Morgunblaðið - 02.08.1984, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 02.08.1984, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984 ísrael: Þjóðstjórn gæti orðið ofan á Jorú.salem, 1. ágúst AP. SHIMON Peres, formaður Verka- mannaflokksins og Yitzhak Shamir, forsætisráðherra Israels, áttu með sér 4 klukkustunda langan fund í dag þar sem þeir ræddu möguleika á því að mynduð yrði þjóðstjórn í land- inu. Þeir Peres og Shamir hittust þarna í fyrsta skipti síðan í kosning- unum á dögunum, en fundurinn var haldinn að áeggjan Chaim Herzogs forseta landsins. Sem fyrr segir stóð fundurinn yfir i fjórar klukkustundir, en lítið fréttist um hvað þeim Peres og Shamir fór á milli. Stutt frétta- tilkynning var gefin út í fundarlok og þar var þess getið að það væri með vilja gert að halda viðræðum þeirra leyndum, það gerði frekari fundarhöld auðveldari. Þeir hitt- ast aftur á morgun, fimmtudag og er þá vonast til þess að línur skýr- ist betur en nú er. í tilkynning- unni stóð einnig, að báðir aðilar hefðu lýst yfir vilja sínum til þess að þjóðstjórn gæti sest að völdum. Á fundinum á morgun verður ein- kum rætt um efnahags- og félags- mál. Angóla: Sovésku skipi sökkt í höfn Lwmboi 1 íjrúsL AP SKÆRULIÐAR í Angóla sögðust í dag hafa með sprengiefni sökkt sovésku flutningaskipi, og nánast eyðilagt annað kúbanskt í lok síð- ustu viku í höfninni í Luanda, höf- uðborg Angóla. í tilkynningu hreyfingar skæruliða, Unita, sem berst fyrir frelsi Angóla, segir að flutn- ingaskipin tvö hafi verið sprengd í loft upp 27. júli sl. Hafi hið kúbanska verið með hergögn, en hið sovéska með blandaðan varning. Þetta er í fyrsta sinn sem Unita játar á sig skemmdarverk í Luanda í átta ár, eða sfðan skæruliðahreyfingin hóf að berj- ast gegn hinni marxísku stjórn landsins. Eitt helsta markmið Unita er að hinir 25 þúsund Kúbanir, sem nú eru í Angóla, hverfi þaðan á brott. Annað járnbrautarslys í Bretlandi Birtley. Knelindi, I. ágúst. AP. LEST, sem var á leiðinni frá Leeds til Edinborgar, fór út af sporinu í dag skammt frá Newcastle með þeim afleiðingum, að 26 farþegar slösuðusL Þetta var annað lestarslysið á tveimur dögum í Bretlandi, en í hinu fyrra fórust 13 farþegar og 44 slösuðust. Enginn þeirra sem lenti í lest- arslysinu i dag slasaðist alvar- lega. Lestin, sem að öllu jöfnu hefði átt að vera á miklum hraða, var á hægri ferð þegar slysið átti sér stað vegna bilunar annarrar lestar á sama spori. Verkamannaflokkurinn, sem er I stjórnarandstöðu, krafðist opinberrar rannsóknar á lestar- slysinu og gaf í skyn að það mætti rekja til niðurskurðar á viðhaldi járnbrauta. Liðsandi írana sagður í molum Rússar sitja við sinn keip Moskvu, 1. ágúst AP. YFIRMAÐUR Bandaríkjadeildar sovézka utanríkisráðuneytisins, Al- exander A. Bessmertnykh, sagði í dag, að síðustu tillögur Bandaríkja- stjórnar um viðræður um geimvopn, fælu ekki í sér neina breytingu á afstöðu Bandaríkjanna og „væru ekki til þess fallnar að vekja vonir um, að af viöræðum þessum gæti orðið.“ Á fundi með fréttamönnum í dag skýrði Bessmertnykh frá orð- sendingu bandaríska utanríkis- ráðuneytisins, sem afhent var á laugardag. Þar lýsti Bandarlkja- stjórn sig reiðubúna til þess að ganga til viðræðna um geimvopn. Nýtízku fuglahræða: Líkir eftir dauða- skræk starrans Kaupmannahörn, 1. ágú«t. AP. DANSKUR útvarpsvirki telur sig hafa fundið upp tæki, sem Ifki ná- kvæmlega eftir dauðaskræk starr- ans og slái þannig út öll önnur tæki til þess að fæla fugla burt. Erland Jörgensen, 25 ára gamall útvarpsvirki, sem hefur snúið sér að uppfinningum, segir hið nýja tæki búið þeim kosti, að það gefi stöðugt frá sér dauðaskræk starr- ans. Tæki þetta á að kosta 1.000,- 1.500 d. kr. (3.000,- 4.500 ísl. kr.). Hyggst Jörgensen selja tækið til Norður-Ameríku, Evrópu og Ástr- alíu og kveðst vongóður um, að eftirspurn eftir því eigi eftir að verða mikil. UmdáDum, 1. áfúst. AP. HÖFUÐSMAÐUR í franska hernum sem var handtekinn fyrir meinta andstöðu við stjórn Khomeinis erkiklerks fyrir tveimur árum, en slapp