hún á að hefja
framleiðslu í september og er reist á
kostnað Framkvæmdasjóðs fatlaðra.
í Morgunblaðinu síðastliðinn
laugardag var frá því greint að
Framkvæmdasjóður fatlaðra hef-
ur kostað uppsetningu kertaverk-
smiðju í Vestmannaeyjum, sem
hlotið hefur nafnið, Heimaey og er
verndaður vinnustaður. Verk-
smiðjan verður í nýju eigin hús-
næði, er metið var um síðustu ára-
mót á 4,6 milljónir króna, og auk
þess munu vélar kosta um 500 þús-
und danskar krónur, eða tæplega
1,5 milljónir íslenskra króna. Þá
hefur Heimaey fengið, samkvæmt
upplýsingum Bjarna Jónassonar
framkvæmdastjóra verksmiðj-
unnar, fyrir því loforð frá ríkis-
sjóði að uppsetning véla, markað-
söflun og „allt annað" verði fjár-
magnað.
„Svo virðist sem forráðamenn
Kristinn Björnsson
Heimaeyjar," sagði Kristinn
Björnsson, „hafi sjálfdæmi um
hvaða vélar þeir kaupa. Og auðvit-
að væri það æskilegt að venjuleg
fyrirtæki gætu gert það einnig, til
þess að vera betur samkeppnisfær
við innflutninginn. Það sem við
hjá Hreini hf. erum fyrst og
fremst hræddir við er að ef
Heimaey þarf ekki að reikna út
sitt verð samkvæmt þeim stofn-
kostnaði sem settur hefur verið í
fyrirtækið og föstum rekstrar-
kostnaði, getum við ekki keppt við
Heimaey.
Bjarni Jónasson kom að máli
við mig, ásamt Ingibjörgu Hall-
dórsdóttur í Norðurljósum, sem
einnig framleiðir kerti, og tjáði
hann okkur að ef við værum til í
að eiga samvinnu við hann, þá
væri það gott, ef ekki þá sagði
hann að við yrðum að þola sam-
keppnina við Heimaey. Bjarni tók
það einnig fram að Heimaey er
ekki bundin við eitt eða neitt frá
hendi opinberra aðila, og verð-
lagningu verður þannig háttað að
kertin seljist. Hinir dönsku ráð-
gjafar Heimaeyjar segjast vera
búnir að tryggja útflutning 70%
framleiðslunnar til Norðurland-
anna, sem mér finnst vera með
ólíkindum, vegna þess að þeir
framleiðendur kerta sem hafa ver-
ið í hvað harðasti samkeppni við
okkur íslensku framleiðendurna
eru frá Norðurlöndunum. Þeirra
framleiðsla er oft miklu ódýrari
en okkar, þrátt fyrir að tilkostnað-
ur hér sé i lágmarki, þar sem við
erum fyrir löngu búnir að afskrifa
vélar og hús. Það er hins vegar
ekkert mál að selja kerti til út-
flutnings ef söluverð skiptir
engu.“
Áð sögn Kristins Björnssonar,
vinna að meðaltali 8—12 manns
hjá Nóa-Síríus og Hreini hf. sem
vegna skertrar starfsorku eiga
erfitt að fá vinnu á almennum
vinnumarkaði. Þessu fólki er borg-
uð nákvæmlega sömu laun og öðr-
um. „Ef við þurfum hins vegar að
fara að draga saman seglin, vegna
þeirrar samkeppni er við fáum frá
Heimaey, sem ætlar að því er
Bjarni Jónasson segir að fram-
leiða „góðu gömlu Hreinskertin",
þá er hætt við að það bitni á þeim
er hafa skerta starfsorku, ef til
uppsagna kynni að koma, sem er
þvert á stefnu forráðamanna
Nóa-Síríusar og Hreins hf.,“ sagði
Kristinn Björnsson að lokum.
Stykkishólmur:
Mikið að gera á hótelinu
Stykkishólmi, 31. júlí.
ÞAÐ SEM af er sumri hefur verið
mikið að gera á hótelinu í Stykkis-
hólmi og ekki sízt fyrir það hversu
góð kjör og aðbúnað hótelið býður
gestum sínum.
Um helgar býður það gistingu í
tvær nætur með morgunmat og
sjóferð út á Breiðafjörð fyrir tæp-
ar 2.000 krónur. Vilji menn fram-
lengja tímann, greiða þeir 700
krónur til viðbótar hver maður
fyrir nótt og morgunmat. Margir
hafa notfært sér þetta og virðast
allir ánægðir. Hótelstjórinn sagði
mér, að þetta væri meðal annars
viðleitni hótelsins til þess að
lækka ferðakostnað um landið og
gera ferðir ekki dýrari en til út-
landa.
VERÐTILBOÐ
SUIHARSINS
Þetta fallega bíltæki, meö
LW—MW—FM stereo og kassettu,
á aðeins
Kr. 3.985,-
Passar í flestar geröir bifreiöa og
aö sjálfsögöu í Subaru.
10 aörar gerðir af bíltækjum,
kraftmagnarar og mikiö úrval af
hátölurum. ísetning á staönum.
D i .i
ÍXdUlO
ARMUIA 38 iSelmúla megirn - 105 REYKJAVIK
SIMAR 31133 83177- POSTHOLF 1366
é
• STEREO.MONO