Morgunblaðið - 02.08.1984, Page 26

Morgunblaðið - 02.08.1984, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984 ^SFOKT GALLAR SUMAR- &BAUSI nSKAN 'J'°a *£S3fo3, ^el se^'P0 paö^^p f\anós\';aa0 SWJÖa^ -o^-Spo^ ga*gy&*** — S'^9 \ lt0ort93"a'n' ------^,rwa'artO'- W ; ^lrt'e' Sport kma¥^ Drafnarfelli 12 - Laugavegi 97 • Póstkröfusími 91-17015 Metsölublad á hverjum degi! AF ERLENDUM VETTVANGI eftir MATTHEW C. VITA Gwiazda (fyrir miðju), einn af sjö forystumönnum Samstöðu, sem látnir hafa verið lausir úr fangelsi undanfarna daga. Pólland Andstaðan minnkar lítið þrátt fyrir sakaruppgjöf SÚ ÁKVÖRÐUN pólsku stjórnarinnar að láta mörg hundruð af hörðustu andsUeðingum sínum lausa, endurspeglar bæði traust hennar á getu sinni til þess að kæfa alla óánægju heima fyrir og jafnframt löngun til að Pólland fái annað og betra álit á Vesturlöndum, en verið hefur. Innan nokkurra vikna eiga fjölmargir pólitískir fangar — þeirra á meðal sjö af forystu- mönnum Samstöðu — að vera lausir úr fangelsi samkvæmt al- mennum lögum um sakarupp- gjöf handa 35.000 föngum, sem flestir hafa hlotið dóm fyrir minni háttar afbrot og brot í fyrsta sinn. Margir hinna 652 pólitísku fanga voru meðlimir eða stuðn- ingsmenn Samstöðu, samtaka frjálsu verkalýðsfélaganna og voru handteknir, er samtök þeirra voru bönnuð samtímis þvl sem herlög voru sett í Póllandi í desember 1981. Leiðtogar kaþ- ólsku kirkjunnar i landinu jafnt sem margir forystumenn and- stæðinga stjórnarinnar eru sam- mála um, að sakaruppgjöfina beri að virða sem mikilvæga við- leitni til sátta af hálfu kommún- istastjórnarinnar I landinu gagnvart andstæðingum hennar. Þeir viðurkenna einnig, að sú pattstaða, sem pólskt samfélag stendur frammi fyrir, mun halda áfram, ef ekki koma til frekari sáttaaðgerðir, en ólíklegt er tal- ið, að til þeirra eigi eftir að koma. „Stóra spurningin er nú, hvort þetta sé síðasta skrefið I sögu herlaga i landinu eða fyrsta skrefið I átt til sátta,“ var haft eftir einum Pólverja nú ( vik- unni, sem vitað er, að hefur náin tengsl við stjórnarandstöðuna. „Væri síðari tilgátan rétt, myndi það þýða samninga um skoðana- frelsi í fagfélögunum, sem væri upphaf á stjórnmálalegri lausn vandamálanna og hefði í för með sér pólitiskan frið í landinu." Ekki merki um umburðarlyndi Wojciech Jaruzelski hershöfð- ingi og leiðtogi kommúnista- stjórnarinnar varaði hins vegar við því 21. júlí sl., eftir að pólska þingið hefði samþykkt sakar- uppgjöfina, að hún væri ekki merki um nýtt umburðarlyndi gagnvart pólitískri andstöðu i landinu. „Lögin um sakarupp- gjöfina, sem samþykkt voru i dag, eru tákn um mannúð og samtímis tákn um styrk rikis- ins,“ sagði Jaruzelski í ræðu á þinginu og bætti þvi við, að þetta myndi ekki milda „viðhorf stjórnvalda til starfsemi, sem andstæð væri ríkinu." Embættismenn stjórnarinnar hafa einnig sagt, að samninga- viðræður verði ekki teknar upp að nýju við Samstöðu. Leiðtogar hennar fögnuðu sakaruppgjöf- inni, en báru fljótt fram nýjar kröfur um að frjáls verkalýðs- félög fái að starfa aftur. „Það verður að skýra það nánar, hvað átt er við með viðræðum,“ sagði háttsettur embættismaður i við- tali nú í vikunni. „Ég sé engan tilgang í viðræðum við fifl. Ef þetta þýðir viðræður við Walesa, þá eru engir möguleikar á árangri." Lech Walesa, leiðtogi Sam- stöðu, tók undir það með sex öðr- um þekktum forystumönnum samtakanna, þeirra á meðal Zbigniew Bujak, sem farið hefur huldu höfði, að þakka bæri „öll- um heima fyrir og erlendis", sem studdu sakaruppgjöfina. „Við lýsum því yfir afdráttarlaust, að frjáls verkalýðsfélög og mann- réttindi eru nauðsynleg skilyrði fyrir því, að unnt verði að leiða land okkar burt úr stjórn- málalegri og efnahagslegri kreppu,“ segir i yfirlýsingu þeirra. Krafan um frjáls verkalýðsfélög Án tilslakana gagnvart kröf- unni um frjáls verkalýðsfélög eiga fangelsin eftir að fyllast af pólitiskum föngum á nýjan leik. „Ekkert hefur verið gert til þess að koma í veg fyrir, að menn verði gerðir að pólitískum föng- um,“ var haft eftir einum af fé- lögum Samstöðu fyrir nokkrum dögum. Talsmaður stjórnarinnar, Jerzy Urban, lagði á það áherzlu á fundi með fréttamönnum 21. júli, að sakaruppgjöfin ætti að- eins rót sína að rekja til þess mats stjórnvalda, að ástandið innanlands væri orðið nógu tryggt til þess að unnt væri að láta pólitiska fanga lausa. Það er samt sem áður ekkert leyndarmál, að ein helzta ástæð- an fyrir sakaruppgjöfinni var að knýja Vesturlönd og þá einkum Bandaríkin til þess að aflétta efnahagslegum refsiaðgerðum, sem gripið var til, eftir að lýst var yfir herlögum 13. desember 1981, sem bönnuðu starfsemi Samstöðu. Bandarískir embættismenn hafa gert pólsku stjórninni það ljóst, að pólitísku fangarnir i Pollandi væru ein helzta hindr- unin i vegi fyrir þvi, að dregið yrði úr refsiaðgerðunum, sem Jaruzelski heldur fram, að kost- að hafi Pólverja 13 milljarða dollara. Vestrænir sendistarfsmenn jafnt sem forystumenn stjórnar- andstöðunnar benda á, að stjórnvöld hafi mikið að vinna en litlu að tapa með þvi að láta pólitiska fanga lausa, sem þeir halda fram, að hafi verið orðnir að byrði fyrir stjórnina. Hræðir engan lengur „í Póllandi er ekkert mark tekið á þér, nema þú hafir verið í fangelsi,“ er haft eftir einum leiötoga Samstöðu, sem látinn var laus úr fangelsi, er lýst var yfir sakaruppgjöf að hluta i júli 1983. „Að halda fólki i fangelsi, hræðir engan lengur. Það verður aðeins stjórnarandstöðunni til- efni til aðgerða." „Áhrif sakaruppgjafarinnar eru afar jákvæð i þeim tilgangi að koma til móts við Vesturlönd og koma á kyrrð innanlands," var haft eftir vestrænum sendi- starfsmanni nú i vikunni. Þeir 35.000 fangar, sem látnir hafa verið lausir, eru um 40% af öll- um föngum landsins, en þeir eru um 85.000. Mattbew C. Vit* er fréttamaður rið fréttastofuna Associated Press.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.