síðan úr prísundinni, sagði á fréttamannafundi í Lundúnum í dag, að íranski herinn væri margklofínn í afstöðu sinni til stríðsins við írak, liðsandi væri I molum vegna mikils manntjóns og herinn væri nánast stjórnlaus og því ófær um að gera skipulega árás á frak. Höfuðsmaðurinn, Mohammed Ali Aryafar, sagði fréttamönnun- um að hann hefði verið bæði i land- og sjóher írans í 27 ár. Hann er einn háttsettasti hermaður sem flúið hefur íran, en hann býr nú ásamt fjölskyldu sinni í norður- hluta Frakklands. Aryafar sagði það segja sina sögu, að íranski herinn hefði gert 11 áhlaup á íraka árið 1983, en hefði unnið sáralítið miðað við allan hama- ganginn. „Nú er hálft ár liðið frá því að síðast var látið til skarar skríða, það sýnir best vindleysið," sagði Aryafar. Það var einnig gegnumgangandi í fluntingi Aryafars, að styrrinn innan hersins stæði einkum milli foringja f hernum og ofstækis- fullra byltingarvarða sem stjórn- völd sendu til að hafa eftirlit með hernum. „Það er stanslaus ágrein- ingur og hatur á báða bóga. Smátt og smátt hefur herinn af þessum sökum misst móðinn og er ekki lengur fær um að ganga á hólm með íraska hernum,“ bætti Arya- far við. frönsk stjórnvöld tjáðu sig ekki um ásakanir Aryafars, en ónafn- greindur starfsmaður íranska sendiráðsins í Lundúnum, sagði að þessi maður væri „einfaldlega dauður“. Hann sagði einnig að Aryafar væri af sama sauðahúsi og þeir menn sem hvöttu fraka til að gera innrás i fran án þess að taka með i reikninginn að franski herinn myndi veita mótspyrnu. Walesa ræðir við Gwiazda Varajú, 1. igúnL AP. LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu, og Andrzej Gwiazda, sá úr forystu Samstöðu, sem verið hefur hvað lengst í fangelsi, héldu í dag fyrsta fund sinn, eftir að sá síðarnefndi var látinn laus í síðustu viku. Gwiazda var handtekinn 13. desember 1981, er herlög voru sett i Póllandi og var honum haldið í Rakowiecka-fangelsinu til 21. júlí sl. án þess að mál hans kæmi nokkru sinni fyrir rétt. Hann er 49 ára að aldri. Papandreu dregur í land Aþenu, 1. ágúst. AP. ANDREAS Papandreou, forsætis- ráðherra Grikklands, kallaði í dag Monteagle Stearns, sendiherra Bandaríkjanna, á sinn fund og ræddi við hann f 40 mínútur um áframhaldandi spennu í samskiptum Bandaríkjanna og Grikklands og meintar ásakanir í garð Grikkja í bandarískum blöðum. Matarlausir á Grænlandshafi TVEIR kajakleiðangursmenn, sem um þessar mundir sigla suður með austurströnd Grænlands, eru illa haidnir af matarskorti og verður reynt að varpa niður til þeirra mat úr flugvél. Matarforðinn var svo naumt áætlaður, að reyndin hefur orðið mönnunum erfíð, ekki síst vegna þess, hve ferðin hefur verið mikil þrekraun. Knud Fischer, stöðvarstjóri stuttby lgj uútvarpsstöðvarinnar i Danmarkshavn, hefur stöðugt talstöðvarsamband við leiðang- ursmennina, danskan arkitekt, John Andersen að nafni, og grænlenskan veiðimann, Boas Madsen. Þeir hafa verið á sigl- ingu frá 6. júlí sl. og lögðu af stað frá Station Nord. Ferð þeirra er heitið til Scoresby- sunds og hafa þeir félagar þegar lagt að baki um 500 kílómetra af leiðinni, sem er alls um 1600 kilómetrar. — Ég ætla að reyna að sjá um, að mat verði varpað niður tií þeirra úr flugvél, sem fer norður til Station Nord á laugardag, segir Knud Fischer. — Þetta hefur gengið bæri- lega, hefur John Andersen sagt i samtali við Fischer. — Við höf- um aðeins lent i vandræðum út af matarleysinu og svo höfum við lent í rostungavöðum og fs. Eftir fundinn vildi Stearns sendiherra ekki tjá sig um viðræð- urnar, en sagði við fréttamenn: „Ég er sannfærður um, að hvaða vandamál sem kunna að vera fyrir hendi, þá muni okkur takast að leysa þau með góðum vilja af beggja hálfu. Ég vil leggja áherzlu á, að Bandaríkjamenn og Grikkir eru bandalagsþjóðir og hafa verið það um langt skeið.“ Spenna hefur ríkt í samskiptum þjóðanna að undanförnu í kjölfar verkfalls griskra verkamanna við fjóra herflugvelli Bandaríkja- manna í Grikklandi. ERLENT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.